Alþýðublaðið - 17.11.1976, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR I7.NOVEMBER
: í i
Áskriftar-
síminn er
14-900
Reikningar vegna veizluhalda
flugmálastjórnar tilbúnir
Blaðamannafundur
væntanlega
haldinn . á
næstunni
Svo sem kunnugt er, var hald-
inn i Reykjavik Evrópufundur
flugmálastjóra dagana 2.-6. ágúst
sl. og var það flugmálastjórn sem
hafði allan veg og vanda af funda-
höldunum._
Þann tima • er fundargestir
dvöldu hér, sátu þeir dýrlega
fagnaði, bæði i boði flugmála-
stjórnar, a.m.k. eins ráðuneytis,
svo og forseta. Auk þess var farið
með flugmálastjórana evrópsku i
flugferðir til hinna ýmsu staða á
landinu, svo sem til Akureyrar,
þarsem þeir snæddu i boði bæjar-
stjórnar og upp i Borgarfjörð.
Einnig þáðu þeir morgungjafir og
ferðuðust með lögreglufylgd, þá
er þeir brugðu sér milli staða.
Nokkru eftir að fundinum lauk,
fóru að heyrast raddir um að
þarna hefði átt sér stað gengdar-
leg sóun á almannafé. Dagblöðin
skárust i leikinn og kröfðu flug-
málastjóra Agnar Kofoed Han-
sen um reikninga fyrir veizlu-
kostnað. Alþýðublaðið hafði með-
al annarra samband við hann
vegna þessa. Kvaðst hann þá ný-
kominn heim Ur sumarleyfi, og
myndihalda blaðamannafund um
málið jafnskjótt og timi ynnist til
þess. Sömu svör fengu blaðamenn
annarra blaða. Hins vegar hefur
engin grein verið gerð fyrir þessu
máli og enginn blaðamannafund-
ur verið haldinn, þegar þetta er
ritað.
Ýmsir málsmetandi menn, sem
þekkja nokkuð til málsins, hafa
tjáð Alþýðublaðinu, að nokkuð
sé liðið frá þvi reikningar fyrir
veizlukostnaði lágu fyrir. Hins
vegar hafa þeir hvergi komið
fram, og virðist svo sem nokkur
leyndhvili yfir fundahöldum flug-
málastjórnar. Þess má geta að
Alþýðublaðið hefur undanfarið
reynt að ná sambandi við flug-
málastjóra, til að fá nánari fregn-
ir af væntanlegum blaðamanna-
fundi, en án árangurs.
—JSS
Heimsókn í Sædýrasafnið:
Mikið starf óunnið
við rannsókn á
gjaldþroti Air Viking
Skuldirnar40 milljónir!
Svo sem kunnugt er, hefur
gjaldþrotamál flugfélagsins Air
Viking verið til meðferðar hjá
Borgarfógetaembættinu nU um
nokkurtskeið. Nokkuð er síðan að
frestur til að skila kröfum i bUið
rann út og voru heildarkröfur i
þrotabUið taldar nema um 330
milljónum islenzkra króna.
Þess ber þó að geta að ekki er
vist að það sé hin endanlega tala,
þvi gerðar hafa verið athuga-
semdir við nokkrar af þeim kröf-
um sem fram hafa komið.
I viðtali við Unnstein Beck,
borgarfógeta, kom fram að enn er
mikið starf óunnið við rannsókn
þessa máls, en um þessar mundir
eru til meðferðar ágreiningsmál
Ut af nokkrum kröfum, sem gerð-
ar hafa verið i þrotabUið, þá er
bókhaldsuppfærslu enn ekki lok-
ið.
Sagði Unnsteinn að ekki hefði
verið fallið frá neinni kröfu i
þrotabúið, en hins vegar héfðu
orðið nokkrar breytingar á kröfu-
skrá frá þvi að hUn var upphaf-
lega lögð fram. Við nánari könn-
un á kröfulýsingum hefði komið
fram að i nokkrum tilfellum hefði
verið um tvilýsingar að ræða.
Þessar tvilýsingar stöfuðu af þvi
að i nokkrum tilfellum hefði verið
um sömu kröfurnar að ræða frá
mismunandi aðilum.
Að sögn Unnsteins var hér ekki
um verulegar breytingar að
ræða. övist er um afdrif einnar
kröfu i þrotabU Air Vikings og er
þar um að ræða kröfu frá flugfé-
lagi þvi sem seldi Air Viking flug-
vélarnar. Setti félagið fram kröfu
i þrotabUið upp á 27 milljónir is-
lenzkar krónur, en þeirri kröfu
var mótmælt.
Sagði Unnsteinn. Beck, að fé-
laginu væri fullkunnugt um að
kröfu þess hefði verið mótmælt,
en samt sem áður hefur það ekki
skilað greinargerð um kröfuna.
Þvi gæti alveg eins verið að félag-
ið hyggðist ekki halda kröfunni til
streitu. —GEK
— Við höfum verið að
berjast þettaáfram með
reksturinn, ' þrátt fyrir
tap, i þeirri trú, að rikið
taki þessa starfsemi yf-
ir einn góðan veðurdag.
Þegar við byrjuðum
bjuggumst við við því,
að það yrði fljótlega, en
sú hefur ekki orðið á
raunin."
Þetta var, efnislega, meðal
þess sem stjórnarformaður og
•forstöðumaður Sædýrasafns-
ins tjáðu blaðamanni Alþýðu-
blaðsins, þegar hann heim-
sótti safnið á dogunum, i
framhaldi af skrifum hans um
málefni þess.
Stjórnarmenn ábyrgir - 2 milljónir
vantar til að endar nái saman
á síðasta ári
Meðal annars, sem fram
kom, var sú merkilega stað-
reynd, að með þvi að færa
stöðugt út kviarnar i rekstrin-
um, fjölga dýrum, auka fram-
kvæmdir, hefur verið safnað
skuldum sem nema hvorki
meira né minna en 40 milljón-
um króna! Og það sem meira
er: Það eru stjórnarmenn
safnsins sem eru ábyrgir fyrir
þessari upphæð m'eð uppá-
skriftum á vixla. Þetta þýðir
að ef safnið hættir rekstri sin-
um, eiga þessir menn á hættu
að missa eignir sinar, ef ein-
hverjar eru.
Rekstur safnsins kostar um
14,6 milljónii á ári og lætur
nærri að um 2-3 milljónir vanti
á siðasta reikningsári, til að
endar nái saman.
Um þetta, meðferð dýranna,
uppbyggingu safnsins og önn-
ur málefni þess, má lesa á bls.
4 og 5.
—hm
- Sjá bls. 4 og 5
Gögn Sakadóms vegna varðhaldsúrskurðarins verða væntanlega:
TILBÚIN TIL SENDINGAR í
Siðdegis i gær, sneri Alþýðu-
blaðið sér til Arnar Höskulds-
sonar fulltrúa við Sakadóm og
spurði hann hvenær vænta
mætti að gögn vegna varðhalds-
úrskurðar þess, sem kærður
hefur verið til Hæstaréttar,
verði send Hæstarétti.
Sagðist örn búast við að um-
rædd gögn yrðu tilbúin i dag
(þ.e.a.s. miðvikudag). Sagði
hann að miðað við hve umfangs-
mikið verk það væri að undir-
búa gögn i hendur Hæstaréttar,
væri sá timi, sem verk þetta
hefur tekið að hans mati, eðli-
legur.
Alþýðublaðið bað Örn að stað-
festa frétt þá er birtist i Þjóð-
viljanum i gær, en þar er haft
eftir honum, að fleiri varðhalds-
úrskurðir gætu allt eins fylgt i
kjölfar þess sem kveðinn var
upp um helgina, sagði hann að
sú frétt væri á misskilningi
byggð.
Að loknu samtalinu við örn
Höskuldsson, sneri blaðið sér til!
ritara Hæstaréttar og innti hannl
eftir þvi hvort einhver gögnj
hefðu borizt frá réttargæzlu-1
manni þess handtekna og kvaðl
Björn Helgason, ritari, svo ekkif
vera.
—GEK
Ritstjórn Sfðumúla II - Sfmi