Alþýðublaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 3
YÞriðjudagur 8. febrúar 1977 VETTVANGUR 3 Alþýðublaðið á ferð í Hveragerði: Jar&skjálftarnir komu eltthvaö illa viö þennan hver, sem er viö ána ekki langt frá Hverhamri. Hvera- vatniö var mórautt aölit og hverinn var f alla staöióaölaöandl tilfrekari kynna. Alþýöublaösmenn nálg- uöust hann þvi meö varúö. t einu horni stofunnar aö Þelamörk 74 gaf aö lfta sprungu sem náöi frá gólfi upp undir loft. SKEMMDIR í VEGGJUM TVEGGJA HÚSA AF VÖLD- UM jarðskjAlftanna Margir Hvergerðingar vöknuðu við það á laugar- dagsmorguninn að snarp- ir jarðskjálftakippir skóku rekkjur þeirra# en í þeim stærstu , kl. 8.13 og 9.25, komu sprungur í veggi nokkurra húsa, hlutir féllu úr hillum og sitt hvað fór úr skorðum innan húsa i þorpinu. Alþýðublaðsmenn komu til Hveragerðis um hádegisbilið á laugardag- inn og var þá harðast að skjálftahrinan um garð gengin, en þó fundust 2 mjög greinilegir kippir milli kl. 13 og 14, en þeir mældust um 2 stig á Richter-kvarða. Að Þelamörk 74 er nýlegt og glæsilegt einbýlishús, byggt úr steini, en þaö hús viröist hafa skemmzt hvaö mest i þessum- skjálftum. Sjá mátti miklar sprungur i veggjum inni i hús- inu, bæöi i stofu, eldhúsi, baöi og einu herbergi og voru sumar þeirra i gegn um veggina. Eigandi hússins að Þelamörk er Jónasina Guönadóttir og sagðist hún hafa vaknaö viö kippinn sem kom laust eftir kl. 8, en siöan heföi mátt finna marga stóra og smáa kippi næstu 2 klukkutimana. t stærstu kippunum sópaðist flest lauslegt niöur úr hillum i einu herbergj- anna og einnig hrundu munir úr hillum I stofu. Einnig skekktust myndir á veggjum. Engar skemmdir virtust sjáanlegar utan á húsinu aö Þelamörk 74 og ekki kvaöst Jónasina Guönadóttir vita til þess aö veggir hafi sprungiö i þeim húsum sem næst eru. Þá hittum viö Sigþór Einars- son, sem býr i Hverhamri, en þaö hús er ofarlega i þorpinu og stendur niöur undir ánni sem rennur i gegn um Hveragerði. Sigþór sagöi að margar sprung- ur heföu myndazt i veggi húss- ins i jarðskjálftunum, og sumar gamlar sprungur hefliu gleikk- aö. Engar fréttir hafa borizt um umtalsverðar sprungur i fleiri húsum i Hverageröi, en þessum tveimur og ekki er vitaö til þess aö annars konar skemmdir hafi hlotizt af jarðskjálftunum. Þá var okkur tjáö aö hverir virtust ekki hafa breytt sér aö marki viö titringinn, en þó virtist einn hverinn hafa tekið kippina nær sér en aörir og var vatniö I hon- um brúnleitt. —ARH Hér stendur Sigþór Einarsson viö myndariega sprungu viö dyrnar á Hverhamri. Sprunga þessi er gömul, en hún vikkaöi til muna i jaröskjálftunum. Jónasina Guönadóttir byr aö Þelamörk 74ásamt sonum sinum, þeim Guömundi Ragnari og Niröi. Hér er hún ásamt Guömundi Ragnari.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.