Alþýðublaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 14
14 LISTIR/MENNING
Þriðjudagur 2. nóvember 1976. ;SS«Sm>*
Hvers vegna eru
bókasöfn
svo lágt skrifuð?
Bókasafnib, timarit útgefiö af
Bókavaröafélagi tslands, Bóka-
fulltrúa rikisins og Félagi bóka-
safnsfræöinga, 1. tbl. 3. árg. er nú
komið út. 1 ritnefnd eru Else Mia
Einarsdóttir, Hilmar Jónsson,
Hrafn Harbarson og Sigrún Klara
Hannesdóttir.
1 leiðara segir m.a.: „Hvers
vegna eru bókasöfn svona lágt
skrifuð?” Þetta er einmitt spurn-
ing sem brennur á vörum allra
bókavarða i landinu i dag. Hvers
vegna eru skipulögð stórhverfi i
sjálfri höfuöborginni án þess aö
þar sé gert ráð fyrir bókasafni?
Hvers vegna veitir rikið fé til
danshúsabyggingar en forsmáir
stofnanirsem dreifa bókum til al-
mennings? Hafa valdamenn á
tslandi aldrei komiö á bókasöfn á
Norurlöndum, þar sem þau skipa
veglegan sess i menntakerfi
viðkomandi landa sem alhliða
menningarstofnanir?
t ritinu eru fréttir og greinar
um bókasafnsmál, viðtal við Jón
úr Vör, tölur yfir ibúafjölda, tekj-
ur, keyptar bækur og útlán bæjar-
og héraðsbókasafna (1975), o.fl.
Blaðið er 32 siður að stærö,
offsetprentað i Fjarðarprenti i
Hafnarfirði.
Listlánadeild Norræna hússins:
HEFUR LÁNAÐ 420
MYNDIR FRÁOPNUN
Á vegum listlánadeildar
Norræna hússins hafa verið lán-
aðar rúmlega 420 myndir frá þvi
útlán hófust, en það var hinn 8.
marz siðast liðinn. Fjöldi mynda i
eigu sagnsins mun vera 183 , og
eru þær allar nema þrjár gjöf frá
Norræna grafikbandalaginu.
t stuttu viðtali við Þórdisi
Þorvaldsdóttur, en hún hefur
umsjón meö útlánum safnsins,
kom fram aö lang stærstur hluti
útlánanna fer til einstaklinga. Þá
hafa nokkrar stofnanir notfært
sér þessa þjónustu auk þess sem
sendar hafa veriö myndir út á
land. Hafa til dæmis verið settar
upp sýningar á verkum safnsins
bæði á tsafirði og Selfossi.
Útlánatimi hverrar myndar er
einn mánuður, og sagði Þórdis að
nokkur misbrestur vildi verða á
að menn skiluðu myndunum á til-
skildum tima og væru það aðal-
lega stofnanir sem erfiðar væru i
þvi sambandi.
Einnig sagði Þórdis, að á þeim
rúmum sjö mánuðum sem út-
lánadeildin hefði starfað, hefði
hver einasta mynd borist
óskemmd aö láni loknu.
—GEK
Kiwanis-
bingó
Kivanisklúbburinn Eldborg i
Hafnarfirði mun nú i vetur, eins
ogáður, halda bingó til f járöflun-
ar og styrktar þeim liknarmál-
um, er klúbburinn vinnur að.
Klúbburinn hefur á undan-
förnum árum lagt ýmsum góðum
málum lið, en þó sérstaklega unn-
ið að málefnum aldraðra.
A sl. sumri var m.a. farið með
eldriborgara i skemmtiferð. Ekiö
var til Skálholts, þar sem dvaliö
var um hriö og staðurinn skoð-
aður. Þaðan var haldið að
Brautarholti á Skeiðum, þar sem
eiginkonur Kiwanisfélaga báru
fram veitingar. Ferð þessi heppn-
aðist mjög vel, enda veðrið eitt
hiö fegursta og má segja, aö þar
hafi bæði ungir og aldnir átt
ánægjulega samverustund.
Fyrsta bingó vetrarins verður
haldið i Skiphóli þriöjudaginn 2.
nóvember og hefst kl. 20.30. Að
venju veröa vinningar mjög
glæsilegir og fjölbreyttir, m.a.
sólarlandaferð.
Það er von Eldborgarfélaga, aö
Hafnfirðingar fjölmenni á bingóið
ogeigiþar ánægjulega stund, um
leið og þeir eiga möguleika á
glæsilegum vinningum.
Diabolus
In Musica:
Hana-
stél á
Jóns-
messu-
nótt
Hljómplötuútgáfan Steinar hf.
hefur nú sent frá sér plötu með
hljömsveitinni Diabolus In
Musica. Þessi fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar ber nafnið „Hana-
stél á jónsmessunótt” og segir
nafniö nokkuð til um innihaldið.
Sagterfrá Jófriði Bjarnason og
veizlu nokkurri sem sú góða kona
fer i, hugleiðingum hennar,
ástarfari og tilurð sonar hennar
og Péturs Jónatanssonar,
Hjálmars. Ellefu lög skýra hlust-
endum frá veizlunni, allt frá þvi
öndin sem étin er i samkvæminu
er skotin, reytt og sviðin til þess
er þau Jófriður og Pétur laumast
úr samkvæminu og halda „á
foldar fund” á jónsmessunótt og
til verður Hjálmar Pétursson.
Lögin heita Andlát, 17 gr. C,
Rúmba i baöi, Templarasyrpa
(tileinkuð stórstúkunni af þvi aö
hún missti af hanastélinu), Dinn-
erinn, Kaffilagið, Heima er bezt.
Eftir nokkra dansa skimar Pétur
Jónatansson yfir dansgólfið og
kemur auga á Jófriði, Astriðu-
saungur, Gaggógæi.
Hljómsveitina Diaboius In
Musica skipa þau Aagot Vigdis
Oskarsdóttir, Guðmundur
Thoroddsen, Jóhanna V.
Þórhallsdóttir, Jón Sigurpálsson,
Jóna Dóra óskarsdóttir og Páll
Þrlr músfkára, Jón Sigurpálsson,
Torfi önundarson.
Torfi önundarson. Auk þeirra
spila þeir Reynir Sigurðsson og
Björn R. Einarsson. Platan er
tekin upp i hljóðrita i Hafnarfiröi
og annaðist Jónas R. Jónsson
hljóðstjórnina.
Þessi plata diabólusanna er
mjög óvenjuleg, skemmtilega
óvenjuleg, og á áreiðanlega eftir
að vekja athygli. Lögin eru létt og
Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Páll
leikandi, hljóðfæraleikur mjög
góður og söngur sömuleiðis skin-
andi. Textar eru hins vegar
hreinasti leir, eins og raunar er
tekið fram á plötuumslagi, en
þeir og lögin eru eftir hljóm-
sveitarlimina utanGaggógæi, sem
Björn Jónasson ber ábyrgö á.
Það er full ástæða til að mæla
með þessari plötu. —hm.
I þessari viku: Geimnýlendur 1.
Tækni/V ísindi
1. Hugmyndir prófessors
Gerards O’Neills um risa-
geimstöðvar, sem hýst gætu
milljónir manna vekja nú æ
meiri athygli visindamanna
um heim allan.
2. Astæðan fyrir þvi að hug-
myndir O’Neills vekja slika
athygli eru sú að hann hefur
bent á leiðir til þess að byggja
slikar stöðvar, allt að 32 km
langar og 13 km breiðar.
3.Hugmyndin er sú að stöðvar
þessar veröi staðsettar á þeim
staðmilli jarðar og tungls þar
sem aðdráttarkraftar
plánetnanna upphefji hver
annan.
4. Sem fyrr segir virka litlir
sem engir aðdráttar kraftar á
þeim stað sem fyrirhugað er
að geimstöðinni verði komiö
fyrir. Hún helst þvi á stöðugri
braut umhverfis jörðu en
heldur sig 1 nánd við tunglið.