Alþýðublaðið - 13.11.1976, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 13.11.1976, Blaðsíða 12
Reykinga- námskeiðið: LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1976 Nýlokið er hér i Reykjavík námskeiði fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Þetta nám- skeið er hið sjöunda, sem haldið er hér, en auk þess hafa verið haldin fjöl- mörg námskeið úti á landsbyggðinni fyrir reykingamenn. islenzka bindindisfé- lagið stóð fyrir þessu námskeiði, sem hinutn fyrri, og Sigurður Bjarnason veitti því for- stöðu. Að sögn Sigurðar náðist mjög góður árangur þessa fimm daga sem námskeiðið stóð, og við lok námskeiðsins voru 78 af þeim 92 sem mættu i upphafi, alvee Sigurður Bjarnason ásamt aðstoðarfólki á námskeiðinu. Einn var búinn að a í 43 ár reykj búnir að yfirvinna tóbakslöng- unina. Hópurinn hafði i upphafi reykt daglega 2065 sigarettur og nálgaðist kostnaðurinn 23 þús- und krónur. Sá sem mest reykti eyddi 660 kr. á dag i tóbak og annar hafði reykt samfellt i 43 ár. Siðasta daginn höfðu þátttak- endur reykt samtals 11 siga- rettur, að verðmæti rúmlega 100 krónur. Siðasta kvöldið mættu 84 þeirra 92 sem byrjað höfðu, og sagði Sigurður, að af þvi yrði að draga þá ályktun, að þeir 8 sem hefðu hætt, meðan á námskeið- inu stóð, hafi guggnað á bind- indinu, þó auðvitað gæti alltaf eitthvað komið fyrir sem gerði það að verkum, að fólk hefi ekki möguleika á að mæta. Uppbygging námskeið- anna Uppbyggingu námskeiðanna er þannig háttað, að á hverju kvöldi eru flutt tvö erindi. Annað fjallar um sálfræðilega hlið mála, þ.e. viljastyrk og fleiri þætti sem á reynir. Hið siðara er ætlað til að sýna fólki fram á hversu skaðlegar reyk- ingar eru fyrir likamann, og eru_ þá jafnframt sýndar myndir. Siðasta kvöldið er svo tekið fyrir efni, sem veldur flestum þeim er hyggjast hætta að reykja miklum áhyggjum, og það er aukinn likamsþungi. Eru þátt- takendum látnar i té ráðlegg- ingar varðandi mataræði og fleira sem að gagni má koma. Þeim sem vilja hætta að reykja, er fyrst og fremst ráð- lagt, að drekka mikið vatn og hreinsa þannig nikótinið úr lik- amanum. Þá þarf að gæta þess, að hafa hreint loft i hýbýlum og sofa við opinn glugga. Ef iöng- unin fer að segja til sin, þá er áhrifarikt að fara út undir bert loft og draga andann djúpt að sér. Einnig er fólki ráðlagt að forðast allt sem eykur tóbaks- löngun, svo sem kaffi, áfengi og kryddaðan mat. Kvöldið sem námskeiðið hefst, er komið á svokölluðu simvinasambandi Eru þátttak- endur þá hvattir til að hringja hver i annan og tala saman. Sagði Sigurður, að þetta veiti fólki mikla hvatningu og hjálp til að komast yfir versta hjallann og væru dæmi til þess, — annar reykti þrjá pakka á dag að varanlegur kunningsskapur hefði tekizt með fólki á þennan hátt. Sumir koma aftur 1 samtalinu við Sigurð kom enn fremur fram, að ekki eru til marktækar tölur hér um þann árangur sem náðst hefur með námskeiðum. Hins vegar sýnir könnun sem gerð var i Banda- rikjunum, að 60% þeirra sem námskeiðin sækja hafa hætt að reykja fyrir fullt og allt. Fátitt er að þeir sem sótt hafa námskeið af þessari tegund komi aftur. Þó sagði Sigurður að 1 eða 2 sem sóttu siðasta námskeið hefðu komið áður. Hann sagði jafnframt, að það kæmi jafnoft fyrir að fólk sem hefði tekizt að hætta, vildi samt sém áður koma og fylgjast með. Segði það þá gjarna frá eigin reynslu af baráttunni við tóbakslöngunina og væri það þátttakendum mikil hvatning. Fræðsla nauðsynleg. Mjög er einstaklingsbundið hvaða þættir námskeiðanna hjálpa þátttakendum til að yfir- vinna tóbakslöngunina. Er hóp- lækning t.d. talin mjög vænleg til að ná árangri. Einnig hafa myndasýningar og fræðsla um skaðsemi tóbaks mikiðað segja. Kvaðst Sigurður álita, að meiri almennrar fræðslu væri þörf til að fólk gæti áttað sig á, hvilikt likamlegt tjón hlytist af þvi að reykja. Það hefði komið fram á námskeiðunum, að fólk hefur aðeins óljósa hugmynd um þann skaða sem reykingar geta valdið og yrði steini lostið þegar það kæmist að hinu sanna og sæi myndirnar. Aðspurður um fyrirhugað námskeið af þessari tegund, sagði Sigurður, að næsta vor yrði haldið annað námskeið hér i Reykjavik. Mikill áhugi væri einnig rikjandi úti á landi, en liklega yrði ekkert um nám- skeiðahald þar fyrr en eftir ára- mót og þá i Vestmannaeyjum. Þess má geta að fólk getur sótt þessi námskeið sér að kostnaðarlausu, nema að kaupa þarf eina bók. Hins vegar hafa margir velunnarar starfsem- innar lagt fram fé, sem hefur verið notað til að endurnýja filmusafn. —JSS Líf og fjör á fyrstu fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Sinfóniuhljómsveit tslands, heldur slna fyrstu fjölskyldu- tónleika á vetrinum Idag, laugar- daginn 13. nóvember. Tónleikarnir hefjast kl. 14, og eru að venju ætlaöir börnum á skólaskvldualdri I fylgd með for- eldrum sinum. A tónleikunum verða flutt verk eftir Tsjaikovsky, Strauss og Dukas. Einnig leikur Jónas Sen einleik á pianó i verki eftir Chopin. Stjórnandi tónleikanna er Karsten Andersen, en kynnir er Þorgerður Ingólfsdóttir. Við náðum tali af Jónasi Sen á æfingu með Sinfónfuhljómsveit- onni i gær. Jónas sagðist vera 14 ára gam- all, og vera búinn að læra á pianó i 5 ár. Siðastliðin 3 ár hefur hann stundað nám i Tónlistarskólanum undir leiðsögn Arna Kristjáns- sonar. Þettaeri fyrsta sinn sem Jónas kemur fram með hljómsveit en áður hefur hann spilað á vortón- leikum Tónlistarskólans. Við spurðum Jónas hvort ekki væri erfitt að koma svona fram fyrir fjölda fólks. — Jú, það er svolitið erfitt, en þetta getur lika verið góð æfing. Hann sagöist vera dálitið spenntur, en kveið greinilega ekkert fyrir. Jónas ætlar að leika verk eftir eitt af uppáhaldstónskáldum sinum, Chopin. Hann sagðist hlusta nær eingöngu á klassiska tónlist, og hafa litinn áhuga á annarri. Þegar Jónas settist við pianóið var auðsýnilegt að hann átti ekki mjög erfitt með að leika. Fing- urnir léku fimlega eftir pianó- borðinu, svo fimlega, að fyrir ólærðan áhorfanda, var sem sér- fræðingur léki. Það er þvi kannski engin furða þó Jónas Sen sé ekki kviöinn, þó hann eigi að leika 14 áro einleikori í einu verkonno fyrir fullu Háskólabiói. Oll verkinn sem Sinfóniuhljóm- sveitin leikur á þessum fjöl- skyldutónleikum, eru létt og skemmtileg, jafnt fyrir börn sem fullorðna. Það er alltaf eitthvað að gerast, hjá einhverju hljóðfær- anna, sem vekur áhuga barn- anna. —AB alþýðu blaðiö SÉÐ: 1 forystugrein Jó- hannesar Nordals seðla- bankastjóra, i nýútkomnu Fjármála tiðindum, að hægur bati hafi orðið á við- skiptakjörum á fyrri helm- ingi þessa árs, og hariri létti tslendingum róðurinn i efnahagsmálum. Enn sem komið er er þó batinn aðeins fólginn i minni viðskiptahalla, en á fyrstu þrem ársfjórð- ungum þessa árs varð hall- inn á viöskiptum okkar við útlönd aðeins einn fjórði þess sem hann varð á sama tima i fyrra, séu báðar töl- urnar reiknaðar á meðal- gengi þessa árs. o HEYRT: Að nú sé hafinn undirbúningur að næstu stóru vörusýningu i Laugardalshöll. Það verðr sýningin Heimilið 77, sem Kaupstefnan i Reykjavik stendur fyrir. Fjögur ár verða frá siðustu slikri sýn- ingu þegar þessi verður opnuð siðla ágúst næsta ár, en þá sýningu sóttu 57 þús- und gestir. o HEYRT: Að margir smærri prentsmiðjur hér á landi séu nú að festa kaup á eða hafi þegar fest kaup á hálf-tölvubúnum Ijóssetn- ingarvélum fyrir offset- prentun. Þessar vélar kosta allt frá einni og hálfri milljón króna og upp i 20 milljónir, þær dýrustu sem tilgreina kemur að notaðar verði hér á landi. A næsta ári munu þvi margar prentsmiðjur kveðja blýið að mestu leyti, eða að firilu og öllu. o SEÐ: 1 dálkum flestra dag- blaðanna, að upplagstölur blaðanna eru enn feimnis- mál. Heyrt, séð og hlerað stingur þvi upp á þvi að embætti skattrannsóknar- stjóra kynni sér mála- vöxtu, enda ætti samhengi að vera milliseldra eintaka og tekna blaðanna. Siðan mætti gefa út fréttatilkynn- ingu um málið, og yrði þá mikið leiðinda- og við- kvæmnismál úr sögunni. o KVARTAÐ UNDAN: Misræmi á lokunartimum verzlana fyrir helgar. Verzlunum er ýmist lokað klukkan 6,7 eða 10 siðdegis, og engin regla gildir um hvort verzlanir eru opnar á laugardagsmorgnum. . ’ s < '>• *

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.