Alþýðublaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 10
10
Þriðjudagur 10. ágúst 1976 biaSw1
i
Sh I r*\UTG€Rö R1 K 1 SI N«S
m/s Esja
fer frá Reykjavik föstudaginn 13. þ.m. austur um land f
hringferð.
VÖRUMÓTTAKA: þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
til Vestfjarðahafna, Norðurfjarðar, Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Raufarhafnar, Þórs-
hafnar og Vopnafjarðar.
Lyfsöluleyfi, sem Forseti
íslands veitir
Lyfsöluleyfið i Neskaupstað er laust til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til 3.
september 1976.
Umsóknir sendist landlækni.
Samkvæmtheimildi32. gr. lyfsölulaga nr.
30 29. april 1963 er viðtakanda gert skylt að
kaupa vörubirgðir og áhöld lyfja-
búðarinnar. Einnig skal viðtakandi kaupa
húseignina Egilsbraut 7, þar sem lyfja-
búðin og ibúð lyfsala er.
Leyfið veitist frá 1. október 1976.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
6. ágúst 1976.
Kennari - Borgarnes
Kennara vantar að barnaskólanum
Borgarnesi.
Umsóknarfrestur til 20. ágúst.
Upplýsingar gefa Sigurþór Halldórsson
skólastjóri og Jón Einarsson formaður
skólanefndar.
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast i 7 dreifistöðvarhús úr forspenntum eining-
um á steyptum sökklum, fyrir Rafmagnsveitu Reykjavlk-
ur.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi
3, R. gegn 5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 25.
ágúst 1976, kl. 11 f.h._____________________
1 ”-----,-—-- T-- *
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGÁR
'j. ■), Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Laus staða
Kennarastaða I stærðfræði við Menntaskólann I Kópavogi
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um náms-
feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
5. ágúst 1976
mm i
ÍSUNBS f
010UC0TU3
Miðvikudagur 11. ágúst kl.
08.00
Þórsmörk
13.-22. ágúst. Þeystareykir —
Slétta — Axarfjörður —
Mývatn — Krafla.
13.-15. ágúst. Hlöðufell —
Brúarskörð.
17.-22. ágúst. Langisjór —
Sveinstindur — Álftavatns-
kí<jkur — Jökulheimar.
19.-22. ágúst. Berjaferö i
Vatnsfjörð.
26.-29. ágúst. Norður fyrir
Hofsjökul.
Nánari upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofunni.
FERDAFÉLAG tSLANDS
ÞAK -
Tilboð óskast i þakklæðningarefni úr eir, á
þak Listasafns rikisins. Heildarmagn er
áætlað ca 675 ferm. Otboðsg^fn eru afhent
á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844»
'llil/:
r
Gömul og fremur óvið-
feldin Náttfarasaga
Margir hafa aðvonum velt þvi fyrir sér hvernig hinn víðförli Náttfari brygðist við
ef einhver vaknaði meðan hann væri að verki sínu inni í íbúð fólks, og eins hvernig
íbúar hússins yrðu og hvernig þeir brygðu við.
I lesendadálki í Alþýðublaðinu árið 1973 var að finna meðfylgjandi frásögn eins
af fórnarlömbum einhvers náttfarans, og þar segir hann athygfisverðasögu af
viðskiptum sínum við innbrotsþjófinn og lögregluna.
HORMÐ
Saganum innbrotsþjófinn sem lög-
reglan kærði sig ekkert um að taka
„Hér er örstutt saga um þaö
hvernig fer fyrir mönnum, sem
þurfa aö leita aöstoöar lögregl-
unnar, cn hitta á varöstjóra,
sem lita hlutverk sitt öörum
augum cn þeim aö þeir séu aö
gæta laga og réttar og liösinna
borgurum”, sagöi „Borgari viö
Horniö.
Aöfararnótt laugardagsins 15.
september vaknaöi ég viö þaö
aö óboöinn gestur var kominn I
heimsókn inn I hjónaherbergi og
var þar bogra viö lcit l vösum
fata og skúffum.
fcg kæröi mig skiljanlega ekki
um þessa heimsókn og vildi
losna viö innbrotsþjófinn. Þjóí-
urinn var ungur piltur. trúlcga
um eöa rétt yfir tvltugt, stutt-
klipptur og klæddur peysu.
Honum geöjaöist ekki aö þvl aö
vera truflaöur viö þessa leit
sina, og geröi sig þvi liklegan til
aö svara fyrir sig þegar ég
ætlaöi aö stjaka honum út fyrir
dyr.
Hann var þó hinn brattasti og
heimtaöi sigarettur og brenni-
vin, svona til aö byrja meö, og
þegar hann þóttist þess fuliviss,
aö þaö yröi ckki viö ofurefli aö
etja. Ég kunni þvi samt ekki ailt
of vel og hugöist hringja i lög-
regluna, en innbrotsþjófurinn
fylgdist vel meö samtalinu, og
þvl lét ég sem ég væri aö hringja
á leigubil.
Varöstjórinn sem var fyrir
svörum þessa nótt lét sér hins
vegar ekki nægja, þótt hringt
væri og hann beöinn aö scnda bll
og menn mjög áriöandi aö
tilteknu húsi.
„Viö gctum ekkcrt sinnt
svona kvabbi”, var svariö, „þú
veröur aö koma þvi út úr þér
hvaö er á seyöi.” Þaö var þá
itrekaö, aö þetta væri mjög
áríöandi og skyring yröi gcfin
strax og þeir kæmu. „Viö
megum ckkert vcra aö þvi aö
standa í svona,” svaraöi þá
vöröur laganna og lagöi á.
Til alirar blessunar tókst mér
aö fá innbrotsþjófinn um siöir
út, meö þvi aö beita diplómatlu,
en þaö má nærri gcta hversu
öruggt heimilisfólkiö hefur taliö
sig vera eftir þessa heimsókn, ef
þaö fengi ’aöra sllka, þar sem
kæmi einhver gestur, sem ekki
væri eins auöveit aö tala til, og
ef enn þyrfti aö leita á náöir lög
reglunnar.”
Miðvikudagur 3. október 1973
V
r
/
N
Kanntu á símann þinn?
Ariö 1932 fengu Reykvlkingar i hendur sjálfvirkan sima. Það var mikil breyting frá þvf sem áður var
þegar öll samtöl þurftu að fara I gegnum miðstöð.
Að sjálfsögðu þurfti að kenna mönnum á þett&uidratæki. Við rákumst á grein I Alþýðublaðinu frá
þessum árum, sem inniheldur einmitt leiðbeiningar sem gera áttu mönnum kleift að nota þetta undra-
tæki. Við birtum smá hluta úr henni til gamans, nú svo gæti það ef til vill komiö einhverjum aö gagni.
Sem sagt Alþýðublaðið 1932.
Nýi síminn opnaOnr i nött ki. 12.
Fnllkomln vélvfisladi.
j
41 stúlka missir atvinnu sfna.
Viðtal við C.W. Riise
verkfræðing.
Tiöindamaður Alþýðublaðsins
hefur átt tal við C.W. Riise
verkfræðing sem hefir haft yfir-
umsjón um uppsetningu
' stöðvarinnar, og sagðist honum
svo frá:
Þessi stöð er kennd við
sænska félagið L.M.Ericsson,
sem hefir gert þessa tegund, og
verkfræöingurinn sem hefir
fundiö upp einn merkasta liðinn
i henni, er og sænskur og heitir
Hultmann. Félagið, sem
selur stöðina hingað, er Elek-
trisk Bureau i Osló og setur þaö
hana lika upp. Þessi tegund
simstööva er nú mjög að ryöja
sértil rúmsogElektriskBureau
hefir einkaleyfi á henni. Stöðin
hér 1 Reykjavik getur tekið alls
9 þúsund númer, en nú eru þau
aöeins 4 þúsund: I Hafnarfirði
er hægt að hafa 900 númer en
þar eru nú 3 hundruð. Það er
meiri vanda bundið fyrir not-
endur að nota þennan sima
heldur en hinn, og er þvi afará-
riðandi að notendur læri allar
reglur m jög vel og bregöi ekki I
neinu útfrá þeim. Það er nauð-
synlegt t.d. að notandi finni
fyi st númerið i simaskránni: er
hann hefir fundið það, og ekki
fyrr, skal hann lyfta heyrnar-
tólinu að eyranu og biða eftir
sóninum, sem kemur rétt undir
eins. Er hann heyrist skal
þegar velja númerið. Tökum til
dæmis að notandi ætli að biðja
um ritstjón Alþýðublaösins,
sem hefir slmanúmer 4901. Þá
setur hann fingurinn i gatið á
skifunni á móts við tölustafinn 4
og dregur skifina að hakanum,
svo sleppir hann og setur
fingurinn i gatið við stafinn 9 og
dregur að hakanum, siðan staf-
inn 0 og svo stafinn 1 og fer að
eins og fyrr.
Ef ritstjórnin er ekki á tali
heyrast hringingarmerkin, en
þau tákna aö nú hringi á rit-
stjtírnina, og hringingarmerkin
heyrast þar til svarað er, en sé
ritstjórnin á tali heyrist slitrótt-
ur sónn. Þess verða og notendur
að minnast að þaö er gagnslaust
að biða oghlusta, þegar slitrótti
sónninn heyrist: sambandið
fæst alls ekki á þann hátt. Þess
vegna skal þegar leggja heyrna-
rólið á áhaldið og hringja aftur
seinna. Mjög er það áriöandi að
leggja heyrnartóliö á áhaldið,
þegar simtali er lokið, annarsá
notandi á hættu að missa sam-
band við stöðina. Meðan númer
er valiðmá ekkisnerta legtappa
heyrnartólsins. Það er og afará-
riðandi að notandi leggi aldrei
fra sérheyrnartóliðá borðið við
hliðina á simaáhaldinu ef hann
stendur ekki i sambandi við ein-
hvern — og simasambandið
slitnar ekki nema báöir sima-
talendur leggi heyrnatóliö á
áhaldið.
Hjá þeim skiftiborðsnotend-
um sem ekki hafa fengið ný
skiftiborð, hefur verið settur
upp bráðabirgðaútbúnaður
sem hefir þann ókost að ekki er
hægt að velja númer frá simum
þeim, sem eru i sambandi við
skiftiborðið, heldur eingöngu
frá skriftiborðinu sjálfu. A
þessu verður ráðin bót á
næstunni, sumpart með upp-
setningu nýrra skiftiborða eftir
þvi sem unnt verður.
Tekið er á móti umkvörtunum
simanotenda i simanúmer 1000.
Með þvi að velja það númer fær
simanotendi samband við
innanhúsmiðstöð landsslmans
og skal þá biöja um um-
kvartana—móttökuna.