Alþýðublaðið - 25.04.1976, Síða 8

Alþýðublaðið - 25.04.1976, Síða 8
14 ÚTLOND Sunnudagur 25. apríl 1976 blafflö* SÚ HIN MIKLA DYRKUN! Hinn föðurlegi, stórkostlegi, mikli, vitri og virti leiðtogi Norður-Kóreu tslenzkic fjölmiölar fá viku- lega blgö frá Noröur-Kóreu, sem nefnist „The People’s Korea.” Blaðinu er dreift á vegum stjórnar Noröur-Kóreu. t þvi eru pólitiskar greinar um landið en þó einkum um hinn mikla leiötoga þjóöarinnar, Kim II Sung. — Hann er aldrei nefndur annaö en hinn mikli, hinn stórkostlegi, hinn eiskaði, hinn virti, og á síðum blaðsins birtist einhver mesta persónu- dýrkun sem sögur fara af. Hinn föðurlegi leiðtogi t blaðinu, sem út kom 10. marz.ergrein um hinn máttuga þjóðhöföingja og leiðtoga. Hér verða birt nokkur sýnishorn úr þessari grein: „Félagi Kim II Sung, hinn mikli leiðtogi flokks okkar og þjóðar, leiöbeinandi „á staðn- um” við framkvæmdir og vinnu á Anju-svæðinu frá 27. febrúar til I. marz. — Við það að hafa hinn virta og elskaða félaga Kim II Sung svo nálægt sér, og að njóta kennslu hins mikla leið- toga, fylltust flokksfélagar og vinnandi fólk á Anju-svæðinu óbeizlaðri gleði og rikum tilfinningum. Hjörtu þeirra voru barmafull af itrasta þakklæti til hins mikla leiðtoga, sem stjórn- ar byltingunni eftir vegi sigurs- ins og „gloríunnar” og hefur fært fólki okkar ómælda hamingju. Til þess að reisa nútlmaborg i Anju, fór hinn föðurlegi leiðtogi eftir snæviþöktum vegum i lok desember 1973, og valdi sjálfur borgarsvæðið, og hefur kennt þar yfir 40 sinnum. Takmarkalaus gleöi og til- finningar fylltu hjörtu byggj- enda.sem hafa reist þessa stóru nútlmaborg á liðlega einu ári, og staðfest þannig með brenn- andi hjarta staðfastar ákvarð anir hins fööurlega leiðtoga um að skapa hamingjusamari og ríkari heim fyrir fólk okkar. Gaf ráð Þegar hinn mikli leiðtogi Kim II Sung kom til Anju 27. febrúar horfði hann yfir borgina og leit inn á nýja hóteliö og veitinga- staðinn og gaumgæfði persónu- lega allan innri búnað. Hann hrósaði mjög smíði þessarar dásamlegu borgar og veitti skipulagða kennslu. — 1. marz veitti hann leiðsögn við starfið i nágrenni Anju. Eftir að hafa farið um götur Anju, hrósaði hinn mikli leiðtogi borgarsmiðunum, sagði að borgin væri nokkuð stór og hún væri nútimalega og vel reist. Hinn mikli leiötogi hrósaði byggingameisturum fyrir að hafa valið Hótel International stað á hæö mikillar fegurðar með útsýn yfir Chongchong gang-fljót. Hinn mikli leiðtogi leit við i hinu nýja hóteli, fékk fréttir um stærð þess, og lét I Ijós ánægju og sagði að það væri all-vel byggt. Hinn mikli leiðtogi fór á þessum sama degi á hinn viröu- lega og nýtizkulega Chilsong veitingastað, sem ris fagurlega við vatn i Chilsong-garði, hrós- aði hinni velheppnuöu hönnun og horfði yfir garðinn og göt- urnar frá svölum annarrar hæð- ar. Hinn niikli leiðtogi veitti skipulagða kennslu hvernig reisa ætti Anju-borg hraðar og betur.” Siðan er þvi lýst hvernig hinn föðurlegi, hinn mikli og stór- kostlegi leiðtogi hafði veitt alla nauðsynlega aðstoð við smiði borgarinnar, leyst öll vandamál og hve mjög hinn mikli leiðtogi hefði stuðlað að borgar- smiðinni. „Leiöbeiningar hans munu þeir geyma i hjarta sinu”, segir I lok greinarinnar. Ekki er þörf fleiri orða um Kim II Sung. En kannski má finna einhverjar hliöstæður I Is- lenzkum blöðum? MORÐINGI í FYLGD SVÍA- KONUNGS Otvarpsstöð i New Jersey i Bandarikjunum skýrði frá þvi, að i hópi blaðamanna, sem fylgdust með Sviakonungi i opinberri heimsókn hans til Banda- rikjanna, hafi verið morðingi, sem er að afplána lifstiðar- fangelsisdóm. Þessi uppljóstrun hefur vakið mikla athygli og harða gagnrýni á bandarisku öryggislögregluna, sem að vera ábyrg fyrir öryggi háttsettra gesta Bandarikjastjórnar. Eng- inn hefur sagt, að Sviakonungur hafi verið i lifshættu vegna nær- veru morðingjans, en þessi atburður sýnir alvarlega veilu i öryggisnetinu. öryggislögreglan á að kanna vel feril allra þeirra blaðamanna, sem fá að koma nálægt háttsettum, erlendum gestum, en það viröist hún ekki hafa gert i þessu tilviki. Morðinginn, sem hér um ræðir, er 38 ára að aldri og hann stóð augliti til auglitis við Sviakonung á meðan stóðá heimsókn konungs i bænum Swedesboro i New Jersey. Morðinginn, sem heitir Henry F. Mosello, hafði verið ráðinn af útvarpsstöð i fylkinu til þess að segja frá heimsókn konungs og fylgja honum eftir á ferðum hans. Mosiello, sem afplánar lifstiöardóm fyrir morð, hefur sakir góðrar hegðunar i fangelsinu öölazt takmarkað frelsi og hefur leyfi til þess að vera á ferli utan fangelsismúr- anna um hábjartan daginn. Þegar hann sótti um hið tima- bundna starf við útvarpsstöðina lagði hann enga dul á stöðu sina. Hann gaf upp rétt nafn og nafn- númer og tilgreindi heimilisfang sitt i rikisfangelsinu i Trenton i New Jersey. Allar þessar upplýsingar voru sendar öryggis- lögreglunni, sem virðist ekki einu sinni hafa litiö á þær áður en hún úrskurðaði að óhætt væri, að „blaðamaður” þessi yrði i fylgdarliði Sviakonungs. Talsmaður öryggislögreglunn- ar hefur ekki viljað viðurkenna, að þessi atriði hafi farið fram hjá henni, en segir, að þrátt fyrir þau hafi lögreglan ekki talið nauð- synlegt að meina fréttamannin- um að gegna starfi sinu. Ekki vantaði það, að mikið bæri á öryggisvörðum á meðan á heimsókn Sviakonungs í Bandarikjunum stóð. Maðurinn sem örin bendir á, er einn af öryggisvörðunum, sem vöktuðu konung á meðan haldið var hádegisverðarborð honum til heiðurs i Minneapolis. Hins vegar virðist hafa gleymzt að athuga feril þeirra fréttamanna, sem fylgdust með konungi þvi i þeirra hópi var dæmdur morðingi, sem tilgreindi heimilisfang sitt i ríkis- fangelsinu I New Jersey.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.