Alþýðublaðið - 25.04.1976, Side 1

Alþýðublaðið - 25.04.1976, Side 1
SUNNUDAGSLEIDARI biaSfð Sunnudag ur 25. apríl 1976 — 78. tbl. — 1976 — 57. árg. Hálfrar aldar leiklistar- afmæli Vals Gíslasonar Um þessar mundir á einn fremsti listamaður Islendinga hálfrar aldar starfsafmæli. Fimmtiu ár eru nú liðin, siðan Valur Gislason lék fyrsta hlut- verk sitt á leiksviðinu i Iðnó. Frá stofnun Þjóðleikhússins hefur hann verið einn aðalleik- ari þess og leikið þar á annað hundrað hlutverk. Hann hefur nýlega horfið þar úr föstu starfi fyrir aldurs sakir samkvæmt reglum þeim, sem um opinbera starfsmenn gilda. Islenzk leikmennt á sér ekki aldargamla sögu. Upphaf hennar er skömmu fyrir siðustu aldamót. Og marga fyrstu ára- tugina var hún tómstundastarf áhugamanna. Það er einn af furðuþáttum islenzkrar menn- ingarsögu, hversu miklum þroska leiklistin náði, meðan hún var enn hjáverk fólks, sem litið eða ekkert hafði lært á þessu sviði og hafði ekki tima til þess að sinna henni fyrr en að loknu fullu dagsverki. Valur Gislason er einn þeirra, sem ruddi brautina með þessum hætti. Sá, sem þetta rit- ar, sá hann i fyrsta hlutverkinu i Iðnó, þá bam að aldri. En sýn- ingin var heillandi ævintýri, sem ungum dreng gleymist aldrei. Og ungi maðurinn, sem þá sté fyrstu sporin á leiksviði og mælti þar fyrstu orðin, varð einn af mestu leikurum, sem íslendingar hafa eignazt, einn þeirra, sem gerði islenzka leik- list að þvi, sem hún er i dag, sambærilega heimlistinni i leikhúsum stórborga, og þar með að einum af hornsteinum islenzkrar menningar. Þeim, sem heyrðu Val Gisla- son leika riddaraliðsforingjann i leikriti Strindbergs, Föðurn- um, i útvarpi á sumardaginn fyrsta, mun ekki geta dulizt, að þar var snillingur að verki. En ekki einungis slik hlutverk hef- ur hann leyst af hendi með á- gætum. Hann hefur leikið jafn- vel á gamansama strengi. Lik- lega er óhætt að segja, að hann hafi aldrei leikið hlutverk, sem hann hafi ekki farið vel og rétt með, hvort sem það var stórt eða litið. Enhvað er það, sem gert hef- ur Val Gislason að miklum leik- ara? Það er gamalt og alkunn- ugt boðorð, að menn skuli læra að þekkja sjálfan sig. Það er öllum mönnum hollt og nauð- synlegt. En þeim, sem verður mikill leikari, er það ekki nægi- legt. Hann verður einnig að þekkja aðra. Að sjálfsögðu er auðveldara að skilja aðra, ef menn skilja sjálfan sig. Ekki skal um það dæmt, hvort sé tor- veldara. En hvort tveggja er á- reiðanlega erfitt. Fáir þekkja sjálfan sig. Og enn færri þekkja aðra til hlitar. Þegar leikari sýnir okkur manngerð á þann hátt, að við trúum þvi, að þetta sé maðurinn, sem höfundurinn vildi kynna okkur, hvort sem hann er heilbrigður eða sjúkur, raunsær eða draumóramaður, þá er hann mikill leikari. Þvi aðeins getur hann gert slikt, að hann þekki aðra menn. Og eng- inn kynnist öðrum mönnum réttilega, nema á grundvelli þekkingar á sjálfum sér. Af þessum sökum er erfitt að verða mikill leikari. Þess vegna eru stórbrotnir leikarar ekki á hverju strái, þeir eru fá- ir, einnig meðal stórþjóða. En Valur Gislason er einn slikra leikara. Þekking hans á mann- eðlinu er margslungin. Hún á ekki rót sina að rekja til lær- dóms. Mannþekking er ein sú þekking, sem ekki verður lærð. Hún er náðargjöf, sem aðeins verður þegin, en gerir siðan kleift að miðla öðrum ómetan- legum verðmætum. Valur Gislason er ótvirætt mikill listamaður. Slikir menn eru oft flókin manngerð. Milli þeirra og umheimsins skápast oft andstæður. Þetta á ekki við um Val Gislason. Sjónarmið hans eru heilbrigð og mótuð af sanngirni. Jafnframt er hann svo fágaður einstaklingur, að fágætt má teljast. Það er ánægja að þakka slik- um manni hálfrar aldar starf. GÞG

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.