Alþýðublaðið - 29.04.1976, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 29.04.1976, Blaðsíða 12
12 Öskilamunir í vörslu rannsóknarlögreglunnar er nú margt óskilamuna, svo sem reiðhjól, barnabilar, (stignir), barnavagnar, fatnaður, lyklaveski, lyklakippur, veski, buddur, úr, gleraugu o.fl. Enn fremur eru ýmsir óskilamunir frá SVR. Eru þeir sem slikum munum hafa týnt vinsamlegast beðnir að gefa sig fram i skrifstofu rann- sóknarlögreglunnar, Borgartúni 7 i kjallara, gengið um undirganginn, næstu daga kl. 2—7 e.h. til að taka við munum sinum, sem þar kunna að vera. Þeir munir, sem ekki verða sóttir verða seldir á uppboði. Óskilamunadeild rannsóknarlög- reglunnar. Auglýsing um skoðun bifreiða 1976 í lögsagnarumdæmi Kópavogs Samkvæmt umferðalögum tilkynnist hér með, að aðal- skoðun bifreiða verður framhaldið í maimánuði og júni- mánuði og verða þá skoðaðar eftirtaldar bifreiðir: Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur bifreiðar sem bera mætt i aðalskoðun 3. mai Y-3151 til Y-3300 4. mai Y-3301 til Y -3450 5 mai Y-3451 til Y-3600 6. mai Y-3601 til Y-3750 10. mai Y-3751 til Y -3900 11. mai Y-3901 til Y-4050 12. mai Y-4051 til Y -4200 13. mai Y-4201 til Y -4350 17. mai Y-4351 til Y -4500 18. mai Y-4501 til Y-4650 19. mai Y-4651 til Y-4800 20. mai Y-4801 til Y-4950 24. mai Y-4951 til Y-5100 25. mai Y-5101 til Y-5250 26. mai Y-5251 til Y-5400 31. mai Y-5401 til Y-5550 1. júni Y -5551 til Y-5700 júnl Y-5701 til Y -5850 og 1976. Bifreiðaeigendum ber að koma meö bifreiðir sinar að ÁHALDAHÚSI KÓPAVOGS VIÐ KARSNESBRAUT og verður skoðun framkvæmd þar mánudaga - fimmtudaga kl. 8.45 til 12.00 og 13.00 til 16.30. EKKI VERÐUR SKOÐAÐ A FÖSTUDÖGUM. Skráningar og umskráningar bifreiða fara EKKI fram á skoðunarstað. Við skoðun skulu öku- menn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld fyrir árið 1976 séu greidd, og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé I gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öiium sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn i Kópavogi Sigurgeir Jdnsson Sumaráætlun Akraborgar frá og með 1. maí Akraborgar frá og með 1. mai. Frá Akranesi: kl. 8.30-11.30-14.30 og 17.30 Frá Reykjavik: kl. 10-13-16 og 19 Afgreiðsla i Reykjavik, simi 16420 Afgreiðsla á Akranesi, simi 93-2275 Framkvæmdastjóri, simi 93-1996 Talstöðvarsamband við skipið og af- greiðslur á Akranesi og i Reykjavik F.R. bylgja rás 2. alþýdu- Fimmtudagur 29. aprii 1976 blaðiö MINNING Steingrímur Matthías Sigfússon — organisti F. 12. júnl 1919. D. 20. aprfl 1976. Vinur minn Steingrimur M. Sigfússon, organisti, andaðist i Reykjavik þann 20. þ.m. eftir mjög erfiða sjúkdómslegu. Hvildin hefir þvi orðið honum likn i þraut. Steingrimur var fæddur að Stóru-Hvalsá í Kirkjubólshreppi i Strandasýslu 12. júni 1919. Foreldrar hans voru Kristin Guðmundsdóttir og Sigfús Sigfússon er þar bjuggu. Stein- grlmur var á miðjum aldri sinna systkina en þau voru mörg. 1 samfylgd foreldra sinna var hann til 3ja ára aldurs, en þá. fór hann i fóstur að Bæ i sömu sveit til systkinanna Guðlaugar, Guðrúnar og Jóns Jónsbarna er þar bjuggu, og ólst þar upp sin bernskuár. Þessum timamótum ævi sinnar lýsir Steingrlmur skemmtilega i bók sinni Blið varstu bernskutlð, er út kom hjá Leiftri 1959. A þessu æskuheimili sinu mun hann hafa orðið fyrir fyrstu tengslum sinum við tónlist, er siðar varð rikur þáttur ilifi hans og starfi alla tið. Innan við tvitugsaldur kom Steingrimur hingað til Patreksfjarðar. Mun það að einhverju leyti hafa verið fyrir áeggjan Einars Sturlaugs- sonar, er þá var sóknarprestur hér á Patreksfirði. Samhliða þvi aðhann þá hóf nám i málaraiðn og lauk þvi námi, gerðist hann organisti hér við Patreks- fjarðarkirkju, og gegndi þvi starfi allt til þess tima að hann fluttist héöan 1961. Hinn 1. október 1938 kvæntist Steingrímur fyrri konu sinni, Guðrúnu Þórarinsdóttur frá Patreksfirði, og bjuggu þau sin samfylgdarár hér á staðnum allt þar til hún lézt hinn 10. nóv. 1959. Guðrún var væn og elskuleg kona, er féll frá langt fyrir aldur fram frá 6 börnum þeirra hjóna, er flest voru á erfiðu aldurs- skeiöi, og þvi mikill missir góðrar og umhyggjusamrar móður og konu, manni og börnum. Þau Guðrún og Steingrlmur áttu saman 8 börn. Tvö þeirra létust nýfædd en þau sem eftir lifa eru : Elma búsett að Hafra- læk, Aðaldal, gift Asgeiri Þór- hallssyni. Magni, Patreksfiröi, kvæntur Sigriði Gisladóttur. Sigfús, Reykjavik, kvæntur Björgu Benjaminsdóttur. Sjöfn, Reykjavik, gift Daniel Guðmundssyni. Jóhann, Akureyri, kvæntur önnu Þoigilsdóttur. Clafur, Patreks- firði, kvæntur Kolfinnu Guðmundsdóttur. Eins og að llkum lætur voru veraldleg rikidæmi ekki ráðandi afl á heimili þeirra hjóna, en það var hlýlegt að koma til þeirra, og þau áttu flesta að vinum, er náið kynntust þeim. Barnahópurinn var stór og oft erfiöar aðstæður sem þau bjuggu við, húsnæðislega og á annan veg. Hér að framan hefi ég sett i ramma sögu vinar mins Stein- grims, um uppruna hans og starfssögu ineðan hann dvaldist hér á Patreksfirði, en inn I þessum ramma er miklu stærri mynd af manninum sjálfum, en henni verða ekki gerð nein tæm- andi skil I þessum linum, þótt ég leitist viþ það aðeins nánar. Ég kynntist Steingrími mjög fljótt og náið, eftir aö ég gerðist búsetturhér á Patreksfirði 1951. Ég fann fljótt að I manninum bjó merkur og margbreytilegur persónuleiki. Steingrimur var greindur vel, og margfróður þrátt fyrir takmarkaða skóla- göngu, og á sjálfsmenntunar- braut sinni náöi hann langt á mörgum sviðum. Hann var næmur á islenzka tungu, og ritaði fagurt og skemmtilegt mál. Hann hafði einnig gott vald yfir Norður- landamálum og ensku. Fyrir þessa sjálfsmenntun sina vissi hann margt og jók þekkingu sina með lestri góðra menningarlegra bókmennta. Steingrimur var hrifnæmur og þvi var það tónlistin á sinum margbreytilegu sviðum, er hreif hann mest, og mun hafa átt hug hans sterkast til hins siöasta, enda lagöi hann mikið fram til þeirra mála með lögum slnum, bæði á sviði kirkjulegra tónsmiða, almennra sönglaga og léttra danslaga, og mun á þvi sviðið vera til mikiö safn er ekki hefur áður komið fyrir almenningssjónir. Um nokkurt skeiö ritaði Stein- grlmur smásögur ogað minnsta kosti tvær bækur undir dul- nefninu Valur Vestan og árið 1959 kom út bók hans Blíö varstu bemskutlð, undur falleg barna- bók, er lýsir I grunntóni æsku hans og uppvexti. Hann ritaði einnig nokkrar greinar um tón- listarmál og tólistarfræðslu. Hann samdi einnig sjálfur marga texta við danslög sln, og sýndu þeir aðhonum var létt að rita jafnt i bundnu máli og óbundnu. Steingrimur var i orösins fyllstu merkingu sjálf- menntaður listamaður á marg- vislegu sviði. Nú hin siöari ár átti Stein- grimur heima á Húsavlk ásamt siöari konu sinni Guðbjörgu Þorbjarnardóttur ættaöri frá Bakkakoti I Borgarfirði. A Húsavík starfaði hann við Tónlistarskólann sem skóla- stjóri, en áður var hann skóla- stjóri Tónlistarskólans á Fáskrúðsfirði og kirkjuorgan- isti þar um nokkurt skeiö. Starfsaga Steingrims hér á Patreksfirði verður ekki rakin til hlitar i þessum minningahug- leiðingum minum, en það var merktog mikið starf, sem hann lagði fram, oftast litt eða ólaunað, við kirkju staðarins, kirkjukór, og aðra félagslega Lítið er lunga...! Beinar linur og bognar! Liðin erunú senn tvö ár sfðan samþykkt voru á Alþingi hin margumræddu grunnskólalög. Hétt er að minna á, að svo er til ætlazt, að lögin verði að fullu komin i gildi innan 10 ára frá samþykkt og staðfestingu. Fræðslu- og skólalöggjöf er að þvi leyti frábrugðin öðrum laga- setningum, að sé um verulegar breytingar að ræða, þarfnast rækilegs undirbúnings, svo allt eigi ekki úr böndum að fara. Það verður að segjast um- búðalaust, að vinnubrögð i menntamálaráðuneytinu, hafa um nokkuð langt skeið vakið hina mestu furðu. Þar heíur aðaláherzlan verið lögð á aö unga út lagasetningum og allskyns fyrirmælum án þess að gera sér nokkra grein fyrir hvort skólarnir væru færir um að hlita þessum lögum eða gera þau gildandi. Fyrir þessu hafa staðið alger- ir græningjar i rekstri skóla si- hlaupandi með einhverja er- lenda bita i munninum, án þess að gera sér ljóst hvort ,,ætt væri eða óætt”. Þetta veldur svo þvl, að það sem ætti aó vera fellt að ein- hverri skynsamlegri langtima- áætiun, er i algerri ringulreið. Eðlileg vinnubrögð Eitt af þvi fyrsta, sem eðlilegt hefði verið að gera i þessum málum, var auðvitað að yfir- völdin gerðu sér ljóst I hvaða röð hin einstöku ákvæði grunn- skólalaganna skyldu taka gildi. Skólastarf er alltof bungt i vöfum, til þess að geta tekið undirbúningslaus heljarstökk, eftir geðþótta misviturra. Segja má þó, að hvað sem skipuleggjendum hinna ein- stöku stofnana liður, og það er nógu óþægilegt fyrir þá að ann- astsittstarf viðslikar aðstæður, hlýtur hringlið og skipulags- leysið að koma harðast niður á þeim sem sizt skyldi — nemend- unum. Ennfremurerbeztaðgera sér ljóst, að fleira kemur til. Þvi miður er það staðreynd, að að- búnaður i fræðsluhéruðum er á- kaflega misjafn. Þar skortir á- kaflega mikið á, að skólarnir séu þess umkomnir að taka við breytingum, nema smátt og smátt og helzt ekki i of rikum mæli, hverju sinni. Meðan engin heildaráætlun liggur fyrir um gildistöku hvers þáttar laganna, Iiggur i hlutar- ins eðli, að sveitarfélögin geta heldur ekki gert sér raunhæfa grein fyrir, á hvaða þætti ber að leggja áherzlu það eða það árið. Þetta mál er enn alvarlegra fyrir þá sök, að eigi fyriræílunin um aukna verkmenntun að verða annað en dauður bókstaf- ur, mun viða þurfa til að kosta verulegum fjárhæðum og upp- byggingu dýrrar aðstöðu. Námslok Ötrúlegt er að nemendum og foreldrum þeirra þyki ekki for- vitnilegt að grennslast fyrir um námslok. En þar er reyndar um svipaða t auðn að ræða og i öðru. Áætlað er að visu, aö landspróf mið- skóla verði niður lagt, eða heiti grunnskólapróf, sem allir nem- endur þess aldursflokks ganga undir. Bersýnilegt er, að þar mun verða um að ræða æði margar blindgötur. Mennlaskólarnir og aðrir framhaldsskólar eru ekki lik- legir til — og þess er heldur ekki að vænla, að standa galopnir I HREINSKILNI SAGT

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.