Alþýðublaðið - 30.09.1976, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.09.1976, Blaðsíða 11
albýöu- bSaóíó Fimmtudagur 30. september 1976 LISTIB/WIEWWIWBll GETRAUNASPA: Jafngildir 16 seðlum Kr. 800 © The Football League Lelkir 2. október 1976 Arsenal - Q.P.R. Birmingham - Derby f. Bristol City - Ipswich Coventry - Leicester Leeds - Man. Utd. .. Liverpoo! - Middlesbro Man. City - West Ham Norwich - Newcastle Stoke - Aston Villa .. Sunderland - Everton W.B.A. - Tottenham .. Sheff. Utd. - Burnley Skrifið greinilega nafn og heimilisfang ú jí I-! 511 KERFI 16 RAÐIR 4 leikir meö tveim merkjum 8 leikir með einu merkl Getraunaseöillinn i dag er kerfisseöill, og þvi likastur 16 venjulegum seölum. Sumir vildu kannski halda þvi fram, að ekki veitti spámanni okkar af þvi aö hafa sextán seöla, þar sem ekki hefur árangur fyrri spáa veriö allt of góöur. En þaö er ekki ástæöan fyrir þvi, aö kerfiöernotaöidag. Við viljum hér meö benda mönnum á, hvernig fylla eigi út slikan seðil. Mjög einfalt. 8 leikir meö einu merki og 4 leikir meö tveimur merkjum. Arsenal-QPR Arsenal hefur sýnt nokkuö misjafna leiki i haust, átt glansleiki og dottiö niöur i algera meðalmennsku þess á milli. QPR hins vegar hefur ekki náö aö sýna þann leik, sem geröi liöið aö skemmtilegasta liði 1. deildar- innar I fyrra. Spáin er þvi sigur Arsenal. Brimingham-Derby. Birming- ham hefur átt nokkuð góða leiki i haust, en veriö óheppiö. Liöið hefur mikinn baráttuvilja og leikur hraöa knattspyrnu. Derby situr nú við botninn, liöið nær ekki saman. Samt er þaö trú min, aö Derby vinni, eða geri jafntefli aö öörum kosti.(Fyrsti tvöfaldi leikur- inn.) Bristol City-Ipswich Bristol City, sem svo vel byrjaöi i haust, viröist hafa fatazt flugið i undanförnum leikjum og er spáin þvi sú, aö Ipswich sigri aö þessu sinni. Coventry-Leicester Þetta eru illútreiknanleg liö. Þaö liggur beinast viö aö spá jafntefli hér og til vara sigri Coventry.tAnn- ar tvöfaldi leikurinn.) Leeds-Man. United.Leeds er nú mjög neðarlega i 1. deildinni og hefur gengið flest illa. United hins vegar hefur sótt I sig veðrið aö undanförnu og ætti þvi aö sigra I þessu leik. Liverpool-Middlesbro Þetta er leikur toppliöanna. Leikið verö- ur af mikilli varúö og engar á- hættur teknar. Liverpool tapaði siöásta leik sinum og lætur þaö örugglega ekki koma fyrir aft- ur. Þess vegna jafntefli, eöa þá að Liverpool sigrar. (Þriöji tvö- faldi leikurinn.) Man.City-West Ham Liö West Ham hefur veriö slakt i haust, og þvi ætti City ekki að vera i vandræöum meö þá. Norwich-Newcastle. Newcastle hefur að undanförnu veriö i banastuöi, sem ekki er hægt aö segja um Norwich. Þess vegna útisigur. Stoke-Aston Villa Þegar þeir Graydon, Gray og Little ná sér á strik, þarf sterkt lið til aö stööva þá. Þó ber þess aö geta, aö á útivelli eru Villa-menn mis- tækir, samt er spáin Villasigur. Sunderland-Everton. Sunder- land húkir á botninum, og spái ég þvi, aö staöa liösins batni ekki eftir þessa umferö. Ef til vill ná þeir þó jafntefli. (Fjóröi tvöfaldi leikurinn.) WBA-Tottenham Leikmenn Albion hafa komið nokkuö á óvart I haust meö góöri knatt- spyrnu. Þeir ættu þvi aö sigra. Þó er liö Spurs illútreiknanlegt, geta dottiö niöur á stjörnuleiki en siðan alger flatneskja þess á milli. Sheff.Utd-Burnley Heimavöllur gæti ráðiö úrslitum i þessum annars jafnteflislega leik. Bæöi liðin féllu i aöra deild á siöasta i keppnistimabili og húka nú i miðri annarri deild. —ATA Getraunaseðlarnir: Heldur lakari sala en í fyrra Viö ræddum við Ölaf Jónsson, gjaldkera hjá íslenzkum get- raunum, og spuröumst fyrir um, hvernig salan gengi. Ólafur sagði, aö salan gengi ekki nógu vel, hún væri lakari en hún var á sama tima I fyrra. Þó væri engin ástæða til aö ör- vænta, þvi nú færi i hönd bezti sölutiminn, timinn október og fram til áramóta. Kerfið tekur ekki við sér í haust tóku Islenzkar get- raunir upp þá nýjung, aö selja seöla meö kerfum, 16 raöa kerfi. Slikir seðlar eru mjög vinsælir erlendis og voru margir búnir að óska eftir slikum seölum hér- lendis. En sala þessara seðla viröist ekki hafa tekið viö sér aö fullu ennþá. Þó aö mjög auövelt sé aö fylla þá út, veigrar fólk sér oft viö þvi, hrætt við aö gera vit-# leysu, þvi þetta er nýjung. Einn slikur seöill er á við sextán venjulega, og þvi þægilegri viö aö eiga. Til aö vekja athygli á kerfinu, mun getraunaseðill vikunnar vera fylltur út á kerfisseðil aö þessu sinni. Góðar tekjur fyrir félögin íþróttafélögin sjá um dreif- ingu getraunaseölanna. Fyrir þá þjónustu fá þau 25% sölunnar i eiginn vasa. Þar sem allt sölu- starf er unnið i sjálfboöavinnu, getur þaö þýtt góöan pening. Knattspyrnudeild KR er lang- söluhæsti aðilinn og hefur alltaf veriö. Siöustu viku, t.d. seldi deildin fyrir 100 þúsund krónur, fékk þar af leiðandi 25 þúsund krónur. Þaö gera 100 þúsund á mánuöi og munar um minna. Knattspyrnudeild Vals seldi næst mest, eöa fyrir 40 þúsund. Þaö er þvi greinilega til mikils að vinna fyrir félögin, aö get- raunaseölarnir seljist vel. —ATA. BR0T 76 Emil Þór Sigurðsson hefur opnað ljósmyndasýningu I sýningarsal Arkitektafélags is- lands, Grensásvegi 11. Gunnar sýnir þar 42 myndir. Mótivin eru ýmiskonar, en flestar myndirnar eru teknar úti I nátt- urunni. Við myndatökuna not- aði Emil myndavélar af Hassel- bal Hasselblad, Nikon og Konica gerð. Emil Þór Sigurðsson er 23 ára Reykvikingur. Hann hefur stundað nám i Ijósmyndun hjá stúdfói Guðmundar siðan haust- ið 1972 og er nú um það bil að Ijúka námi. Sem fyrr segir er sýningin aö Grensásvegi 11 og stendur fram til 10. október. Sýningin er opin kl. 14-22. Sýningunni verður gerö nán- ari skil i blaðinu á morgun. ES. Emil Þór Sigurðsson. Eitt verka Emils á sýningunni. Bolsoj leikhúsið kynnt - á vegum MIR I MÍR-salnum aö Laugavegi 178 hefur veriö opnuð sýning á ljósmyndum frá starfi Stóra leikhússins, Bolsoj-leikhússins i Moskvu, I tilefni 200 ára af- mælis þessa fræga óperu- og ballettleikhúss. Verður sýningin opin næstu vikur, á þriöjudög- um og fimmtudögum kl. 17.30-19 og á laugardögum kl. 14-18. í sambandi viö Bolsoj- sýninguna i MtR-salnum veröur efnt til kvikmyndasýninga og fyrirlestrahalds. Sunnudaginn 17. október kl. 15 verður Natalja Konjús ballett- meistari gestur MIR og rifjar þá upp minningar frá starfsferli sinum við Bolsoj-leikhúsiö. Natalja Konjús er nýkomin til starfa viö Þjóöleikhúsiö sem ballettmeistari og listrænn stjórnandi Islenska dansflokks- ins, en hún var sólódansari viö Bolsoj-leikhúsiö á árunum 1932- 1943, fór þar meö mörg hlutverk og starfaði meö ýmsum frægum listamönnum, m.a. Galinu Úlanovu, ballerinunni heims- frægu, en kvikmynd um hana veröur sýnd að loknu spjalli ballettmeistarans. Kvikmyndirnar sem sýndar veröa I MlR-salnum á laugar- dögum kl. 15 eru allar nátengd- ar starfi Bolsoj-leikhússins og listamönnum þar. Sýningar veröa sem hér segir: Laugardaginn 2. október veröur óperan „Évgeni Onégin” eftir Tsjækovski sýnd, en þetta er sú ópera sem Bolsoj-leikhúsiö i Moskvu hefur sýnt oftast eða um 1930 sinnum alls. Laugardaginn 9. október veröur óperan „Boris Godúnof” eftir Músaorgski sýnd og þar fer hinn frægi söngvari Boris Pirogof meö aöalhlutverkiö. Laugardaginn 16. október verður sýnd heimildarkvik- mynd um eina af frægustu dans- meyjum vorra tima, Maju Plisetskaju, og þar sést hún i ýmsum af frægustu hlutverkum sinum. Laugardaginn 23. október veröur loks sýnd óperan „Spaöadrottningin” eftir Tsjækovski. Siðar I vetur eru ráögeröar sýningar á ýmsum sovéskum kvikmyndum I MIR-sainum, t.d. veröa nokkrar gamlar og n- ýjar ævintýramyndir sýndar þar i nóvember og desember n.k. Aðgangur að Bolsoj-kynning unni i MIR-salnum, Laugavegi 178, er öllum heimill. (Fréttatilkynning frá MIR) Annað starfsár Gítarskóla Ólafs Gauks — Elzti nemandi minn I fyrravetur var um sextugt, en hinir yngstu niu ára, svo þaö er hægt að segja aö áhuginn á aö læra á gitar fari ekki eftir aldri, segir Olafur Gaukur, hljómlist- armaöur en gitarskóli hans er nú að hefja annað starfsár sitt. I skóla Ölafs fer kennslan fram með nokkuö nýstárlegum hætti aö ameriskri fyrirmynd meö þar til geröum tækjum. Þessi kennsluaðferö hefur nú hlotiö eins árs reynslutima hér, og aö sögn ólafs gefizt vel. — Þetta eru afar hentug tæki, bæbi fyrir nemendur og kennara, og eiga tvimælalaust stóran þátt i aö flýta fyrir árangri, enda held ég að mér sé óhætt aö segja, aö flestallir nemendur hafi haft einhverja ánægju af náminu, og vonandi eitthvert gagn, segir Ólafur ennfremur. Innritun i skólann er hafin, en hann verður, eins og i fyrravet- ur, til húsa i verzlunarhúsinu Miöbæ viö Háaleitisbraut. Eins og aö framan kemur fram, er skólinn ætlaöur jafnt fyrir full- oröna og börn, og er nemendum skipt niöur i hópa eftir aldri og eftir þvi hvort um byrjendur er aö ræöa, eöa þá, sem eitthvað kunna þegar fyrir sér á hið si- vinsæla heimilishljóðfæri, git- arinn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.