Alþýðublaðið - 16.06.1976, Blaðsíða 16
Islenzkur hljómlistarmaður fær
inngöngu í einn bezta og eftir-
sóttasta tónskóla Bandaríkjanna
Skólastjórn bandarlska tón-
listarskólans Berkley College of
Music, sem staösettur er i Bost-
on, hefur ákveöiö aö veita hin-
um 28 ára gamla, reykviska
hljómlistarmanni, Pétri Péturs-
syni, inngöngu í skólann naesta
haust.
Ungur aöárum hóf Pétur nám
i píanóleik viö Tónlistarskólann
i Reykjavik, en hætti námi þar
án þess aö ljúka burtfararprófi.
Flestum, a.m.k. yngstu kyn-
slóöinni, mun Pétur kunnur fyr-
ir leik sinn meö hljóms veitunum
Tilveru og Brimkló. Nú sem
stendur er Pétur búsettur i
Bandarikjunum og hefur hann
meöal annars hiotiö lof þar um
slóöir fyrir hljóöfæraleik sinn
viö uppfærsiu á rokkóperunni
„Jesus Christ Superstar.”
„Þaö er mjög mikill heiöur
fyrir Pétur aö fá inngöngu i
þennan skóla, sem er aö sögn
einn hinn beztí sinnar tegundar i
Bandarikjunum” sagöi Jónas
R.Jónassoni viötali viö Alþýöu-
blaöiö.
Mikil aðsókn er aö skóla þess-
um ogkomast jafnanfærriað en
vilja. Venjulegt þykir aö sækja
um skólavist meö aö minnsta
kosti eins árs fyrirvara. Til-
dæmis sótti Pétur um skólavist
fyrirhaustíö ’76 fyrir um þaðbii
ári sföan, sagöi Jónas, en áöur
en umsóknin var staöfest þurfti
hann aö gangast undir inntöku-
próf.
1 Berkley College of Music
mun Pétur leggja stund á nám i
pianóleik og hljómsveitarút-
setningum. Um lengd námsins
gat Jónas ekkert sagt aö sinni,
nema þaö aðallt ylti meöal ann-
ars á þvf hversu vel Pétri gengi
að afla fjár til þessa, þvi skóla-
vist þarna er mjög dýr.
AV
OROI OG
SKJÁLFTAR
MAGNAST
VIÐ KRÖFLU
Að undanförnu hefur orðið
vart allnokkurra breytinga á
Kröflusvæöinu.
Fylgzt hefur verið með svæð-
inu af visindamönnum allt frá
þvi að gosið varð i Leirhnjúk á
síðastliðnu ári. Um miðjan
marz fór þess að verða vart að
svæðið þar sem framkvæmdir
eru nú i fullum gangi, fór að
lyftast eftir að það seig er gosið
hófst. Landssigið sem varð, olli
mönnum áhyggjum einkum
eftir að þess hafði orðið vart að
stöðvarhúsið hafði sigiö nokkuð.
Þá hefur einnig orðið vart þess
að gasstreymi úr einni af
stærstu borholunum á Kröflu-
svæðinu hefur margfaldast frá
þvi sem var.
Aftur á móti hefur gasút-1
streymið i öðrum holum ekki
aukizt neitt og er óbreytt.
Aukning á útstreyminu veldur
þvf m.a. að minni hluta af
gufunni verður hægt aö nýta til
raforkuframleiðslu en ella og
þvi kann að verða erfiöara að
reka aflstöðina en áætlað var
samkvæmt upplýsingum sem
lagu fyrir þegar mannvirkin
voru hönnuð.
Það skiptir ekki máli frá
tæknilegu sjónarmiði um
rekstur virkjunarinnar hvort
landið hækkar eða lækkar, en
hallabreytingar sem fara fram
úr þvi sem ætlað er geta haft
erfiðleika f för með sér.
Hinsvegar er gert ráð fyrir
þvi að hallabreytingar að
ákveðnu marki geti átt sér stað
og á það ekki að hafa áhrif á
búnaö virkjunarinnar þó svo að
slikar breytingar verði eftir að
hverflarnir hafa verið tengdir
við inntaksmannvirkin við
stöðva rhúsið.
Skjálftum fækkaði á Kröflu-
svoðinu á tímabilinu marz til
mai á þessu ári, síöan var fjöldi
þeirra nokkuð samur og jafn
fram i mai en hefur fjölgað
aftur að nýju auk þess sem
styrkur þeirra er nú meiri en
var fyrr á árinu. Er nú svo
komið að fólk veröur vart þeirra
stærstu.
Þessir skjálftar eru á sprungu
frá Kröflusvæðinuog suður um i
áttina að Bjarnarflagi og
Námafjalli. Ekki hefur orðið
vart hreyfinga á öðrum
sprungum.
Þær breytingar sem orðið
hafa á þessu svæði að undan-
förnu gætu allt eins bent til þess
að gos væri i aðsigi, en alls ekki
er hægt að segja neitt með vissu
um það.
Vfsindamenn munu fylgjast
náið með þvi' sem þarna gerist á
næstunni.
EB
17 gengust undir
próf og 10 féllu
- Tilhögun prófanna sú sama og fyrr
Fyrir skemmstu geng-
ust sautján nemar á þriðja ári i
lyfjafræði undir próf sem veita
átti þeim réttindi til þess að
starfa sem aðstoðar-
lyf jafræðingar. Prófið var
haldið við Háskóla fslands.
Af þessum 17náðu aðeins 7 til-
skilinni lágmarkseinkunn og
mun þetta vera einhver hæsta
fallprósenta sem um getur á
síðustu árum.
Hér mun ekki hafa verið um
þaö að ræða að tilhögun prófa
hafi verið breytt heldur var hún
hin sama og verið hefur undan-
farin ár.
Ekki gengust neinir þriðja-
ársnemar undir próf i fyrra en
árið áður háðu þrir prófið og
stóðust allir.'
Nemarnir þurfa að ná
einkunninni sex af tiu mögu-
legum i öllum prófum.
Þeim sem ekki náöu tilskilinni
einkunn gefst kostur á þvf að
endurtaka prófið i haust.
Það mun ekki vera nein
nýlunda að fallprósenta sé allhá
i ýmsum greinum i háskólanum
og er læknadeild oft tekin sem
dæmi um það. Þá gerist það
einnig i Verkfræði- og raun-
vlsindadeild að allmargir
standastekki lágmarks kröfur.
Ekki er unnt að setja út á að
það séu gerðar miklar faglegar
kröfur tii nemendanna, en ekki
má fara út i það að aukaatriði
séu notuö til þess að halda fjölg-
un menntamanna i einstökum
greinum I skefjum.
Ekki er þó verið að halda þvi
fram að slikt hafi gerzt i þessu
tilfelli sem hér um ræðir.
EB
Flugleiðaþjónusta
Ibúar Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar sem ætla utan með flug-
vélum Flugleiða þurfa ekki
lengur að aka tii Reykjavikur
vilji þeir notfæra sér bilferöir
félagsins til Keflavikurflugvallar.
1 þvi augnamiði að bæta
þjónustu Flugleiða verður nú
stanzað á tveim stöðum á leiðinni
til Keflavikur, við Ásgarð i
Garðabæ og við gatnamót
Reykjanesbrautar og Flata-
hrauns I Hafnarfirði. Billinn
leggur upp frá millilandaflugaf-
greiðslu Flugleiða á Hótel Loft-
leiðum 90 minútum fyrir brottför
flugs.
Aðeinserstanzaði Garðabæ og
Hafnarfirði á leið suðureftir.
Aöems er stanzað i Garðabæ og
Hafnarfirði á leið suðureftir.
Millilandafarþegar á leið til
Reykjavikur þurfa, vegna af-
greiðslu farangurs, að ferðast
alla leið á afgreiðsluna á Hótel
Loftleiðum. Nauðsynlegt er að
þeir farþegar sem hyggjast koma
i langferðabilinn á öðrum hvorum
þessara staða láti vita samdægurs
og hafa rétt fargjald handbært, en
það er 310 krónur. Bilarnir stanza
ekki á öðrum stöðum milli
Reykjavikur og Keflavikurflug-
vallar. —SG
Enn óráðið í þrjár
stöður hjá sjónvarpi
Enn hefur ekki verið
tekin ákvörðun um
ráðningu í þrjár stöður
hjá sjónvarpinu, en um-
sóknarfrestur um þær
rann út fyrir nokkru. Hér
er um að ræða stöðu
iþróttafréttamanns, sem
Om ar Ragnarsson
gegndi, fréttamanns í
stað Svölu Thorlacíus og
dagskrárgerðarmanns í
stað Sigurðar Sverris
Pálssonar.
Pétur Guöfinnson fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins
sagði i samtali við Alþýöublaðið
i gær, að hann vonaðist til að
gengið yrði frá ráðningum I
störf þessi á næsta fundi
útvarpsráðs. Ráðið hélt fund i
gær, en þá var ekki gengiö frá
afgreiðslu þessara mála.
Starf Iþróttafréttamanns hef-
ur lengi verið laust. Þaö mun
hafa verið ákveðið að ráöa
Sigrúnu Stefánsdóttur ritstjóra
Islendings i það, en henni sner-
ist hugur. Hún sækir nú um starf
Svölu og það gerir einnig Einar
Karl Haraldsson fréttastjóri
Þjóðviljans. Annað þeirra þykir
helst koma til greina sökum
starfsreynslu, en auk þeirra eru
eru umsækjendur tveir ungir
menn. —SG
MIÐVIKUDAGUR
16. JÚNÍ 1976
alþýöu
blaöið
Heyrt: Að Pétur
Sígurðsson, (sjómaður) sé
með „óþægustu” mönnum i
þingflokki Sjálfstæöis-
flokksins. Að hann hafi
jafnvel hótað aö styðja
klofiiingsframboð. Hann
kórónaði andstöðu sina
með þvi að vera með-
flutningsmaöur að tillögu,
sem flutt var i þinglok um
að kalla sendiherra Islands
hjá NATO heim. Þetta mis-
likaði félögum hans mjög
og þó einkum forsætisráð-
herra.
Frétt: Þessi sami Pétur
Sigurðsson er mikill
áhrifamaður I stjórn
Dvalarheimilis aldraðra
sjómanna og hefur unnið
þar mikið og gott starf.
Skömmu eftir að þingi lauk
sendi forsætisráðherra þá
eindregnu ósk til hinnar
frægu Framkvæmdastofn-
unar, að hún lánaði DAS 50
milljónir króna vegna
smiði nýs dvalarheimilis I
Hafnarfirði. Kommissar-
arnir gerðu sitt og lánið var
veitt. Menn geta nú velt þvi
fyrir sér hvort forsætisráö-
herra og aðrir forystumenn
Sjálfstæðisflokksins hafi
„keypt óþægðina úr Pétri”
fyrir 50 milljónir króna.
Frétt: Að Sveinn R.
Eyjólfsson, framkvæmda-
stjóri Dagblaðsins, og Ing-
ólfur P. Steinsson, sem eitt
sinn var framkvæmda-
stjóri Alþýðublaðsins, en
starfar nú hjá Dagblaðinu,
séu I Bandarikjunum á
mikilli prentiðnaðarsýn-
ingu. Þar er sýnt allt hið
nýjasta i prenttækni dag-
blaða, og má ætla að þeir
Dagblaðsmenn séu að
undirbúa stofnun eigin
prentsmiðju. Ingólfur er
manna fróðasturum prent-
tækni.
Heyrt: Að fjármálamenn
llti llfið nú heldur bjartari
augum en þeir geröu fyrir
nokkrum mánuöum. Þeir
telja, að margt hafi nú
gerzt, sem bendi til þess að
betri timar séu framundan
I efnahagsmálum Islend-
inga. Þeir benda á
hækkandi verð á fiski,
niðurfellingu tolla hjá
Efnahagsbandalaginu,
góða afkomu ýmissa stór-
fyrirtækja (SH, Flugleiða,
Sölusambands fiskfram-
leiðenda et cetera) og mik-
inn feröamannastraum.
Séð: Að lögfræðingar
hyggist stofna sérstakan
ábyrgöasjóð, sem tryggi
skjólstæðinga lögmanna
gegn tjóni, ef þeir (lög-
menn) komast I greiðslu-
þrot.