Alþýðublaðið - 04.05.1977, Side 9
SKS" Miðvikudagur 4. maí 1977
FRÉTTIR 9
HUGMYNDIR UM GERD SJt-
SUNDLAUGAR f NAUTHÓLSVIK
— en borgaryfirvöldum þótti fyrirtækið dýrt og mæltu gegn framkvæmdum
Asgeir Asgeirsson hjá fyrir-
tækinu Iönhönnun hefur komiö á
framfæri hugmynd um
sérkennilega sjóbabstöö i
Nauthólsvik. Gerir hann ráö
fyrir hringlaga sundlaug ilr
strigaefni sem sé á floti i
sjónum undan landi og skal
liggja göngubrú út i laugina.
Sundlaugina á ab festa meö
akkerum og taugum i land, en á
henni skulu vera sérstök tæki til
að hreinsa sjóinn i lauginni.
Aætlaður kostnaöur viö sjálfa
sundlaugina er 18 milljónir, en
auk þess þyrfti aö reisa bygg-
ingar i landi fyrir búningsklefa,
böö og fleira ef aö framkvæmd-
inni yröi.
Sveinn Björnsson for
maöur iþróttaráös Reykjavikur
sagöi i samtali viö Alþýöublaöiö
i gær, aö iþróttaráö hafi fjallað
um áætlunina frá Iönhönnun á
fundi sinum 19. þ.m. og mælti
ráðiö gegn samþykkt hennar.
Sagöi Sveinn að talib hafi verið
brýnna aö vinna aö öðrum
framkvæmdum viö sundstaöi
borgarinnar nú sem stæöi, en
ijóst væri, aö fyrirtæki þetta
myndi kosta 40-60 milljónir á
núgildandi verðlagi. Þá væru
ýmsir annmarkar á fram-
kvæmd hugmyndarinnar, til
dæmis hafi Skerjafjörðurinn
reynst grynnri en álitið var og
þyrfti þvi sjósundlaugin mikla
að lóna 160-300 metra fía landi,
þar sem þá fyrst er dýpi nægi-
legt fyrir hana á háfjöru.
A fundi sinum 26. april féllst
borgarráðá umsögn iþróttaráðs
og veröur hugmyndin um sjó-
sundlaugina þar meb „söltuö”
um sinn.
Mörg verkefni
framundan
Sem dæmi um brýn verkefni
viö sundstaðina i Reykjavik,
nefndi Sveinn Björnsson
stækkun húsnæöis fyrir
búningsklefa og böö i Laugar-
dalslauginni. Næsta erindi
iþróttaráös sem lagt veröur
fyrir borgaryfirvöld á næstunni,
varðar einmitt þessar fram-
kvæmdir i Laugardal.
Þá hefur borgar
ráö samþykkt að heimila
samninga viö Gunnar Rósin-
kranz og Sverri Þórolfsson um
gerð iþróttaleikvangs i Laugar-
dalnum, samanber samþykkt
stjórnar Innkaupastofnunar frá
25. april. Tilboö þeirra hljóðar
upp á 48.9 milljónir og veröur
væntanlega unnib fyrir þá
peninga á þessu ári. A þessu
iþróttasvæöi veröur grasvöllur
og frjálsiþróttabrautir með svo-
kölluðu „tartan-lagi”. Stefnt er
ab þvi að völlurinn komist i
gagnið á næsta ári.
Byrjað verður á undir-
búningsframkvæmdum fyrir
annan iþróttavöll i borginni i
sumar. Er hann i Mjóddinni og
ætlaöur BreiÖholtinu. Þar um
sióðir er votlendi og verður
verður unniö við framræslu og
þurrkun svæðisins i sumar og
fjárveiting til verksins 10 millj-
ónir.
Þá er unniö viö byggingu
íþróttahúss i Arbæjarhverfi og
er stefnt aö þvi aö taka það i
notkun seint á þessu ári.—ARH
Bæjarstjórn
Akraness
vill járn-
blendiverk-
smiðju
Eftirfarandi samþykkt var
gerö á fundi bæjarstjórnar Akra-
ness 2. mai:
Meö þvi aö frumvarp til laga
um járnblendiverksmiöju á
Grundartanga er nú til lokaaf-
greiöslu á Alþingi áréttar bæjar-
stjórn Akraness aö gefnu tilefni
fyrri samþykktir sinar um þab
máloglæturlljós þaöálitaöhinn
norski samstarfsaðili geri málið
aö ýmsu leyti álitlegra en áöur
var.
Bæjarstjórnin vill I þessu sam-
bandi minna á aö verksmiðjan
sjálf mun veita allt aö 150 manns
fasta atvinnu og hafa margvis-
lega aöra jákvæöa þýöingu fyrir
byggöarlögin i nágrenni hennar
meö likum hætti og reynsla hefur
veriö af Sementsverksmiöjunni
undanfarin 20 ár.
Má benda á m.a. aö aukin
byggö á þessu svæöi meö tilliti til
Járnblendiverksmiöjunnar mun
auövelda uppbyggingu og rekstur
hitaveitu frá Deildartungulhver,
sem nú er I undirbúningi fyrir
Akranes Borgarnes, Hvanneyri
og fleiri aöila.
Meö hliösjón af þessu lýsir
bæjarstjórn Akraness þvi yfir aö
afstaöa hennar til þessa fram-
faramáls er óbreytt, _BJ
Svölurnar, félag
fyrrverandi og starf-
andi flugfreyja, af-
hentu i gær tvær stórar
peninga gjafir til
Blindraskólans og
öskjuhliðarskólans i
Reykjavik.
Svölurnar afhentu Blindra-
skólanum kr. 250 þúsund og ab
sögn Höllu Bachmann fóstru og
Margrétar F. Siguröardóttur
kennara viö skólann, veröur
fénu variö til kaupa á sér-
smiöuöum lestrar- og vinnu-
boröum fyrir sjóndöpur börn.
Boröin sem nU eru notuö l
Blindraskólanum eru venjuleg
lág skólaborö og er erfitt fyrir
nemendur aö bogra viö vinnu
sina viö þau. Nýu boröin er hægt
aö hækka mikiö og halla borö-
plötunni aö vild. Eru boröin þvi
kærkomin hjálpartæki viö
Blindraskólann.
Tvisetið i öskjuhlíðar-
skólanum
Aö lokinni afhendingu f járins I
Blindraskólanum var ekiö beina
leiö I öskjuhliöarskólann og þar
afhentu Svölurnar aöra stóra
fjárgjöf, kr. 500 þúsund sem
mun . veröa notuö til kaupa á
myndsegulbandi fyrir skólann.
Ingibjörg Haröardóttir skóla-
stjóri veitti. gjöfinni viötöku, en
Ingibjörg var einmitt fyrsti
styrkþegi Svalanna og fór til
Danmerkur haustið 1975 til
náms og starfsþjálfunar.
1 öskjuhliöarskólanum eru nú
um 140 nemendur á aldrinum
6-27 ára. Skólahúsnæöiö er upp-
haflega ætlaö 80 nemendum og
er nú tvisett i skólanum. Koma
eldri nemendur fyrri hluta
dagsins, en þau yngri eru þar
siöari hluta dags. 3 skólabilar
flytja nemendur til og frá
skólanum, en Ingibjörg sagöi aö
reynt værieftir megniaöláta þá
læra á og nota strætisvagnana,
enda væri þaö hluti af þeirra
þroskaþjálfun. Börn i öskju-
hliöarskólanum eru á ýmsum
sigum þroska og sagöi Ingibjörg
Haröardóttir aö „eina inntöku-
skilyröi I skólann væri greindar-
skeröing.” Ennfremur sagöi
hún aö samfara greindar-
skeröingunni væru oft margir
sjúkdómar sem hrjáöu þroska-
hefta.
—ARH
Afhending fjárins i Blindraskólanum: Frá vinstri: Halla Bachmann
fóstra, Jóhanna Björnsdóttir, gjaldkeri Svalanna, Lilja Enoksdóttir
formaður Svalanna, Margrét F. Siguröardóttir kennari, Edda Guö-
mundsdóttir ritari Svalanna og Sigriöur Guömundsdóttir varafor-
maöur Svalanna.
Frá afhendingu fjárins i öskjuhliöarskólanum. Ingibjörg Haröar-
dóttir tekur viö gjöfinni úr hendi Lilju Enoksdóttur formanns Sval-
anna- (AB-myndir: Axel T. A mmendrup)
Svölurnar gefa Oskjuhlíðar- og
Blindraskólanum
ATH!
Hid nýja símanúmer
Alþýduflokksins
2-92-44
NÝTT SIMANÚMER
FIUGLEIHIR - INNANLANDSFLUG
Frá og með 1. maí 1977 verður símanúmer okkar
26622
FLUGLEIDIR
Innanlandsflug