Alþýðublaðið - 08.11.1975, Page 6
Styrkveitingar
til norrænna gestaleikja
Af fé þvi, sem Ráðherranefnd Norður-
landa hefur til ráðstöfunar til norræns
samstarfs á sviði menningarmála, er á
árinu 1976 ráðgert að verja um 950.000
dönskum krónum til gestaleikja á sviði
leiklistar, óperu og danslistar.
Umsóknir um styrki til slikra gestasýn-
inga eru teknar til meðferðar þrisvar á ári
og lýkur fyrsta umsóknarfresti vegna
fjárveitingar 1976 hinn 1. desember nk.
Skulu umsóknir sendar Norrænu menn-
ingarmálaskrifstofunni i Kaupmannahöfn
á tilskildum eyðublöðum, sem fást i
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið,
7. nóvember 1975.
I|| Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis á skurðdeild
Borgarspitalans er laus til umsóknar frá
1. desember nk. til 6—12 mánaða. Laun
samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Reykjavikur við Reykjavikurborg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf skulu sendar yfirlækni deildar-
innar fyrir 20. nóvember nk. — Frekari
upplýsingar veitir yfirlæknir.
Reykjavik, 7. nóv. 1975.
Stjórn Sjúkrastofnana Reykjavikurborg-
ar.
Rafvirkjar
óskast til Snæfellsnessveitu með aðsetur i
Ólafsvik.
Störfin eru við rafmagnseftirlit og raf-
veiturekstur. Nánari upplýsingar veitir
starfsmannastjóri.
Ilafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik.
RAFSUÐUMENN
Á næstunni verður bætt við rafsuðumönn-
um i verk við Sigöldu. Þeir sem áhuga
hafa, vinsamlegast hafi samband við
starfsmannastjóra i sima 86400.
LANDSVIRKJUN
l.augarilagur S. nóvember kl.
i:i.:m.
Gönguferðum Gróttu, örfiris-
ey og Hólmana, undir leiðsögn
Gests Guðfinnssonar blaða-
manns. Fargjald kr. 400,—
greitt við bilinn. Brottfarar-
staður Umferðarmiðstöðin. —
Sunnudagur !). nóvcmber kl.
i:s.oo. Gönguferð um Rjúpna-
dali, Sandfell aö Lækjarbotn-
um, (auðveld gönguleið. Far-
gjald kr. 500,— greitt við bil-
inn. Brottfararstaður Um-
ferðarmiðstöðin (að austan-
verðu). — Ferðafélag islands.
Áskriftar-
síminn er
14900
Sveinbjörn Samsonarson frá
Þingeyri — dánarminning
i dag verður til grafar borinn
frá Þingeyrarkirkju Sveinbjörn
Samsonarson, einn af traustustu
og beztu fylgismönnum Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum. Svein-
björn lézt á sjúkrahúsi i Reykja-
vík eftir stranga sjúkdómslegu
aðeins 55 ára gamall. Með honum
er genginn maður, sem varí senn
duglegur, trausturog vinfastur —
sannkallaður áhlaupamaður að
hverju, sem hann gekk.
Sveinbjörn Samsonarson fædd-
ist á Þingeyri við Dýrafjörð þann
23. marz árið 1920, sonur hjón-
anna Bjarneyjar Sveinbjörns-
dóttur og Samsonar Jóhannsson-
ar, er þar bjuggu. Alls voru börn
þeirra Bjarneyjar og Samsonar
14 talsins og komust þau öll til
fullorðinsára. Tvö af systkinun-
um létust af slysförum og nú
Sveinbjörn, sem lézt á sóttar-
sæng. Þau 11, sem cru á lifi, eru
Ragnheiður, sem býr á Þingeyri,
Valgerður, Guðrún og Jóhann,
sem búa á Patreksfirði og svo þau
Kristin, Aðalheiður, Jóncs,
Sigriður, Samson, Ifaraldur og
Þorbjörg, sem búa fjarri átthög-
unum.
Sveinbjörn heitinn var tví-
kvæntur. Fyrri kona hans er Gisl-
ina Kristjánsdóttir og eiga þau
tvær dætur — Helgu og Bjarneyju
— en misstu þriðju dótturina
unga. Siðari kona hans er Bjarn-
friður Simonsen og lifir hún mann
sinn. Börn þeirra Sveinbjarnar og
Bjarnfriðar eru Sveinbjörn, Mar-
teinn, Jóhann, Jóvina og Anna.
Sveinbjörn Samsonarson hóf
snemma að vinna fyrir sér eins og
titt er um fólk af hans kynslóð og
reyndist hinn mesti dugnaðar- og
atorkumaður, eins og allt hans
fólk. Hann ól allan aldur sinn á
Þingeyri, stundaði framan af ævi
sjósókn og var bæði skipstjóri og
formaður á bátum, en fór svo til
starfa hjá Kaupfélagi Dýrfirð-
inga og vann þar aiit fram til
þeirrar stundar er hann kenndi
þess meins, er svo varð honum að
bana. Mér er kunnugt um, að það
erallra manna mál á Þingeyri, að
fáir eða enginn hafi unnið vinnu-
veitanda sinum jafn vel og Svein-
björn vann Kaupfélagi Dýrfirð-
inga. Hann varað eðlisfari maður
mjög duglegur og taldi aldrei eft-
ir sér sporin. Hann var ávallt boð-
inn og búinn til hverra þeirra
starfa, sem vinna þurfti, og seint
mun Kaupfélag Dýrfirðinga fá
jafn ötulan og dyggan starfskraft
og Svcinbjörn heitinn var. Þannig
var hann að hverju sem hann
gekk, en auk starfa siíns tók hann
muög virkan þátt i félagsmálum
á Þingeyri, verkalýðs- og stjórn-
málum og hreppsmálum. Nýtari
og betri jafnaðar- og Alþýðu-
flokksmann en Sveinbjörn getur
ekki. Einnig á þeim vettvangi
lagði hann sig allan fram eins og
að hverju þvi verki, sem hann
gekk.
Þegar ég valdist til framboðs
fyrir Alþýðufiokkinn á Vestfjörð-
um vorið 1974 þekkti ég Svein-
björn Samsonarson ekki nema af
góðri afspurn. Bróður hans, Jó-
hann, sem býr á Patreksfirði,
hafði ég hins vegar þekkt allt frá
barnæsku og af þeim kynnum
þóttist ég vita, að Sveinbjörn
myndivera hinn mesti ágætis- og
atorkumaður. Svo reyndist líka
vera. Mér iíða seint úr minni þær
viðtökur, sem ég fékk hjá Svein-
birni og hans ágætu konu þegar
ég kom fyrst til Þingeyrar i fram-
boðserindum, þá öllum ókunnug-
ur. Kom ég oft á heimili þeirra
þetta vor og átti þar jafnan góð-
um huga að mæta. Er mér þó sér-
staklega minnisstæður dagur sá,
þegar Sveinbjörn tók mig við
hönd sér og leiddi mig milii fólks
á Þingeyri til þess i senn að kynna
mig og leyfa mér að kynnast þvi.
Þá kynntist ég þvi fyrst að marki,
hversu lifandi og ótrauður Svein-
björn Samsonarson var i áhuga
sinum fyrir framgangi Alþýðu-
fiokksins og jafnaðarstefnunnar
— og hversu virtur maður og vin-
sæll hann var i sinu byggðarlagi.
Þaö sem Sveinbjörn Samsonar-
son fór, þar fór góður drengur,
sem var reiðubúinn til þess að
leggja sig allan fram fyrir fram-
gangi þeirra máia, sem honum
voru hjartfólgin. Sizt grunaði mig
þá, aðSveinbjörn ættiaðeins hálft
annað ár eftir ólifað. Svo mikið
lif, svo mikil atorka sem bjó i
þeim manni.
Ég vissi þó þá þegar, að Svein-
björn gekk ekki heill til skógar og
hafði átt við erfiðan sjúkdóm að
striða, sem mjög hafði gengið á
þrek hans. Hins vegar virtist sem
hann hefði komizt yfir erfiðasta
hjallann. Svo varð þó ekki raunin
á. A sl. vetri tók sjúkdómur hans
sig upp aftur svo hann neyddist til
þess að fara á sjúkrahús i
Reykjavik og dveljast þar lang-
dvölum. i sumar var hann svo út-
skrifaðuar af sjúkrahúsinu og
leyft að fara heim. Ég sá Svein-
björn ekki heima i sumar, þar eð
iiann var ekki kominn af sjúkra-
húsinu i vor, er ég kom til Þing-
eyrar, og nýfarinn suður aftur,
þegar ég kom þangað á kjördæm-
isþing Alþýðuflokksins á Vest-
fjörðum siðsumars, en mér var
tjáð, að það leyndi sér ekki, að
hann gengi ekki heill til skógar.
Varð lika sú raunin á, að hann var
kvaddur á sjúkrahús aftur síð-
sumars og átti ekki afturkvæmt
úr þeirri ferð.
Sveinbjörn Samsonarson er nú
fallinn i valinn. Þar er góður
maður genginn — hjartahlýr
maður og hóglátur en jafnframt
maður, sem átti ærinn dug og öt-
ula lund. Honum var gott að
kynnastog hann er hollt að muna.
Um leið og ég þakka hoi.um fyrir
samfylgdina þar sem hann var
gefandi, en ég þiggjandi, sendi ég
eiginkonu hans, börnum, systkin-
um og öðrum nánum ættmennum
einlægar samúðarkveðjur.
Sighvatur Björgvinsson
Blómaverzlun opnar
í gömlu fjósi
S.l. föstudag var opnuð blóma-
verzlun á vegum Alaska og er hún
til húsa i gamla Breiðholtsbýlinu,
eða öllu heldur i fjósi þess og
hlöðu. Gróðrarstöð Alaska er
staðsett á þessu svæði, og hefur
verið þar um 9 ára skeið.
Innréttingar verzlunarinnar
eru teiknaöar af Vifli Magnús-
syni, verkfræðiþjónustu annaðist
verkfræðiskrifstofan Vægi og
smiðin var unnin af Herði
Haraldssyni og hans mönnum.
1 þessari nýju verzlun verða á
boðstólum afskorin blóm, potta-
blóm og ailt sem til blómaræktar
þarf, að auki gjafavörur ýmiss
konar, leirvörur, kertí o.s.frv.
I tilefni opnunarinnar er haldin
sýning á nokkrum sérunnum leir-
munum frá Glit hf. Er þar sér-
staklega kynntur Sigurður
Hauksson, sem fæddur er árið
1952 og hefur numið leirmunagerð
hjá fyrirtækinu og starfar nú
fyrst og fremst sem handrennari
og á drjúgan þátt i formum muna
sem Glit hf. framleiðir.
Auk verka hans eru á sýning-
unni nokkur verk eftir Magneu
Hallmundsdóttur og Paul Martin.
Þá stendur einnig yfir sýning
landslagsmálverka eftir Jón
Haraldsson. Eigandi Alaska er
Jón H. Björnsson magister.
Sigurður llauksson sést hér renna
vasa úr leðri.
LW Alþýðublaðið
Laugardagur 8. nóvember 1975