Alþýðublaðið - 06.02.1976, Page 11

Alþýðublaðið - 06.02.1976, Page 11
Tónleikar í Félagsstofnun í kvöld I kvöld kl. 20.30 verða tónleikar i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. >ar leika tveir ungir menn, Arnaldur Arnarson og Pétur Jónasson á tvo gitara, ein- leik og samleik. Það mun vera sjaldgæft að efnt er til samleiks á gitar hér á landi. A efnisskrá tónleikanna verk eftir Barch, Albeniz, Sor, Carulli, Duarye og fleiri. Flytjendurnir eru ungir að árum og stunda nú mennta- skólanám. Þeir hafa báðir stundað nám i klassiskum gitar- leik frá 10 ára aldri. A myndinni er Pétur til vinstri en Arnaldur til hægri. eb Benzínstöðin við Hólmsá er orðin hitamál í borgarráði Sl. þriðjudag var enn rætt í borgarráði um byggingu olíu- og benzín- af greiðslustöðvar við Hólmsá. Að þessu sinni var lagt fram að nýju bréf trygginga- og heil- brigðismálaráðuneytisins varðandi þessa fram- kvæmd, svo og bréf vatnsveitustjóra og bréf heilbrigðismálaráðs. Af- greiðslu málsins var frestað og ákveðið að taka það fyrir að nýju á næsta fundi borgarráðs. Mál þetta er að verða allt hið viðkvæmasta. Vatnsveitustjóri telur sig ekki geta mótmælt staðsetningu stöðvarinnar, þar sem hún er fyrirhuguð, sem rökum um verndarsjónarmið vatnsbóla i huga. Heilbrigðis- málaráð vill hins vegar enga áhættu taka i þessu máli vegna nálægðar fyrirhugaðrar stöðvar við vatnsból Reykvikinga, Gvendarbrunna. Þrátt fyrir að fyrir liggi rann- sóknir á rennsli jarðvatns á þessum slóðum, hafa menn ekki getað orðið á eitt sáttir um af- stöðu i þessu máli. Vatnsveitustjóri telur að ekki stafi hætta af staðsetningu slikrar stöðvar á þessum stað og ekki séu likur til þess að benzin eða olia geti komizt frá stöðinni i vatnsbólið. Þó að málið verði tekið fyrir i borgarráði n.k. þriðjudag er talið óvist með öllu áð fullnaðar- afgreiðsla fáist, en blaðið mun fylgjast með framgangi málsins og meðferð þess. Almennur fundur í Þorlákshöfn um lækkandi fiskverð Skipstjórar og útgerðarmenn héldu fund í Þorlákshöfn 1. febrúar síðastliðinn, og varfiskverð og sjóöakerfi sjávarútvegsins tilefni fundarins. Lýsti fundurinn al- gerri samstöðu með störf samstarfsnefndar sjómanna, og telja fundarmenn að nefndin hafa unnið vel að málum sjómanna. Skipstjórar og útgerðarmenn mótmæla Fundurinn mótmælir seina- ganginum sem hefur orðið á framkvæmd uppstokkunar sjóða- kerfisins, og samningamálum sjómanna og útgerðarmanna. Einnig mótmælir fundurinn þeirri fiskverðslækkun sem hefur orðið i janúar. Telja fundarmenn að ekki komi fram rétt fiskverð fyrir hvern og einn netabát, þar sem forsendan er tekin á ársgrund- velli troll- og netafisks. 1 fréttatilkynningunni kemur fram, að nær 40% af afla Þorláks- hafnabáta sé verðfelldur með ákvörðun Verðlagsráðs. Lýsa fundarmenn þvi algjöru van- trausti á fulltrúa sina i Verðlags- ráði sjávarútvegsins. Fundurinn mótmælir einnig framkominn til- lögu Fiskveiðilaganefndar um breytingu á togveiðisvæði frá Þjórsárósi að Hafnarnesi. Að lok- um lýstu fundarmenn óánægju með hvernig staðið er að gerð friðunarsvæðis á Selvogsbanka. G.G. VERKFRÆÐINGAR HAFA SAGT UPP SAMNINGUM „Verkfræðingar sem starfa hjá Reykjavikurborg, hafa nú sagt upp kjarasamningum sinum, og einnig þeir verkfræðingar sem vinna hjá verkfræðiskrifstofum, en þeirra samningar renna út um mánaðarmótin næstu,” sagði Gunnar Gunnarsson verk- fræðingur, en hann á sæti i viðræðunefnd Stéttarfélags verk- fræöinga, sem á nú i viðræðum við nefnd af hálfu borgarinnar um nýja kjarasamninga. Er blm. Al- þýðublaösins spurði Gunnar um nýjar kaupkröfur verkfræðinga, sagði hann. „1 viðræðunum við fulltrúa borgarinnar, er reynt að leita að nýjum lausnum til að breyta launamálum verkfræðinga. Við förum ekki fram á neinar form- legar kaupkröfur, heldur viljum við reyna að leiðrétta þá öfug- þróun sem hefur átt.sér stað i launamálum verkfræðinga frá árinu 1967. Þá voru laun verk- fræðinga miðuð við laun hjá fimm sérstökum iðnaðarstéttum, en þróunin hefur verið slik, að við þyrftum 100% launahækkun ef við ættum að halda i við þessar iðnaðarstéttir. Við höfum sem sagt dregist aftur úr visitölunni. Viö höfum alis ekki fárið fram á neina 100% kauphækkun, en viö vonumst til að geta leiðrétt þessa öfug þróun sem hefur átt sér stað. Hins vegar hafa engar samninga- viðræður átt sér stað á milli verkfraaðinga sem vinna á verk- fræðiskriftofum og þeirra yfir- boðara, en búast má við að þær hefjist fljótlega , sagði Gunnar Gunnarsson að lokum. KYNNI Einmana tæplega fertugur maður með góða menntun óskar eftir kynnum við barnlausa konu á likum aldri með sambúð i huga. Æskilegt að konan ráði yfir hús- næði. Tilboð sendist blaðinu merkt: Prúðmenni. Framkvæmdarstjóri óskast Starf framkvæmdarstjóra við Rækju- vinnsluna h/f, Skagaströnd er laust til umsóknar. Þekking á niðursuðuiðnaði æskileg. Upplýsingar i sima 95-4652, kl. 20.30 til 22.00. Umsóknir sendist fyrir 20. þ.m. til Jóns Jónssonar Bogabraut 24, Skaga- strönd. ÚTB0Ð Sigluf jarðarbær óskar eftir tilboðum i sölu á eftirfarandi efni fyrir Hitaveitu Siglu- fjarðar. 1. Stálpipur 2. Þenslustykki 3. Þensluslöngur 4. Einangrun utan um stálpipur 5. Lokar Útboðsgögn verða afhent i Verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar Skipholti 1, Reykjavik. Skilafrestur er til 26. febrúar. Bæjarverkfræðingur. Das Pronto leir, sem harðnar án brennslu. — Heildsölubirgðir fyrirliggjandi. Brennipennar fyrir tré einnig fyrirliggj- andi i heildsölu. HABO Umboðs- og heild-verzlun Simi 26550. Hhefur opið pláss fyrir hvern sem er Hringið í tiORNlD sími 81866 - eða sendið greinar á ritstjórn Alþyðublaðsins, Síðumúla 11, Reykjavík Föstudagur 6. febrúar 1976. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.