Alþýðublaðið - 30.09.1976, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.09.1976, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER Áskriftar- síminn er 14-900 I BLAÐINU I DAG Tannsmíði Tannsmifti er eitthvað sem almenningur veit litið um. Alþýðublaðið heimsótti á dögunum eina stærstu tannsmiðastofu landsins. Frá þeirri heimsókn er greint i máli og myndum i blaðinu i dag. Sjá opnu. Láglaunamenn Milljónir lægst launuðu verkamanna i þriðja heiminum hafa orðið illa úti i kreppunni vegna þess að lágmarkslaun þeirra hafa ekki hækkað i samræmi við vöruverð. Sjá bls 5. !Sr SDi_ Engar yfirheyrslur Það hlýtur óneitanlega að vekja nokkra athygli, að sakadómur hefur ekki séð ástæðu til að yfirheyra frekar þá fjóra menn sem sátu mánuðum saman i gæzlu- varðhaldi á liðnum vetri vegna meintrar aðildar að Geirfinnsmálinu. Sjá baksiðu. ,aer: Spítalavist Fyrrverandi starfsstúlka á sjúkrahúsi, sendi Horninu bréf, þar sem hún undrast að sjúklingur skuli ekki tryggður fyrir þvi að Pétur eða Páll geti komist að þvi i hvaða tilgangi hann var lagður inn á sjúkrahús. $já „|s. ,3 Bri ,OLj ÞQ GJALDÞROT AIR VIKING: Ljóst að 200 millj. fást ekki areiddar Litlar likur eru á að gengið verði frá upp- gjöri þrotabús Air Vik- ing á þessu ári. Ekki er enn búið að ganga frá bókhaldi fyrirtækisins á þann hátt að aðgengilegt sé að vinna úr þvi. Lýst- ar kröfur námu 330 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar. Ekki er hægt að sjá að þrotabúið eigi nokkrar kröfur á hendur Guðna Þórðarsyni en hins veg- ar telur Sunna sig eiga kröfur á hendur þrota- búinu. í skiptarétti Reykjavikur hefur þegar verið greitt upp I forgangs- kröfur. Þannig hefur t.d. flug- mönnum Air Viking og flugvél- stjórum verið borguð út þriggja mánaða laun sem þeir áttu inni, en þó hafa ekki allar fjárkröfur þeirra verið greiddar enda sumar umdeilanlegar. Skiptaréttur hef- ur einnig greitt gjöld til lifeyris- sjóða sem starfsmenn Air Viking voru meðlimir i. Það liggur ljóst fyrir að nokkrir aðilar tapa verulegum fjárhæð- um við gjaldþrot Air Viking. Þó liggur ekki ljóst fyrir enn sem komið er hvaða aðili fær stærstan skell. Mobil Oil i Englandi er með kröfu að upphæð um 44 milljónir króna. Oliufélagið h.f. er með kröfu að upphæö 75 milljónir, Samvinnubankinn 30 milljónir og Alþýöubanki 25 milljónir. Einnig er til staðar sameiginleg krafa Alþýðubanka, Samvinnubanka og Oliufélagsins að upphæð 26 milljónir. Tvö hundruð milljónir Ekki liggur ljóst fyrir nákvæm- lega hvaða upphæð tapast við gjaldþrot Air Viking. En þar sem lýstar kröfur nema 330 milljónum enflugvélar félagsins voru seldar á 120 milljónir liggur þó fyrir mismunur að upphæð 210 milljón- ir. Sú upphæð á þó sennilega eftir að lækka eitthvað, þar sem ein- staka kröfum hefur verið tvilýst. Amóti þeirri lækkun kemur siðan allur kostnaður og vextir og þvi ekki f jarri lagi að um 200 milljón- ir króna fáist ekki greiddar.-SG Nýjar aðferðir við þangskurð: !□? GÆTI TEKIÐ 3-4 AR AÐ K0MA REKSTRINUM í VIÐUNANDI H0RF Kjarabaráttan Hækkanir i krónum eru ekki einhlitar: margir aðrir þættir eru ekki siður mikil- vægirtil að tryggja verkafólki og þjóðinni allri þá hagsæld, sem hún hefur unnið fyr- ir. ’ot Sjá bls. 2. rr-T1 L.IL y : V« ; _CZ) CTTT3 < r_30CDC“n cz Trr»nocrrrT®c3r íco-s “TOi Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta um viku, að loka fyrir rafmagn til Þörunga- vinnsiunnar að Reykhól- um á Barðaströnd, þrátt fyrir 2.7 milljón króna skuld verksmiðjunnar við Rafmagnsveitur rikisins. Alþýðublaðið hafði i gær samband við stjórnarformann verksmiðjunnar, Vilhjálm Lúð- viksson, en hann var þá staddur á Reykhólum. Aðspurður um hvað valdið hefði þeim rekstrarerfið- leikum sem verksmiðjan hefur átt við að striða sagði hann: Þar réðu mestu skortur á heitu vatni og léleg afköst þangskurðarpramma fyrr i sumar. Astandið var i raun og veru voðalegt, verksmiðjan afkastaði einungis helmingi þess sem þurft hefði til að endar næðu saman. Þetta var á þeim árstima sem væn- legastur er til þangskurðar. Hvað er til ráða? Er við inntum Vilhjálm eftir þvi til hvaða úrræða þeir hyggðust gripa til bjargar rekstri verksmiðj- unar, kvað hann helst koma til greina annars konar virkjun vinnu- afls, en upphaflega hefði verið gert ráð fyrir. Þar er átt við öflun þangs með handskurði og vélskurði. Til- raunir, sem gerðar hafa verið með þetta fyrirkomulag, hafa gefið góða raun og er áætlað að halda þeim eitthvað áfram. Við spurðum Vilhjálm hve lang- an tima það tæki verksmiðjuna að aðlagast að fullu nýjum vinnsluað- ferðum. Hann kvað það óvist, en reikna mætti með allt að 3-4 árum. Það eru hluthafar sem taka ákvörðun um áframhald reksturs- ins, og veltur þar mest á afstöðu rikisstjórnar og alþingis, þar eð rikið á um 75% hlutafjár i verK- smiðjunni. Þá sagði Vilhjálmur að nauðsynlegt væri að taka ákvöröun þessa fyrir næstu áramót. Hvað um reksturinn i vet- ur? „Við erum búnir að draga seglin saman svo sem unnt er”, sagði Vil- hjálmur er við inntum hann eftir þvi hvernig rekstrinum verði hátt- að i vetur. „Það má segja, að nú séum við i varnarstööu’-’. Ef ákvörðun hluthafa verður á þann veg, að verksmiðjunni veröi tryggður áframhaldandi rekstrar- grundvöllur, verður strax eftir ára- möt hafist handa um nauðsynlegan undirbúning: viðhald og áfram- haldandi þróun nýrra þang- skurðaraðferða. Þá verða teknar upp viðræður við ibua grannsveit- anna, þvi ljóst er að þörf verður fyrir aukinn vinnukraft með breyttri þangskurðartækni. ES

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.