Alþýðublaðið - 10.08.1976, Side 14
14 FRÁ MORGNI...
Þriðjudagur 10. ágúst 1976
S Útvarp
Þriðjudagur
10. ágúst
■ 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
■ kynningar.
■ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
■| kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blómið
blóðrauða” eftir Johannes
Linnankoski Axel Thorsteinson
■ les (6).
— 15.00 Miðdegistónleikar André
Pepin, Raymond Leppard og
J Claude Viala leika Sónötu i F-
M dúr fyrir flautu, sembal og selló
■ eftir Georg Philipp Telemann.
Baroque trióið i Montreal leik-
ur Trió i D-dúr eftir Johann
Friedrich Fasch. Jost Michaels
og Kammerhljómsveitin i
H Munchen leika Konsert i G-dúr
gjgj fyrir klarinettu og hljómsveit
« eftir Johann Melchior Molter:
Hans Stadlmair stjórnar.
Andreas Röhn og Enska
0 kammersveitin leika Fiðlukon-
n sert nr. 16 i e-moll eftir
Giovanni Battista Viotti:
-Charles Mackerras stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
■ 16.20 Popphorn
n 17.30 Sagan: „Sumardvöl i
Grænufjöllum” eftir Stefán
Júliusson. Sigriður Eyþórs-
■ dóttir les (2).
■ 18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
M 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
hb kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Jafnréttislögin
■ Björg Einarsdóttir, Érna
| Ragnarsdóttir og Linda Rós
b| Michaelsdóttir sjá um þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins Sverrir
Sverrisson kynnir.
■■■■■■■■■■■■
21.00 Þrjátiu þúsund milljónir?
Orkumálin — ástandið, skipu-
lagið og framtiðarstefnan.
Fimmti þáttur. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöidsagan:
„Mariumyndin” eftir Guð-
mund Steinsson Kristbjörg
Kjeld leikkona byrjar lestur-
inn.
22.45 Harmonikulög Hans Wahl-
gren og félagar hans leika.
23.00 A hljóðbergi Tveir danskir
meistarar, Adam Poulsen og
Poul Reumert, lesa kvæði eftir
Runeberg, Oehlenschlager og
Drachmann.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
SJónvarp
Þriðjudagur
10. ágúst
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Hungur. Kanadisk teikni-
mynd, þar sem hæðst er að
ofáti i hungruðum heimi.
20.55 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Friðrof. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.25 Um „Ærumissi Katrfnar
Blum” I þessari sænsku mynd
er • rætt við vesturþýzka rit-
höfundin Heinrich Böll um
bók hans, Ærumissi Katrinar
Blum, en þetta er fyrsta verk
Bölls, sem út kom, eftir að hann
hlaut Nóbelsverðlaun fyrir
bókmenntir. Sagan var lesin i
útvarp i síðasta mánuði.
Viðtalið er á þýzku og með
sænskum textum og ekki þýtt á
islenzku. (Nordvision-Sænska
sjónvarpið)
22.45 Dagskrárlok
Tólf af fimmtán konum minum
skilja mig ekki
Og svo sagði hún, vertu nú engill og
lofaðu mér að keyra
Úr kvikmyndahúsunum:
Jack Nicholson er
leikari af guðs náð
Af og til taka stórstjörnur að glitra á himni kvikmyndaleikara. Stundum þjóta
þær upp og lýsa samstundis, — en aðrar hafa verið þar nokkra hrið áður en maður
tekur eftir þvf hve skært þær glitra.
Robert Redford er gott dæmi um hið fyrrnefnda — Jack Nicholson um feíðari teg-
udina. En því fer f jarri að frægðina eigi allar þessar stjörnur hinu sama að þakka.
JACK NICHOLSON, sem nú hefur loks hlotnazt óskar fyrir leik sinn í Gauks-
hreiðrinu hefur oft áður verið tilneyfdur til þeirraverðlauna, og reyndar hefur
hann hlotið verðlaun, eigulegri en minna auglýst.
Við eigum væntanlega von á þvi að fá að sjá Gaukshreiðrið í Tónabíói annað
hvort í lok þessa árs eða á næsta ári — en þangað til getum við séð engu síðri leik til
hans í myndinni, sem þessa dagana er sýnd í STJÖRNUBIÓI: SÍÐASTA
SENDIFERÐIN (The Last Detail).
Asamt Otis Young og Randy
Quaid býöur Nicholson okkur
þar upp á dæmigerða „leik-
mynd” þar sem umhverfið I
köldum gráma sinum og hvers-
dagsleik nánast hverfur, og við
höllum okkur aftur á bak i
sætum okkarog njótum til fulln-
ustu sögunnar og leiksins.
Tveir eilifðardátar fá það
erindi að fara með dæmdan
mann frá herstöðinni i Norfolk i
Virginiu norður i Portsmouth
fangelsið I New Hampshire.
Þeir komast að þvi að sá dæmdi
er ekki aðeins algart barn,
heldur er hann dæmdúr fyrir
stelsýki, sem hann ræður ekki
við, og hefur aldrei leitað læknis
vegna. En glæpurinn var sá að
hann reyndi að klófesta 40
dollara úr söfnunarbauk — og
það var engin önnur en eigin-
koha aömirálsins i Norfolk, sem
stóð fyrir söfnuninni. En menn
eru misjafnir fyrir lögunum, og
fyrir þetta verður ekki bætt
nema með átta ára fangelsi.
A leiðinni til fangelsisins
kynnumst við þvi svo hvern
mann hver þessara þriggja
hefur að geyma — og það á þeim
mun sterkari hátt sem myndin
er allan timann bráðfyndin en i
senn átakanleg. Meö góðu sam-
spili höfundar, leikstjóra og
leikenda er hrært i áhorfendum
á óþyrmilegan hátt: Þeir koma
okkur til að skellihlæja, en
draga strax upp svo átakanlega
og aumkunarverða mynd af
piltinum, sem við hlæjum, að,
að við komumst ekki hjá sefetar-
kennd.
Það er vissulega óþarfi að
fjölyrða um viðburðarrásina
eða sögusviðið. Þeir sem siglt
hafa með Eimskipafélagsskip-
unum á hafnir frá Norfolk og
norður úr að vetrarlagi kannast
við sig á þessum slóðum: Þessi
leið á þessum árstima býður
ekki upp á liflega lystireisu, en
dátarnir tveir gera sitt til að
bæta piltinum það upp i lifs-
reynslu sem hann hefur farið á
mis við og mun ekki kynnast
næstu árin.
Það er óneitanlega nokkuð
skrýtið að hafa séð Jack Nichol-
son i fjölda kvikmynda og upp-
götva svo i einni eða tveim
myndum hvilikur afbragðs-
leikari hann er. Jack Nicholson
er svo sannarlega leikari af
guðs náð. Hann ofgerir ekki, —
en öll hans smáatriði eru svo
þaulhugsuð og sönn að það er
ekki hægt að verjast huguninni
að svona geti enginn leikið
nema hann sé að leika sjáfan
sig.
—BS
i
I
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7120(1 — 74201
TROLOFUNARHRINGA
^Jtólialllltí ltii®í0n
Xmtsabtsi 30
í&iim 19 209
DÚflA
Síðumúla 23
Sími 84400
iMt q-fo h n
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óöinstorg
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul hútgögn