Alþýðublaðið - 04.05.1977, Page 7
MbSm Miðvikudagur 4. maí 1977
ÚTLOMP 7
Er Ali Bhutto að syngja sitt síðasta?
I janúar síðastliðnum
þegar forsætisráðherra
Pakistans/ Zulfikar Ali
BhuttO/ boðaði til þing-
kosninga þar i landi lét
hann svo um mælt að
Pakistan væri eina lýð-
ræðislandið i Suður-Asíu.
Þegar Indira Ghandi kom
fram fjórtándögum síðar
og boðaði til kosninga á
Indlandi sagði Bhutto að
hún hefði neyðzt til að
fylgja hinu góða fordæmi
sínu.
Og Indira fékk slnar kosn-
ingar. Þær fóru fram á heiöar-
legan hátt og með þeim var end-
ir bundinn á stjórnmálaframa
frú Ghandi (og sonar hennar). t
Pakistan voru lika haldnar áöur
auglýstar kosningar og ekki
komu úrslitin þar mönnum sið-
ur á óvart en á Indlandi. Þjóöar-
flokkur Ali Bhuttos (PPP) kom
út úr kosningunum sem sigur-
vegari og fékk 145 af 200 þing-
sætum i þjóðþinginu.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
niu sem vinna saman i „pakist-
anska þjóöarbandalaginu”
fengu, — að þvi er opinberar
fregnir herma — einungis 36
fulltrúa. 19 þingmenn fóru inn á
þing án þess að til kosninga
Sem dæmi má nefna að i kjör-
dæmi Bhuttos var mótfram-
bjóðandinn fangelsaður rétt i
tæka tið áöur en hann gat fyllt út
framboðsskjölin. Margir af
samstarfsmönnum Bhuttos
hlutu kosningu á sama hátt.
Kosningasvik og prettir uröu
til þess að stjórnarandstaðan
ákvað aö senda engan þingfull-
trúa sinna til þings og neitaði að
taka þátt i héraðsstjórnarkosn-
ingum sem fram áttu að fara 3
dögum siðar eða 10. marz.
Hvers vegna
kosningasviký
Hversvegna viöhafði Bhutto
kosningasvik? Er nema von að
maður spyrji, þvi flestir þeir
sem fylgzt hafa með þróun mála
i Pakistan telja að Bhutto hefði
komið út úr heiðarlegum kosn-
ingum sem sigurvegari, þó ekki
hefði hann hlotið sllkan meiri-
hluta atkvæða og raunin varö á i
„svika” kosningunum.
Astandið i Pakistan hefur
stórversnaö siðan upp komst
um svik Bhuttos. Komið hefur
til óeirða viða i landinu og ljóst
er af þátttökunni I mótmælaað-
gerðum stjórnarandstöðunnar
aö hún á aö baki sér fleiri fylgis-
menn en kosningatölur Bhutto-
stjórnarinnar segja til um.
Stjórnarandstaðan krefst þess
eindregið að Bhutto segi af sér
Hinn umdeildi forsætisráftherra Pakistan, Zulfikar Ali Bhutto
Sorgarsaga
1 raun og veru má segja að
þetta sé sorgarsaga fyrir
Pakistan og Pakistana, þvi
aldrei hafði landið fengið eins
efnilegan og mikilhæfan leið-
toga eins og þegar Ali Bhutto
komst til valda i Pakistan, fyrst
sem forseti og siöan' sem for-
sætisráðh. árið 1973.1 utanrikis-
málum hefur Bhutto haft „sitt á
þurru”. Sambandiö við Indland
og Bangladesh er nokkuö gott og
stuðningur Bhuttos við OPEC
löndin hefur tryggt honum efna-
hagshjálp frá oliurikjunum.
Bhutto lofaði landsmönnum
miklum umbótum i innanrikis-
málum þegar hann kom til
valda. Nokkur þessara loforða
hefur hann efnt, en flest þeirra
hafa týnzt á leiöinni gegnum
gjörspillt stjórnsýslukerfið.
Andúð Bhuttos á allri andstöðu
hefur gert það að verkum að i
stjórnaflokknum eru nú við
stjórnvölinn augnþjónar for-
sætisráðherrans sem skriða
fyrir honum i von um vegtyllur.
1 Pakistan er valdniðsla nú
miklu meiri en á Indlandi á sið-
asta stjórnarári frú Ghandi, og
er þá langt til jafnaö.
Ekki séð fyrir
endann á deilunni
Þaö er sem sagt ekki útlit
fyrir að Bhutto og andstæðingar
hans geri út um deilumál sin á
um framgang mála í Pakistan
Ovissa
'kæmi þvi stjórnarandstaöan
bauð ekki fram i þeim kjör-
dæmum. Þessir 19 þingmenn
eru allir úr flokki Bhuttos
(PPP) og er hann sjálfur einn
þeirra.
En þaö var ýmislegt athuga-
vert við „kosningasigur”
Bhuttos. Hinar rikisreknu út-
varps- og sjónvarpsstöðvar hófu
til dæmis að greina frá úrslit-
um i kjördæmum þar sem taln-
ing var ekki hafin. Og hvernig
skyldi hafa staöiö á þvi að
stjórnarandstaðan bauö ekki
fram i kjördæmunum 19? Svar:
þegar I stað og sem fyrr segir
hafa landsmenn tekið undir
kröfuna með öflugum mót-
mælagöngum, fundum og verk-
föllum. 1 þessum átökum hafa
milli 200 og 300 manns látið lifið.
Þá hafa sendiherrar
Pakistans i Grikklandi og á
Spáni sagt af sér I mótmæla-
skyni viö „einræðistilhneig-
ingar” Bhuttos!
En Zulfihar Ali Bhutto hefur
hingað til ekki látiö mótmælin á
sig fá. Stjórn hans er hin lögleg-
a stjórn Pakistans, að þvi er
hann segir. Svo til allir
stjórnarandstöðuleiðtogarnir
sitja nú i fangelsum og ritskoð-
un blaða er algjör. Fyrir tveim
vikum blandaöi Bhutto hernum
i málið með þvi að lýsa yfir
neyðarástandi i höfuðborginni
Karachi og fleiri borgum þar
sem mest hefur borið á óeirð-
um.
Samkomulag?
Siðustu daga hafa raddir ver-
ið á lofti þess efnis aö horfur séu
á samkomulagi milli Bhuttos og
stjórnarandstöðunnar. 1 sam-
komulagi þessu verði gert ráö
fyrir nýjum kosningum, en
Bhutto muni sitja sem forsætis-
ráðherra fram yfir kosningarn-
ar. En þar til að annaö kemur i
ljós mun vissast að taka þessum
fregnum með varúð, þvi leiötog-
ar stjórnarandstöðunnar munu
mjög tortryggnir á orö forsætis-
ráöherrans, og hver getur láð
þeim það. 1 Pakistan segja
menn gjarnan þessa dagana;
„Hver sem tekur i höndina á Ali
Bhutto á það á hættu að verða
nokkrum fingrum fátækari”.
næstunni. Möguleiki er á að boö-
að verði til nýrra kosninga, en
margir telja að Bhutto kjósi
heldur að sitja áfram með her-
inn sér til fulltingis. Ef svo fer
eru allar likur á að valdniðsla og
einræðistilhneigingar stjórnar-
innar færist i vöxt.Til eru þeir
sem halda þvi fram að ef svo
fari geti komið til byltingar
hersins, þvi þótt hershöfð-
ingjarnir séu hollir tryggir
stuðningsmenn forsetans hefur
orðrómur verið á sveimi um að
vaxandi óróa gæti nú i röðum
liðsforingja. Es
VIÐURKENNING SPÁNSKRA YFIRVALDA A KOMMÚNISTAFLOKKI SPÁNAR:
VEKUR ENGAN
FÖGNUÐ í MOSKVU
Leyfi til handa spenska kommiinistaflokknum til aft starfa er fyrst
og fremst persónulegur sigur Santiago Cariilo.
Hin aldna lifandi
„þjóðsaga” frá
spönsku borgarastyrj-
öldinni, Dolores Iburri
„La pasonaria” er nú á
leið heim eftir 38 ára
útlegð i Moskvu. Hún
er 81 árs.
La Pasonaria þekkir
sig orðið mætavel i
Moskvu og hefur vissu-
lega ekki óblandna
aðdáun á stjórnar-
farinu þar. Þannig
studdi hún Santiago
Carillo sem þá var
aðalritari spánska
kommúnistaflokksins, i
tilraunum hans við að
færa flokkinn i
lýðræðisátt, eftir upp-
ljóstranir Krúsoffs á
grimmdaræði Stalins
1956.
Spánski ' kommúnistaflokk-
urinn varö fyrstur til hér I
Vestur-Evrópu, að kasta smátt
og smátt trúnni á hið rússneska
forræði og halla sér að lýðræðis-
sinnaöri leiðum til framgangs
sósialismans.
Talið er, að áhrif Carillos nái
býsna langt inn I raöir jafnvel
miðflokka, og vist er það að
áhrif sósialdemokrata og mið-
flokka entust honum til að fá
kommúnistaflokkinn viður-
kenndan. Þetta hefði ekki
tekist, ef flokkurinn hefði staðið
á Moskvulinunni.
Carillo hefur fengiö heilla-
skeyti frá forseta Rúmeniu,
Ceausescu, sem einnig er
flokksformaöur þar, með þann
árangur, sem hann hefur náð á
Spáni.
Aðrir austantjaldsleiötogar
hafa verið hljóðir um allar
slikar óskir, þó flokkarnir telji
sig fagna framgangi Carillos.
Hér er þó Moskva undanskilin!
Moskóvltar hafa gert
Itrekaöar tilraunir til að
splundra spánska kommúnista-
flokknum, en án árangurs, og
þeir urðu að bita I þaö súra epU,
að semja friö viö Carillo, þegar
hann heimsótti þá!
Hitt hefur ekki dulizt þeim, að
hann hefur verið i fararbroddi
kommúnistaleiðtoga um aft
gagnrýna Rússa opinskátt.
Carillo var engin launung á,
að hann hefði snúizt til
vopnaörar varnar I sporum
Dubchecks, þegar Rússar
réöust inn I Tékkóslóvakfu I
ágúst 1968! Þá hefur hann ekki
veriö mjúkmáll um kúgun and-
ófsmannanna i Tékkóslóvakfu,
vegna „Charta 77”.
Nú, þegar Carillo kemur fram
sem tvimælalaus leiötogi hins
vel skipulagða spánska
kommúnistaflokks, og hefur
fengið löggildingu stjórnvalda
Spánar á starfsemi hans, verður
hann vitanlega sterkur innan
samtaka Vestur-E vrópu
flokkanna. Þristirnið Carillo,
Berlinguer g Marchais er hreint
ekki litið hýru auga 1 Moskvu!
Ekkert bendir til, að gagnrýni
hans á Moskvuvaldinu sé neitt
Jeikspil, heldur ærlega meint.
1 raun og veru er skammt
milli vinnubragöa hans og
lýðræðissinnaðra sósialista.
Allt þetta sviður Moskóvitum,
og þó ef til vill mest, að þeim
dylst ekki, að samband hans við
itölsku og frönsku kommúnista-
leiðtogana getur hvenær sem er
kubbað sundur hina þekktu
Moskvulinu.