Alþýðublaðið - 22.01.1976, Síða 2
Stjórnborð — Skróningartœki
Tilboð óskast vegna kaupa á eftirtöldum
vörum fyrir gufuveitukerfi Kröfluvirkjun-
ar.
1. Stjórnborð m/tilheyrandi búnaði.
2. Skráningartæki.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri eftir 25. janúar n.k., gegn 3.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
mánudaginn 1. mars 1976, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar
erlendis á árinu 1977 fyrir fólk, sem
starfar á ýmsum sviðum félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást i
félagsmálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur
er til 1. mars n.k.
Félagsmálaráðuneytið,
19. janúar 1976.
® Tilboð
Tilboö óskast I loftstrengi fyrir Rafmagnsveitu Reykja-
vikur.
(Jtboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 24.
febrúar 1976, kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríltirkjuvegi 3 — Sími 25800
llll!l!llllllllllllllllllllllllllllllllllllll
VIPPU - BltSKClRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við jnúrop:
Hæð;210 sm x breidd: 240 sm
‘3*0 - x - 270 sm
Aárnr sU»rðlr. smiOaðar eftir beiðni
GLUÖ4«AS MIÐJAN
Siðumúla 20. simi 38220
SJAIST
með
endurskini
|alþýðu|
n rfiitti
,,Móralskir sigrar”
Það er vissulega ánægjulegt, að
Bretar skuli hafa dregið herskip sin
burtu af íslandsmiðum. Brezka út-
varpið sagði, að það væri „móralsk-
ur sigur” fyrir íslendinga. Vel má
vera, að svo sé. Undanfarnar vikur
hafa Islendingar unnið all-marga
slika sigra. Almenningi, jafnvel i
Bretlandi, hefur orðið það ljóst, að
brezka herstjórnin beitir okkur yfir-
gangi og það hefur verið sannað svo
ekki verður um villzt, að það eru
brezku herskipin, en ekki islenzku
varðskipin, sem eru völd að árekstr-
unum á miðunum. Allt þetta hefur
orðið okkur íslendingum „móralsk-
ir sigrar” i landhelgisbaráttunni.
Brottför herskipanna af íslandsmið-
um er einn slikur.
V
Menn ættu þó að varast að leggja
allt of mikið upp úr þeim atburði.
Það hefur áður gerzt i fyrri þorska-
striðum við Breta, að þeir hafa kall-
að herskip sin af miðunum til þess
svo að senda þau þangað aftur. Slikt
hið sama gæti sjálfsagt gerzt aftur
þvi enginn vafi er á þvi, að sú á-
kvörðun Breta að kalla herskipin
heim er i og með leikur af þeirra
hálfu til þess að bæta áróðursstöðu
sina og reyna þar með að knýja okk-
ur íslendinga til óhagkvæmra
samninga. Það var ekki að ástæðu-
lausu, sem tilkynningunni um brott-
kvaðningu herskipanna fylgdi boð
til Geirs 'Hallgrimssonar, forsætis-
ráðherra, um að koma til Lundúna
til þess að drekka tesopa með brezk-
um ráðamönnum. í London á vafa-
laust að gera áhlaup á islenzka for-
sætisráðherrann og reyna að knýja
hann til samninga með dulbúnum
hótunum um, að ella verði herskipin
send á miðin aftur. Þá mun koma i
ljós, hver bakfiskur er i
islenzka forsætisráðherranum —
hvort sú ákvörðun stjórnvalda
stendur, að aldrei verði samið við
Breta undir ginandi fallbyssukjöft-
um herskipa þeirra.
í sambandi við för Geirs Hall-
grimssonar til Lundúna er eitt mjög
þýðingarmikið atriði, sem er mjög
svo á huldu. Það er, hvort samn-
ingstilboð islenzku rikisstjórnarinn-
ar frá i sumar stendur enn — tilboð-
ið um 65 þúsund tonnin. Rikisstjórn-
in sjálf hefur látið að þvi liggja, að
; tilboð þetta sé úr sögunni og fram-
koma Breta hafi orðið til þess, að
ekkert tilboð af einu eða neinu tagi
verði þeim gert. Af fréttum að
dæma virðist brezka rikisstjórnin
hins vegar vera annarrar skoðun-
ar. Málsvarar hennar tala enn um
65 þúsund tonna tilboðið frá i sumar
likt og það standi óbreytt — það er
eins og þeim sé ekki um það kunn-
ugt, að islenzka rikisstjórnin hafði
fallið frá þvi. Hvað veldur?
Gleymdist að láta brezku rikis-
stjórnina vita eða segja islenzkir
ráðamenn annað i London en þeir
segja i Reykjavik?
Til er brezkt máltæki, sem hljóðar
eitthvað á þá lund, að þótt orrusta
tapist sé hægt að vinna striðið. Þetta
máltæki hefur oft verið ofarlega i
huga brezkra rikisstjórna. Nú segj-
ast Bretar sjálfir hafa liðið ,,mór-
alskt tap” i átökunum við íslend-
inga út af landhelgismálinu. Skyldu
þeir þá ekki hugleiða, hvernig þeir
gætu unnið sjálft striðið þrátt fyrir
það — og er heimboðið til Geirs
Hallgrimssonar ekki einmitt mikil-
vægur þáttur i slikri áætlun? Svo
skyldi nú ekki vera, þegar öll kurl
eru komin til grafar.
A.m.k. ættum við íslendingar —
og Geir Hallgrimsson þar á meðal —
siður en svo að loka augunum fyrir
þeim möguleika. Ef við höldum ekki
á málstað okkar i landhelgismálinu
af festu og einurð getum við enn tap-
að striðinu, þótt við höfum unnið
margar orrustur.
HRitstjórn Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11
- Sími 81866
VIKULEGAR HRAÐFERÐIR
EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR
Fró NORFOLK
WESTON POINT
KRISTIANSAND
HELSINGBORG
GDYNIA
VENTSPILS
VALKOM
Frá ANTWERPEN
- FELIXSTOWE
- KAUPMANNAHÖFN
- ROTTERDAM
- GAUTABORG
- HAMBORG
mánudaga
þriájudaga
þriájudaga
þriójudaga
mióvikudaga
fimmtudaga
FEROIR FRÁ ÖÐRUM HÖFNUM EFTIR
FLUTNINGSÞÖRF
i/ /■ ■ • ••
r MttamHr smum mmm mm
GT Alþýðublaðið
Fimmtudagur 22. janúar 1976.