Alþýðublaðið - 12.08.1976, Qupperneq 8
8 UR YMSUM ÁTTUM
Fimmtudagur 12. ágúst 1976 blaöfð1
Olíubirgðir
á Austur-
landi
1 fréttabréfi NAUST sem út er
gefið af stjórn Náttúruverndar
samtaka Austurlands er vakin
athygli á skýrslu sem Siglinga-
málastofnunin sendi frá sér fyrr
á þessu ári. 1 þessu riti stofnun-
arinnar er gerð grein fyrir
ástandi oliustöðva á Austur-
landi og auk þess eru gerðar til-
lögur um framtiöarskipulag.
í fréttabréfinu segir að þetta
sé fyrsta úttekt sem gerð hefur
verið á þessum málum hér á
landi. I lokaorðum skýrslunnar
segir svo: „Það verður að segj-
ast að engu er likara en algjört
skipulags- og hugsunarleysi hafi
að mestu ráðið ferðinni þegar
oliubirgðageymarnir á flestum
þeim stöðum, sem fjallað er um
i skýrslunni, voru settir niöur.
Viða standa oliubirgðageymar i
miðjum fjallshlfðum og á
svæðum sem vitað er að snjófióð
hafa fallið eða aurskriður, en
viða eru svæðin sem oliubirgða-
geymarnir standa á allt að þvi
jafnmörg og geymarnir. Má I
þvisambandi nefna Seyðisfjörö,
Neskaupstað og Fáskrúðsfjörð.
Faroe Isles
Review
Bókagarður heitir öflugt
bókaútgáfufélag i Færeyjum og
er það i eigu 4 þúsund einstakl-
inga. Félagið hefur nýverið
hafið útgáfu á alþjóðlegu riti um
Færeyjar. Blaðið ber heitið
Faroe Isles Review, og er þaö i
nokkru keimlíkt Iceland Review
enda er hér um kynningarrit að
ræöa. í fyrsta eintakinu eru
fimm greinar um Færeyjar og
færeysk málefni, auk skáldsög-
unnar Gamli Halgir eftir Héðin
Brú. William Heinesen skál-
jöfur Færeyinga skrifar grein
um veðurlag eyjanna, Arni
Thorsteinsson skrifar um forn-
leifafræði, John West um Fær-
eyjar og Færeyinga, Heini
Olsen skrifar um samgöngumál
og Birgir Danielsen skrifar um
fiskvinnslu Færeyinga.
Blaðið er prýtt fjölda lit-
mynda sem færeyskir ljós-
myndarar hafa tekið.
Blaðið kemur út tvisvar á ári
I fyrstu og er þaö prentaö i 30
þúsund eintökum. Gert er ráð
fyrir þvi sem tiðkast hefur hér á
Islandi að Utanrikismálaráðu-
neytið og stærri fyrirtæki kaupi
blaðið og dreifi þvi til þeirra
aðila út um heim, sem þau hafa
viðskipti við.
Emil Thomsen, sem annast
útgáfu ritsins, segir svo i viðtali
við færeyska blaðið Sosialurinn:
Þetta er tilraun sem við vonum
að takist. Færeyjar eru litið
land i miðju Atlantshafi en það
hefur upp á allt það að bjóða
sem önnur samfélög hafa.
Okkur hefur tekizt að byggja
upp samfélag okkar, og þó við
séum smáir þá ber okkur skylda
til þess að láta rödd okkar
heyrast meðalþjóðanna.Þaðáað
gefa slikt blað út i Færeyjum
-þvi við höfum nægu hæfu fólki á
að skipa sem getur greint um-
heiminum frá okkur og landi
okkar.”
Merkilegur
Við skulum ekki skilja svo við
það færeyska blað Sósialurinn
án þess að geta greinar i þvi
sem fjallar um vetrarstarf
Fróðaskaparseturs Færeyja.
Þar verður almenningi boðið
upp á að sækja átta kvöldnáms-
skeið i vetur og verða þauieftir-
töldum greinum: Færeysku,
Islenzku, ensku, frönsku og
rússnesku, hér eru þó aöeins
talin þau fyrrnefndu og vekja
þau trúlega litla athygli, en það
sama verður ekki sagt um þau
sem hér koma á eftir. Náms-
skeið I ættfræðum, húsarann -
sóknirog söfnun þjóðminja og
handritalestur. Þessar greinar
eru næsta merkilegar og til
fyrirmyndar að þær séu teknar
til kennslu I skóla.
Ragnarök
neyzlusam-
félagsins
1 sjötta tölublaði Frjálsrar
verzlunar er grein eftir Alex-
ander M. Johnson sem er há-
skólaprófessor i bandariskri
viðskipta- og verzlunarsögu.
Greinin ber heitiö Eru dagar
neyzlusamfélagsins senn taldir.
1 lokaorðum greinarinnar
segir m.a.:Þróunin siðari hluta
sjöunda áratugarins og það sem
af er áttunda áratugnum bendir
til þess að dagar neyzlusamfé- j
lagsins i venjulegri mynd séu
taldir. Bandarikjamenn sem
eru 6% af fbúum heimsins, hafa
neytt rúmlega þriðjung af auð-
lindum jarðarinnar. í stað upp-
talningar á þeim hráefnum, ;
sem menn töldu að gnótt yrði að
heima fyrir um aldur og ævi,
lengist stöðugt listinn yfir þau
hráefni sem flytja verður inn.
Bandariska neyzlusamfélagið
neytir ekki aðeins af eigin arf-
leifð, heldur gengur einnig á
forðabúr alls heimsins. Orku-
kreppan áriö 1973 og afleiöingar
hennar hafa opnað augu manna
fyrir þvi hve háð bandariska
þjóðin er innfluttri oliu.
Umskólun neytendasam- j
félagsins i ljósi þeirra nýju stað-:
reynda, er við blasa, er krefj-j
andi verkefni, sem Bandaríkja-
menn eiga nú fyrir höndum. Þaö i
veröur erfiðara en áður að selja |
neytandanum. Tæknin, sem j
áður þróaðist vegna þess aðj
menn vildu örva lyst manna á i
vörum og þjónustu, er nú æ j
meira notuð til áróöurs gegn j
óhóflegri neyzlu.” eb.
Foroelslesl|evíew
VOLUME1.Nei.1976
i*
m■
,4V <
mr
m
t
m,
Forsíðan á nýggja altjóða tíðarritinum um F0royar
Farið yfir Hvítá á heimleið
Farþegar hafa góða matarlyst i tæru útiloftinu
Vföir bilstjóri og kona hans, Adda, við fossinn I Drekagiii
tTtt
íaXfö* Fimmtudagur 12. ágúst 1976
VETTVANGUR 9
óbyggða- og öræfa-
ferðir njóta sívaxandi
vinsælda jafnt erlendra
ferðamanna sem inn-
lendra. Nú er orðið sæmi-
lega greiðfært mikinn
hluta sumars um helztu
hálendisleiðir.
Þaö eru ekki sizt útlendingar s
sem sækjast eftir óbyggðaferð-
um hérlendis, vilja burt frá
hávaða, mengun og streitu. Þeir
koma hingað i þeim tilgangi að
njóta kyrrðar og fegurðar
landsins en láta það ekki á sig fá
þótt veður séu misjöfn.
Erlendir ferðalangar virðast
upp til hópa kunna betur að
meta öræfakyrrðina heldur en
innfæddir. Það er fátitt að rek-
ast á útiendinga upp á regin-
fjölium, berandi kasettusegul-
band meö dynjandi músik, en
slikt er ekki óalgengt þegar
landar eiga i hlut. Hávaði af ein-
hverju tagi virðist vera orðin
svo samgróinn sumu fólki, að
Þvottur og rakstur við Mývatn
ÓBYGGÐAFERÐIR NJÓTA
SÍVAXANDI VINSÆLDA
ERLENDRA FERÐAMANNA
þvi liöur beinlinis illa i þögn
fjallanna.
Njáll Simonarson hjá Ferða-
skrifstofu Olfars Jacobsen sagði
i samtaliviö Alþýðublaðið, að i
júlimánuði hefði Ferðaskrif-
stofan flutt fleiri farþega heldur
en allt sumarið 1 fyrra, en þá sló
farþegafjöldinn öll fyrri met.
Sagði Njáll, að sumir væru
þeirrar skoöunar, að vegna hit-
anna i Vestur Evrópu hefðu
margir ákveðið ferð til íslands i
leit að svalara loftslagi. Ferða-
skrifstofan býður meðal annars
upp á 13 daga hálendisferöir og
meðfylgjandi myndir eru tekn-
ar i einni slikri. Einn bilstjór-
anna, Halldór Júliusson, tók
þessar myndir fyrir Alþýöu-
blaðið.
1 þessum ferðum eru farþegar
50-80 talsins, nær eingöngu
útlendingar. Farið er norður
Sprengisand og komið viö á öll-
um fegurstu stööunum, Þórs-
mörk, Eldgjá, Veiðivötnum,
Landmannalaugum og Jökuldal
við Tungnafellsjökul. Komið er
viö á Húsavik, ekið um Tjörnes
og Hljóðaklettar skoðaðir. 1
Mývatnssveit er staldrað viö i
tvo daga og einnig i Herðu-
breiðarlindum. Er þá annar
dagurinn notaður til að skoða
Oskju og Viti. Siðan er ekið i
Skagafjörð og suður Kjöl. Sið-
ustu nóttina er gist við Hvera-
velli.
Farþegum er séð fyrir gist-
ingu i tjöldum og eldhúsbilar
eru með i förinni. Þeir sem ekki
hafa svefnpoka geta fengið þá
leigða og þarf fólk þvi ekki að
hafa með sér nema nauösynleg-
ustu föt tii skiptanna. Njáll
Simonarson sagði, aö erlendu
ferðalangarnir kynnu yfirleitt
að klæða sig vel og kæmu ekki
hingað til að liggja i sólbaði.
Margir yröu beinlinis heillaðir
af kyrrð óbyggðanna og auönin
hefði sérstök áhirf á þá. Það
kæmi t.d. oft fyrir þegar ekiö
væri eftir Sprengisandi, að beö-
iö væri um að útvarp væri ekki
opið og leiðsögumenn töluöu
sem minnst.
Fjölmennastir i hópi útlend-
inga eru Þjóðverjar, en Hol-
lendingum fer sifjölgandi og
Frökkum sömuleiðis. Einnig
sækja Svisslendingar og
Austurrikismenn i þessar feröir
i vaxandi mæli og i sumar voru
fyrstu Spánverjarnir meöal far-
þega. Þekktar feröaskrifstofur
á meginlandinu hafa öræfaferð-
ir Úlafars Jacobsen inn i sinum
áætlunum og vinsældir þeirra
spyrjast viöa. Sumir útlending-
ar eru nú aö fara i sina aðra eða
jafnvel þriðju hálendisferö og
alltaf eru nokkrir sem dvelja
lengur og fara t.d. i dagsferð til
Vestmannaeyja.
En hvað er til ráöa þegar bil-
ar, fullir af fólki, bila skyndi-
lega upp á reginfjöllum? Njáll
sagði að slikt kæmi fyrir, en
vanalega hefðu slik óhöpp ekki
umtalsverða erfiðleika i för með
sér. Bilstjórarnir hefðu flestir
langa reynslu og væru vanir
viðgerðum. Það kæmi stundum
fyrir að öxull brotnaði og þá
væri bara skipt um og farþegar
fylgdust jafnan gaumgæfilega
með þeirri vinnu, enda er þetta
eflaust i fyrsta sinn sem obbinn
af þeim verður vitni af sliku.
Nú eru þegar farnar að
streyma fyrirspurnir um feröir
og verð á þeim næsta sumar, er-
lendis frá. Auk ferðanna noröur
er einnig boðið upp á 12 daga
hringferðir um iandið svo og
vikuferðir austur á bóginn og
um sanda til baka. Lögð er
áherzla á að ganga vel um þar
sem viðdvöl er höfð og valda
engum skemmdum á landi og
gróöri.
—SG