Alþýðublaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 7
ÚTLÖND 7 alþýi blað ÖU' ió Þriðjudagur 10. ágúst 1976 Þióðsagan og skrimslið Ferðamenn skoða vatnið Loch Ness — en sjá ekkert skrimsli venju fremur. Það rumskar af blundi í iðrum jarðar, á botni vatnsins.^Nokkurs konar hreyfi hefur gárað vatnsflótinn um stund um leið og risastór líkaminn færist ofar í gruggugu vatninu. Fyrstu þrjú hundruð metrana finnur það aðeins aukinn hita vatnsíns, en eftir það byrjar heilinn að starfa, þó að höfuðiðséaðeins nokkurs konar framhald á slönguhálsi — það hreyfir sig óörugglega í myrkrinu, áður en augnalokin titra og augun opnast. Sl imkenndar, littsjáanlegar kúlur rjúfa móðuna, rekandi slímþekjuna, og beinast að hreyf ingu á yf irborðinu. Smá- V__________________________________________ álar stinga sér inn í klettaskorur um leið og þeir horfa skelfdum augum á óvininn stefna að kyrru, steingerfðu yfirborðinu, sem í speglast tignarleg furutré, birki- lundar, brekkurog tindar sem Ijóma í dags- birtunni og mistrinu. Vatnið skiptir um litog likistnú dökku tei. Silungar og geddur dreifa sér og kafa djúpt, eins og vildu þeir aðvara laxana, sem eru á leiðinni út úr undirgöngum vatnsins, að nú sé ,,óvanalegt skrímsli" á höttunum eftir þeim. Vatnið virðist nálgast suðumark, klettarnir og lauf skrúð trjánna, sem endur- speglast á yfirborðinu, hverfur. Risavera birtist og spýtir frá sér vafflaga vatns- bólstri, um leið og hún þýtur yfir vatnið með ofsahraða, til þess eins, að kafa aftur niður í djúpin. Endurspeglanirnar sjást betur, þegar mistrinu léttir, og þá fyrst er dögun við Great Glen... Hér byrjar greinaf lokkur um vatnið fræga Loch Ness t Skollandi og þá eilífu leit að hinu leyndardómsfulla skrimsii, sem menn hafa þótzt sjá — og sífellt vekur furðu. Greinarf lokkurinn birtist hér i blaðinu út þessa viku. Þekkt Ijósmynd Wilsons frá árinu 1934 sýnir „Nessi" á f loti á yfirborði vatnsins. Sumir visindamenn telja, aðaðeins hálsog höfuð sjáist á þessari mynd. A hálendi Skotlands eru til all- lifseigar þjóðsögur um ,,water kelpie” eða „Nykra”, sem risa upp úr djúpum vötnum, og fara jafnvel upp á land um skammahriö, og styðja þvi þjóðsöguna um „skri'mslið i Loch-Ness”. Allir þarfnast þess að imyndunaraflið blómstri, ef ekki hjá þeim, þá öðrum, en þjóðsöguhetjurnar ættu að vera lausar við forvitna áhorfendur. Allt frá 1933 hefur umferðin við Loch Ness aukizt, en þá var gerður þar þjóðvegur, og eins og stendur er verið að taka þær myndir neðansjávar, en i júni 1975 sá um allt slikt, Robert Rhines doktor i lögfræði og for- maður vi'sindadeildarinnar i Boston. Margir ritstjórar litu myndirnar hýru auga eigi siður en visindamenn frá Smithson- ian-stofnuninni. 1 desember áætlaði Rhines fundi með þekktum visindamönnum frá Edinborg, Skotlandi, Visinda- stofnunar Peters Scotts, og Konunglega visindafélagsins i Edinborg. Allt það brotnaöi undir auknum þrýstingi aug- lýsinga i fjölmiölum, sem reyndust einkar óhentugar visindaiðkunum, og þvi sem meira máli skipti, skorti á stuðningi frá Britist Museum, en þar álitu menn ótrúlegt, að myndirnar sönnuðu, aö skrimsl- iö væri til. Myndirnar, sem eigandinn metur á $50.000, eftir þvi sem aðstoðarritstjóri National Geo- graphis, Joseph Judge, segir, eru nú til s.ölu fyrir lltinn pening. „Égheldþviekki fram, að þetta séu svik,” sagði Judge i nýlegu viðtali, „en myndir af höfði og hálsi likjast mikið þvi, sem ætla mætti að djúphafs- skrimslið liti út. Gapandi ginið langur beinakambur um mitt andlit, ávöl augu með bein- kenndri umgerö... alveg eins og ævintýradreki.” A 1 jósm yndasýningunni i Needham Heights, Bóston, þann 6. september voru Gilbert Gros- venor ritstjóri og Bill Garrett aðstoðarritstjóri i fylgd með Judge. Báðir sýndu áhuga, ai voru vantrúaðir. Þeir voru hins vegar báðir sammála um, að unnt væri að birta myndirnar i Geogarphic, ef vissum skil- málum væri hlýtt. bað væri nauðsynlegt að lýsa myndirnar til þess, að „óumtvirætt væri unnt að sjá eitthvert dýr”, og dr. George Zug, forstjóri eðlu og froskdýra deildar við Smiths- onian verði að „ákveða dýra- tegundina, svo að hún stæðist visindalega athugun”. Myndirnar voru sendar til Los Angeles, en þar staðfestu tækni- menn, að þeim hefði ekki verið breytt á neinn hátt, og að eitt- hvað dýr sæist þar óneitanlega. En mánuöi siðar komu þær til baka engu skárri og ritstjór- arnir og doktorarnir Zug og Rhine skoðuðu þær, en voru engu nær en fyrr, og dr. Zug neitaði að láta nokkuð eftir sér hafa (seinna gaf hann skýrslu, sem kom skriði á desember- fréttirnar). 1 bók sinni „Sagan um Loch Ness”, segir Nicholas Witchell, að Zug hafi „tekið eftir smáatriðum, sem aðeins æfður dýrafræðingur gæti séð: t.d. þvi að myndir af kviði, sem aögættar voru sérstaklega með tilliti til snýkla, hafi ef til vill sýnt aftast til vinstri enda- þarmsfellingar dýrs.” Starfslið „Geographics”, sem hafði ónógar staöreyndir til úr- vinnslu óskaði eftir þvi við Rhine, aö hann geymdi skýrslu- birtingu, unz unnt væri að senda myndatökumenn timaritsins á staðinn til að taka myndir af skepnunni, en Rhine vildi ekki heyra á það minnst, og kom með þvi i veg fyrir frekari viðræður. „Ég hélt þvi einu sinni fram, að myndirnar væru bara gabb,” segir Judge og hlær við,” en Rhine sprakk.” Þó að Judge sé reiðubúinntil^að viðurkenna, að hugsanlegt sé, að eitthvað dýr ílækist um vatnið, hefur hann ekki alltof mikinn áhuga á að finna þaö. „Ætli við rekumst ekki á þaöfyrr eða seinna, og þá sendum við tvo beztu* neðan- sjávarljósmyndara heims á staðinn, þá Bill Curtsinger og DaceDoubilet. Ef eitthvaðer að finna þar, ná þeir mynd af þvi... mér er sama, þó að þeir séu lengi að þvi.” Judge hefur mestar áhyggjur af því, að ekki eitt bein, hvab þá beinagrind, hefúr rekið á land frá þvi, að skrimsliö sást fyrst á sjöttu öid af heilögum Kólumba frá trlandi. Þetta eigi siður en að ná góðri mynd af skepnunni vakir einnig fyrir Rines, og þvi hefur hann boðið dr. Christopher McGowan, forndýrafræðingi við konunglega safnið i Ontario, Toronto, og dr. Zug i tveggja til þriggja daga rannsóknarferð, sem ætlað var að fara i s.l. júli- mánuði. Vélbáturinn „Hunter” hefur hljóðbylgjutæki utan- borðs, sem breytir endurvarps- bylgjum i myndir frá botninum. Það á að geta séö til hlitar allt i undirheimum vatnsins og sent frá sér „myndir”, sem eru til- tölulega skýrar. Bein.sem gætu fundist, verða tekin með smádcafbát, sem útbúinn er með griptöngum. Myndirnar verða einnig teknar með 35 mm Edgerton neðansjávarmynda- vél. Ljósop hennar verður næmara, hún tekur myndir af stærri svæðum, og myndirnar verða teknar á tveggja sek- úndna fresti. Það efast enginn um, aö flóknari tækni verði notuð ásamt myndavélinni. sem efalaust hefur „blikkað” skrim sliö i nær hálfa öld. Það er óliklegt, að unnt verði að ná myndum af dýrinu tvisvar, en leitin er að risaál eða snigli — æsispennandi sem hraðbát, hraðfleygum sem mistri. Great Glen er 100 mQna gildrag, sem nær yfir skozku hálöndin frá Moray Firth i norð- austri að Firth of Lorne i suð- vestri, og myndar þvi tengsl milli Norðursævar og Atlants- hafs. Það orsakast af hliðarsigi jarðarinnar, norðaustur-suð- vestur sigs i Kaledóniskufjöll- unum. A isöldinni var Skotlandi hreinlega þrýst niður, en hafið reis, þegar isinn bráðnaði, og varð svo stöðugt. En landiö hélt áfram að risa, allt að 150 metra yfir sjávarmál, og eftir urðu saltvötn og hvitar strandir umhverfis skógaleifar. Loch Ness, sem er stærsta ferska vatnið á brezku eyjunum, ogþriðja stærsta vatn sinnar tegundar i Evrópu, er vatnageymsla Great Glen. Þangað fer afrennsli nær- liggjandi vatna — Glen Affirc, Glen Cannich, Glen Moriston, Glen Farrar og Glen Urquhart — svo að yfirborö vatnsins getur hækkað um allt að 60 sm á klst. Það var lokað fyrir alla mögu- leika þess, að vatnið næði með neðansjávargöngum að Norður sjó, fyrir löngu rneð leðjufram- burði fljótanna, sem breytti þessu saltvatni i ferskvatn. Standlengjan er ekki vogskorin, flóa eða árósa t-r þar ekki að finna, þvi að árbakkarnir eru snarbrattir og allt bendir á risa- stórt diki, sem er allt að 1,5 milur á breidd og 23 milur að lengd frá Inverness i norðri að Fort Augustus i suöri, en þaðan liggur Kaledóniu-skurðurinn út i Atlanshaf. Vatnið er yfirleitt rúmlega 2km aödýpt, en mesta dýptin er tæplega 3 km. Vatnið leggur aldrei og hefur svipuð áhrif á sveitina umhverfis og golfstraumurinn, þvi að frá þvi streymir hiti um vetur., sá hiti, sem það safnaði um sumarið. Hitinn i vatninu er tiltölulega stöðugur og nægilegur fyrir nær milljónir flökkuála, sem hafa sezt þar að eftir þvi sem fiski- fræðingar segja, i stað þess að leita til sjávar. Rauðbrúnir þör- ungar prýða grýtta ströndina, en við árósana er gnótt fersk- vatnsjurta og lifræns úrgangs, sem Iara, silungar, lax og fiskar nærast á. Fiskifræbingar telja þvi liklegt, að lifeðlisfræðilega séð geti stór dýr lifað i vatninu,- Vatnið var skirt i höfuðið á grisku gyðjunni Nesa, en talið var að eðli hennar væri orsök alls „óeðlilegs” þar. Ef gera á Ness kvenlegra, verður þaö „Nessi” —nafnið á skrimsUnu i Loch Ness. FYRSTI HLUTI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.