Alþýðublaðið - 30.09.1976, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 30.09.1976, Qupperneq 2
2 STJÖRNMÁL / FRÉTTIR Fimmtudagur 30. september 1976 Otgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Árni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Otbr.stj.: Kristján Einarsson, simi 14900. Aðsetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Auglýsinga- deild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar - simi 14900. Prentun: Blaðaprenti h.f. Áskriftarverð: 1000 krónur á mánuöi og 50 krónur i lausasöiu. alþýóU' Hin hliðin [ á kjara- [ baráttunni [ íslenzk verkalýðshreyf ing stendur nú að mörgugg leyti á tímamótum. Kjarabaráttan í formi beinna launabóta hef ur tekið verulegum breytingum. Kröfur um margvíslegar endurbætur á f jölmörgum sviðumB þjóðlífsins verða æ háværari. Má í þessu sambandiH nefna kröfuna um lýðræði í atvinnuiífinu. Þessi kraf a er einn þátturinn í þeirri viðleitni verka- lýðshreyfingarinnar að færa lýðræðisleg stjórnar- form til fleiri þátta þjóðlífsins, auka áhrif og völd verkafólks í atvinnulífinu almennt og þá ekki sízt^ áhrif þess á það umhverfi, sem það starfar í, til dæmis eigin vinnustað. Þessi barátta beinist að því að® knýja fram áhrifa- og ákvörðunarrétt verkafólksins sjálfs með breyttum stjórnarháttum á öllum sviðum, allt f rá aðbúnaði og stjórn á vinnustað til yf irstjórnar fyrirtækjanna. Markmið verkalýðshreyfingarinnar er aukið efnahagslegt lýðræði, og lýðræði í atvinnulíf- inu er einn þátturinn í þeirri baráttu. Annan þátt í þessari kjarabaráttu má nef na, en það er baráttan fyrir auknum jöfnuði og réttlæti og gegn forréttindum ýmissa hópa. Mismunun í launum, vinnutima og félagslegum efnum verður að hverfa. í þessum efnum verður að efla baráttuna fyrir alhliða jafnrétti karla og kvenna jafnt í atvinnulífi sem á öðrum sviðum. Þessar kröf ur ná einnig til þeirra, sem búa við skerta starfsorku og hópa, sem af ýmsum ástæðum hafa dregistafturúr í lífsbaráttunni. Sérstök skylda hvílir á verkalýðshreyf ingunni að berjast fyrir hagsmunum slíkra þjóðfélagshópa. í framhaldi af þessu mun verkalýðshreyf ingin berj- ast fyrir raunverulegum launajöfnuði karla og kvenna. Að forminu til eru laun karla og kvenna jöfn, en staðreyndirnar sýna annað. Þetta stafar meðal annars af því, að konur ráðast fremur í störf, sem samkvæmt hefð eru verr launuð en önnur, oft vegna ófullnægjandi menntunar og stundum vegna skemmri vinnutíma. Verkalýðshreyfingunni ber því aðherða mjög barátfuna fyrir raunverulegum jöfnuði karla og kvenna, bæði í launakjörum og hvað snertir atvinnumöguleika. En það er á fleiri sviðum í þjóðfélaginu að mikill tekjumismunur er. Þennan mismun ber verkalýðs- hreyfingunni að afnema og að því mun hún stefna. Mikilvægar orsakir tekjumismunar eru, aðoftskortir á að atvinnugreinar og fyrirtæki njóti eðlilegs hlutar í þjóðartekjum, þrátt fyrir að þær eru meðal hinna mikilvægustu í ölfun þeirra. Einnig kemur fyrir að launþegar njóta ekki góðs af launaskriði, sem ekki er fest í kjarasamningum, og sumir starfshópar, sem njóta tiltölulegra hárra launa, geta verið óháðir í al- mennu kjarauppgjöri og ná þannig í krafti sérstöðu. óeðlilega miklum launahækkunum umfram aðra. Verðlagsbætur á laun eru grundvallarskilyrði fyrir gildi allra launasamninga. En nútímaatvinnulíf er, háð stöðugum og margvíslegum breytingum. Launa-2 kerfi verða því varla ákveðin í eitt skipti fyrir öll, heldur verða þau að vera í stöðugri endurskoðun í samræmi við aðstæður. Hér hafa verið nefndir nokkrir þættir úr þeirrL kjarabaráttu, sem ekki miðast beinlínis við launa-j kröfurnar sjálfar, heldur eðlilegar breytingar á lýð-„ ræðislegu samfélagi, sem verður að byggja á raun-p hæf ri og sanngjarni skiptingu arðsins af vinnu verka-^ lýðsins. Hækkanir í krónum eru ekki einhlítar: margirj® aðrir þættir eru ekki síður mikilvægir til að tryggja^ verkafólki og þjóðinni allri þá hagsæld, sem hún hef ur® unnið fyrir. -ÁGM Kjartan Jóhannsson, varaformaðurAlþýðuflokksins við setningu Landsfundar sambands Alþýðuflokkskvenna: An efnahagslegs öryggis er enginn frjáls áhrifa hins vinnandi manns á þaö hvernig aö honum er búiö i vinn- unni, hvernig vinnustaðurinn er úr garöi geröur og hvernig þeim verðmætum er ráöstafaö sem vinnan skapar. betta er grund- völlur hins efnahagslega lýöræöis og atvinnulýöræöis, sem við stefnum aö.” Undir lok ræðu sinnar fjallaöi Kjartan um jafnréttismál og benti á þaö misrétti, sem allir heföu fyrir augunum i skattamál- um, kjaramálum og samskiptum kynjanna. Hann minnti á, aö fyrstu ár Alþýöuflokksins hefðu einkennzt af baráttu fyrir al- mennum mannréttindum, sföan heföi tekiö viö baráttan fyrir félagslegri samhjálp og aöstöðu- jöfnun m.a. með almannatrygg- ingarkerfinu. Baráttunni á þessum sviðum væri langt I frá lokiö og sifellt bættust ný verkefni viö. Jafnréttisbaráttunni yröi aö halda áfram á grundvelli gamalla og nýrra gildismata, hið félags- lega öryggiskerfi þyrfti að um- skapa, þannig aö það kæmi i auknum mæli i veg fyrir orsakir þess að menn yrðu fyrir áföllum og hver og einn væri studdur til sjálfsbjargar og grundvöll lýö- ræðisins þyrfti aö treysta meö al- mennari þátttöku i þeim ákvörö- unum sem móta lif okkar og lifs- gengi. Kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness ályktar um mjólkursölumálin Mjólkursamsalan hefur skyldum að gegna við afgreiðslustúlkur í mjólkurbúðum MS „Frelsi, lýðræði, jafn- rétti og efnahagslegt öryggi eru samtengd grundvallaratriði i stefnu jafnaðarmanna- flokks eins og Alþýðu- flokksins. Frelsið er undirstaða lýðræðisins, og i tillögum að nýrri stefnuskrá er bent á, að án efnahagslegs öryggis verður enginn frjáls. Barátta Alþýðuflokksins i tryggingarmálum og kjaramálum er þvi ekki einungis jafnréttisbar- átta. Hún er lika frelsis- barátta.” Þannig komst Kjartan Jóhannsson, varaform. Alþýðu- flokksins að orði i ræðu sinni á Landsfundi Sam- bands Alþýðuflokks- kvenna s.l. laugardag, þegar hann fjallaði um nýja stefnuskrá fyrir Alþýðuflokkinn. I upphafi ræðu sinnar ræddi hann um, aö stefnuskrám væri aö ýmsu leyti þröngur stakkur sniö- inn aö þvi er varöaöi afstööu til dægurmála, en minnti á, aö stefnuskráin yröi aö sýna ljóslega þau markmið, sem flokkurinn vildi stefna aö og visa leiðina til þeirrar þjóöfélagsmyndar, sem eftir værí sótzt. Kjartan sagöi, aö sú tillaga aö stefnuskrá, sem lægi fyrir, endur- speglaöi itrekaö nokkur grund- vallaratriöi i sjónarmiöum jafn- aöarmanna — grundvallaratriöi, sem mótaö hafa starf og stefnu Alþýöuflokksins hingað til, en viöhorfin i dag gæfu ýmsum þess- ara grundvallaratriöa nýjan hljóm og inntak og bentu til nýrra verkefna og verksviöa, eins og stefnuskrár tillagan sýndi. Siöan vék hann aö þvi hvernig frelsi, lýöræöi, jafnrétti og efnahagslegt öryggi væru greinar á sama meiði og stæðust ekki hvert án annars. Hann sagöi stefnuskrár- tillöguna sýna trú jafnaöarmanna á mátt og mikilvægi samstööunn- ar. Hún sýndi hverja áherzlu jafnaðarmenn leggöu á samstöö- una meö hinum smaa og veika, hinum undirokaða og kúgaöa. Og i stefnuskrártillögunni kæmi fram, hvernig Alþýöuflokkurinn vildimeö afli samstööunnar leysa þau verkefni, sem hin óhefta frjálsa samkeppni ýmist ræöur ekki við eöa sjálf skapar. • Þá ræddi Kjartan viö viöhorfin til vinnunnar og sagöi: „Viö Alþýöuflokksmenn látum okkur ekki nægja aö segja, aö fulla at- vinnu verði aö tryggja, heldur bendum á rétt allra til vinnunnar, sá réttur er meðal annarra mann- réttinda. Sérhver maöur á þannig rétt á vinnu viö sitt hæfi. Og hann á líka rétt á þvi aö vinnan og vinnuumhverfiö sé i samræmi viö viröingu fyrir vinnu hans og vinnuffamlagi, að hann njóti sin i vinnunni og njóti vinnunnar. Vinnan skapar verðmætin. Þess vegna skapar vinnan sjálf rétt til Fundur sem haldinn var I kvennadeild Verkalýösféiags Akraness 22. september sam- þykkti samhljóöa eftirfarandi ályktun um mjólkursölumálin: Kvennadciid V.L.F. Akraness, lýsir andstööu sinni viö þær breytingar á lögum um mjólkur sölumál sem samþykkt voru á Aiþingi á siöastliönu vori. Fundurinn telur aö þjónusta M jólkur sa m sölun na r viö neytendur hafi veriö meö þeim ágætum aö ekki hafi veriö þörf á breytingum. Hér á Akranesi hefur Mjólkursamsalan t.d. haft búöir sinar opnar 1/2 klst. lengur dag hvern en matvöruverzlanir. Alls er óvist aö matvöruverzl- anirnar á Akranesi vilji eöa geti ábyrgst alla mjólkursölu til bæjarbúa nema meö auknum til- kostnaöisem trúlega myndi þýöa meiri dreifingarkostnaö og þar meö hækkaö mjólkurverö. Auk þess standa þær konur sem flestar eru orönar fullorönar, andspænis atvinnumissi, ásamt þvl aö missa þau félagslegu réttindi sem þær hafa áunnið sér á löngum starfsaldri. Félagiö tel- ur aö Mjólkursamsalan hafi þvl miklum skyldum aö gegna viö þær konur sem hafa unniö hjá fyrirtækinu um árabil. 1. Meö þvl aö tryggja þeim konum sem þess óska atvinnu. 2. Aö greiöa þeim konum lifeyri sem orðnar eru 60ára eöa eldri og hafa unniö hjá fyrirtækinu um árabil. 3. Aö ábyrgjast Sjúkra og Örlofs- sjóöi A.S.B. til þess aö félagskon- ur geti notiö áunninna réttinda. Kvennadeild V.L.F. Akraness lýsir samstööu sinni meö baráttu A.S.B. fyrir hagsmunum og réttindum félagskvenna sinna, svo og þeim hópum neytenda sem hafa beitt sér fyrir þvi aö m jólkurbúöunum veröi ekki lokaö. Félagiö heitir þeim konum sem vinna i m jólkurbúöunum á Akranesi öllum þeim stuöningi sem þaö getur i té látiö, til aö gæta hagsmuna og réttinda þeirra. —BJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.