Alþýðublaðið - 30.09.1976, Síða 9
8 UR YMSUM ATTUM
alþýöu- /
Fimmtudagur 30. september 1976 .biaðíð *
sstsr
jFimmtudagur 30. september 1976
VETTVANGUR 9
Hús ráðherrans
Ráðherrahús
og verka-
manna-
bústaðir
Grein Halldórs
Halldórssonar
fréttamanns á Dag-
blaðinu um húsa-
kaup Halldórs E.
Sigurðssonar af ís-
lenzka álfélaginu,
dótturfyrirtæki
Alusuisse, er gerð að
umtalsefni í leiður-
um Þjóðviljans. Að
vísu ,,gleymir''
Þjóðviljinn að geta
greinarinnar í Dag-
blaðinu, en rekur þó
efni hennar ítarlega
og bendir á hve góð
kjör ráðherrum
Framsóknarf lokks-
ins bjóðast við hús-
byggingar og húsa-
kaup.
Halldór Eggert Sig-
urðsson sauðfjármála-
ráðherra fékk nánast hús
að gjöf frá dótturfyrir-
tæki erlends auöfélags,
sem seilst hefur til vax-
andi orkukaupa á verði,
sem er langt undir þvi,
sem islenzk iðnfyrirtæki
greiða. Hús þetta er stórt
einbýlishús i dýru hverfi
með tveim bilskúrum og
tilheyrandi. Kaupverðið
var svipað og fyrir ibúð i
hinum nýju verkamanna-
bústöbum, sem reistir eru
fyrir láglauna verka-
mannafjölskyldur, sem
annað hvort búa i heilsu-
spillandi húsnæði eða við
sérstaklega lök kjör, og af
félagslegri þörf er talið
réttlátt að aðstoða. Lána-
kjör ráðherrans voru
næstum hin sömu og i
verkamannabústöðunum,
20% kaupverðs við af-
hendingu en afgangurinn
lánaður til langs tima.
A annað þúsund reyk-
viskar fjölskyldur verka-
fólks sóttu um að komast i
þær liðlega 300 ibúðir,
sem reistar verða i þess
um áfanga. Fullnægbu þó
margar fleiri þeim kröf-
um, sem gerðar voru um
tekjuhámark og ófull-
nægjandi aðbúnað og
heimilisaðstæður.
Or þvi Islenzka álfélag-
ið hefur sýnt i verki vilja
til þess að leysa islenzk
húsnæðisvandamál væri
ekki úr vegi að koma til
móts við óskir þess. tsal
hefur þarna farið inn á
nýja braut. Næsta skref
væri kannske að leiðrétta
að nokkru það raforku-
verð, sem félagið fær, og
nota mismuninn til að
byggja 700 nýjar ibúöir
handa láglaunafólki og
bjóða þvi ráðherrakjör á
afborgunum.
Siðan mætti hefja við-
ræður við tslenzka járn-
blendifélagið, og aðra
væntanlega orkukaup-
endur.
Sigurbjörnssyni hluta I Sogavegi V
136.
Gu&ni Þórftarson sclur óöinstorgi
h.f. fasteignina Bankastræti 9.
Sami selur Gústaf Þór Tryggva- i
synio.fl. fasteignina Ingólfsstræti i
18.
Sami selur Ingólfi Guönasyni
fasteignina óöinsg. 30.
Sami selur Ingvari Georgssyni
hluta i Barmahliö 17.
gjgrlftmiRiBiirflarrl wittn ll.H^ri. V
Guðni
selur
Eins og menn minnast
úr Sunnu — Air Viking
málinu frá siðasta ári, þá
lýsti Guðni Þórðarson þvi
yfir að hann ætti sjálfur
persónulega eignir að
brunabótamati upp á 100
milljónir, sem hann hefði
lagt að veði fyrir skuld-
bindingum fyrirtækja
sinna.
Hvað sem segja má
annars um aðfarir sam-
gönguyfirvalda að fyrir-
tækjum Guðna, en bú
þeirra biða nú hjá skipta-
rétti, þá hefur Guðni nú
selt fjórar húseignir,
samkvæmt afsalsbréfum
innfærðum 30.8.-3.9. s.l.
Þetta virðast vera allar
húseignir Guðna að und-
anskildum eignahlut hans
i húseigninni Aðalstræti 9,
sem hann á ásamt Guð-
jóni Styrkárssyni og fleir-
um.
Glæpir á
gataspjöldum
Afbrotamönnum ætti að
vera nokkur styrkur i þvi
hve illa er að rannsóknar-
lögreglu búið. t sjónvarpi
kom það fram.þegar rætt
var við Magnús Eggerts-
son, yfirlögregluþjón i
rannsóknarlögreglunni
og sýndar myndir af
slæmri vinnuaðstöðu, að
það kynni að vera hend-
ingu háð hvort upp komist
um glæpi, þótt marktæk
vinnuvitneskja ætti að
vera fyrir hendi i upplýs-
ingasafni. Með notkun
tölvu og réttri flokkun
upplýsinga ætti að mega
girða fyrir slika hættu.
Bankarnir hafa haft efni
á að koma sér upp ótal
tölvum, riki og sveitarfé-
lög hafa komið sér upp
tölvum og fjöldi fyrir-
tækja og stofnana hafa
eignast tölvur eða komizt
i vinnutengsl við tölvu.
þannig hefur til dæmis
Samband isl. samvinnu-
félaga eignast stóra móð-
urtölvu, sem þjónar fjölg-
andi útibúum, alla leið til
Akureyrar. Væri ekki
hægt að koma tölvustöð
fyrir i húsakynnum rann-
sóknarlögreglunnar og
tengja hana með simalinu
einhverri stórri tölvu með
umfram getu? Með sömu
þróun i bankaviðskiptum
og verið hefur undanfarin
ár væri ekki úr vegi að
rannsóknarlögreglan
kæmist á beina linu til
tölvu Reikningsstofnunar
bankanna!
—BS
— Viö spöruðum 50 manns með því að kaupa tölvuna, en nú vinna
51 við að halda henni við.
Dieter Luckas
Tönn pússuð til
Tilbúinn gómur. Ef til vil! eiga þessar tennur eftir að brosa við þér.
SK0RTUR Á MENNTUÐUM
TANNSMIÐUM A ISLANDI
Tannsmiði er ein af þeim iðngreinum, sem al-
menningur veit litið um.
Hvað gerist eftir að við förum til tannlæknisins
og biðjum um góm, brú, stálgrindur, spangir eða
hvað þetta allt heitir nú? Fer tannlæknirinn inn i
bakherbergið sitt og tálgar tennurnar til?
Heldur fannst okkur það ósennilegt og þar sem til
eru fyrirtæki sem heita tannsmiðaverkstæði, var
ekki óiiklegt, að þar væri skýringin komin. Til þess
að forvitnast um, hvernig slik smiði færi fram,
fóru blaðamenn Alþýðublaðsins i heimsókn á
Tannsmiðaverkstæðíð Ármúla ii6, en eigandi þess
er Dieter Luckas.
Dieter Luckas, eða Lúkas Karlsson eins og hann
heitir núna eftir að hann fékk islenzkan rikis-
borgararétt, kom fyrst til íslands árið 1965. Hann
er þýzkur að ætt og tannsmiður að meímt.
Fyrst eftir komuna til landsins vann hann við
tannsmiðar hjá Hæng Þorsteinssyni tannlækni, en
árið 1972 stofnaði hann sitt eigið tannsmiða-
verkstæði sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni.
Fyrstu árin var verkstæðið staðsett i Hátúni, en i
febrúar siðast liðnum var tannsmiðavinnustofan
flutt i nýtt og rúmgott húsnæði i Ármúlanum.
Blaðamenn Alþýðublaðsins
byrjuðu á þvi að spyrja Dieter
hvort ekki væri dýrt að setja á
stofn slika stofu.
Hann sagði :"Jú vissulega er það
dýrt, ætli stofa sem þessi kosti
ekki um 19 milljónir i dag, en það
var byrjað á smiði þessarar stofu
fyrir fjórum árum siðan og þessi
fjögur ár hafa allar minar tekjur
runnið i fyrirtækið, til þess að
koma þvi i það horf sem það nú
er. Sérstaklega hefur þetta verið
erfitt vegna þess að mjög litla
fyrirgreiðslu hefur verið að fá i
bönkum og lánastofnunum”.
Hvað starfa margir á stofunni?
,,A stofunni starfa nú 15 manns
að okkur hjónunum meðtöldum,
en okkur vantar núna nauð-
synlega að minnsta kosti þrjá
menn til viðbótar, en slikir menn
liggja bara ekki á lausu um
þessar mundir. Hér á íslandi er
mjög tilfinnanlegur skortur á
menntuðum tannsmiðum og að
minu áliti er það fyllilega tima-
bært að þeir sem með þessi mál
fara hér ihugi þanri möguleika að
styrkja einn eða fleiri til að full-
nema sig i tannsmiðum erlendis.
Verkefni send utan
t dag er mikið af verkefnum
sem þurfa sérfræðilegrar úr-
lausnar við send utan, en þau
verkefni væri öll hægt að vinna
héref til staðar væri sérfrasðingur
eða vel menntaðir tannsmiðir."
Hvernig er tannsmiðanámi
háttað á tslandi?
„Núna er allt óvist með tann-
smiðanám á tslandi, þvi um
þessar mundir er verið að
endurskoða námið og er sú endur-
skoðun i höndum ráðuneytisins.
En venjan hefur veriö sú, að
islenzkir tannsmiöir hafa hlotið
menntun sina við að vinna að
tannsmiðum á tannlæknastofum
undir handleiðslu viðkomandi
tannlæknis. Ariö 1963 var siðan
stofnaður eins mánaðar skóli
fyrir þetta fólk og var sá skóli
rekinn af tannlæknafélaginu.
En eins og ég sagði áöan, þá er
þetta mál i athugun og liggur
fyrir að þessari skipan verði
breytt og meðan svo er liggur öll
kennsla i tannsmiðum niðri.
Vonandi er þess þó ekki langt að
biða að ákvörðun verði tekin um
framtiðarskipulag þessara
mála.”
Er mikið um nýjungar á sviði
tannsmiða?
,,Já,tannsmiði fleygir mjög ört
fram og sifellt eru að koma fram
nýjungar. Þar af leiðandi er það
talsvert verk að fylgjast með þvi
helzta sem fram kemur. Með
þvi að vera áskrifandi að
erlendum timaritum sem fjalla
um þessi mál getur maður fylgzt
með flestu þvi sem fram kemur
erlendis.
En vitaskuld er ekki alltaf nóg
að lesa um hlutina það getur oft
verið nauðsynlegt að fara út og
kynna sér málin betur og gefst
tannsmiðum kostur á mörgum
námskeiðum erlendis sem
auglýst eru i þessum timaritum.
Ég fer sjálfur að meðaltali einu
sinni til tvisvar á ári utan til
að setjast á skólabekk. En slik
ferðalög eru afskaplega dýr og
þvi reyni ég að velja af kostgæfni
úrþeim námskeiðum sem til boða
standa og fara aðeins á þau sem
aö minu mati eru brýnust.”
Litið framboð
af menntuðum
tannsmiðum
Eru ávallt næg verkefni fyrir
jafn stóra tannsmiðastofu og þá
sem þú rekur?
„Já.hjá okkur er yfirdrifið nóg
að gera, en að visu þá er álagið á
okkur mismikið eftir árstiðum.
Litil fyrirgreiðsla.
Til dæmis yfir sumarmánuðina
þegar margir tannlæknar fara i
sumarfri, þá kemur alltaf nokkur
samdráttur i starfsemina, en það
hef ég brúað með þvi að taka
verkefni erlendis frá. Erlendis er
nefnilega af greiðslutlmi
tannsmiðapantana miklu lengri
en tiðkast hér á landi. Þar er af-
greiðslutiminn frá 3-5 vikur á
meðan að pantanir á Islandi eru
afgreiddar á 4 dögum til viku.
Aftur á móti er alltaf nokkuð af
verkefnum sent héðan og út en
það eru verkefni þar sem við
þörfnumst sérfræðilegrar
aðstoðar. Annars hrjáir það
okkur aðallega hér, að framboð á
lærðum tannsmiðum er allt of
litið.
Ég hef reynt að fá fólk erlendis
frá, en það gengur misjafnlega
vel vegna þess að laun tannsmiða
á Islandi eru alls ekki sambærileg
við laun sem þetta fólk fær
erlendis. Samt sem áður hefur
mér tekizt að fá nokkra til starfa
hér,en vandamálið viðþá erhvað
þeir dveljast stutt. Oftast er þetta
ungt fólk sem kemur hingað til að
kynnast landinu og sjaldnast
dvelur það lengur en eitt ár.”
Sólbjört Aðalsteinsdóttir er
verkstjóri á tannsmiöa-
verkstæöinu og báðum við hana
að útskýra i stuttu máli hvað
gerist, þegar þú ætlar að fá þér
góm.
t gegnum
tannlækni
Til þess að fá góm, getur þú
ekki gengið inn á tann-
smiðaverkstæði og beðið um góm
númer þrjú og hálft, þó að sumir
virðist halda, aö málið sé mjög
einfalt.
Fyrst ferð þú til tannlæknis,
sem tekur mót af gómnum i
sérstakt mótefni, er hann notar.
Mót þetta er sent tannsmiðnum,
sem býr til gipsafsteypu af
mótinu og gerir mátskeiðar.
A þessu stigi málsins tekur
tannlæknirinn aftur mál, og tann-
læknirinn tekur svokallað
samanbit, en það er til að geta
stillt tönnunum rétt i góminn.
Stundum er nauðsynlegt að fara
allt upp i fjórar ferðir i upp-
stillingu, en yfirleitt nægir ein
ferð.
Sjúklingur þarf sem sagt að
fara þrisvar til fjórum sinnum til
tannlæknisins, er hann ætlar að fá
sér góm.
Plastefni
t gómana er notað plastefni, en
i tennur er notað einskonar plast
og postulin. Meðan verið er að
móta tennurnar og góminn, er
notað vax, sem siðan er skipt yfir
i plast.
Undir venjulegum kringum-
stæðum dugar gómur i 5-7 ár.
Þetta er annars mjög einstak-
lingsbundið. Gómarnir rýrna
mishratt hjá fólki. Rýrni
gómurinn, fara menn að bita
fastar saman, og við það verður
átakið við kjálkaliðinn skakkt.
Það er þvi þrennt, sem fær fólk til
að fá sér nýjan góm: tJtlit, losnun
og rýrnun.
Stálvinna
Auk þess að búa til góma, er
ýmisleg önnur vinna. Stálvinna er
t.d. mjög mikil. Stálgrindur eru
notaðar til að fylla upp i bil, þar
sem vantar tennur. Kemur
stálgrind oft i stað brúar, en
munurinn á brú og stálgrind er
sá, að brúin er föst upp i
munninum, en ekki stálgrindin.
Einnig eru smiðaðar
tannréttingagrindur, og svo
mætti lengi telja. Sem fyrr segir,
er öll vinna i sarnráði við
tannlækni. GEK/ATA
ab. myndir ATA
Svona kemur pöntunin frá tannlækninum
f þessu tæki er gómurinn mótaður
Hér er gómurinn og tennurnar finpússaðar.