Alþýðublaðið - 21.10.1975, Blaðsíða 6
Watergate komiö í gagnið
Bíóin
Þaö hefur veriö sagt aö ekkert hafi
reynztHollivúdd jafn mikil blessun og
heimsstyrjöldin siöari og ef dæma skal
eftir þeirri tæplega ársgömlu mynd,
sem Háskólabió sýnir okkur um þessar
mundir, Sér grefur gröf þótt grafi... meö
Jams Coburn vestraleikara i aðalhlut-
verki, þá kann svo að fara að Water-
gatemálið bandariska muni gagna kvik-
myndahandriturum um allnokkra hrið.
The Internecine Projecter framleidd
og skrifuö af Barry Levenson, að þvi er
virðist upp úr fréttum siðustu tveggja
ára. Robert Elliot (Coburn) er á uppleið
i valdakerfinu og viröist vera að nálgast
svipaða valdastöðu og Kissinger hefur.
Hann hefur komið sér upp neti hand-
langara, en hefur sjálfur notið halds og
trausts amerisks auðhrings. Þegar
toppstaðan nálgast þarf að koma að-
stoðarmönnunum fyrir kattarnef, og
það sem Nixon mistókst ætti Kissinger
að takast, þvi hann er klókur, gáfaður
og valdafikinn prófessor — eða var það
Elliot?
Alla vega, það er forvitinn blaða-
maður (kona) með i spilinu og eftir for-
múlunni ætti hún að koma upp um pró-
fessorinn. En það væri synd að ljúka svo
skemmtilega upp byggðri mynd að
skilja ekki eftir hjá áhorfandanum þann
grun, að auðhringurinn, ITT, eða hvað
hann nú heitir i raunveruleikanum eða
sögunni eigi sterkari tök i Kissinger eða
Elliot. Og þar sem Watergatemálinu er
ekki enn lokið, er aö sjálfsögðu ekki
hægt að gera annað en láta imyndunar-
aflið um endinn.
Mynd þessi er reyndar brezk, og dável
gerð og hæfilega spennandi — en minnir
óneitanlega að allri gerð fremur á sjón-
varpsþátt en kvikmynd. En hver veit
nema i kjölfarið fylgi nokkrir sjón-
varpsþættir um hliðstætt efni.
Spánn og Portúgal efst á baugi
SJónvarp
Sjónvarp í kvöld kl. 22.20 /
1 sjónvarpinu i kvöld klukkan 22:20
verður Sonja Diego með þáttinn „Utan
úr heimi”, og fjallar hann um erlend
málefni, sem eru ofarlega á baugi um
þessar mundir. Að þessu sinni verður
fjallað um Spán, og þá aðallega Bask-
ana og birtar myndir úr Baskahéruöun-
um. Einnig verður fjallað um Portúgal,
og I þvi sambandi verður talað við Birnu
Þórðardóttur og Jóhönnu Kristjónsdótt-
ur, en þær voru i Portúgal ekki alls fyrir
löngu. Að lokum verður fjallað um á-
standið i Libanon, og aðeins skyggnzt
inn i baksvið hlutanna þar.
Richard Burton les Ijóð
Utvarp
(Jtvarp i kvöld kl. 23:00
I þættinum ,,A hljóöbergi” sem verð-
ur á dagskrá útvarpsins i kvöld klukkan
23:00, er fjallað um verk eftir tvö ensk
miðaldaskáld. Verk þessi voru flutt i
fyrsta þættinum ,,Á hljóðbergi” i
vetrarbyrjun árið 1965, og er þetta þvi
tiu ára afmæli þáttarins.
Fyrra verkið er eftir Geoffrey Chauc-
er, og heitir það „The pilagrims pro-
gress”. Bók þessi f jallar um gáskafullar
og makalausar sögur sem pilagrimarnir
segja á ferð sinni, þar sem hver pila-
grfmur segir eina sögu. t þættinum i
kvöld er ein af þessum sögum lesin, og
heitirhún „The Miller’s Tale”, eða saga
málarans, og er það mjög skemmtileg
frásögn. Söguna les Stanley Holloway.
Siðara atriði þáttarins er ástaljóð eftir
John Donne. Donne var uppi á svipuðum
tima og Chaucer, en mjög ólikur, þar
sem hann vareinn mestiprestur Breta á
þeim timum og mikill predikari. Donne
byrjaði sem kirkjunnar þjónn nokkuð
seint, og lifði hann þvi veraldlegu lifi
þar á undan, og eru ástakvæði hans
runnin frá þeim timum, en þau eru ein-
hver þau fallegustu ástakvæði sem sam-
inhafa veriö. Lesandi kvæðanna er hinn
frægi leikari Richard Burton, og gerir
hann það sérstaklega vei.
Björn Th. Björnsson, umsjónarmaður
Hljóöbergs.
Björn Th. Björnsson listfræðingur,
sem er umsjónarmaður þáttarins tjáði
okkur það að töluvert væri keypt af
þeim plötum sem i þáttinn eru spilaðar,
eftir að þær hafa heyrzt i honum, þar
sem þær væru margar alveg sérstakar.
Útvarp
Þriðjudagur
21. október
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barnannakl.
8.45: Björg Árnadóttir les sög-
una „Bessi” eitir Dorothy Can-
field i þýðingu Silju Aðalsteins-
dóttur (14). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt
lög á milli liða. Morgunpoppkl.
10.25. Hljómplötusafnið kl.
11.00: Endurtekinn þáttur
Gunnars Guðmundss.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 í léttum dúr. Jón B. Gunn-
laugsson sér um þátt með
blönduðu efni.
14.30 Miðdegissagan: ,,A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen. Þor-
steinn Matthiasson les (6).
15.00 Miðdegistónleikar: islensk
tónlist. a. „ömmusögur”,
hljómsveitarsvita eftir Sigurð
Þórðarson. Sinfóniuhljómsveit
tslands leikur, Páll P. Pálsson
stjórnar. b. Lög eftir Hallgrim
Helgason. Guðrún Tómasdóttir
syngur. Elias Daviðsson leikur
á pianó. c. Balletttónlist eftir
Ama Björnsson úr „Nýársnótt-
inni”. Sinfóniuhljómsveit ís-
lands leikur, Páll P. Pálsson,
stjórnar. d. Lög eftir Björgvin
Guðmundsson, Askel Snorra-
son, Stefán Agúst Kristjánsson
og Jóhann ó. Haraldsson.
Sigurveig Hjaltested syngur,
Ragnar Björnsson leikur á
planó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn. Soffia
Jakobsdóttir sér um timann.
17.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þáttur úr sögu borgar-
skipulags. Liney Skúladóttir
arkitekt flytur siðara erindi
sitt.
20.00 Lög unga fólksins. Sverrir
Sverrisson kynnir.
21.00 Crerlendum blöðum.Ólafur
Sigurðsson fréttamaður tekur
saman þáttinn.
21.25 Sinfónia nr. 4 f G-dúr op. 88
eftir Dvorák. Columbia-sin-
fóniuhljómsveitin leikur, Bruno
Walter stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval” eftir Thor Vil-
hjálmsson. Höfundur les (4).
22.35 Skákfréttir
22.40 Harmonikulög
23.00 A hljóðbergi. a. „The Mill-
er’s Tale eftir Geoffrey Chauc-
er. Stanley Holloway les. b.
Astarlóð eftir John Donne.
Richard Burton les. Dagskrá
þessi var flutt i fyrsta þættinum
A hljóðbergi i vetrarbyrjun
1965.
23.40 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Sjjónvarp
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Lifandi myndir Þýskur
fræðslumyndaflokkur. Þýðandi
Auður Gestsdóttir. Þulur
Ólafur Guðmundsson.
20.50 Þingmál Þáttur um störf
alþingis, sem fyrirhugað er að
birtist annan hvern þrlðjudag i
vetur. Umsjónarmenn eru hinir
sömu og Þingvikunnar i fyrra:
Björn Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.30 Svona er ástin Bandarísk
gamanmyndasyrpa. Þýöandi
Jón O. Edwald.
22.20 Utan úr heimi Þáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umsjónarmaður Sonja
Diego.
23.00 Dagskrárlok.
Jón Ólafsson, lögfræðingin::
ooo
Almenningur undrast þá geig-
vænlegu dýrtiðaröldu, sem und-
anfarið hefur skollið yfir þjóðina.
Þetta er bein afleiðing af aðgerð-
um stjórnvalda.
Gengisfellingar þær, sem rikis-
stjórn og Seðlabanki gerðu 2.
september 1974 og 14. febrúar
1975 voru svo geypilega miklar,
að þær hlutu að hafa stórkostleg
áhrif á allt verðlag i landinu.
Þetta kemur bert i ljós við sam-
anburð á gjaldeyriskaupum fyrir
og eftir gengisfellingarnar. 1
ágúst 1974 kostuðu 1000 danskar
krónur 16.346.50 islenzkar. 1 mai
1975 kostuðu 1000 danskar krónur
27.206.50, en það er hækkun, sem
nemur kr. 10.860.00 islenzkum og
það verður 66,436% hækkun á um-
ræddum 1000 dönskum krónum.
Þessi samanburður er i fullu
samræmi við útreikning i Hagtið-
indum Nr. 10/1974 og nr. 7/1975. I
fyrra tilvikinu er talið, að hækkun
erlends gjaldeyris hafi yfirleitt
numiö 41,41% og í siðara tilvikinu
25,02% — þ.e. samtals 66,43%. Ég
vek athygli á þvi, að hér er um
hrein gjaldeyriskaup að ræða
(samanburð), en áhrif á verðlag i
landinu verða enn voldugri þegar
um kaup á erlendri vöru til lands-
ins er að ræða.
Verðrýrnun sparifjár
að 2/3
- Með gengisfellingunum er
sparifé almennings lækkað að
verðgildi sem samsvarar verð-
hækkun erlenda gjaldeyrisins,
þ.e. 66,43% (raunar mætti telja
þetta 2/3 hluta, 66,66%, mismun-
urinn er svo litill). Þetta er svo
stórkostlegt verðhrun sparifjár-
ins, að undrun sætir og sparifjár-
eigendur eru svo grátt leiknir, að
þvi verður ekki með orðum lýst.
Ég vil benda á það almenningi til
fróðleiks og yfirvegunar, að
spariinnlán landsmanna voru tal-
in nema um 26,6 milljörðum
haustið 1974 (Hagtiðindi). Verð-
lækkun þessa fjármagns við
gengisfellingarnar nemur 17,67
milljörðum króna.
Allir eru sammála um, að
sparifjárinnistæður séu eign.
Skerðing þessara eigna er þvi
stórfelld eignaupptaka. Sam-
kvæmt lögum nr. 10 frá 29. marz
1961 er Seölabanki Islands eign
rikisins og hefur rikið falið bank-
anum seðlaútgáfuna, sbr. 6. og 7.
gr. laganna. Bankaseðiller i senn
skuldaviðurkenning rikisins og
löggiltur gjaldmiðill hvar sem er i
rlkinu i öllum almennum fjár-
málaviðskiptum. 1 trausti þess,
að rlkið standi vörð um hagsmuni
borgaranna fela þeir bönkum og
sparisjóðum vörzlu þeirra
krafna, sem þeir hafa öðlazt á
rikissjóð. Þeir standa hins vegar
berskjaldaðir fyrir þvi, að spari-
fjáreign þeirra verði rýrð svo
frdílega, sem að ofan er lýst með
einhliða yfirlýsingu skuldarans,
þ.e.a.s. rikisins eins og ákvörðun-
in um gengisfellingu raunveru-
lega er, þar eð hún er tekin af rik-
isstjórn og stjórn Seðlabankans.
Það er i alla staði óeðlilegt og
gagnstætt venjulegum reglum
um fjárskuldbindingar, að skuld-
ari skuli geta gert slikt með ein-
hliða ákvörðun. 1 þessu sambandi
skal það tekið fram, að hvarvetna
er litiðsvo á, að venjulegar breyt-
ingar gengis til hækkunar eða
lækkunar séu sjálfsagðar og eðli-
legar, en þegar um svo stórfelld-
ar aðgerðir er að ræða, sem hér
er nefnt, þá er full ástæða til að
taka málið til alvarlegrar athug-
unar.
Um réttarvernd
sparifjárinneigna
t þeim tilvikum, sem hér hefur
verið rætt um og öðrum álika áð-
ur hefur sparifjárinneign díki
notiö sömu réttarverndar og aðr-
ar eignir samkvæmt 67. grein
stjórnarskrárinnar gagnvart
upptöku þessarar eignar á þann
hátt, sem geristvið gengisfelling-
ar, þótt orðalag greinarinnar sé
fortakslaust. Talað hefur verið
um gengisfellingar sem „hag-
stjómartæki”. Þetta hagstjórn-
artæki hefur oftast verið notað i
stórum stil eftir stjórnarskipti og
þá venjulega illum viðskilnaði
fyrri stjórnar kennt um að til
þessa úrræðis hafi þurft að gripa.
Svona aðgerðir koma harðast
niður á öldruðu fólki, sem er hætt
að geta unnið og hefur á langri
ævi sparað af tekjum sinum og
lagt i banka i þeim tilgangi að
geta notað innistæðurnar sem
uppbót á ellilifeyri og hefur fund-
ið nokkuð öryggi i þvi.
Spariinnlán almennings þjóna
vissulega miklu þjóðfélagshlut-
verki með þvi að vera eitt veiga-
mesta starfsfé banka og spari-
sjóða. Bankarnir verða illa stadd-
ir ef sparifé minnkar að mun. Þvi
er það mjög varhugavert athæfi
rikisst jómar að bjöða út f stórum
stil visitölutry ggð bréf og happ-
drættisbréf á verðbólgutimum.
Með þvi er verið að lokka fólk til
þess að taka sparifé sitt út úr
bönkunum. Þetta getur gert
bönkunum erfitt að gegna sinu
hlutverki, auk þess sem það örvar
verðbólguþróun og er sizt þörf á
sliku. Ég tel, að bankarnir megi
vera þeim sparifjáreigendum
þakklátir, sem þrátt fyrir allt láta
sparifé sitt standa inni á reikningi
hjá þeim. Það er ekki seinna
vænna að vernda og viðhalda við-
hlýtandi bankastarfsemi með þvi
að verðtryggja nú þegar sparifé
almennings.
Áhrif hækkana á
innkaupsverði
Þar sem þjóðin er mjög háð
innflutningi erlendra vara hefur
hækkun innkaupsverðs um 2/3
geysileg áhrif á allt verðlag i
landinu. Tollur, flutningsgjald,
heildsölu- og smásöluálagning
bætist við og loks kemur 20%
söluskattur til rikisins að siðustu
til viðbótar og auövitað fær rikis-
sjóður mjög aukinn söluskatt,
enda hefur komið i ljós, að hann
hefur gefiö rikinu mikið meira, en
áætlað var. Þrátt fyrir þetta hef-
ur rikisstjórnin lagt 12% vöru-
gjald á margar vörur.
Það var yfirlýst að draga ætti
mikið úr ráðgerðum útgjöldum
samkv. fjárlögum — mig minnir
um 3 milljarða. Þetta hefur geng-
ið erfiðlega og þó hefur rikiö grip-
iö til ofangreindra fjáraflaleiða
og virðist þó vanta fé og sum blöð
telja, að enn þurfi að fella gengi.
Af þessu öllu er ljóst, að eyðsla
rikisins er alltof mikil.
Venjulegur fylgifiskur gengis-
fellinga i stórum stil eru svokall-
aðar „hliðarráðstafanir”. Þær
hafa átt að fela i sér raunverulega
lausn þess vanda, sem við var að
etja. Ávallt hafa þær reynst ófull-
nægjandi og virðast hafa verið
eitthvert vandræðafálm.
Eyðum meiru en
við öflum
Endurteknir erfiðleikar og
vandamál i fjármálum og at-
vinnumálum, sem við höfum átt
við að striða æ ofan i æ með viss-
um millibilum (periodisk) hljóta
að gefa okkur bendingu um það,
að einhverju er meira en litið á-
bótavant i stjórnun og meðferð
mála i þjóðfélaginu. Mér virðist
ljóst, að skýringin sé ofur einföld.
Við eyðum meiru en viö öflum.
Ráðandi stjórnmálamenn hafa
ekki þorað að ráðast gegn þessu
meini að gagni af þvi að þær ráð-
stafanir, sem beita þarf, koma
svo illa við marga i þensluþjóðfé-
laginu, að það yrði óvinsælt.
Fyrir og um siðustu stjórnar-
skipti virtustmenn sammála um,
að kominn væri upp alvarlegur
efnahagsvandi, að sjávarútvegur
stæði frammi fyrir stórkostiegum
rekstrarerfiðleikum og rekstrar-
grundvöllur útflutningsiðnaöar i
þann veginn að bresta, gjald-
eyrissjóður að tæmast o.s.frv.
Yfirleitt, að stórkostlegt hættuá-
stand i efnahags- og atvinnumál-
um væri komið upp.
Það virðistljóst, að sifellt koma
upp sömu vandamálin með
nokkrum millibilum, sem ógna
velferð borgaranna, eða svo
sterkara sé til orða tekið: allrar
þjóðarinnar. Ég hugsa að fullyrða
megi,aðávallthafiverið brugðizt
við þessum vandamálum á sama
hátt, þómá vera, að stundum hafi
einhver tilbreyting verið gerð,æf
grannt er skoðað, en engin veru-
leg.
Getum við ekki lært
af reynslunni?
Er okkur virkilega varnað þess
að læra af reynslunni? Það litur
sannarlega út fyrir, að svo sé. Ef
við virðum fyrir okkur þau efna-
hagsvandamál, sem upp koma,
eins og áður er drepið á, þá minna
þau óneitanlega á svipuð fyrir-
bæri hjá þjóðum, sem hafa átt i
striði, sem þær hafa tapað. Höf-
um við átt i striði? Það væri þá
helzt að nefna flokkastriö — þ.e.
innanlands stjórnmálastrið.
Stjórnmál okkar hafa verið svo
um langa hríð, að þau sæma ekki
þroskaðri þjóð, né ábyrgum
mönnum. Rikt hefur hatrömm og
heiftarleg flokkapólitik — þar
sem hver flokkur eða flokksfor-
ingi hefur reynt að yfirbjóða ann-
an, þar sem það hentaði, til auk-
ins fylgis i augnablikinu. Kær-
komin eru mál, sem höfða til til-
finninga fólksins. Sá, sem tekur
öfgafyllstuafstöðuna, hreykir sér
hátt, hann er þjóðhetja, en hinir,
sem kunna að hafa eitthvað frá-
brugðna afstöðu, eru óspart út-
hrópaðir sem landráðamenn eða
þviumlikt, eftir þvi, sem við á. A
sama hátt fer um undirboð, ef þaö
viröistliklegt til fylgisaukningar i
bráð. Hver flokkur reynir að soga
til sin sem stærsta og flesta hópa
manna með þvi að telja þeim trú
um, aö hann sé þeirra verndari og
forsvarsaðili. Þessir hópar ganga
svo á lagið og gera sinar kröfur af
fremsta megni og þá tekur flokk-
urinn að sjálfsögðu upp baráttu
fyrir kröfum hópanna og þeir,
sem eru á móti, eru stimplaðir
vargar i véum án þess að málefn-
in séu leyst á raunsæjan hátt. I
samræmi við þetta er svo fram-
koma stjórnarandstöðu. Við höf-
um séð þess mörg dæmi, sem
greina mætti frá, að stjórnarand-
staða reynir að ýta stjórninni út i
ófæru, sem hún myndi berjast
gegn ef hún væri i stjórn, og sé
málið þannig vaxið, að það gæti
orðið rikjandi stjórn óþægilegur
ljár i þúfu, þá lætur hún oftast
undan. Með þvi að leggja höfuðá-
herzlu á flokkshagsmuni fá málin
ekki þá afgreiðslu, sem hagur al-
þjóðar krefur. Sé um málefni að
ræða, sem rýrir hag eða afstöðu
einhverra hópa i þjóðfélaginu, þá
risa flokkarnir gegn þeim ráð-
stöfunum.ef mótstaða gegn þeim
er vænleg til fylgisauka jafnvel
þótt ráðstöfunin væri bráðnauð-
synleg. Af þessu leiðir, að rikis-
stjórn, sem ætlar að gera nauð-
synlegar björgunarráðstafanir
vegna erfiðleika þjóðarbúsins,
verður að gera ráð fyrir að fá hat-
ramma andstöðu frá þeim hóp-
um, sem telja sig verða hart úti
og frá þeim flokki eða flokkum,
semvilja afla sér stundarfylgis við
að hefja herferð á móti slikum
ráðstöfunum. Hér komum við
einmitt að atriði, sem gera má
ráð fyrir að valdi þvi, að jafnvel
þeir, sem sjá og skilja hvað nauð-
synlegt er að gera, veigra sér við
að leggja út i það af ótta viö óvin-
sældir og fylgisryrnun.
Dagblöðin og
flokkarnir
Dagblöð okkar eru öll, hvert um
sig, flokksbundin og af þvi leiðir,
að barátta fyrir Bokknum situr
þar I fyrirrúmi. Málin fá ekki þá
meðferð, sem almenningsheill
krefur. Þvi miður hafa þeir, sem
hafa rutt sér braut upp i forystu
þjóðmála, ekki hafa lært þann
siðalærdóm, sem Jón Sigurðsson,
forseti, setti skýrt fram á sinum
tima og núverandi forseti,
Kristján Eldjárn, vitnaði til i
ræðu sinni til þjóðarinnar á þjóð-
hátiðisdaginn 17. júni sl., en þau
orð Jóns Sigurðssonar, forseta,
hljóða svo:
„Þegar hver mótmælir öðr-
um með greind og góðum rök-
um og skilningi og hvorugir
vilja ráða meiru, en sannleik-
urinn sjálfur ryður til rúms og
auösénn er hvorutveggja til-
gangur, aö verða allri þjóðinni
til svo mikils gagns, sem auðið
má verða, enda leggi hvorugur
öðrum það til að raunalausu,
sem ekki sómir ráðvöndum
manni, þá má slik keppni aldrei
verða til annars en góðs fyrir
fósturjörðina og hinar komandi
kynslóöir, þvi drengileg mót-
mæli skynsamra og góðra
manna eru fremstar meðal til
að festa, styrkja og skerpa
meiningar þeirra manna, sem
nokkurt andlegt þrek er i.”
angarnír
Þetta er of dýrmæt siðgæðis-
regla til þess að hún sé einungis
viöhöfð við eitt einstakt hátiðlegt
tækifæri. Hún á að vera og verða
leiðarvisir þeirra, sem við þjóð-
mál vor fást og verða þeim til
daglegrar áminningar.
Hugsið ykkur, lesendur góðir,
þann reginmun, sem er á tilvitn-
uðum orðum og þeim stóryrðum,
brigzlum og skömmum, sem bor-
in eru á borð fyrir okkur svo að
segja daglega af flokksblöðunum.
Hugsið ykkur einnig, hve auð-
veldara væri fyrir almenning að
mynda sér rétta og eðlilega skoð-
un á þjóðmálum, ef málefni væru
borin fram eftir siðareglu Jóns
Sigurðssonar, forseta, þá væri
sannarlega ekki eftirsjá að þeim
32 milljónum króna, sem Alþingi
veitti til blaðanna, en eins og nú
er virðist mér þvi fé vera kastað á
glæ.
Gengisfelling —
neyðarráðstöfun?
Ég vik aftur að áðurnefndum
gengisfellingum. Þær hafa vafa-
laust verið framkvæmdar af
ráðamönnum þjóðarinnar sem
neyðarráðstöfun til úrbóta á of-
eyðslu vinstrisyórnarinnar. Þær
höfðu vissulega svo djúpstæð á-
hrif á þjóðlifið, að það verður að
lita á þærsem neyðarráðstafanir.
En hvernig voru að öðru leyti við-
brögö stjórnarinnar i framhaldi
þessara neyðarráðstafana? Þau
voru að minu viti svo furðuleg, að
ætla mætti, aö stjórnin hafi alls
ekki litið á þær sem neyðarráð-
stafanir, sem fylgja þyrfti eftir
með viðeigandi aðgerðum, ekki
hvað sizt þegar þess er gætt, að
menn hafa stagazt á þvi, að geng-
isfellingar leystu i raun réttri
engan vanda út af fyrir sig. Ég tel
eðlilegt, að stjórnin hefði sam-
timis gert Itarlegar og umfangs-
miklar ráðstafanir til sparnaðar
og hagkvæmni i opinberum
rekstri og lagt fyrir bæjarfélög og
aðra aðila að gera slikt hið sama.
Jafnframt tel ég, að setja hefði
átt hömlur á allan óþarfan inn-
flutning. Oll friðindi til opinberra
aðila, svo sem ráðherra, alþingis-
manna og annarra embættis-
manna, skyldu felld niður, og á-
kveðnar skorður settar fyrir
hækkun hárra launa, svo aðeins
nokkuð sé nefnt af handahófi og
frekast sem dæmi.
Ef slikt hefði verið gert, þá
hlaut hver og einn að skynja, að
brugðizt var við á þann hátt, sem
eðlilegt var, ef um raunverulegar
neyöarráðstafanir var að ræða til
úrbóta á vandræðum. Ef stjómin
hefði staðið á þennan hátt að mál-
um, tel ég mögulegt, að fjöldi
þjóðhollra manna hefði fylgt
henni að málum og stutt viðleitni
hennar til bjargar af heilum hug.
í öllu falli þá hefði verið betri af-
staða fyrir stjórnina að láta
sverfa til stáls gegn óbilgjömum
kröfum.
Óbilgjarnar kröfur
náð að ganga fram
Reyndin hefur þvi miður orðið
sú, að hinar óbilgjörnustu kröfur
hafa náð að ganga fram, eyðsla
og verðbólga hafa ruglað þetta
litla þjóðfélag svo með eindæm-
um er. Verðbólgan hefur aukizt
um 54,5 stig á einu ári. Ýmsir
hópar manna hafa knúið fram svo
geysilegar kauphækkanir, að þær
eru i fullkomnu ósamræmi við
launakjör almennings yfirleitt og
má þar til nefna sem dæmi flug-
menn. Hvernig á hinn óbreytti
þegn þjóðfélagsins aðlifa á sinum
litla skammti i samanburði við
svo geysileg laun til einstakra
manna? Ég ætla, að fyrsta skil-
yrði fyrir þvi að almenningur sýni
fórnfýsi sé, að hann finni það og
viti, að fórnin nái tilgangi sinum
og þá verður fyrst að lita til
þeirra, sem stjórna og eiga að sjá
um framkvæmdina og þeir verða
fyrst og fremst að sýna fórnar-
vilja og einlæga viðleitni til hjálp-
ar. Þvl miður báru skrif
Vilmundar Gylfasonar og fjár-
málaráðherra út af bilakaupum
hins siðarnefnda ekki vott um
fórnarvilja þess forráðamanns.
Þá virðist harla umhugsunarverð
sú ákvörðun menntamálaráð-
herra, að stúdentar, sem dvelja
erlendis, skuli einskis i missa við
yfirfærslur, styrki og lán. Var
virkilega ekki nauðsyn á þvi að
láta fara fram athugun á þvi,
hverja ætti að styrkja áfram til
náms erlendis, og hverja ekki? Á
sama tima og sparifjáreigendur
eru sviptir 2/3 hlutum sparifjár
þeirra, sem talin er fullkomin
neyðarráðstöfun, þá er ekkert að-
hald sýnt, hvorki i þessu né öðru
og nú er verið að skipa fræðslu-
stjóra út um allt land. Sjálfsagt
hafa þeir skrifstofur og starfs-
fólk. Þetta hlýtur að vera mikill
útgjaldaauki. Mátti virkilega
ekki biða með þetta, þangað til
ástand i fjármálum væri orðið
betra? Annars eru skóla- og
kennslumál komin út i svo mi'klar
öfgar, að þjóðfélagiö fær ekki
undir þvi risið og þó er það verst,
að sjálft kerfið dregur unga fólkið
frá nauðsynlegum störfum i þjóð-
félaginu og gerir margt af þvi rót-
Hrunið
mikla
PiastiM hr
PLASTPOKAVE RKSMtO JA
Slmar 82439-82455
Vatn«göföum 4
fiox 4044 - Royfcjavlk
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarljaröar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10 12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
O
Birgir Thorberg
máiarameistari simi 11463
ónnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Hreinsum gólfteppi og húsgögn i
hcimahúsum og fj rirta kjum.
Éruin meö nýjar vélar. Góö þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Ctvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aöra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
slmi 11740.
Nylon-húðun
Húðun á malmum með
RILSAN-NYL0N II
Nælonhúðun h.f.
Vesturvör 26
Kópavogi — simi 43070
T-ÞK TTILISTINN i ■ - -
T-LISTINN ER
// Kaseftuiönaöur og áspilun, \\ | [ fyrir útgefcndur hljómsveitir, V [\ kóra og fl. Leitiö tilboöa. ) \\ Mifa-tónbond Akureyri JJ Pósth. 631. Simi (96)22136 Dúnn í GUEIIDfE /ími 64200 inngreyptur og þclir alla veðráttu. 11 T-LISTINN X: útihurðirsvalahurðir hjaraglugga og t™-! veltiglugga 'i
* Clugoasmlöjan L—vj. i Uhmúta K - im. M220