Alþýðublaðið - 22.01.1976, Page 9
Björgvin Hólm, kerfisfræðingur:
NÝ ÞEKKING
Allmargir íslendingar kann-
ast við það, að Jónas Guð-
mundsson, sem á sinum tima
var kallaður Jónas Pýramida-
spámaður, hélt þvi fram i ritum
sinum, að frá Islandi myndi
koma þekking, sem i timanna
rás myndi verða öllu mannkyn-
inu til blessunar. Þetta sjónar-
mið öðlaðist hann i samvinnu
við Adam Rutherford, einn
frægasta Bibliusérfræðing
Breta.
Það voru margir, sem lögðu
trúnað á orð Jónasar, en hins
vegar var það algengara, að
menn brostu i grön yfir þessari
„heimsku” hans. Jónas var ó-
heppinn að þvi leyti, að hann
vann með röng ártöl i spádóm
um sinum, en þau ártöl leiðrétti
Adam Rutherford seinna. Þessi
ártöl voru byggð á spádómum
Bibliunnar og mælingum á
Pýramidanum mikla i Egypta-
landi.
Sú hugmynd, að einhver stór-
kostleg þekking myndi koma frá
íslandi, sem verða myndi til
blessunar öllum heiminum, hef-
ur virzt fráleit allt fram á hin
siðustu ár, en nú eru að skipast
blikur i lofti i heimi fornleifa-
rannsókna, sérstaklega hvað
snertir táknmál mannsins og
eðli goðatrúar, sem gerir það að
verkum, að hugmynd Jónasar
er ekki eins fráleit nú, eins og
hún var fyrir nokkrum árum.
Það er sem sé að koma i ljós,
svona smám saman, að grunnur
mannlegrar þekkingar og hins
mannlega eðlis sé mjög svo
tengdur hinni fornu þekkingu,
sem goðafræðin byggist á.
Tungumálin i heiminum eru nú
að byrja að komast i sviðsljósið,
og málvisindamenn eru nú
farnir að gera sér það ljóst, að
sálarfræðin og málvisindin séu
tengd i miklu rikari mæli,
heldur en hingað til hefur verið
álitið. Nægir að benda á kenn-
ingar Bandarikjamannsins
Comsky i þessu sambandi.
Og þá fer ljósið að renna upp.
Þvi þá kemur i ljós, að íslend-
ingar og islenzka tungumálið
eiga ef til vill dýrmætasta fjár-
sjóðinn á þessu sviði, og þar á ég
við hin gömlu handrit Islend-
inga. Sérstaklega þau handrit,
sem fjalla um hin gömlu goð,
sem áður fyrr þjónuðu svo
mikilvægu hlutverki á þróunar-
skeiði mannsins.
Island hefur nú þegar eignazt
menn, sem byrjaðir eru að
grafa upp þennan fróðleik, og
má þar benda á Einar Pálsson
tungumálasérfræðing, sem sett
hefur fram kenningar, sem i nú-
timaeyrum láta — svo ekki sé
meira sagt — nokkuð undar-
lega, en þær staðreyndir sem
hann dregur fram i dagsljósið,
vekja menn svo sannarlega til
umhugsunar.
Ef timinn leiðir það i ljós, að
Jónas Guðmundsson hafi farið
með rétt mál, þegar hann hélt
1. GREIN
fram hugmyndum sinum, þá
mun hann i framtiðinni verða
talinn sem einn af dýrmætustu
sonum íslands, þvi með kenn-
ingum sinum hefur hann þá
undirbúið islendinga undir þýð-
ingarmikið hlutverk i mann-
kynssögunni.
Greinarhöfundur hefur
sjálfur i kyrrþey unnið að rann-
sóknum á þessu sviði, og hann á
ýmisleg skemmtileg þekkingar-
brot i pokahorninu, sem hann
mun birta i nokkrum greinum i
þessu dagblaði. Ég mun sniða
mál mitt þannig, að það nái til
sem flestra, ekki aðeins til sér-
fræðinga.
En áður en ég byrja á þvi,
verð ég að ræða nokkur orð um
trúmál. Á þvi sviði eru menn
komnir i töluverða sjálfheldu.
Menn eru farnir að reikna með
þvi, að trúmál og visindi hafi
ekkert sameiginlegt, og þess
vegna hijóti þeir menn, sem
vilji blanda þessu saman að
vera eitthvað „skritnir”. Sam-
kv- þeirri skilgreiningu á orð-
inu skritinn, að það tákni per-
sónu, sem ekki fer troðnar slóð-
ir, þá er hugmyndin rétt. En ef
mannkynið á ekki að stöðvast i
þekkingarleit sinni, þá verða
einhverjir að taka það hlutverk
að sér að vera „skritnir”.
Fruminntakið i kenningum
Adams Rutherford er einmitt
það, að trúmálin séu visindi,
þekking, sem tilvera mannsins
byggist á, og hann hefur gefið
Guði hið sérstaka nafn: Hinn
mikli heili. (The big Brain).
Trúmálin eru nú komin niður
á það svið, að menn ræða um
það sin á milli, hvort þeir trúi
þvi að Guð sé til. Þegar ég heyri
slikt, kemur mér i hug mynd af
tveim frumum i likama minum,
sem ræðast við: önnur segir viö
hina: „Heldur þú, að það sé til
einhver æðri vera, sem hafi
áhrif á okkur?” Og hin svarar:
„Areiðanlega ekki, þvi visinda-
frumurnar okkar hafa sýnt það
svart á hvitu, að það eru ekki til
stærri verur en frumur.”
Blessaðar frumurnar vita það
ekki, að heimur þeirra er vera,
sem heitir Maður.
Sannleikurinn er sá, að vis-
indamenn geta ekki einu sinni
svarað þeirri spurningu, hvað
sé maður. Þekkingin á heila-
starfsemi mannshugarins er
enn sem komið er eintóm spurn-
ingarmerki, og sambandið á
milli tungumálakerfisins og
heilastarfseminnar er enn á
huldu. Það liggur i hlutarins
eðli, að fyrst verður að svara
spurningunni: „Hvað er
maður?” áður en reynt er að
svara spurningunni „Hvað er
Guð?”
En það þýðir samt ekki, að
umræður um trúmál séu ein-
hver bannvara. Setningin:
„Leitið, og þér munuö finna” er
jafnmikilvæg i dag, eins og hún
var, þegar hún var fyrst skrifuð.
Og þegar menn byrja að
reyna að kryfja til mergjar sitt
eigið tungumál, þá má segja, að
þeir séu að leita að Guði. Þvi
Biblian segir: Guð er Orðið. Við
getum sennilega alveg eins
sagt: Guð er Málið. Og i gegn
um eðli málsins munu menn
mæta Guði sinum, alveg eins og
þeir mæta öllum öðrum raun-
veruleikum I umhverfi sinu, þvi
meö málinu túlka menn raun-
veruleikann.
(Næsta grein:
ísland á sinn eigin
Pýramida)
Hinn nýi forsætisráðherra Noregs, Odvar
Nordli, sést hér ræða við ritara norska jaf n-
aðarmannaf lokksins, Ivar Leveraas til
vinstri, og Per Brunvand, ritstjóra Ar-
beiderblaðsins.
AAyndin var tekin við setningu lands-
stjórnarfundar flokksins í fyrri viku.
Einsog við var búizt, lét
Trygve Bratteli, forsætisráð-
herra, af störfum scm ráðherra
i fyrri viku, en Odvar Nordli
myndaði nýtt ráöuneyti norska
jafnaða rmanna flokksins.
Þótt Bratteli láti af starfi ráð-
herra, situr hann áfram á Stór-
þinginu og hættir ekki afskipt-
um af stjórnmálum. Ifins vegar
hafði hann talið rétt að undirbúa^
kynslóðaskipti i forystu flokks-
ins, og með Nordli komu nokkrir
nýir ráðherrar inn i stjórnina,
þeirra á meðal nokkrar konur.
Þessi mynd af fyrrverandi og
núverandi forsætisráðherra var
tekin i fyrri viku.
• •
r
SYSTURNAR SJO: BOK UM
ÆGIVALD OLÍUHRINGANNA
Stóru oliuauðhring-
arnir ganga gjarnan
undir nafninu systurnar
sjö. Þau eru Exxon
(Esso), Mobil, Socal
(Chevron), Shell, Gulf,
Texaco og BP. Þessi sjö
fyrirtæki eru öll i hópi 12
stærstu fyrirtækja i
heiminum i dag ef miðað
er við brúttóeignir. 1
bókinni ,,The Seven
Sisters” eftir Antony
Sampson, getur að lita
heldur ófagrar lýsingar
á auðhringunum og að-
ferðum þeirra.
í ársskýrslu Exxon fyrir árið
1973 er þvi haldið fram að það
fyrirtæki hafi verið það sem ný-
lega var farið að kalla fjölþjóð-
legt fyrirtæki, i fimm áratugi,
áður en þetta orð varð til i munni
fólks. Það er óhætt að segja að
stóru oliufélögin hafi sagt rikis-
stjórnum þeirra landa þar sem
oliu er dælt úr jörðu eða hún
hreinsuð, fyrir verkum. Tekjur
fyrirtækjanna hafa verið meiri en
tekjur þeirra landa þar sem þau
störfuðu, tankskipafloti þeirra er
stærri en allur skipafloti mikilla
siglingaþjóða, og félögin eiga og
stjórna heilum bæjum i eyði-
mörkum oliulandanna. Shell-oliu
er dælt upp á Shell-oliusvæöinu i
Shell-tanka, þaðan er henni dælt
gegnum Shell-oliuleiðslur til
Shell-oliuhreinsistööva og þaðan
er varan flutt til Shell-bensin-
stööva og þar er hún seld af Shell-
^starfsmönnum.
Risafélögin vilja vera i snert-
ingu við alla liði starfseminnar
allt frá oliubrunnum Austurlanda
til neytandans hvar sem hann á
búsetu. Oliuefnaiðnaður, kol og
kjarnorka eru iðngreinar sem
risafélögin láta sig miklu varða,
og þá ekki einungis með orku-
framleiðslu i huga heldur einnig
framleiðslu á plastvörum, tilbún-
um áburði og I lyfjaframleiðslu.
Það eru þessi fyrirbæri, oliu-
auðhringarnir, sem Anthony
Sampson fjallar um i bók sinni
„Systurnar sjö — Oliurisafyrir-
tækin og sá heimur sem þau
skópu”. Sampson er vel þekktur
m.a. af bók sinni um bandarisk-
ættaða fjölþjóðaauðhringinn ITT,
sem alþekktur er af þvi að b?ita
fleiru en guðrækilegu hjali einu
saman i umsvifum sinum viða um
heim, m.a. f Chile, i tið Allendes.
1 bókinni er lýst upphafi oliu-
auðhringanna fyrir meira en 100
árum siðan. Lesandinn er leiddur
gegnum fyrstu ár þeirra, þegar
hörð samkeppni rikti og ekkert
samræmi var milli framboðs og
eftirspurnar. Siðan verða risa-
fyrirtækin til og eftir harða sam-
keppni ganga þau I eina sæng og
mynda alþjóðlega hringa sem
skipta milli sin ollusvæðunum og
markaðinum. Sifellt risa minni
fyrirtæki og framleiðslulönd upp
á afturfæturna og reyna að rjúfa
skörð i stórveldi þessarar sam-
vinnu, en án árangurs. Að end-
ingu eru svo stofnuð Samtök oliu-
framleiðslurikja (OPEC) og sagt
er frá þvingunum þeirra. Stór
hluti bókar Sampsons er tileink-
aður aðdragandanum og siðar
stofnun þeirra samtaka og
árangri þeirra frá þvi.
Lesandinn er einnig leiddur
fyrir þá einstaklinga sem mestu
hafa ráðið um þróun þessara
mála, og æviatriði nokkurra eru
rakin til að varpa ljósi á atburöa-
rásina. Or þeim hópi sem kynnt-
ur er má nefna Rockefeller, norö-
manninn Torkild Rieber sem
drottnaði yfir Texaco um tima,
Paul Getty, eiganda Gulf Hunt,
transkeisara, Gaddaffi leiðtoga
Lýbiu og Yamani oliumálaráð-
herra Saudi-Arabiu.
„Olian er, og hefur alltaf verið,
mikilvægarien svo aö við megum
láta oliurisafélögunum hana eftir,
til ráðstöfunar að eigin geð-
þótta.”
Þessi orð má lita á sem megin-
niðurstöðu bókarinnar. Sampson
hefur, og það reyndar af gefnu til-
efni, litla samúð með oliufélög-
unum. Þau eiga sinna eigin hags
muna að gæta og gera það hvað
sem tautar og raular, jafnvel þótt
þeir hagsmunir eigi enga samleið
með hagsmunum neytenda eða
framleiðenda, enda báðir háðir
þeim, annar með að fá orkugjafa
en hinn með að losna við orku-
gjafa. Bókarhöfundur setur fram
þá kenningu að oliufélögin þjóni
aðeins þeim herra sem bezt borg-
ar sig að þjóna, og eins og stendur
og verður trúlega nokkuð áfram,
er þessi herra enginn annar en
aðildarlöndin i Samtökum oliu-
framleiðslurikja, OPEC.
Oliufélögin hafa sterk áhrif á
utanrikismálastefnu rikjanna
sem þau starfa i, og almannavilji
og hagsmunir oliufélaganna eru
ekki alltaf eitt og hið sama. Dæmi
um þetta er þrýstingur banda-
risku auðhringanna á þarlend
stjórnvöld til þess að hætta stuðn-
ingi við ísrael. 1 bók sinni sýnir
Sampson, hvernig oliufélögin
hafa alla tið mótað utanrikis-
stefnu einstakra landa og jafnvel
ákveðið hana, a.m.k. i þeim mál-
um sem varða samskipti við oliu-
framleiðslulönd.
Olian hefur gerbreytt lifs-
venjum okkar og menningu. Stór-
hluti framfara I iðnaði á þessari
öld hefur einmitt grundvallazt á
oliu. Oliufélögin hafa sett sitt
mark á framþróun samfélagsins
og oft ráðið miklu um hana.
Hagsmunir þeirra hafa oft á tið-
um lentí árekstrum við hagsmuni
almennings, Sampson nefnir slá-
andi dæmi þessu til vitnis. í Los
Angeles voru fyrstu úthverfin
byggð upp I nánd við sporvagna-
kerfi, og getur enn að lita minjar
þess meðfram asfaltlögðum
hraðbrautum.
í lok þriðja áratugsins bundust
oliufélögin sem mynda Socal,
bilaverksmiðjurnar General
Motors og hljólbarðaframleið-
andinn Firestone, samtökum um
að kaupa fyrirtækið sem átti og
rak sporvagnana. Þetta var gert i
þeim tilgangi einum að leggja það
niður og þar með skapa markað
fyrir framleiðsluvörur fyrirtækj-
anna sem að ofan eru nefnd. Það
sama var gert i öðrum stórborg-
um Bandarikjanna. Þetta tryggði
félögunum að bilaumferð var sá
eini kostur sem völ var á^markað-
urinn stækkaði. Ibúar úthverf-
anna máttu nú sitja i löngum bila-
lestum og eyða dýrmætri orku til
þess eins að menga umhverfið,
öllum til ama.
Sampson fjallar um stefnu
Norges og Bretlands i oliumálum,
en þar vekur mesta athygli gagn-
rýni hans á British Petroleum eða
BP eins og við þekkjum það betur
BP er að hluta til i eigu rikisins og
ekki er ólikt með tengsl þess við
rikið og er með tengsl islenzka
rikisins við Isal og reyndar fleiri
fyrirtæki sem að hluta til eru i
eigu rikisins.
„Fyrirtækið sýndi fljótt
Frankenstein-einkennin” skrifar
Sampson. Rikisstjórnum Bret-
lands þótti sem I BP væru saman-
komnir allir lestir einkareksturs-
ins og rikisrekstursins. Valdhafar
á sviði stjórnmála áttu erfitt um
vik að hafa pólitiskt eftirlit með
starfsemi fyrirtækisins. Fulltrúar
rikisstjórnarinnar stóðu illa i
stöðu sinni þegar þeir voru komn-
ir i stjórn BP.
Hverju sem það sætti.
Stefnumiðstjórnmálamanna og
hagsmunir oliufélagsins rekast
oft á, Sampson tekur til meðferð-
ar hvernig það sem er i ríkisins
eigu hefur sveigt stefnu stjórnar
sinnar til samræmingar eigin
hagsmunum.
1 stuttu máli er þetta hrifandi
bók og ættu allir þeir sem áhuga
hafa á þvi ofurvaldi sem oliu-
hringarnir eru, og hverjum
meðulum er beitt til að ná mark-
miðum fram, að lesa hana.
— EB
PlastiM Iif
PLA STPOKAVE R KSMJOJA
Sfmsr 82439 —82455
Vetnftgöröum 6
Bex 4064 - ReykjavIV
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur a!la
pipulagningavinnu
Oddur AAöller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnaríjaröar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
Onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsuh
llrelnsum j'ólfteppi og húsgögn I
heimahúsuin og fjrirlækjum.
Éruin meö nýjar vélar. G6Ö þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
BREIDÁS
Vesturgötu 3 simi 25144
Sovétríkin stærsti
olíuframleiðandinn
Bandaríkin og Saudi-Arabía í öðru
og þriðja sæti meðal mestu
olíuframleiðsluríkja heims árið 1975
Sovétrikin voru
mesti oliuframleiðandi
heims á siðasta ári með
heildarframleiðslu ér
nam 490 milljónum
tonna, segir i blaðinu
Petroleum Economist.
Framleiðsla, ef það er
rétta orðið um töku
oliu, þeirra jókst á sið-
asta ári um 31 milljón
tonna frá árinu 1974.
Bandarikin voru svo i
öðru sæti með 468,5
millj. tonna magn, en
Saudi Arabia var að-
eins i þriðja sæti, með
333,3 millj. tonn.
Hins vegar eru Sovétrikin að-
eins i öðru sæti, að þvi er varðar
fullhreinsun oliunnar. Banda-
rikin eru á þvi sviöi f efsta sæti.
Bandarikjamenn hreinsuðu 12,9
milljónir tunna af hráoliu á
dag meðan Sovétmenn hreins-
uðu aðeins 7,8 milljónir tunna.
Aukin framleiðni.
Oliuiðnaður Sovétrikjanna
hefur vaxið hröðum skrefum
siðustu árin og nú framleiða
þeir svo gott sem allar tegundir
oliuvöru. Með byltingu á tækni-
sviðinu hafa þeir aukið fram-
leiðni verulega og sjálf oliu-
hreinsunin er meðal arðbærustu
atvinnugreina sovézka efna-
hagslifsins.
Bandariska timaritið „Oil and
■ Gas Journal” segir að mjög
aukin framleiðni i oliuhreins-
unariðnaðinum, hóflegar hækk-
anir launakostnaðar og óbreytt-
ur rekstrarkostnaður á öðrum
sviðum hafi valdið þvi að hagn-
aður oliuhreinsunarfyrirtækj-
anna þar i landi hafi numið 1,98
milljarði bandarikjadollara ár-
ið 1973, samanborið við árs-
hagnað 1,55 milljarða dollara
árið 1970 og 755 milljóna dollara
árið 1965.
Litlar upplýsingar
Tæknivæðing og endurbygg-
ing sovézka oliuiðnaðarins hef-
ur verið lofuð hástöfum i so-
vézkum blöðum, en þau þegja
vandlega um framleiðslumagn
og áætlanir þar að lútandi.
Slikar upplýsingar eru varð-
veittar sem rikisleyndarmál.
Einu tölurnar, sem nefndar eru
i sovétblöðum, eru langtima-
markmið I framleiðslunni.
Arið 1969 skrifaði Pravda, að
magn hreinsaðrar oliu áriö 1968
hafi verið 34% meira en árið
1965. Blaðið bætti þvi við að
framleiðsla hreinsaðrar oliu
hafi aukizt um 88% frá
1960—1968. Hlutfallsaukningin i
Bandarikjunum sama timabil
var 28,5%.
Og samkvæmt grein i blaðinu
Izvestia var einn milljarður
.tonna af hráoliu hreinsaður
milli 1. jariúar 1960 og 5. april
1970. Það svarar til að meðal-
framleiðslan hafi verið 4,7
milljónir tunnur á dag árið 1968.
Jarðgas og kjarnorka
Neyzlan i Sovétrikjunum er
talin vera á siðasta ári um það
bil fimm milljónir tunnur á dag
af fullhreinsuðum oliuvarningi.
Sama ár var neyzlan i Banda-
rikjunum af fullhreinsuðum
oliuvörum 16,5 milljónir tunnur
á dag. Samt er talið að afkasta-
geta Sovétmanna á þessu sviði
sé um 60% af afkastagetu
bandariska oliuiðnaðarins. Það
þýðir að nú er hægt að hreinsa
milli 9—9,2 milljónir tunna á
dag.
Bandariska orkustofnunin
leggur til, að stefnt verði að þvi,
að árið 1980 geti bandarisk oliu-
félög hreinsað 17,7 milljónir
tunna á dag. Hins vegar er álitið
að aukning framleiðslugetu i
Sovétrikjunum verði nokkuð
hægari. Ástæðan er sú að Sovét-
menn leggja nú meiri áherzlu á
að hagnýta jarðgas, kol og
kjarnorku til að fullnægja orku-
þörf sinni. i þeirri fimm ára
áætlun, sem nú er nýlega gengin
i gildi er einmitt gert ráð fyrir
þvi. Þess vegna er aðeins gert
ráð fyrir að afkastaaukning
oliuhreinsunariðnaðarins þar i
landi verði hægari, eða 1,9—2
milljón tunnur á dag, og af-
kastagetan verði þvi orðin
10,9—11,2 milljón tunnur á dag
árið 1980.
Manchester City og
Newcastle á Wembley
Það verða Manchester City og Newcastle
United sem mætast á hinum glæsilega leik-
vangi Englendinga i Lundúnum, Wembley, 28.
febrúar nk. i úrslitaleik deildarbikarkeppninn-
ar. Bæði þessi félög eru ekki ókunnug leik-
vanginum stóra, þvi ekki eru svo ýkja mörg ár
siðan þau léku þar siðast. Newcastle gegn
Liverpool árið 1974 og Manchester City gegn
Leicester 1968.
Manchester City átti i höggi við „strákana”
hans Jackie Charlton á Main Road i Man
chester. Fyrri leiknum sem leikinn hafði
verið i Middlesbrough lauk með sigri heima-
manna 1:0, og þurfti þvi City að sigra i þessum
leik helzt með tveimur mörkum til þess að
komast á Wembley. Þeir gerðu þó gott betur
fyrir 45.000 áhorfendur sem hvöttu þá óspart
allan leikinn. Strax á 4. minútu leiksins skoraði
Gerard Keegan, á 11. minútu bætti Allan Oakes
öðru marki við og rétt fyrir leikhlé voru mörk-
in orðin 3 hjá City með góðu skoti frá Bárnes.
Staðan var þvi 3:0 i leikhléi. Gamla kempan
Joe Royle bætti svo 4. markinu við seint i leikn-
um og 4:0yfirburðasigur Manchester City var
staðreynd. Þeir komast þvi áfram á saman-
lögðu markahlutfalli 4:1.
Á sama tima, nokkru norðar og austar i
landinu, var Lundúnaliðið Tottenham gestur
Newcastle United á St. James Park. Sama gilti
hjá Tottenham og Middlesbrough, þeir komu
með naumt 1:0 forskot sem þeim tókst ekki
frekar að halda en gestunum i Manchester.
Newcastle vann 3:1 og kemst þvi áfram á hag-
stæðra markahlutfalli, 3:2.
Heimamenn fengu óskastart þegár á 2. min-
útu leiksins þegar Alan Gowling skoraði.
Þannig var staðan i hálfleik. Skömmu eftir hlé
bætti Keeley við öðru marki fyrir United. A 74.
minútu skoraði Nulty 3. mark Newcastle, en
McAllister minnkaði muninn fyrir Spurs á
sömu minútu.
FH breytti um gerfi
Eftir leik Gróttu og Vikings i Hafnarfirði i
gærkveldi ættu menn að hætta öllum spádóm-
um fyrirleiki, i það minnsta þessu Islandsmóti
sem nú stendur yfir. Það hefðu vist fáir sem
fylgst hafa með móti þessu að undanförnu bú-
izt við þvi að Seltjarnarnesliðið ætti mikla
möguleika gegn Viking. En annað kom þó á
daginn. Grótta vann 19:17, og staða þess breyt-
ist skyndilega i langt i frá vonlausa stöðu um
björgun frá falli niður i 2. deild, sem spáð var
eftir siðasta leik liðsins.
Já, þetta mót er likast krossgátu. Menn eru
varla búnir að jafna sig eftir óvænt úrslit, þeg-
er annað og það jafnvel enn óvæntara, gerist.
Leikurinn I gærkvöldi var jafn lengst framan
af. Vikingur hafði yfir i leikhléi 10:9.
Þegar 10 minútur voru liðnar af siðari hálf-
leik átti sá einstæði atburður sér stað að Karl
G. Benediktsson þjálfari Vikings var rekinn af
leikvelliaf dómurum leiksins Magnúsi V. Pét-
urssyni og Vali Benediktssyni. Þegar það varð
var leikurinn i járnum. Missir þjálfarans af
bekkjunum virtist hafa mikil áhrif á Viking-
ana. Grótta komst þá tveimur mörkum yfir og
héldu þvi forskoti það sem eftir var leiksins.
Björn Pétursson var markahæstur hjá
Gróttu með 8 mörk, en Viggó Sigurðsson hjá
Vlking með 7 mörk.
Við brottrekstur
þjáifara Víkings
kviknaði á Gróttu
Enginn getur nú sagt fyrir um það hverjir
verða Islandsmeistarar árið 1976 I handknatt-
leik eftir stórsigur FH-inga yfir Valsmönnum i
Hafnarfirði i gærkvöldi 28:23. Það var heldur
ekki seinna vænna fyrir FH-inga til að gefa sér
og 5 öðrum liðum möguleika á að hljóta þennan
eftirsóknarverða titil. Þessi sigur er þvi ekki
aðeins kærkominn FH, heldur einnig nokkrum
öðrum liðum.
Frá leiknum i gærkvöldi er skemmst frá þvi
að segja að Hafnfirðingarnir voru eins og allt
annað lið en gegn Viking á sunnudag. Þeir
börðust af jötunmóð allan timann og má segja
að sigur þeirra hafi verið augljós allt frá upp-
hafi. Geir Hallsteinsson, og reyndar allt liöið,
átti mjög góðan leik, og ef, já ef, þeir leika eins
og þeir geröu i gærkvöldi, má búast við að þeir
verði ósigrandi það sem eftir er. Guðjón
Magnússon var bezti maður Vals i þessum leik
og einnig markahæstur, með 9 mörk. Geir
Hallsteinsson gerði 7 mörk fyrir FH, Viðar 6 og
Guðmundur Árni Stefánsson 5, aðrir minna.
. . 1 1
// Kasettuiönaöur og áspilun, \\ DUftfl
| [ fyrir útgefcndur hl|ímsveitir. ) U kóra os fl. Leilih tilboía. ' 1 \\ Mifa-tónbönd Akureyrl J/ \\P0sttl. 631. Slmi (W)22136 Síðumúla 23 /ími 64900
. |
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Simar 25322 og 10322