Alþýðublaðið - 10.08.1976, Side 11
SffiKS"
Þriðjudagur 10. ágúst 1976
SJÓNARMIÐ 11
GAGNRYNIN Á ALÞINGI
Gagnrýni á Alþingi og störf
þingmanna hefur færst mjög i
vöxt upp á siökastíb. A liðnum
vetri mátti oft sjá i lesenda-
dálkum dagblaöanna bréf frá
reiðum lesendum þar sem þvi
var lýst yfir, að á Alþingi sætu
leikbrúður einar og dusilmenni.
Rosknir menn lýstu þvi fjálg-
lega, að þetta heföi nú verið
öðruvisi hér áður meöan að
Ólafur Thors, Einar Olgeirsson,
Bjarni Benediktsson og aðrir
álika áttu sæti á þingi. Sumir
ræddu það einnig að Björn á
Löngumýrihefði verið sá siðasti
sem sýndi nokkurt sjálfstæði
meðal þingmanna og ekki iátið
flokkinn ávallt ráða þegar hann
greiddi atkvæði.
Nú fyrir skömmu birtist harð-
orð forystugrein i Dagblaðinu
þar sem gerð er hörö hrið að
Alþingi ogþeim erþar eiga sæti.
„Ffnn hagsmunaklúbbur”
nefnist þessi leiðari Jónasar
Kristjánssonar. Upphaf hans er
þannig: Fyrir kemur, að þing-
menn, einkum varaþir.gmenn,
spúa eldi og brennisteini, þegar
þeir taka fyrst sæti á Alþingi,
fullir hugsjóna og áhuga. Þeir
gerastundum nokkrar tilraunir
til að láta að sér kveða, marka
spor sin á Alþingi.
Hinir eldri og reyndari þing-
menn brosa góðlátlega að
þessum ungæðishættí og láta
ekkert raska ró sinni. En þeir
gæta þess að láta nýliðana ekki
komast upp með moðreyk. Alls
staðar risa háir veggir, sem
hugsjónamálin komast ekki
yfir.
Smám saman átta nýliðarnir
sig á, að þeir eru hafðir að
spotti. Hver á fætur öðrum stiga
þeir niður úr háum söðli sinum
og fara aðsemja sig aðsiðum og
háttum þingmanna. Þeir reyna
að verða eins oghinir strákarnir
i klúbbnum”.
Vistá þessi gagnrýni Jónasar
rétt á sér. Margir hafa litið
vonaraugum til ungra manna,
sem hafa haldið skeleggar
ræður á framboðsfundum,
ráðist með hörku að hvers kyns
ósóma, misrétti i þjóðfélaginu
og aðgerðaleysi Alþingis i
mörgum málum. Ræður
þessara manna hafa falliö i
góðan jarðveg hjá kjósendum
ogungir reiðir menn hafa verið
kosnir á þing. En þeim rennur
fljótt reiðin eftir að hafa verið
um tima innan veggja Alþingis-
hússins. Þegar komið er heim i
kjördæmin að vori horfa málin
allt öðru visi við. Baráttumálin
og loforðin hafa verið lögð til
hliðar. Nú er talað til kjósenda
af alvöruþunga, þeim er tjáðað
það sé við ramman reip að
draga i hinum og þessum
málum, margt sé þó i undirbún-
ingi í sambandi við hagsmuna-
mál byggðarlagsins og þar fram
eftir götunum. Yfir kjósendum
er kyrjaður sami gamli söng
urinn sem þeir hafa hlustað á
áratugum saman.
Unga fólkið i dag, og raunar
einnig margir sem komnir eru á
miðjan aldur, virðast vera
þeirrar skoðunar, að hér áður
hafi þetta nú aldeilis ekki verið
svona slæmt. Þá hafi setið
djarfir menn á þingi sem voru
óhræddir að segja sina mein-
ingu. Ég verð að segja það, að
þótt ég hafi ekki fylgzt með
þjóðmálum nema siðustu 15
árin eöa svo, enda ekki fæddur
þegar lýðveldið var stofnað, þá
hefurmér sýnstaf lestribókaog
blaða frá fyrri tið, að ekki hafi
allir haft mikið álit á Alþingi
eða þingmönnum fyrr á árum.
Og hvað viðkemur þessum sið-
ustu 15 árum, þá finnst mér bar-
lómurinn og harmakveinin frá
Alþingismönnum ávallt hafa
setið i fyrirrúmi. Og aldrei
verður gráturinn sárari en
einmitt þegar bezt hefur árað til
sjós og lands. Það er segin saga,
að þá megum við eiga von á
boðskap um að nú verði að
herða mittisólina svo um
munar.
Varðandi gagnrýni á Alþingi
og þingmenn hér áður, þá
minnist ég þess að eitt sinn var
gefið út frjálst og óháð vikublað
sem hét Stormur. Ritstjóri og
útgefandi var Magnús Magnús-
son, sem enn lifir i hárri elli.
Magnús stormur kom viða við i
greinum sinum, þekkti persónu-
lega alla helztu menn þjóð-
arinnar og 'var ófeiminn að
segja sina skoðun, hver sem i
hlut átti. Og hann hafði þetta
m.a. að segja i einu Jeremisar-
bréfi siðu árið 1941, svo nefndi
hann pistla sem hann skrifaði
um skeið i blað sitt.
„....Sannleikurinn er sá, að «i
raun réttri er hvorki um þing-
ræði eða lýðræði orðið aö ræða i
þessulandi, nema aðnafninu til.
Val Alþingis er komið i hendur
rikisstjórnarinnar og fá-
mennrar kliku innan allra
st jórnm álaf lokkanna. Allur
þorri þingmenna hlýðir i undir-
gefni og auðmýkt þeim ákvörö-
unum, sem innan þessarar kliku
eru teknar, en þeir, sem halda
fast við sannfæringu sina eru
ofurliði bornir og jafnvel reynt
að bola þeim út úr stjórn-
málunum. Um lýðræðið gildir
það sama. Kjósendur ráða
engu, heldur sú fámenna klika,
sem hrifsað hefur til sin völdin.
Þessi klika velur þeim þing-
mannaefnin, og hún fer sinu
fram, hver svo sem vilji kjós-
endanna er. Svo mikið er ein-
ræðið, að i pólitiskum, fjöl-
mennum félögum má jafnvel
ekki gera samþykktir um mál,
ef þessari kliku kann að koma
það illa, að vilji fundarmanna
korrii i ljós. Og þeir menn, sem
einhverja gagnrýni hafa og
kjósa ekki að beygja sig og
skríða fyrir þessum Musso-
linum og Hitlerum, eru stimpl-
aðir sem ótrúir flokksmenn,
sem fari með róg og baknag um
beztu menn flokksins.”
Þetta sagði Magnús stormur
fyrir 35 árum og eflaust finnst
mörgum að þetta eigiekki siður
við i dag. Gagnrýni er sjálfsögð
og nauðsynleg ef hún er sprottin
af eðlilegum hvötum og gerð á
heilbirgðan háti. Sem betur fer
búum við i lýðræðisriki og
höfum frelsi tií að segja okkar
skoðun á öllu milli himins og
jarðar hverjum sem heyra vill.
Hvað gagnrýni á Alþingi við-
kemur þá finnst mér það liggja
i augum uppi, að meðan þvi
hefur ekki tekizt aö betrum-
bæta skaltalöggjöfina og leyfa
_bvi fjármálabröskurum á
fullkomlega löglegan hátt að
stela milljörðum úr sameigin-
legum sjóði landsmanna, sé að
minnsta kosti eitt atriði sem
allirgeta verið sammála um að
gagnrýna beri Alþingi harðlega
fyrir. Raunar þykir mér ein-
sýnt, að skattamálin veröi ekki
iagfærð fyrr en Alþýðusam-
bandið knýr á þar að lútandi.
Loforð þingmanna um úrbætur
hefur reynzt innihaldslaust
hjal.
Eins og öllum er kunnugt er
gagnrýni & v.aldhafa og þjóð-
félagsskipan ekki leyfð i ein-
ræðisrikjum. En manna á
meðal ganga skrýtlur um vald-
hafa sem taka allri gagnrýni
iram. Á sibustu valdaárum hins
alræmda böðuls, Walters
Ulbrichts, var eftirfarandi saga
mjög vinsæl meðal almennings i
Austur-Þýzkalandi, sem nefndi
Ulbricht ýmsum nöfnum.
Ulbricht var á ferðalagi út i
sveit og að sjálfsögðu i bíl af
dýrustu gerð sem einkabilstjóri
hansók. Gamla manninum þótti
hratt ekið en lét þó kyrrt liggja
um sinn. Skyndilega hleypur
hundur fyrir bilinn og drepst
samstundis. Ulbricht dróg upp
nokkra seðla, fékk bilstjóranum
ogsagði honuin að leita uppeig-
anda hundsins og borga honum
þetta sem skaðabætur. Jafn-
framt ávttaði hann bilstjórann
og bað hann aka varlegar. Eftir
að bæturnar höfðu verið
greiddar varhaldið áfram. Ekki
vildi þá betur til en svo, að bil-
stjórinn ók aftan á kú sem rölti
eftir vegarbrúninni og særðist
hún tilólifis. Þetta féll Ulbricht
afar illa. Avitaði hann bilstjór-
ann harðlega en fékk honum
siðan peninga og bað greiða eig-
andanum bætur. Jafnframt lét
hann svo ummælt, að ef þessu
héldi áfram yrði bilstjórinn
sjálfur að borga skaðabætur úr
eigin vasa framvegis.
Gekk nú allt vel um hrið, sól
skein i heiði og fram undan
blasti við litið sveitaþorp. Þá
geröist það, að svin hleypur upp
á veginn, verður undir bilnum
og er saga þess öll. Ulbricht
verður nú hinn versti, húð-
skarpmar aumingja bilstjórann
og hótar honum öllu illu. Segir
honum siðan að leita uppi eig-
enda svinsins og borga honum
skaðabætur úr eigin vasa og
megihann búast við barsmiðum
frá bónda. Bilstjórinn gengur nú
til þorpsins og erdágoöa stund i
bu rtu.
Þegar hann kemur aftur er
hann góðglaður, klyfjaður
kjúklingum, vinföngum og alls
kyns krásum öðrum. Ulbricht
starir á þetta dolfallinn og spyr
hvað valdi þessari rausn þorps-
búa.
— Ég skil ekkert i þessu,
svararbilstórinn. Þegar ég kom
að þorpskránni fór ég inn og var
þar margt manna. Ég hrópa
upp yfir lýöinn: Svinið er dautt'.
Þá spretta allir upp með
miklum fagnaðarhrópum ,
syngja og dansa, bera fyrir mig
vin ogmat, hylla mig sem þjóð-
hctju og leysa mig út með stór-
gjöfum!
Það fór verr íyrir Spánverj-
anum sem átti leið þar hjá sem
lólk hafði sainast saman á ólög-
legan mótmælafund. Fyrir for-
vitnissakir staldraði maðurinn
við i Utjaðri hopsins. Ekki hafði
hann lengi staðið og hlýtt á það
sem fram fór er lögregluþjónn
vék sér að honum og spurði
hvort hann væri kommúnisti.
Fát kom á manninn. en hann
neitaði þvi eindregið og kvaðst
vera andkommúnisti.
Mér kemur ekkert við
hvaða legund að kommúnista
þU aðhyllist, sagði þá lögreglu-
þjónninn og handtók þennan
friðsama borgara samstundis.
Þótt Alþingi sé vissulega
hornsteinn lýðræðis okkar er
ekki þar með sagt, að virðing
þess sé i hættu þótt störf þess
séu gagnrýnd. En að margra
dómi er virðíng landsmanna
fyrir Alþingi i algjöru lágmarki
um þessar mundir og má
einskis láta ófreistað til aðhefja
það til meiri vegs. Að öðrum
kosti er hætta á algjörri upp-
lausn i þjóðlélaginu. Missi
þjoðin allt traust á Alþingi hefur
Imn misst fótfestuna og þá liður
ekki á lögnu þar til lýðræðið
liður undir lok.
Sæmundur Guðvinsson
í „TRÖLLAHÖNDUM”? V.
Ógætileg gjaldeyris-
meðferð.
Islendingum gengur mörgum
öðrum þjóðum erfiðar, að ,,lifa
af landinu”, sem svó er kallaö.
Þarflauster að rifja upp aö viö
erum ákaflega háðir innflutn-
ingi nauðsynja, og að sama
skapi útflutningi okkar fram-
leiðslu.
Barátta okkar við að afla
gjaldeyris er þvi löngum æði
ströng og sjaldan gera endar
betur en ná saman, þvi að
margs þarf búið við. Fyrir
röskum 30 árum áttum viö þó
talsvert gilda sjóði I erlendum
gjaldeyri, sem notaöur ý'ar til
þess m.a. að kaupa stórvirk
framleiöslutæki, einkum til
sjávarafla. En fleira slæddist
með.
Sænsku bátarnir, sem flutu þá
að landi i striðum straumum
voru glæsileg skip á þess tima
vi’su. Eri þó virtist mér, að þeir,
sem komu til minnar fiei'ma-
Dyggöar þá, væru hlaðnir enn
glæsilegri farmi.
Svo mátti kalla, að hver og
einn væri hlaðinn dýrindis hús-
gögnum og jafnvel voru hljóð-
færi ekki undanskilin. Dæmi var
til að „eigendurnir”, sem áður
áttu ekki til stól úr vondu tré,
fylltu ibúðir sinar af hús-
gögnum, sem auðvelt var að
spegla sig i!
Það skal fram tekið, að hér
var ekki farið i launkofa með
neitt, eins og stundum vill
verða, ef um ólöglegt athæfi
ræðir.
I „jötunheimum”!
En þótt Norðfirðingar væru á
sinum tima léttlyndir i meðferð
hins dýrmæta gjaldeyris, þrátt
fyrir föðurlegar áminningar
Eysteins Jónssonar um hið
gagnstæða, sýnist það ekki vera
nema svona barnabrek, borið
saman við það, sem nú er aö
verða lýðum ljóst.
Þegar er komið upp i
sambandi við kaupin á hinum
fræga „Grjótjötni”, að þar
hefur verið framið milíjóna-
svindl, að þvi bezt verður séö i
fleira en einum tilgangi.
Þannig sýnist upplogin verð-
hækkun frá hinu rétta kaup-
veröi ekki geta verið i öðrum til-
gangigerð, en að fá riflegri lána-
fyrirgreiðslu, i annan staö hærri
flýtifyrningu og uppskrúfun á
verði, ef selt yrði, og/eða seðla I
vasann þá þegar. Hversu
langan slóða þetta mál kann að
draga, er vitanlega ekki auðsætt
nú, þó fram kunni að koma
siðar.
Það er eflaust ekkert
áhlaupaverk að athuga skipa-
kaup Islendinga ofan i kjölinn.
Telja verður raunar hafið yfir
allan efa, að hér eigi ekki allir
skipakaupendur óskilið mál. En
vissulega eiga allir rétt á þvi, að
þeirra plögg séu rannsökuð, svo
að óréttmætur grunur falli ekki
á saklausa, sem vonandi eru
miklu stærri hópur en hinir.
Eftir stendur svo hugraunin
af þvi, að hugsanlegt sé, vegna
skorts á eftirliti lánastofnan,
eða þeirra, sem um fjármálin
fjalla, að milljónasvindl geti
þróast, og nánast fyrir hreinar
tilviljanir, að slikt og þvilikt
verði hljóðbært.
En fleira kemur til.
Svo mun það ekki dæmalaust,
að þeir, sem eru klókir og snið-
ugir kunni að leika þannig á sin
hljóðfæri i symfóniu óðaverð-
bólgu og gengisfellinga, aö
drjúgt gefi i aðra hönd.
Uppskátt varð fyrir
allnokkru, að eitt virðulegt inn-
flutningsfy rirtæki með
bifreiðar, Ræsir trúi ég þaö sé
kallað, lét kaupendum falt lán i
bifreiðunum, verðtryggt, sem
er vist ekki alveg i samræmi við
strangasta lagabókstaf. Annars
ei' enn, þótt sé á annað ár, ekki
kominn botn i, hvernig laga-
verðir lita á slika starfsemi.
Hér er enn eitt rannsóknar-
málið, sem veslings Seölabank-
inn hefur fengið viö aö striöa.
En þrátt fyrir ærna timalengd
er enn ekki vitaö, hvar i kerfinu
jx'tta lerðast, eða stendur kyrrt.
Hitt er vitað, að verulegar
fjárhæðir hafa verið endur-
greiddar þeim, sem hlunnfarnir
höfðu verið, hinsvegar ekki hve
miklar.
Nú er aðeins tvennt til.
Annaðhvort er athæfi saknæmt,
eöa ekki. Sé það saknæmt,
hlýter það að teljast furðuleg
málsmeðferð, að þegja það i
hel, jafnvel þótt hinn rangfengni
Mammon sé reiddur af höndum
til þeirra,sem rétt áttu á. Vissu-
lega styöur endurgreiðslan að
þvi, að trúa þvi að mjölið hafi
ekki verið allt of hreint i pokan-
um.
En hvað um það. Hafj hér
veriö um að ræða ósaknæmt
athæfi, hversvegna er fyrir-
tækið þá ekki hreinsaö af öllum
grun um misferli?
Þau eru orðin æði mörg
óloknu málin á landi hér, sem
veltast i kerfinu. Sannarlega er
mál að einhverju af sliku taki að
linna. Það er ekkert viðkunnan-
legt fyrir dómskerfið, að sitja i
annarri eins súpu langt upp fyr-
ir haus.
Oddur A. Sigurjónsson
j HREINSKILWI SACT