Alþýðublaðið - 29.04.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.04.1976, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Fimmtudagur 29. april 1976 alþýöu- blaðiö alþýðu- blaðió Útgcfandi: Alþýðuf lokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnars- son,. Ritstjóri: Sighvatur Björgvins- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Aðsetur ritstjórnar er í Siðu- múla 11, simi 81866. Auglýsingar: simi 28660 og 14906. Prent- un: Blaðaprent h.f. Askriftarverð:1000 krónur á mánuði og 50 krónur i lausasölu. 11 bændur í OlfusL. Skýrt hefur verið frá þvi i fréttum, að 11 bændur i ölfushreppi hafi lýst sig reiðubúna til þess að heimila borun eftir heitu vatni og virkjun þess gegn þvi eina endurgjaldi, að verði virkjað fái þeir heitt vatn til eigin þarfa. Engar aðrar fjárkröfur hafa bændur þessir gert á héndur sveitungum sinum þótt þeir séu eigendur svæðis, þarsem jarðhita er að finna, sem ibúar ölfusshrepps hafa áhuga á að virkja til sameiginlegra þarfa. Þessi afstaða hinna 11 bænda i ölfushreppi er göfugmannleg og þeim til mikils sóma. Sjálfsagt hefðu þeir getað gert áþekkar kröfur og aðrir jarðeigendur, sem svipað hefur verið ástatt um, sem heimtað hafa oliuverð af nágrönnum sinum fyrir rétt til þess að virkja heitt vatn á landssvæði þeirra. En bændurnir 11 i ölfus- hreppi eru ekki i neinum oliufurstahugleiðingum. Afstaða þeirra er bæði stórmannleg og lýsir rikri samfélagskennd og glöggum skilningi á þörfum annars fólks ásamt með rikri siðferðis- og rétt- lætiskennd. Tillaga Alþýðuflokksins um eignarráð á landi og landgæðum er m.a. flutt i þvi skyni, að sú afstaða, sem bændurnir i ölfushreppi tóku, verði viðurkennd af samfélaginu sem réttlát og eðlileg. Það er mjög óeðlilegt, að einhverjir einstaklingar geti gert tilkall til óskoraðs eignarréttar á náttúruauðlind eins og hita djúpt I iðrum jarðar sem bæði réttlætiskennd manna og almenn skynsemi mælir fyrir um að hljóti að vera eign þjóðarheildarinnar. Þessar náttúruauðlindir eru þannig, að einungis samfélagið getur nýtt þær en ekki einstaklingurinn og það er vægast sagt i andstöðu við réttlætiskennd manna ef einstaklingur, sem á jarðarpart þar sem jarðhiti er undir, sem hann af eigin rammleik getur ekki nýtt, gerirkröfur á hendur samfélaginu um gifurlegar fjárhæðir, jafn- vel oliuverð, fyrir nýtingarréttinn. Það er hins vegar bæði sjálf- sagt og réttmætt, að landeigandi eða landeigendur, sem eru i þeirri aðstöðu að á landi þeirra megi finna heitt vatn, fái að njóta góðs af virkjun þess eins ; og bændurnir 11 i ölfushreppi og greiddar fullar bætur fyrir þau landsspjöll eða önnur þau vand- kvæði, sem kunna að stafa af virkjun jarðhitans. Hin lofsamlegu viðbrögð bændanna 11 i ölfushreppi sýna, að meðal bænda er vissulega rikur skilningur á atriði sem þessu þótt þvi hafi verið haldið fram af sumum, að allir bændur landsins væru alfarið á móti tillögum Alþýðuflokksins um eignarráð á landi. Eins og margoft hefur verið tekið fram stefna þessar tillögur ekki að þvi að svipta bændur eignarráðum á bújörðum slnum eða taka af þeim annan þann nýtingarrétt, sem þeir hafa á landi til bú- skapar. Þvert á móti er skýrt fram tekið i tillögunni um eignarráð í landi, að hún geri ráð fyrir þvi, að bændur eigi bújarðir sinar sjálfir. Sú nýja leið er aðeins opnuð i tillögunni, að ef bændur kjósi það frekar geti þeir selt jarðir sinar þvi opinbera en haldið þeim áfram annað hvort i lifsábúð eða á erfðafestu. Tillagan gerir hins vegar skýrt og skilmerkilega ráð fyrir þvi, að það sé á valdi hvers og eins bónda hvorn kostinn hann velur. Meginatriði þessarar tillögu mótast hins vegar af sömu hugsun og liggur að baki hinu göfugmannlega tilboði bændanna 11 i ölfus- hreppi. Sú hugsun fær æ rikari hljómgrunn með þjóðinni og þá ekkert siður meðal bænda, en annarra stétta i þjóðfélaginu. Afstaða bændanna 11 i ölfushreppi er til marks um það. ...og einn í Húnaþingi 1 Húnaþingi er hins vegar fjallað um annað mál varðandi búskap, sem ekki fara }afn ánægjuleg tiðindi af og hvað varðar jarðhita- virkjunina i ölfushreppi. Það er böðunarmál Björns Pálssonar á Löngumýri og þann óleik, sem Bjöm Pálsson hefur gert sveitungum slnum með afstööu sinni i þvi máli. Sú afstaöa er i algeru ósam- ræmi við afstöðu bændanna 11 i ölfushreppi, þvi afstaða Björns lýsir algerum skilningsskorti og virðingar- leysi á aöstöðu annarra. Böðunarmál Björns bónda hefur verið gert að gaman- máli i blööum. En það er siður en svo neitt fyndið. 1 héraði þvi, sem Björn Pálsson er einn bænda, er með ærinni fyrirhöfn og miklum tilkostnaöi veriö að gera til- raun til þess aö útrýma fjár- kláða, sem valdið hefur islenzkum bændum mjög þungum búsifjum. Hve þungum trúir enginn, sem ekki hefur séð eða kynnzt af eigin raun. Hér eru milljóna- verðmæti i hættu og nái fjár- kláði að grafa um sig i héraðinu getur hann riðið sumum bændum þar að fullu. 1 þvi skyni að reyna að girða fyrir að fjárkláði komi upp i héraðinu hefur sú ákvörðun verið tekin að tvibaöa fé. Nær allir bændur héraðsins munu hafa hlýtt þeim úrskurði og lagt i þá fyrirhöfn og þann kostnað, sem fylgir - utan einn: Björn Pálsson. Honum tókst að finna formgalla á fyrirmælum um síðari böðun og I skjóli þess hefur honum haldizt uppi aö neita aö láta ffaða sitt fé. Hafa af þvi spunnizt furðuleg mál, sem höfð hafa verið að spotti i blöðum. 1 böðunarmálinu er Björn bóndi Pálsson siður en svo aö berjast fyrir einhverju „prinsipi”. Hann er einfald- lega að stofna i hættu fjár- búskap hvers einasta bónda i sinni sveit og lætur sig engu varða hvaða afleiðingar þrjózka hans kann að hafa fyrir samsveitunga hans. Fé Björns mun nú senn verða rekið á afrétt með öðru fé sveitunga hans og ef svo fer, að neitun hans á þvi að baða fé sitt aftur verður til þess, að fjárkláði brýzt út, þá hafa bæði hann sjálfur og sveitungar hans orðið fyrir ómælanlegu tjóni. Björn Pálsson á Löngumýri er greindur og skemmtilegur kall en það, sem hann er nú að gera, er hvorki skemmtilegt né fyndið. Vonandi veröa gáfur Björns stráksskapnum yfirsterkari þannig að hann tefli ekki að óþörfu eignum nágranna sinna i hættu eins og veröa mun ef hann lætur ógert að viðhafa sömu varúöarráð- stafanir gegn sýkingu fjár af kláðamaur og allir nágrannar hans og sveitungar hafa við- haft. Enn alvarlegra er þó, ef ein- hverjir sveitungar Björns kunna að hafa fylgt hans fordæmi vegna áhrifa frá af- stöðu hans. Skolpræsi opnast út á leiksvæði barna Skolpræsi fyrir neðan Viðlagasjóðshúsabyggðina við Keilufell í Breiðholti hefur, að sögn íbúa, staðið opið sl. sex mánuði. Á svæðinu leika börn sér allmikið og getur nærri, hver hollusta er að því fyrir börnin að leika sér á þessum slóðum. Tiðindamaður blaðsins var á ferð á þessu svæði i gær og hitti þar fyrir starfsmenn borgarinnar sem unnu að lagfæringum á ræs- inu. Þeir sögðu að það væri ekki langt siðan vart hefði orðið við, að ekki væri allt með felldu við þessa skólplögn. Ekki töldu þeir liklegt að vinnu- vél hefði ekið yfir leiðsluna, og brotið hana, enda sæjust engin merki þess á staðnum. Slikt væri þó algeng örsök þess að skolpleiðslur rofnuðu Þeir bentu þó á að leiðslan er mjög litið niðurgrafin og einmitt þar sem hún hafði rofnað, hafði verið stór steinn ofan á leiðslunni. Skolpleiðsla þessi flytur skolp frá nokkuð stóru svæði og er þvi bagalegt að hún skyldi rofna, þvi allmikið magn af saur og öðrum óþverra hefur náð að renna þarna upp á yfirborðið um leiksvæði barna. Saurinn og klósettpappir flýtur þarna út um allt um allar jarðir og sameinast að lokum þvi sem margir hafa nefnt „perlu Reykja- vikur” Elliðaánum sjálfum. Skolpleiðslan er hins vegar, þegar allt er i lagi, hluti af lokuðu kerfi sem opnast einhvers staðar úti i Fossvogi. Þess skal geta að annað siðdegisblaðanna, sem birti mynd af þessu ólukkans ræsi, tók skakkan pól i hæðina og birti mynd af brotinni leiðslu sem að- eins flytur rigningarvatn af göt- unum á svæðinu, skólpleiðslan liggur hins vegar eilitið norðaust- an við hana. Ekki er þó verið að mæla þvi bót að affallvatn af göt- um skuli ekki vera betur komið frá en með þessum hætti. —EB TOGARASKIPSTJORAR STYÐJA AÐGERÐIR LOFTSKEYTAMANNA: Svolátandi simskeyti barst blaðinu I gærmorgun: „Alþýðublaðið Iteykjavik. Við undirritaðir skipstjórar lýsum yfir fullum stuðningi við aðgerðir starfsmanna strand- stöðva um afgreiðslubann á brezk skip meðan á þorskastriði stendur. Ljósafell, Hólmanes, Barði, Skinney, Hvalbakur, Bretting- ur, Bjartur, Rauðinúpur, Björg- vin, Vestmannaey.” Eins og öllum mun vera kunnugt hefur Póst- og síma- málastjórnin sent tilmæli til allra strandstöðva sinna að sinna afgrciðslu loftskeyta frá brezkum skipum, önnur en þau sem kunna að varða öryggi landsins. Kapphlaupið um þjóð- arframleiðsluna 1 nýútkominni ársskýrslu frá A1 þjóðabankanum, „World Bank Atlas”, er greint frá þvi að hag- vöxtur iðnaðarrikjanna haldi áfram að aukast ár frá ári mun hraðar en hjá þeim þjóðum, sem skemmra eru komnar á veg ef'na- hagslega. 1 fréttablaði bankans, „Report” er greint frá þessu undir fyrirsögninni „Hinir riku verða rikari.” í skýrslunni er greint frá þvi að aðeins fimm af 16 stærstu oliuút- * flutningslöndum heims hafi náð 3.000 dollara markinu i þjöðar- framleiðslu miðað við hvern ibúa. Þá er einnig greint frá þvi að á timabilinu 1965—73 hafi þjóðar- framleiðsla fjölmargra van- þróaðra rikja dregizt saman eða staðið i stað. Meðal þeirra þjóða, sem hafa eina miljón ibúa og þar yfir hafa bæði Sviþjóð og Sviss skotið Bandarikjunum aftur fyrir sig, sem rikustu þjóðir heims. Arið 1974 var þjóðarframleiðsla Bandarikjanna, miðað við hvern ibúa, 6.200 dollarar, en það sama ár fór Sviss upp i 6.650 dollara og Sviþjóð upp i 6.720 dollara. Þar með mátti segja að Sviþjóð væri orðið rikasta land veraldar. Þjóðarframleiðsla iðnaðarrikj- anna, þ.e.a.s. rikja með að meðaltali 4.550 dollara þjóðar- framleiðslu á ibúa, hefur vaxið um það bil 4% á ári. Vanþróuð riki með undir 200 dollara þjóðarframleiðslu á hvern ibúa hafa hins vegar staðið i stað ef miðað er við timabilið 1968—74 I sumum tilvikum hefur þjóðarframleiðslan farið minnk- andi. —BJ Mjólkurframleiðsla á sam- lagssvæði Mjólkursam- sölunnar dregst saman Arið 1975 minnkaði innvegið magn mjólkur af samlagssvæði Mjólkursamsölunnar um rúm- lega 3 millj. litra eða 5,38% miðað við árið 1974. Innvegið mjólkurmagn var um 56 millj. litrar eða rétt rúmlega helmingur af innvigtaðri mjólk á öllu landinu. Þessar upp- lýsingar er aö finna i nýút- komnu fréttabréfi upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins. Þar er sagt frá nýafstöðnum aðal- fundi Mjólkursamsölunnar. A fundinum ræddi stjórnar- formaður Samsölunnar, Agúst Þorvaldsson á Brúnastööum, um þá erfiðleika, sem bændur urðu fyrir vegna óþuricanna siðastliðið sumar. Einnig um hina miklu árstiðarsveiflu i mjólkurframleiöslunni, sem er mikið vandamál fyrir mjólkur- búin. Taldi hann að með fram- leiðslu geymsluþolinnar mjólk- ur mætti draga úr mjólkurflutn- ingi frá öðrum landshlutum, en brýnna væri,að bændur reyndu með öllum ráöum aö jafna framleiðsluna, þvi það myndi þjóna hagsmunum neytenda og framleiðenda bezt. Mjólkursamsalan seldi á siðastliðnu ári fyrir 3.223 millj. króna. Þar af mjólkurvörur fyrir um 2.885 millj. króna. Þrátt fyrir að starfsfólki Sam- sökunnar fækkaði á siðasta ári jókst kostnaður vegna starfs- fólks um 30%. Um siðastliðin áramót var starfsmannafjöld- inn samtals 420 manns. Smásala mjólkur á vegum MS — lögð niður Mjólkursamsalan rekur nú um 70 smásöluverzlanir með mjólkurvörur. Nú hefir um langt skeið verið fyrir- huguð breyting á sölu mjólkur i þá átt að mjólk verði hér eftir seld i matvöruverzlunum. Reiknaö var með að búöir Mjólkursamsölunnar yrðu lagöar niður 1. júni n.k., en nú eru verulegar likur á aö það muni dragast, jafnvel fram á næsta ár. Stuðningur við frumvarp Jóns Ár- manns A fundinum var mikið rætt um það tjón, sem bændur uröu fyrir f verkfallinu nýafstaðna. Samþykkti fundurinn ályktun þar sem lýst var yfir stuðningi við framkomið frumvarp Jóns Armanns Héðinssonar um ráð- stafanir til þess að koma i veg fyrir að mjólk eyðileggðist i verkföllum. —ES—

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.