Alþýðublaðið - 16.06.1976, Side 14
Happið — eitt vinsælasta
íslenzka gamanleikritið
A morgun þjóöhát.daginn kl.
20.35, verður flutt i útvarpi
leikritið „Happið” eftir Pál J.
Ardal. Leikstjóri er Baldvin
Halldórsson, en með hlut-
verkin fara þau Valdemar
Helgason, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Bessi Bjarnason,
Guðrún Stephensen, Sigriður
Hagalin, Jón Gunnarsson og
Lilja Þórisdóttir. Vilhjálmur
b. Gislason, fyrrv. útvarps-
stjóri flytur formálsorð.
„Happið" var frumsýnt á
Akureyri veturinn 1897-98, en
hefur á undanförnum ára-
tugum verið leikið viða úti um
land,enda eitt vinsælasta leik-
rit, sem þar hefur verið sýnt.
bað hefúr áður verið flutt i út-
varpinu, bæði i heild (1938) og
svo kaflar úr þvi. betta er
léttur gamanleikur,. sem
gerist. i sveit, nánar tiltekið
hjá Halli hreppstjóra i Dölum.
Valgerður dóttir hans er hrifin
af Gunnari kennara, en pabbi
gamli vill heldur að hún giftist
Helga ráðsmanni sinum, og
Grima, móðir Helga, styður
þann ráðahag. En það eru
fleiri stúlkur á heimilinu, og
brátt fer svo, að Helgi veit
ekki sitt rjúkandi ráð.
Páll Jónsson, sem sextugur
tók sér ættarnafnið Árdal,
fæddist að Helgastöðum i
Eyjafirði árið 1857. Hann
stundaði nám i Möðruvalla-
skóla 1880-82, en haföi áður
lært silfursmiði. Páll fór að
semja leikþætti og yrkja
kvæði um tvitugt, og um
svipað leyti kom út eftir hann
smásaga. Hann settist að á
Akureyri 1883 og varð kennari
við barnaskólann þar, allt til
ársins 1926, þegar hann lét af
kennslu vegna sjóndepru.
Jafnframt kennarastarfinu
var hann vegaverkstjóri i fjöl-
mörg ár, og um tima bæjar-
verkstjóri á Akureyri. Páll J.
Ardal lezt árið 1930 , 73 ára að
aldri.
bótt „Happið” sé vafalaust
þekktasta leikrit Páls, samdi
hann mörg fleiri. Má þar
nefna „bvaðrið”, „Tárin”,
„Saklaus og slægur” og
„Skjaldvör tröllkona”.
14FRÁ MORGNI...
AAiövikudagur 16. júni 1976 bíaSiö'
SJónvarp
Miðvikudagur
16.júni
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Bilaleigan býskur mynda-
flokkur. býðandi Briet Héðins-
dóttir.
21.05 Nýjasta tækni og visindi
Eldvarnir i háhýsum. Myndun
tungls og jarðar og landreks-
kenningin Umsjónarmaður
Sigurður H. Richter.
21.30 Töfraflautan Opera eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Sviðsetning sænska sjónvarps-
ins. Leikstjóri Ingmar Berg-
man. Aðalhlutverk Josef
Köstlinger, Irma Urrila, H§kan
HagegSrd, Ulrik Cold, Birgit
Nordin og Ragnar Ulfung. Eric
Ericson stjórnar kór og hljóm-
sveit sænska útvarpsins. býð-
andi óskar Ingimarsson.
Töfraflautan var fyrst sett á
svið haustið 1791 i Vinarborg.
Mozart haföi samið óperuna
um sumarið fyrir áeggjan vin-
ar sins, Schikaneders leikhús-
stjóra, sem einnig samdi text-
ann, ogbyggði hann aö hluta á
ævintýri eftir Christoph Wie-
land, sem um þessar mundir
var i fremstu röð þýskra
skálda. Aðalsöguhetja óper-
unnar er sveinninn Taminó.
Hann er á veiöum, þegar dreki
mikill og illvigur ræðst að hon-
um. bað verður honum til
bjargar, að þrjár þjónustu-
meyjar drottningar ber þar að.
bær vinna á drekanum og segja
drottningu sinni, hvað fyrir þær
hefur borið. Drottningin segir
nú Tam&ió frá dóttur sinni,
Paminu.sem numin var á brott
af töframanninum Sarastró.
bað verður úr, að Taminó held-
ur af stað til aö heimta meyna
úr höndum töframannsins.
Hann er vopnaður töfraflautu,
sem næturdrottningin hefur
gefið honum, og með honum I
för er fyglingurinn Papagenó,
ógætinn i tali og dálitið sér-
sinna. bessi sviðsetning Töfra-
flautunnar er meðal viðamestu
verkefna sænska sjónvarpsins,
og ekkert er til sparað að gera
ævintýraheim fyrri alda eins
raunverulegan og framast er
unnt. (Nordvision — Sænska
sjónvarpið) Aður á dagskrá 28.
mars 1975.
23.45 Dagskrárlok
Málverkasýning
á Mokkakaffi
benti honum á, að rétt væri að
halda sýningu. örn ræddi siðan
við Guðmund i Mokkakaffi og
gekk frá öllu.
Ómar segist hafa gaman af
surrealisma. A hinn bóginn seg-
ist hann ekki vera með neina
þjóðfélagsádeilu i myndum
sinum. ,,Ég mála það sem mig
langar til að mála,” sagði
Ómar Stefansson.
Myndirnar bera vott um
mikið imyndunarafl þannig að
listamaðurinn er oftast langt
inni i einhverjum dularheimi,
sem þó tengist raunveruleik-
anum á mjög sérstakan og
margbreytilegan hátt. bó finnst
manni guðstrú, þjóðsögur og
goðsagnir hljóti að hafa mótað
mikið af þeim hugmyndum sem
þarna birtast. Myndaheitin eru
einnig mjög i samræmi við við-
fangsefnin og lýsa óvenju næmu
imyndunarafli.
brátt fyrir allt er varla hægt
að segja að Ómar sé frumlegur i
myndsköpun sinni enda hefur
hann án efa orðið fyrir áhrifum
frá mörgum hliðum listaheims-
ins. Litameðferð hans er furðu
góð, en þó er hægt að sjá að hér
er ekki fullskapaður listamaður
á ferðinni. Ómar á sjálfsgt
mikið eftir að læra og erfitt er
að dæma hvort hér er á ferðinni
efni i snilling eða aðeins bráð-
þroska unglingur á sviði málar-
alistarinnar.
Hvað sem úr ómari Stefáns-
syni kann að verða er þó eitt
vist, að hér er á ferðinni ungur
áhugasamur hæfileikamaður,
sem ersvo gjörsamlega laus við
þann nokkuð algenga kvilla
meðal listamanna, að vera til-
gerðarlegur. ómar er fyrst og
fremst hann sjálfur, efnilegur
og hress ungur maður og við á
Alþýðublaðinu óskum honum
heilla á listabrautini. —BJ
bað er ekki á hverjum degi
sem 15 ára strákur heldur mál-
verkasýningu, svo ekki sé talað
um sýningu sem vekur athygli.
Ein slik sýning var þó opnuð á
Mokkakaffi sl. mánudag. barer
á ferðinni ómar Stefánsson úr
Garðabæ, en hann er aðeins 15
ára að aldri.
begar Alþýðublaðið átti tal
við þennan unga listamann við
opnun sýningarinnar kom fljótt
i ljós að Ómar Stefánsson er
ekkert barn. Að visu hefur hann
orðið að ganga i gegn um hið
venjubundna skyldunám eins og
aðrir. brátt fyrir það gaf hann
sér þó tima til að taka þátt i
Myndlistaklúbbi Garðabæjar,
en það er hópur áhugafólks um
myndlist.
bá hefur Ómar lesiðsér til um
málaralistina, sótt áýningar
hvaF sem þær var að finna og
málað og numið af einstöku
kappi. Ómar sagðist mest hafa
lært af Bryndisi bórðardóttur,
sem kennir við Iðnskólann i
Reykjavik, en hún lærði m.a. af
Sverri Haraldssyni sagði Ómar.
bá sagðist hann einnig hafa
mikið lært af Eiriki Arna i
Myndlistaklúbbnum. Að öðru
leyti kvaðst hann hafa aflað sér
mikils fróðleiks i innlendum og
erlendum bókum og blöðum,
sem hann hefur náð i.
bótt Ómar sé enn ungur að
árum hefur hann þó fengið tæki-
færi til að sjá listina að ein-
hverju leyti úti i hinum stóra
heimi. Varla hefur það skemmt
fyrir honum að pabbinn er flug-
maður, en ómar hefur farið til
Danmerkur, Englands og
Bandarikjanna. Hann vildi þó
ekki gera of mikið úr þessum
utanferðum sinum en sagði að
þær hefðu e.t.v. eitthvað vikkað
sjóndeildarhring sinn eins og
allra, sem færu útfyrir pollinn.
begar ómar var spurður um
það hverjir væru uppáhalds list-
málarar hans hérlendir þurfti
hann nokkurn tima til umhugs-
unar Að lokum sagði hann: ,,Ég
er mikið hrifinn af Eiriki Smith,
sérstaklega eldri myndunum
hans. Einar Hákonarson er
mjög góður. Ég held ég láti
þessa tvo nægja.”
Ómar sagðist ekki vera hrif-
inn af Hundertvasser. „Hann er
ekki skemmtilegur málari,”
sagði Ómar.
Ómar sagðist hafa hug á að
verða listmálari og ætlaði i
Myndlistaskólann i haust og
siðan halda áfram námi erlend-
is. Hann byrjaði að mála 1972 og
var búinn að mála allmikið þeg-
ar örn Guðmundsson, dansari
Miðvikudagur 16. júni ki. 20.
Gönguferð á Grimmanns-
feli.
Fararstjóri: Hjálmar
Guðmundsson. Verð kr. 500
gr. v/bilinn. Lagt upp frá
Umferðarmiöstöðinni (að
austanverðu).
FERÐIR t JúNt
1. 16.-20. Vestmannaeyjar.
2. 18.-20. Grimseyjarferð i
miðnætursól.
3. 18.-20. Ferð á sögustaði i
Húnaþingi.
4. 23.-28. Ferð um Snæfeils-
nes, Breiðafjörð og á Látra-
bjarg.
5. 25.-28. Ferð til
Drangeyjar.
6. 25.-27. Ferð á Eiriksjökul.
Kynnið ykkur feröaáætlun
féiagsins og aflið frekari
upplýsinga á skrifstofu
félagsins.
Ferðafélag lslands
öldugötu 3.
Simar 19533 og 11798.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 71200 — 74201
*ULm
TRDLOFUNARHRINGA
Joliannfí lfífsson
ImignUtgi 30
i&ittti 19 209
Dúnn
Síðumúla 23
/ími 64200
aj} h n
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn