Alþýðublaðið - 23.12.1976, Page 29
Jólablað Alþýðublaðsins Fimmtudagur 23. desember 1976
29
ARNAR
Sakamálamyndaflokkurinn
„Brúöan” er á dagskrá sjón-
varpsins klukkan 21.00 þriöju-
daginn 28. desember. Mynda-
flokkur þessi er brezkur og
byggöur á sögu eftir Francis Dur-
bridge.
Fyrsti þátturinn var sýndur 21.
desember og var hann mjög
spennandi. Efni hans var i stuttu
máii á þessa leiö:
Peter Matty, auöugur bókaút-
gefandi, er á leiö heim til
Lundúna frá Genf, þar sem hann
hefurhlýttá pianótónleika bróöur
sins. A flugvellinum kynnist hann
ungri, glæsilegri ekkju. Phyllis
Du Salle. Góö kynni takast meö
þeim, og hún segir honum,
hvernig dauöa eiginmanns henn-
ar bar aö höndum. Hann safnaöi
brúöum. Phyllis hyggst hitta Sir
Arnold Wyatt, lögfræðing sinn og
Matty lánar henni bifreið sfna.
Hann ætlar aö hitta hana siðar, en
hún kemur ekki. Þegar hann
kemur vonsvikinn heim til sin, er
brúöa á floti i baðkarinu.
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja
sendir öllum félögum sinum beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og gæfu og gengi á komandi ári, með þökk
fyrir samstarfið á árinu sem er að liða.
Aö venju mun sjónvarpiö
skemmta landsmönnum meö
áramótaskaupi. 1 ár hefur skaup-
iö hlotiö nafnið „Undraland ára-
mótaskaup 1976”.
Þaö er Flosi ólafsson sem er
höfundur og leikstjóri skaupsins.
Meðal leikenda eru Lilja Þóris-
dóttir, Róbert Arnfinnsson, Sig-
riöur Þorvaldsdóttir, Þórunn M.
Magnúsdóttir, Gisli Alfreðsson,
Karl Guömundsson, Randver
Þorláksson og Þórhallur Sigurös-
son. Þaö er ljóst aö ekki þarf aö
kviöa þvi aö skaupið valdi mönn-
um vonbrigöum, höfundurinn
margreyndur sprellikarl og sér-
lega leikinn i þvi ab ná fram brosi
á stirðum andlitum iandsmanna
og ekki er heldur i kot visað meö
leikendurna. Þaö er þvi full
ástæöa til aö hvetja fólk til aö
gera hlé á gamlársgleði sinni til
þess aö fylgjast meö þeim atburö-
um sem fram fara I sjónvarpssal
klukkan 21.00-22.25 á gamlárs-
kvöld.
Grænn varstu dalur (How
green was my walley) heitir
fyrsta bíómyndin sem sjónvarpið
býöur áhorfendum sinum upp á á
árinu 1977.
Mynd þessi var gerö i Banda-
rikjunum áriö 1941 eftir sögu Ric-
hards Llewlyns. Saga þessi kom
út á islenzku áriö 1949 og var ný-
lega lesin i útvarp og ætti þvi
myndin aö vera þeim kærkomin
sem þekkja söguna.
Sagan gerist i námubæ i Wales
á Bretlandi. Gwilym Morgan og
synir hans eru kolanámumenn,
nema Hug litli. Hann er enn of
ungur. Eigendur kolanámanna
ákveöa aö lækka laun verka-
mannanna, en þá er friöur dalsins
úti. Verkamennirnir fara i verk-
fall.
Aöalhlutverk myndarinnar eru
i höndum Walter Pidgeon, Mau-
reen O’Hara, Donald Crisp og
Roddy McDoval. Leikstjóri er
John Ford.
RÍKISÚTVARPIÐ
óskar öllum landsmönnum
gleöilegra jóla og farsældar
á komandi ári