Alþýðublaðið - 06.02.1976, Side 2
Getið þér
gert betri
kaup
Rýmingarsala á
húsgagnaáklæði
aðeins 1.000 kr.
metrinn
*
Valhúsgögn Armúla 4
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur me6 sjálfsafgreiðslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
við Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gyllta
salnum.
Simi 11440.
HÓTEL SAGA
Grillið opið aila daga. Mfmisbar og Astrabar, opið alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opiö á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munið hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
Fdnl
TOLVUVINNSLA
OG
PERSÚNUNJÓSNIR
Nútímamaðurinn er
byggður eins og tölva til
að vita, hvað hann á að
gera og hvað honum er
bannað. Allt frá fæðingu
eru menn skráðir í tölvu-
kerfið, en lokafærslan
gerist við dauðann.
Nútímamanni er
stjórnað af fjölmiðlum,
með auglýsingum og
bréfum. Hleranir eru eitt
af því, sem nútímamenn
þurfa að þola.
En við erum ekki komin
enn á það stig, að allir séu
i tölvukerfinu eins og
stendur í pappírskilju,
sem nýlega kom út og
heitir: Erfassungschutz.
Der burger in Daten-
bank: Zwichen Planung
und Manipulation, sem
Deutsche Verlags-
Anstalt, í Stuttgartgaf út.
Höfundar sýna fram á
það, að þeir, sem nú ótt-
ast tölvukerfið, eiga von
á verra, þegar ríkis-
stjórnir vita allt um alla,
bæði einstaklinga og
fyrirtæki.
Þá verða simahleranir nútim-
ans hættulausar, að þvi er telja
má. Framtiðarsýn Orwells
„1984” verður að veruleika.
Tölvurnar geta áorkaö þvi. A
sekúndum geta tölvur gert það,
sem þúsundir manna geröu
áður fyrr. Á einni klukkustund
getur Volkswagen-tölva reiknað
út laun 40 þúsund starfsmanna,
og leyst af hólmi 200 menn.
Tölvur geta séð um erfið og
flókin reikningsdæmi verk-
fræðinga.
Slikar tækniframkvæmdir er
ekki unntað þræta um, en tölvu-
kerfið sést ljóslega i bók Folker
Kraus-Weyssers: „Orwell schon
da?”
Þar stendur skrifað: „1
Bandarikjunum var tölva
mötuö með 280 staðreyndum um
fjölskyidu og forfeður 239 ný-
fæddra barna. Spurningin var,
hve mörg þeirra ættu eftir að
lenda i vandræðum við löggjafa.
Þetta var fyrir sautján árum og
nú hefur sannazt aö tölvan hafði
á réttu að standa i 3,5% til-
fellum.
tölvuheiminum eru gott og ilt
hins vegar nátengt.
Ef til vill er þessi bók bezta
dæmi þess, hve hentug og hve
óhentug nýja tæknin er.
Greinarnar i henni eru undir-
stöðuatriði umræðna um tölvur
og not tölvukerfis fyrir al-
menning og um hann.
Höfundarnir hafa ekki látið
sér sjást yfir vankanta slikra
staðreynda. Fólk undir áhrifum
tölvunnar er i vasa stjórnmála-
manna og iðnrekanda, sem nota
sér áhrifin til að fá fólk til að
kjósa rétt.
Auðvitaö er notkun eða van-
notkun tölvukerfisins undir þvi
komin, hver nýtir það. Innan
skamms er unnt að skrá lif
hvers Bandarikjaþegns i milu
langt segulband i stað tuttugi
blaðsiðna skýrslu. Það nægir
þó að mennirnir þegi yfir hinu
og þessu.
Það er engin leið til að koma ii
veg fyrir misnotkun og spillingu.
þeirra, sem eiga aðgang afi
tölvunum, enda er þörf á auk-
inni aðgæzlu þar.
Það ætti að banna einstak
lingum eða einstaka fyrirtækj-
um aðgang að slikum upp
lýsingum, og það er mikilvægt.,
að þær komist ekki i hendur-
rangra aðila.
Höfundarnir leggja bæði eiti:
og annað til, svo sem það, ati
endurskoðun sé á öllu tölvuefni.
Rangar upplýsingar geta borizt.
Vafalaust getur enginri
„ombudsman” séð um, að upp-
lýsingarnar séu ekki misnot-
aðar.
Fimmtán höfundar þessarar
bókar gátu hins vegar ekki
svarað þvi hver væri fullkomim
vörn gegn fullkomnum
staðreyndasöfnunum.
Þeir segja, að það sé ekki
hægt.
Með tölvukerfi er auðvelt að
hafa eftirlit með væntanlegum
afbrotamönnum. Enginn getur
neitað rikistölvu um upplýsing-
ar, ef það hefur i för með sér
lækkun á almennri þjónustu. I
Nú er hægt að skrásetja sál-
fræðilega alla þá, sem nota
lánskort. A þeim er hægt að sjá
neyzlu kaupenda, en það
auðveldar tölvunni að sjá, hvað
menn kaupa.
Eigum við að halda áfram af)
búa við simahleranir og tölvu-
þjófa? Þvi miður virðisit
tölvurnar ráða yfir fleiri
staðryndum og frekari upp-
lýsingum, en bestu njósnarar.
Alþýðublaðið
Föstudagur 6. febrúar 1976.