Alþýðublaðið - 10.08.1976, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 10.08.1976, Qupperneq 16
Myndir Errós þungamiðjan ÞRIÐJUDAGUR Skáldiö (Erró). En einnig myndir eftir Picasso, Dali, Calder, Vasarely og Yvaral ur mynaarööinni ,,Made in Jap- an” (Erró). 'EROTIK UR JAPONSKUM REKKJU- SIÐABÓKUM BLANDIN OFBELDI ÚR VESTRÆNUM HASARMYNDABLÖÐUM Félagið Myndkynning heldur um þessar mundir að Kjarvals- stööum fyrstu sýningu sina. Myndkynning er félagsskapur fáeinna áhugamanna um grafik, sem á undanförnum árum hafa keypt hingaö til lands verk eftir þekkta, erlenda listamenn. Tilgangurinn meö þessari sýningu er aö gera almenningi kleift að eign- ast verk eftir þekkta listamenn við viðráðanlegu verði, en allar myndir á sýningunni eru til sölu. A sýningunni eru 57 myndir eftir 29 listamenn. Nægir að nefna nöfn eins og Picasso, Dali, Vasareyly, YvaralogCalder, til að gefa til kynna hvaö sýningin hefuruppá að bjóða. Þungamiðja sýningarinnar eru23 grafikmyndir eftir ERRó (Guðmund Guömundsson). Myndaröö sem hann kallar „Made in Japan” mun sjálfsagt vekja athygli og furðu sýningar- gesta. Þar setur listamaðurinn saman erótik úr japönskum rekkjusiöabókum og ofbeldi úr vestrænum hasarblööum. tJt- koman verður margrætt og á- hrifamikið inntak myndanna. Félagið islenzk grafik hefur að undanfórnu unnið að þvi að kynna almenningi tækni og verk félagsmanna, viö góðar undir- tektir. Þetta framtak Mynd- kynningar, að gefa almenningi kost á að kynnast einnig grafik erlendra listamanna, má teljast lofsvert. Eöa, eins og Aðalsteinn Ingólfsson ritar i sýningarskrá: Mesti hvalreki á fjörur is- lenzkra grafikunnenda um ára- bil. Grafiksýningin verður opin daglega frá 16-22 fram til 16. ágúst. Einkasafn Gunnars i Geysi. Að Kjarvalsstöðum stendur einnig yfir sýning á einkasafni Gunnars heitins Sigurðssonar i Geysi. A sýningunni eru um það bil 90 myndir eftir tæplega 20 lista- menn, sem flestir voru upp á sitt bezta á árunum ’45-’60. Þarna eru mörg fágæt listaverk, sem sum hver hafa aldrei veriö sýnd opinberlega áður. Meöal verka sem sýnd eru, má nefna myndir eftir Ninu Tryggvadóttur, Þor- vald Skúlason, Kristján Daviðs- son og Karl Kvaran. 1 viðtali við blaðamann sl. föstudag sagöi Aðalsteinn Ingólfsson, að safn þetta væri gott dæmi um einstakan áhuga- mann um myndlist. Gunnar heitinn hefði ekki verið einn úr hópi þeirra peningamanna, sem aðeins keyptu listaverk til að koma peningum sinum i verð. Gunnar Sigurðsson rak Jist- vinasalinn á sinum tima og voru margir málaranna góðvinir hans. Sagði Aðalsteinn aö Gunn- ar hefði jafnvel tekið mörg mál- verkanna upp I skuldir. Þessi einstæöa sýning, sem kalla mætti dagbók ákveðins timabils i sögu islenzkrar myndlistar, verður opin dag- lega til 16. ágúst. FRAMVEGIS FJARLÆGIR LÚG- REGLAN BIFREIÐIR SEM LAGT -HEFUR VERIÐ ÓLÖGLEGA!— - og það á kostnað eiganda Umferöarnefnd Reykjavikur tók, á f undisinum nýveriö, þá á- kvöröun aöafla beri Reykjavik- urlögreglunni kranabil og geymslusvæöi fyrir bila sem teknir veröa úr umferö I borg- inni. Verður þessu ráöi einkum beitt gegn ökumönnum sem leggja bifreiöum sínum þannig aö staöa bifreiöanna getur vald- iö hættu fyrir aöra vegfarendur. Óskar Ólason, yfirlögreglu- þjónn umferðarmála, sagöi í viötaii viö blaöiö aö hingaö til heföi sektarákvæöum veriö beitt gegn ökumönnum sem legöu bilum sfnum ólögiega. Hann sagöi aö þaö orkaði nokk- uö tvimælis aö lögregluþjónn geröi þaö eitt aö skrifa sektar- miöa og hengdi hann á bil sem væri lagt á staö þar sem bifreið- in gæti beinllnis valdiö hættu fyrir aöra vegfarendur. Sektar- miöinn sjálfur leysti engan vanda og hættan væri fyrir hendi eftir sem áöur hvaö sem öllum sektarmiöum liði. Sagöi Óskar þaö væri um of algengt aö ökumenn legöu bflum sinum á slika staöi. Hann sagöi einnig aö öku- menn þeirra bifreiöa sem fjar- lægöar yröu á þennan hátt fengju þær ekki afhentar aö nýju fyrr en þeir heföu greitt kostnaöinn sem þvf fyigdi þvi aö fjarlægja ökutækiö. Kvaöst Óskar vonast til þess aö þessar aögeröir yröu árangursrikari en beiting sektarákvæöanna hefur reynzt. —EB. VINSÆLAR ÍSLANDS- FERÐIR ivorogsumarhafa Flugleiöir haldiö uppi leigufiugí miiii borga i Sviss, Þýzkalandi og Austurrflci. Flugferöir þessar hafa veriö farnar ávegumstórra ferðaskrifstofa I áöurnefndum löndum. Skrifstofur Flugleiöa i Frankfurt, Dusseldorf, Zurich, Basel, Vinarborg og Brussel hafa annazt alla milligöngu er- lendis. Frá þvi i aprflmánuöi og til júnfloka hafa veriö farnar 15 feröir og farþegafjöldinn nær nú 1.800 manns. Þetta mun vera Gefa af sér 150 milljónir í gjaldeyri þreföld aukning á flugferöum i leiguflugi milii þessara ianda, ef miöaö er viö sömu mánuöi i fyrra. Flugstundir f þessum ferðum eru alls um 115. Feröamennirnir höföu hér aö meöaltali einnar viku viödvöl. Allt skipulag feröanna var á vegum hópa- og ieiguflugsdeild- ar Flugleiöa, en skoöunarferöir frá Reykjavik voru i samvinnu viö Kynnisferðir hf. Aætiaöar gjaldeyristekjur af þessum hópferöum eru samtais 140-150 milljónir isienzkra króna. Gistinætur feröamannahóp- anna á hótelum i Reykjavik voru samtals 11.743 og 1.298 á Húsavík. Boeng-þota Flugfélags ís- lands flaug tvisvar sinnum meö feröahópa til Narssarssuaq. Ennfremur fór Fokker Friend- ship alis 12 sinnum tii Kulusuk meö farþega úr þessum hóp- feröum. Feröalangarnir notfæröu sér mikið áætlunarflug Flugfélags- ins til Akureyrar, Húsavikur og Vestm annaeyja, auk hinna skipulögöu hópferða, á vegum Kynnisferöa hf. um Reykjavik og nágrenni. Aö þvi er fram kemur I frétta- bréfi frá Flugleiðum, þá mælt- ust þessar feröir mjög vel fyrir og voru feröalangarnir ánægöir -meö dvölina hér. Leiguflug til Sviss, Þýzka- lands og Austurrikis mun hefj- ast á ný er sumri hallar og standa fram á haust. AV. alþýöu blaöiö SÉÐ: Að nú hefur soðið upp úr milli Kristins Finnboga- sonar og Sveins R. Eyjólfs- sonar. Þeir framkvæmda- stjórarnir beita fyrir sig ritstjórum sinum og Þórar- inn kallarSvein óvandaöan fjáraflamann. Jónas segir Tlmann vera sorptunnu, skrifaðan fyrir sauöfé og striplingaglápara. o HLERAÐ: Aö Jón Arnason muni sennilega ekki veröa i framboði við næstu al- þingiskosningar vegna ald- urs. Talið hefur verið, aö Valdimar Indriöason út- gerðarmaður á Akranesi mundi erfa sæti Jóns fyrir Vesturland, en i seinni tiö hafa fleiri verið nefndir, svo sem Páll Gislason læknir, sem lengi var á Akranesiog nýtur vinsælda þar. Siðasta hugmyndin, sem rædd er nú innan Sjálf- stæðisflokksins, er að hafa Gunnar Thoroddsen iðnað- arráðherra efstan á lista flokksins á Vesturlandi. Með þvi mundi flokkurinn forðast mjög erfiða röðun á lista I Reykjavik, sem gæti leitt til prófkjörs og átaka. Gunnar er raunar gamall þingmaður Snæfellinga. o HEYRT: Að Náttúrulækn- ingafelag Islands hafi hug á að kaupa Húsmæðraskól- ann að Laugalandi i Eyja- firði. Hyggst félagið reka þar heilsuræktarstöö, en visir að slikri stöð hefur verið þar i sumar og notið vinsælda. o HLERAÐ: Að ibúðarhús eins af hæstu skattgreið- endum i Reykjavik i ár hafi nýlega verið boðið upp á nauðungaruppboði. Húsið var slegið á einar 14 millj- ónir en ekki metið i sölu nema á 11-12 milljónir. Ahvilandi skuldir á fast- eigninni eru sagðar hafa numið 30 milljónum króna Húseigandinn fyrrverandi hyggstnú stofna bilaleiguá Kanarieyjum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.