Alþýðublaðið - 04.05.1977, Side 11
Miðvikudagur 4. maí 1977
USTIR/MENNING 11
JÓNAS MEÐ EINKASÝNINGU
A KJARVALSSTÖÐUM
Á , laugardaginn
opnaði Jónas Guð-
mundsson rithöfundur,
og listmálari mál-
verkasýningu að Kjar-
valsstöðum. Á sýning-
unni eru rúmlega 70
myndir, flestar vatns-
litamyndir, og eru þær
málaðar á árunum 1976
og 1977. Þá eru og
sýndar nokkrar eldri
myndir, þar af nokkrar
sem eru i einkaeign.
Jónas Guðmundsson
mun bráðlega sýna
verk sin á árlegri vor-
sýningu i Galleri Clas-
ing i Vestur-Þýzka-
landi. Er það einkasýn-
ing sem stendur i tvo
mánuði og heldur
stofnunin árlega slika
sýningu til kynningar á
innlendum og erlend-
um listamönnum.
—mynd&texti: —ARH
flllir unglingar ættu að geta haft nóg fyrir stafni í sumar:
Reiðskóli, sigl-
inganámskeið
hjólreiðar og
sveitaferðir
- ER MEÐAL ÞESS SEM ÆSKULÝÐSRÁÐ
BÝÐUR Í SUMAR
Æskulýðsráð hefur
sent frá sér bæklinginn
„Sumarstarf fyrir börn
og unglinga 1977”. í
bæklingnum er fram-
boð borgarstofnana á
starfi og leik fyrir börn
og unglinga i sumar.
Flest atriöin sem boðiö er upp
á snerta iþróttir og útivist, en
einnig skemmtisamkomur ungs
fólks. Þær stofnanir sem bjóöa
upp á leiki og störf fyrir unga
fólkið i sumar eru Fræðsluskrif-
stofa Reykjavikur, Æskulýös-
ráö Reykjavikur, Leikvalla-
nefnd Reykjavikur, Iþróttaráö
Reykjavikur, Skólagaröar
Reykjavikur og Vinnuskóli
Reykj avikur.
Siglingar
Meðal þesssem unglingum er
gefinn kostur á að stunda eru
siglingar i Nauthólsvik. Þaö er
siglingaklúbburinn Siglunes,
sem býður upp á siglinganám-
skeiö, fyrir byr jendur og lengra
komna. Námskeiöin veröa i
Nauthólsvik og veröur kennd
meöferð báta og sigling segl-
báta, einfaldar siglingareglur,
varúð og viöbrögö við óhöppum
á sjó og umhiröu búnaðar.
Hestamennska
Reiðskóli veröur starfræktur
ú vegum Æskulýösráös Reykja-
vikur og Hestamannafélagsins
Fáks. Haldin verða tveggja
vikna námskeið, aldur þátttak-
enda er 8-14 ára og þátttöku-
gjald kr. 12.000.
HORNID
Skrjfið eða hringið
í síma 81866
Opin hús
1 safnaðarheimili Bústaða-
sóknar verður eitthvaö um aö
vera hvert kvöld vikunnar i
sumar. Má þar nefna diskótek,
leiktæki, hjólreiðar, gönguferðir
og fleira. Aldurstakmark er
ýmist fædd 62,63 eöa 64 og eldri.
Að Frlkirkjuvegi 11, verða
starfræktir skemmti- og feröa-
klúbbar og leikklúbbur unga
fólksins Elding, veröur þar
einnig. Þar er góö aðstaða til
fundarhalda fyrir æskulýðsfélög
og samtök.
1 Fellahelli verður nóg um að
vera, áð venju. Diskótek á
föstudögum og ýmiss konar úti-
störf fyrir börn og unglinga.
Kynnisferðir i sveitina
Fyrri hluta júnimánaðar
verður farið i kynnisferðir á
sveitaheimili i Árnes- eða Rang-
árvallasýslu. Ferðirnar taka
þrjá daga og verður dvalið á
heimilinum. Dvölin er ókeypis
en þátttakendur skuldbinda sig
til að veita jafnöldrum úr sveit-
inni fyrirgreiðslu i Reykjavik.
Fargjöld eru frá 800-1200 krón-
ur, og er innritaö á Frikirkju-
vegi 11.
Þetta er bara smáhluti af þvi
sem Æskulýðsráð býður börn-
um ogunglingum uppá isumar.
Enginn unglingur ætti þvi aö
þurfa að hanga aögerðalaus á
kvöldin, þvi nóg er um aö velja.
—AB
Tækni/Vísindi
Dauðageislinn 2.
TRYGGINGAMÁLIN
Næstkomandi laugardag, 7. mal, verður fundur á vegum Alþýðuflokksfélags Reykjavikur, þar
sem fjallað verður um tryggingamálin, og stefnu Alþýðuflokksins i þessum mikilvæga mála-
flokki. Fundurinn verður haldinn I Iðnó, uppi, og hefst kl. 14.30 stundvislega.
Frummælendur verða þeir Björgvin Guðmundsson borgarfulltrúi og Eggert G. Þorsteinsson frv.
tryggingarráðherra. Fundarstjóri verður Tryggvi Jónsson.
Alþýðuflokksfólk f jölmenniðog takið meðykkur gesti. Fylgizt með málefnum Alþýðuflokksins og
þvi sem er að gerast i islenskum stjórnmálum og hinum ýmsu málaflokkum.
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur — fræðslunefndin
Undirstöðuatriði i sambandi við
dauðageislann er aö öll hans
orka beinist að einum ákveðn-
um punkti.
Arið 1960 uppgötvuöu banda-
riskir visindamenn geisla sem
dreifist ekki, — lasergeislann.
Lasergeislinn er þeim eiginleik-
um búinn aö öll hans orka flyzt
aö þvi marki sem honum er
beint að og ljósorka hans hefur
sömu áhrif og hiti.
Þetta er erfitt vegna þess að
orkugeislar hafa tilhneigingu til
að dreifast á leiö sinni i gegn um
andrúmsloftið