Alþýðublaðið - 06.02.1976, Side 15
VÖN
Ég er 35 ára, og á fjögur börn.
Ég vil helzt ekki nota pilluna, en
aftur á móti finnst mér ég ekki
örugg, ef ég nota aðrar getn-
aðarvarnir. Ég er þvi hálft i
hvoru að hugsa um að láta vana
mig, gera mig ófrjóa með þvi að
brenna eggjastokkana.
En ég er þó i vafa um hugsan-
legar aukaverkanir.
1. Hefur vönunin áhrif á til-
finningalifið, þannig að maður
að einhverju leyti glati kynhvöt-
inni, eða úr henni dragi?
2. Er hætta við að maður fitni,
eftir að hafa verið vanaður —
verði meiri og þrýstnari um
mjaðmir og sitjanda?
3. Hefur það áhrif á tiðahvörf-
in, þannig að þau verði fyrr en
ella og erfiðari manni?
4. Getur vönunin haft önnur
áhrif, sálræn eða likamleg — en
ég er að öllu leyti hraust og
sterk? i.B.
CIR DAGBÖK
LÆKNISINS
Eins og vitað er, þá myndast
eggið i eggjastokkunum. bað
U N
losnar um þaö bil hálfum mán-
uði fyrir næstu tiðir, og leggur
þá leið sina um eggrásirnar i
legið. Veröi það frjóvgað á
þessu timabili, tekur það festu i
slimhúö legsins og þróast þar
siðan.
Varanleg vönun á konum
getur meðal annars verið
framkvæmd á þann hátt að
eggrásirnar séu skornar
sundur, eða eins og þér segið
„brenndar” — það er að segja
eggrásirnar, en ekki eggja-
stokkarnir. Með þvi móti stiflast
eggrásirnar, og eggið kemst
ekki leiðar sinnar i legið, og
getur þá ekki frjóvgazt heldur.
Þetta er varanleg breyting,
sem ekki verður afturkölluð. Nú
kemur það aftur á móti fyrir, að
konur sem hafa látið
framkvæma á sér slika vönun,
sjá eftir þvi og jafnvel þótt það
megi takast að opna eggrásirn-
ar aftur, heppnast það ekki
nándanærri alltaf. Lögin, sem
snerta þessa aðgerð, krefjast
þess þvi að viðkomandi kona
hafi gilda ástæðu til að óska að-
gerðarinnar, og ef unnt er, að
eiginmaðurinn sé þar hafður
með i' ráðum.
Þessi vönunaraðferð á ekki að
hafa nein áhrif á kynhvötina.
Hún hefurekki heldur þau áhrif
að viðkomandi fitni, hvorki um
mjaðmir né sitjanda.
Hún á ekki heldur að hafa nein
áhrif i sambandi við tiðahvörf-
in. Hormónaframleiðslan i
eggjastokkunum er söm og
áöur, og heldur áfram eins og
áður. Hafa og sömu áhrif.
Sfðustu spurningunni er erfitt
að svara. Sálfræðileg áhrif
getur aðgerðin haft, og þá ýmist
jákvæðeða neikvæð. Sé viðkom-
andi kona i vafa um hvort hún
eigi að láta framkvæma aðgerð-
ina, en gerir það, enda þótt
henni sé ljóst, að þar sé að
mestu leyti um óafturkallanlegt
skref að ræða, þá getur þaö að
sjálfsögðu orðið allþungt sál-
rænt álag, að vita sig orðna
ófrjóa fyrir eigin ákvörðun. Þér
komizt svo að orði, að þér séuð
hraust og sterk. Eigi þetta við
bæði likamann og sálina, og þér
takið ákvörðunina eftir nána
yfirvegun, og i fullu samkomu-
lagi og samráði við eiginmann
yðar, er öll ástæða til að ætla aö
allt fari vel. Aðgerðin hefur i
sjálfu sér ekki nein áhrif á
sálarlifið sem slik.
Leikhúsin
LEIKFELAGÍ
YKJAVÍKURj
Danskur gestaleikur:
KVÖLSTUNP
með Lise Itingheim og
11 e n n i n g M o r i t z e n .
Aukasýning til áðgóöa fyrir
Húsbyggingasjóð Leikfélags-
ins, i Austurbæjarbiói
1 kvöld kl. 21.
SAUM ASTOKAN
i kvöld. — Uppselt.
KOLRASSA A
KÚSTSKAFTI
Barnaleikrti eftir Asdisi
Skúladóttur, Soffiu Jakobs-
dóttur og Þórunni Sigurðar-
dóttur.
Frumsýning laugardag kl. 15.
SKJALPHAMRAR
laugardag. — Uppselt.
EQUUS
sunnudag kl. 20,30.
SKJALPHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
SAUMASTOFAN
miðvikudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14-
20.30. Simi 1-66-20._
“ÞJÓÐLEIKHUSÍÐ
SPORVAGNINN GIRNP
i kvöld kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
CARMEN
laugardag kl. 20. Uppselt.
KARLINN A
ÞAKINU
laugardag kl. 15.
sunnudag kl. 15.
GÓDA SALIN
iSESCAN
sunnudag kl. 20.
Næst siðasta sinn.
Litla sviðið:
INUK
sunnudag kl. 15.
155. sýning.
Miðasala 13,15-20. Simi 1-1200.
Herilsugssla
Helgar-, kvöld- og næturþjónusta
apóteka i Reykjavik.
6. febrúar — 12. febrúar Borgar
Apótek — Reykjavikur Apótek.
Það apótek, sem tilgreint er á
undan, annast eitt vörzluna á
sunnudögum, helgidögum og al-
menniim fridögum.
Sama apótek annast nætur-
vörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9
að morgni virka daga, en til kl. 10
á sunnudögum, helgidögum og
alm. fridögum.
Athygli skal vakin á þvi, að
vaktvikan hefst á föstudegi.
Skák
11. SCHWICKER—
GOLDITZ
Strasbourg 1972
I
KOMBÍNERIÐ
Lausn annars staðar á
siðunni.
Ýmrislegt
Tónlist æskufólks
Vikuna 7. til 13. feb. nk. verður
árleg Tónlistarhátið Norræns
Æskufólks, Ung Nordisk Musik-
fest, haldin i Arósum i Dan-
mörku. Þar munu ungir norrænir
hljóðfæraleikarar innan þritugs
flytja tónlist eftir ung norræn tón-
skáld á sama reki. Gert er ráð
fyrir að þátttakendur verði um
150. Þar af eru 40 tónskáld og
veröur flutt sitt verkið eftir hvert
þeirra. Tónsmiðarnar eru með
ýmsu formi og hljóðfæraskipan
svo sem hljómsveitar—.
kammer-, einleiks og elektrónisk
verk. Þá munu tónskáldin fjalla
eitthvað um verk sin.
Tvær islenzkar tónsmiðar
verða fluttar á UNM-1976. Þær
heita Sonatá X, sem er fyrir 2
flautur, 2 óbó, 3 klarinett og 3
hom eftir Jónas Tómasson og
Beatriz Clara Coya, sem er fyrir
einleiksfiðlu eftir Rikharð Páls-
son.
Islenzkir hljóðfæraleikarar á
hátfðinni verða þessir: Agústa
Jónsdóttir, vióla: Hrefna Hjalta-
dóttir, vióla: Júliana Elin
Kjartansdóttir, fiðla, en hún mun
flytja Beatriz Clara Coya: ölöf
Sesselia Öskarsdóttir, selló: og
Sigriður Hrafnkelsdóttir, fiðla.
tslenzka þátttöku i UNM-1976
kosta Menningarmálasjóður
Norðurlandanna og Menntamála-
ráðuneyti Islands.
UngNordisk Musikfest er fyrir-
huguð næsta ár i Reykjavik.
Unglingarannsóknir
Dr. philos. Edvard Befring,
prófessor i uppeldislegri sálar-
fræði i Arósum flytur opinberan
fyrirlestur i boði heimspekideild-
arHáskóla tslands fimmtudaginn
5. febrúar n.k. kl. 17.00 I stofu 301.
Arnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist
Ungdom og ungdomsforskning I
en vestnordisk sammenheng
öllum er heimill aðgangur.
Umhverfisstyrkir NATO
Atlantshafsbandalagið (NATO)
mun á árinu 1976 veita nokkra
styrki til fræðirannsökna á
vandamálum er snerta opinbera
stefnumótun á sviöi umhverfis-
mála. Styrkirnir eru veittir á veg-
um nefndar bandalagsins um
vandamál nútimaþjóöfélags, sem
skipuleggur rannsóknir á ýmsum
sviðum, svo sem mengun sjávar
og vatna, vatnshreinsun, eyöingu
hættulegra efna, loftmengun,
umferðaröryggi, samgöngum
innan borga, heilsugæslu, áhrif-
um matvæla á heilsufar, sólar-
orku og jarðhitaorku.
Að þessu sinni veröa styrkverk-
efnin sem hér segir:
1. Aðgerðirtilaödraga úr hávaða
2. Endurnýting úrgangsefrta og
vernd náttúruauðlinda.
3. Vandamál við framkvæmd
umhverfismálastefnu I sveitar-
félögum
4. Megnun af völdum kemiskra
efna.
5. Gæði drykkjarvatns.
Styrkirnir eru ætlaðir til rann-
sóknastarfa i 6-12 mánuði og er
eftir atvikum að þvi stefnt að
styrkþegar leggi fram tillögur til
úrbóta framangreindum
sviðum. — Fjárhæð hvers styrks
mun nema allt að 220.000 belgisk-
um frönkum eða u.þ.b. 950.000 Isl.
kr.
Gert er ráð fyrir, að umsækj-
endur hafi lokið háskólaprófi.
Umsóknum skal skilað til utan-
rikisráðuneytisins fyrir 30. april
n.k. — og lætur ráðuneytið i té
nánari upplýsingar um styrkina.
Minningarkort Félags einstæðra
foreldra fást á eftirtöldum stöð-
um: Á skrifstofunni i Traðarkots-
sundi 6, Bókabúö Blöndals
Vesturveri, Bókabúð Olivers
Hafnarfirði, Bókabúð Keflavikur,
hjá stjórnarmönnum FEF Jó-
hönnu s. 14017, Þóru s. 17052, Agli
s. 52236, Steindóri s. 30996, Stellu
S. 32601, Ingibjörgu s. 27441 og
Margréti s. 42724, svo og hjá
stjórnarmönnum FEF á tsafirði.
„Samúðarkort Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra eru til sölu á
eftirfarandi stöðum: Skrifstofu
félagsins að Háaieitisbraut 13,
simi 84560, Bókabúð Braga
Brynjólfssonar, Hafnarstræti 22,
simi 15597, Steinari Waage,
Domus Medica, Egilsgötu 3, simi
18519, Hafnarfirði: Bókabúö Oli-
vers Steins, Strandgötu 31, simi
50045 og Sparisjóð Hafnarf jaröar,
Strandgötu 8-10, simi 51515.”
Ásprestakall
Séra Grimur Grimsson verður
fjarverandi um tima vegna veik-
inda. Séra Arelius Nielsson, timi:
33580, gegnir störfum hans á með-
an.
Munið frimerkjasöfnun
Gerövernd (innlend og erl.) Póst-
hólf 1308 eða skrifstofa félagsins,
Hafnarstræti 5, Reykjavik.
Félag Nýalsinna.
Félagsfundur verður i kvöld mið-
vikudag kl. 9 að Alfhólsvegi 121,
Kópavogi. Ýmis dagskrárefni.
Félag Nýalsinna.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traöarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3-7 e.h.
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1-5. Simi 11822. A
fimmtudögum kl. 3-5 er lögfræð-
ingur FEF til viötals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn.
angarnrir
Föstudagur 6. febrúar 1976.
Reykjavik: Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi moo.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100,
Sjúkrabifreið simi 51100.
Brridge
Meistarar á
villigötum
Sagt er, að ekki sé auðvelt að
koma að hreysikettinum sofandi.
Spilið i dag, þar sem Belladonna
og Avarelli villtust, má vera
dæmi um undantekningu:
Norður
4 A-lO-3
V K-8-5-4
♦ 9
'Vestur^ Á-G-8-3
4 5
¥ Á-D-G-10-3
♦ D-8-7
♦ 7-5-4-2 Suður
4 D-G-9-2
¥ K-6-7-5
♦ K-D-10
4-
4
¥
♦
4
Austur
K-8-7-4
9-2
A-10-6-4-3
9-6 ;
Sagnir gengu:
Norður Austur Suður Vestur
2 lauf Pass. 2 spaðar pass
3 tiglar Pass. 3 spaðar pass
Pass Pass.
Vakning Belladonna i Norðri
sýndi þrilitahönd, samkvæmt
Roman club-kerfinu, sem þeir
félagar gerðu garðinn frægan
með og 3 tiglar sýndu ennfremur.
að þar var stuttliturinn. Avarelli
lét sér þvi nægja þriggja spaða
sögnina og Vestur sló út hjarta-
drottningu. Þetta er óvenjulegur
spilaháttur i litarspili og sagnhafi
var viss um, að Austur ætti ásinn.
Hann gaf þvi drottninguna og
gosann þar eftir. Vestur sló næst
út einspili sinu i spaða, sem bæði
Norður og Austur létu lágt i og
sagnhafi fékk á niu. Hann spilaði
nú lágtrompi og varð bæði gram-
ur og hissa þegar Vestur fylgdi
ekki lit. Sagnhafi tók á ás og
spilaði út hjarta, og þá biðu hans
önnur vonbrigði þegar Austur
fleygði niður laufi. Sagnhafi
reyndi nú að taka sina þrjá laufa
slagi, en Austur trompaði og tók
siöan spaðakóng. Austur sló nú út
smátigli, sem sagnhafi tók á
kóng, en spilið var óumflýjanlega
einn niður. Það er vist jafnve!
hægt að villa um fyrir meist
urum, ef vel er að gáð
ISátan
\ k-
'ft.STÍG vel/nu srnnnL NhTT Hnm N/R
mn> y'os
\
VOKVJ NU K£YRR wum ík'rlm
S
bhk S T 'OL'IKIR KOLRfí V!
□ RlSTl RuSL
VtRDUR miNNi -^R
stett /. P£RS.
GLOPP fíN
um hvERF /5
SKÁKLAUSN
II. SCHVnCKER—COLDIT/.
I. g6l h6 [I ,tjc3 2. h6! t'ph 3.
hg7 -1 2. ,ti,h6! gh6 3. g7 gfc8
4- Ý’t‘4 .,Lg5 5. gg5 hg5 6. -:: f6!
[6. •A-gS ®h7j f;JS 7. vvh6 f6
8. h8 jS. Öf-U cf5 9. C)d-S
10. vvhS $>f7 11. g8«! «-g8 12.
* f6 <&eS 13. f-c7 ®f7 9. *h7
vSgS 10. •*-g6 'S'c? II. £jf5 ef5
12. .^05 'V05 13. c05 .týe5 14.
ge! jLeS 15. ge5 0e5 16. 06
1 : 0 [Maricj
Alþýðublaöiö