Alþýðublaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 6
iprettir
Getraunaþjónusta Alþýðublaðsins
Eining, hvatning og barátta bæði utan
og innan leikvaliar í
Landsliðsþjálfararnir Viöar Simonar-
son og Ágúst Ogmundsson hafa nú endan-
lega valið þá 12 leikmenn, sem koma til
með að leika hinn þýðingarmikla leik við
Júgóslava i undankeppni Olympiuleik-
anna i Laugardalshöllinni i kvöld kl. 20.30.
Liðið verður þvi þannig skipað i kvöld.
Ólafur Benediktsson og Guðjón Erlends-
son verða i marki. Ólafur H. Jónsson,
Axel Axelsson, Arni Indriðason Stefán
Gunnarsson, Gunnar Einarsson, Jón
Karlsson, Björgvin Björgvinsson, Páll
Björgvinsson Ólafur Einarsson og Sigur-
bergur Sigsteinsson. Það verða þvi þeir
Ingimar Haraldsson, Friðrik Friðriksson
og Viggó Sigurðsson úr 15 manna lands-
liðshópnum, sem ekki leika þennan leik.
Viðar Simonarson, landsliösþjálfari, er
ánægður með æfingar landsliðshópsins,
en vill að sjálfsögðu ekki tjá sig neitt um,
hvort tsland vinni leikinn eða ekki. ,,Ég
verð ánægður, ef hver leikmaður nær þvi
kvöld
bezta,sem hann á til, meira er ekki hægt
að krefjast. Ég veit að það reyna þeir að
gera af fremsta megni. Það er góð eining i
hópnum og það hefur ekki svo litiö að
. segja.”
tsland og Júgóslavia hafa leikiö 6 lands-
leiki i handknattleik til þessa, og hefur
landanum aldrei tekizt að bera sigur úr
bitum. Það væri þvi óneitanlega gaman,
ef okkur tækist að sigra þetta stórveldi i
handknattleik einmitt i kvöld, þegar svo
mikið er i húfi. Áhorfendur geta haft mik-
ið að segja i þessum leik, og riður þvi mik-
ið á að þeir láti mikið i sér heyra i kvöld.
Forsala aðgöngumiða fyrir leikinn hófst i
gærdag og verður haldið áfram i dag i
Austurstræti milli kl. 12 til 18. Eru þeir,
sem ekki ennþá hafa tryggt sér miða bent
á að gera það hið snarasta, enda má búast
við þvi að uppselt verði. Að lokum óskar
Alþyðublaðið islenska landsliðinu góðs
gengis i leiknum i kvöld.
Nú nýlega hefur hinn
gamalkunni handknatt-
leiksmaður og þjálfari
Fram, Ingólfur Óskars-
son, fært út kvfarnar.
Eins og flestum iþrótta-
mönnum er kunnugt,, þá
rekur hann verzlun að
Klapparstig 44 i Reykja-
vik. Ekki alls fyrir löngu
opnaði hann nýja verzlun
i L'óuhólum 2—6 i
Breiðholti. Þá eru Sport-
vöruverzlanir Ingólfs
Óskarssonar orðnar tvær
i Reykjavik. Hin nýja búð
er rúmgóö og glæsileg og
vel innréttuð af teikni-
stofunni Arko s.f.
Verzlunarstjórinn i hinni
nýju búð er handknatt-
leiksmaðurinn úr Val og
knattspyrnumaðurinn úr
ÍR, Þorbjörn Guömunds-
son. Asamt Þorbirni
starfa við verzlunina
Guðrún Hauksdóttir,
handknattleikskona úr
Viking, og kona Sigur-
bergs Sigsteinssonar.
Eins og nafn verzlunar-
innar gefur til kynna þá
hefur hún á boðstólum
ýmiss konar iþróttahluti
fyrir almenning. Á mynd-
inni sést eigandinn
Ingólfur óskarsson
ásamt Guðrúnu og
Þorbirni.
„Þetta er ekki rétta
hliðin á Trukknum...”
- sagði Kolbeinn Pálsson um hnefaleikana
„Þetta er ekki rétta hliðin, sem áhorf-
endur fengu að sjá af „Trukknum” sagði
Kolbeinn Pálsson, þjálfari og leikmaður
KR-inga, um atvik það, sem átti sér staö
milli hans og landa hans, Jimmy Rogers,
á lokasekúndum leiks Ármanns og KR I
fyrrakvöld. „Frá minum bæjardyrum séö
var þarna um að ræða aðeins augnabliks
reiði hjá honum. Hann er búinn að vera
hjá okkur I rúmlega 3 mánuði, og mér Ifk-
ar alltaf betur og betur við drenginn.
Hann er baráttumaður og vildi sigra i
leiknum, eins og flestir sannir og góðir I-
þróttamenn vilja. Hann hefur verið sér-
staklega samvinnuþýður og góður félagi,
og um atvik þetta er litiö hægt aö segja,
annað en það, að svona iagað má alls ekki
koma oftar fyrir. Hann var heldur alls
ekki einn I sökinni, þótt svo að stærstu
höggin hafi komið fra honum, enda er
maðurinn óvenju sterkur. Hann er góður
félagi, og við hjá KR höfum ekkert annað
en gott um hann að segja. Trukkurinn er
góður körfuknattlciksmaður og alls ekki
verri en við héldum, áður en hann kom,
einsog margir hafa vilja halda fram.
Viðerunt ánægðir yfir þvi að hafa hann
i okkar röðum. Strax eftir leikinn, þegar
hann var búinn að jafna sig, var hann
mjög sár yfir að þetta skildi hafa skeð, og
það sama gilti um Rogers. Dómararnir
Kristbjörn og Ingi kærðu hvorki Trukkinn
né Rogers eftir ieikinn, en visuöu málinu
til aganefndar KKt. Aganefndin mun svo
væntanlega taka ntálið fyrir. Hvernig þeir
túlka „hnefaleikana” veit ég að sjálf-
sögðu ckki, en vona bara að þeir sýni
þessu máli skilning. Ég er alis ekki með
þvi að segja, að það sé hægt að réttlæta
þetta á nokkurn hátt, en geta skal þess,
aö atvik þetta á sér þó htiöstæður i Norð-
ur-Evrópu, svo það eru ekki bara menn að
sunnan, sem gera sig seka um slik brot.
Hvað skeði ekki milli Norman Ilunter og
Francis Leed fyrr I haust og hvernig er
með handknattleiksm anninn Hansa
Schmidt?” sagði Kolbeinn aö lokum.
Dave McKay, framkvæmdarstjóri Derby, lék
áður með liðinu, sem hann nú stjórnar. Lið hans á
auðveldan leik um helgina gegn Sheffield United.
Nú fór illa fyrir einum af get-
raunaspámönnum Alþýðublaös-
ins, Gunnari Agli Sigurðssyni.
Hann hlaut 11 leiki rétta siðasta
laugardag, en gleymdi að senda
inn seðilinn. Það var aðeins
leikur Burnley og West Ham, 1
sem honum mistókst við, en þar
hafði hann giskað á jafntefli, en
Burnley vann 2:0, eins og menn
eflaust muna. Hjá Getraunum
h/f, fundust 3 seðlar með 12
rétta en nokkrir með ellefu.
Samkvæmt upplýsingum sem
við fengum hjá Getraunum h/f,
heföi Gunnar fengið 12.700 kr. i
sinn hlut ef hann hefði lagt inn
seðil sinn. En nóg um það.
Næstir á eftir Gunnari var Sun-
day Times með 8 rétta, Her-
mann Gunnarsson og Helgi
Danielsson með 7 rétta, Obser-
ver, Stefán og Eyjólfur með 6
rétta og Express og Suðurnesja-
tiðindi ráku lestina með 5 leiki
rétta.
Atjándi getraunaseðillinn lit-
ur þannig út og vonum við að
enginn gleymi að leggja inn
seðla sina.
Arsenal — Burnley 1
Arsenal hlýtur að verða álitið
sigurstranglegra i þessum leik
þótt svo að það hafi ekki af
góðum árangri að státa.
Burnley er i sömu súpunni og
Lundúnaliðið, og teljum við þvi
að heimavöllurinn Highbury
ráði úrslitum i þessari viður-
eign.
Birmingham — Leicester
X
Að öllum likindum getur þessi
leikur farið á alla þrjá vegu.
Birmingham leikur á heima-
velli, og er þvi meiri möguleikar
á að það sigri i þessari orrustu.
Leikurinn verður þó áreiðan-
lega jafn og spennandi. Jafntefli
ætti ekki að verða fjarri lagi og
þvi merkjum við X hér.
Derby — Sheffield U. 1
Það þarf ekki aö ræða það
neitt nánar hvernig þessum leik
lyktar, enginn þeir sem fylgjist
með ensku knattspyrnunni á að
verða i nokkrum vafa um það
hvernig þessi leikur fer. Orugg-
ur sigur meistaranna Derby.
Leeds — Aston Villa 1
Leeds hefur verið i mikilli
sókn upp á siðkastið, þótt svo að
það hafi tapað fyrir Ipswich á
Arsenal -
Birmingham -
Derby -
Leeds -
Liverpool -
Man. United -
Middlesbrough -
hewcastle -
\
Norwich -
West liarn -
Blaclcpool -
Chelsea -
laugardag. Það ásamt West
Ham hefur 26 stig, og er þvi að-
eins tveimur stigum á eftir efstu
liðunum, en hafa leikiö einum
leik minna en þau. Það ætti að
verða ofjarl nýliðanna Aston
Villa, sem þó hefur yfir góðu liði
að ráða. Heimasigur.
Liverpool — Q.P.R. 1
Ekki má ætla að sigur Liver-
pool i þessúm leik sé neitt
öruggur. Allir vita að „spútnik”
liðið frá London er mjög vel
leikandi lið enda efstir i dag á
markatölu. Liverpool hefur þó
það fram yfir Q.P.R. á laugar-
daginn að það leikur á heima-
velli, og þvi er sigurmöguleikar
þess mun meiri.
Man. United — Wolves. 1
United er eins og flestir vita
meö ungt og sterkt lið, en
Spámaður með
sendi ekki inn
11 rétta
seðilinn!
Wolves hins vegar, virðist vanta
unga leikmenn i lið sitt. Það
hafa staðið sig mjög slælega að
undanförnu og má muna fifil
sinn fegri. Flestir eru ábyggi-
lega á þeirri skoðun að Man-
chesterliðið vinni öruggan sig-
ur, enda er það laukrétt hugsun
ef miðað er við árangur liðanna
að undanförnu. öruggur heima-
sigur.
Middlesbrough — Totten-
ham l.
Tottenham olli unnendum sin-
um miklum vonbrigðum á laug-
ardaginnmeð þvi að tapa fyrir
Liverpool á sinum eigin leik-
vangi. Ef marka má af þeim úr-
slitum þá eiga þeir ekki mikla
möguleika gegn hinu sterka liði
Middlesbrough og það á útivelli.
Middlesbrough hefur aðeins
tapað einum leik á heimavellj i
1. deildinni til þessa og ætti að
sigra Tottenham örugglega á
laugardag.
Newcastle — Ipswich 1
Þarna eigast við tvö ágæt lið,
og er þvi erfitt að geta sér til um
úrslit þessa leiks. Newcastle
leikur á heimavelli sinum St.
James Park, og ræður það
sennilega úrslitum, eins og oft
vill verða þegar tvö góð lið eig-
ast við. Heimasigur eða kannski
jafntefli.
að fara. Norwich getur þess
vegna unnið leikinn. Trú blaðs-
ins á Tueart Barnes og Hartford
er það mikil að 2 er sett við leik-
inn. Norwich hefur liklega góðu
liði á að skipa, t.d. Martin
Peters Ted MacDougall Sugget
og fleiri. Sugget og Hartford
léku einu sinni saman með
W.B.A. og verður þvi gaman að
fylgjast með miðvallarbaráttu
þessara gömlu leikfélaga. Leik-
urinn getur farið á alla þrjá
vegu.
West Ham — Stoke X
Þessi leikur verður ábyggi-
lega vel sóttur, enda leika bæði
liðin góðan og skemmtilegan
sóknarleik, hvort sem er á úti-
vellieða heimavelli. Jafntefli er
lika liklegustu úrslitin, og það
markajafntefli.
Blackpool — Fulham X
Blackpool liðið er mjög mis-
jafnt i leikjum sinum og er þvi
erfitt að geta sér til um úrslit
hjá liðinu „The Seasiders” eins
og Blackpool er oft kallað,
leikur á heimavelli, og er þvi
liklegast að það nái að minnsta
kosti jafntefli i þessum leik.
Celsea — Sunderland X
Bæði þessi lið eru þau
frægustu sem leika i 2. deild að
þessu sinni, að öllum öðrum
ENSKI
BOLTINN
ólöstuðum. Bæði hafalengi
leikið i 1. deildinni og hafa þvi
oft eldað saman grátt silfur.
Sunderland er betra lið en
Chelsea I dag, en heimavöllur
hefur mikið að segja, á Eng-
landi, sérstaklega þegar vega-
lengdirnar eru miklar eins og á
sér stað i þessum leik. Chelsea i
London en Sunderland i Norð-
Austur horni landsins.
Leikur Coventry og Everton
verður leikinn á föstudagskvöld,
og er þvi ekki með á þessum
getraunaseðli. Coventry hefur
oft tekið upp á þvi siðustu 2 árin
að leika nokkra heimaleiki á ári
á föstudegi og er það vegna þess
að það telur si fá fleiri áhorf-
endur á völlinn með breytingum
eins og þessum við og við.
Norwich — Manchester
City 2
Þó giskað sé á City i þessum
leik er langt frá þvi aö svo þurfi
Burnley 74-5 0-1 73-4 1-1
Leicester 3-4 3-0
Sheffield U .2-0 4-1
A .Villa — —
Q . P .R . 3-1 2-1
Wolves — 0-0
Tottenham 3-0 -
Ipswich 1-0 3-1
Man.City - 1-1
Stoke 2-2 0-2
Fulham 1-0 2-0
Sunaerland — —
(V Ul V) VI \T> i o Q
5 Ui v> fl 8 a ,x lii 2 i- i v> d $ <3 <y u>
72-3 °! lu iÁ co zt
- i 1 1 í 1 1
1-1 X 1 X X 1 1
2-1 i 1 1 1 1 1
- i 1 1 1 1 1
- X X 1 X V 1 V 1
2-1 1 .1 1 1 l 1
— 1 X 2 2 X Y X V
1-2 X X 1 2 Y 1
1-1 1 1 V J V 2 2 X
3-2 X X X X 1 X
2-C X 2 1 1 2 1
— 1 X X 1 2 X 1
Ol
1 1 1 1 lo 0 0
1 1 1 X 6 4 0
1 1 1 1 lo 0 O
1 1 1 1 lo C C
X 1X1 4 6 C
1 1 1 1 lo C C
X 1 1 1 4 4 2
X x 1 1 5 4 1
X X 1 2 3 4 3
1 1 1 X 4 6 0
1 X 1 X 5 3 2
X 1 X X 3 6 1
BÆKURNAR FRÁ LEIFTR11975
ARNÓR SIGURJÓNSSON:
VESTFIRÐINGASAGA 1390-1540
Höfundur segir meóal annars: Saga Vestfiróinga
er sögð i fyrsta sinn í þessari bók eftir bréfum
Vestfirðinga sjálfra á þessum tíma og öðrurp
samtima heimildum. Ennfremur segir: Sagan er
eins konar kappatal Vestfirðinga á 15. öld og
fyrri hluta þeirrar 16. Það einkennir þennan tima,
hversu mjög höfðingskvenna gætir i þjóðlifinu og
þeim málum, er þá bar hæst i þjóðfélaginu.
497 bls. — Verð kr. 3500,00 + sölusk.
JÓHANN EIRlKSSON ættfræðingur skráði:
ÆTTARÞÆTTIR
Þættirnir eru þrír — niðjatöl eftirtalinna manna:
1) BJÖRNS SÆMUNDSSONAR, Hóli í Lundar-
reykjadal og konu hans, tæddur 1765.
2) GISLA HELGASONAR, Norður-Reykjum,
Mosfellssveit, og konu hans, fæddur 1765.
3) KJARTANI JÓNSSYNI, Króki, Villingaholts-
hreppi, tvíkvæntur, fæddur 1775.
Nafnaskrá fylgir hverjum þætti.
391 bls. — Verð kr. 3200,00 -f sölusk.
EFRAIM BRIEM. Þýð.: BJÖRN MAGNÚSSON:
LAUNHELGAR OG LOKUÐ FÉLÖG
/ þessari bók gerir höfundur grein fyrir einum
athyglisverðasta þætti i þróun trúarbragða mann-
kyns: Þeirri viðleitni, að þroska menn til sam-
félags og jatnvel sameiningar við guðdóminn
innan meira eða minna lokaðra samfétaga, og
þeim helgiathötnum, sem þar hafa verið um hönd
hafðar, eftir þvi er vitað verður um þær athafnir.
493 bls. — Verö kr. 3500,00 + sölusk.
Sr. HELGI TRYGGVASON, yfirkennari:
VlSIÐ ÞEIM VEGINN
Höfundur segir i eftirmála:
. . . Áreiðanlega hafa lesendur þessarar bókar
sannfærzt um það, að Ritningin flytur mörg og
merk uppeldisleg fyrirmæli og i rikara mæli en
atmennt er komið auga á. Auðsætt er, að frum-
herjar kristindómsins studdu kenningu sina með
eftirbreytnisveröri hegðun hvað sem i skerst . . .
327 bls. — Verö kr. 2900,00 + sölusk.
GRÉTAR FELLS:
ÞAÐ ER SVO MARGT . . .
Fimmta bindi.
Tuttugu fyrirlestar eftir Gretar Fells, sem hér
birtast, eru samdir til flutnings, óbreyttir frá
hendi höfundar. — Frú Svava Fells bjó bókina
undir prentun, ásamt nokkrum vinum sinum.
280 bls. — Verð kr. 1380,00. + sölusk.
ARNGRIMUR SIGURÐSSON:
ÍSLENZK-ENSK ORÐABÓK Ný útg.,aukin
940 bls. — Verð 4000,00 + sölusk.
! MABEL ESTER ALLEN:
Leyndardómurinn í listasafninu.
Spennandi ástarsaga. - Hersteinn Pálsson þýddi.
168 bls. — Verð kr. 1650,00 + sölusk.
BOB MORAN: Kóróna drottningarinr.ar.
128 bls. — Verö kr. 800,00 + sölusk.
Nýr bókaflokkur . . . kappakstursbækur
ERIC SPEED — Arngrímur Thorlacius þýddi.
Kappaksturshetjurnar WYNN og LONNY eru 17
ára. Þeir eru frá Norður-Karólinu í Bandaríkjun-
um og hafa lokið námi i menntaskóla. Þeir eru
snillingar i bílaviðgerðum og kappakstri.
1. bók:
RALLÝ Á MEXICALI 1000
Þar hefja þeir Wynn og Lonny raunverulega
frægðarferil sinn með þátttöku i rallýkeppninni
á Mexicali 1000, sem er þekkt rallýbraut.
145 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
2. bók:
KAPPAR í KAPPAKSTRI
Wynn og Lonny búa sér til Formúlu-V-bíl, sem er
samsettur úr ýmsum hlutum Volkswagens-bílsins,
að viðbættri léttri yfirbyggingu og stórum hjól-
um. Þeir taka þátt í kappakstri á ýmsum brautum
til að vinna sér þátttökurétt i landsmótinu.
159 bls. —■ Verð kr. 800,00 + sölusk.
HAUKUR ÁGÚSTSSON:
YFIR KALDAN KJÖL
Segir frá þremur drengjum, Óla, Bjama og Geua,
sem eru um fermingaraldur. Þeir ákveða að fara
á reiðhjólum þvert ytir landið, og lenda í ýmsum
erfiðleikum, sem þeir þó sigrast á. — Hötundur
bókarinnar hefur verið kennari i Reykjavik, veður-
athugunarmaður á Kili, síðan þjónandi prestur í
Hofsprestakalli í Vopnafirði.
170 bls. —■ Verð kr. 800,00 + sölusk.
EINAR ÞORGRÍMSSON:
ÓGNIR KASTLANS
Einar hefur skrifað margar bækur og hressilegar
handa unglingum á öllum aldri. Allt sem Einar
gerir er þaulhugsað. Þessi bók gerist í illræmd-
um draugakastala og er spennandi og dularfull.
113 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
VILLTUR VEGAR
hugþekk drengjasaga eftir Oddmund Ljone, um
ungan dreng, sem villtist i Finnaskógum.
141 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
MOLI LITLI - 7. bók.
Saga um lítinn flugustrák eftir RAGNAR LÁR.
32 bls. mcð ntyndum. — Verð kr. 250,00 + sölusk.
NASREDDIN
Tyrkneskar kínmnisögur.
103 bls.
Þýð.: Þorst. Gíslason.
Verð kr. 450 + sölusk.
Tvær bækur um FRANK OG JÓA:
DULARFULLA MÁLIÐ I HÚSEY
133 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
SPORIN UNDIR GLUGGANUM
141 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
Tvær bækur um NANCY:
NANCY og dularfulli bjölluhljómurinn.
167 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
NANCY og leyndarmál kastalans.
168 bls. — Verð 800,00 + sölusk.
KIM og fyrsti skjólstæðingurinn.
113 bls. — Verð kr. 800,00 + sölusk.
Fæst í flestum
bóka- og leikfanga-
verzlunum
Heildsöludreifing: FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN H.F.
Einfalt
SPENNANDI
ÓDÝRT
angarnir
DRAWN BY DENNIS COLLINS WRITTEN 8Y MAURICE DODD
l’liistos liF
PLASTPOKAVERKSMfOJA
Sknar 82A39-82655
Vetnagörbum 6
Box 4064 — RaykjavOt
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hatnarljaröar Apotek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
Birgir Thorberg
málarameislari simi 1146
önnumst alla
máiningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Ilreinsum gólfteppi og húsgögn I
heim ahúsum og fyrirlckjum.
Krum meö nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanlr menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
BREIÐÁS
Vesturgötu 3 simi 25144
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Sillli 74200 — 74201
DÚflA í GtflEflBflE /ími 64900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322