Alþýðublaðið - 06.05.1977, Síða 7
HSSé Föstudagur 6. maí 1977
USfB/MENMING 7
Fyrir stuttu si&an kom kór
Menntaskólans viö Hamrahlíö
heim til tslands frá Danmörku,
en þar tók kórinn þátt I loka-
keppni norrænna æskukóra sem
haldin var dagana 21.-24. april i
námunda viö bæinn Ribe á Jótl-
andi.
Þetta var i fjóröa og siðasta
skipti a.m.k. um sinn(sem slik
keppni er haldin, en ætlunin er
aö nú veröi skipulag hennar
endurskoðað, vegið og metiö og
ef til vill verður keppninni fram
haldið siöar I breyttu formi.
Kór Menntaskólans viö
Hamrahlíö hefur undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, þri-
vegis tekiö þátt I þessum keppn-
um fyrir Islands hönd, fyrst i
Noregi árið 1973, siðan i Sviþjóö
1975 og nú siöast i Danmörku.
Tið mannaskipti
Svo sem kunnugt er, útskrifar
Menntaskólinn viö Hamrahliö
stúdenta tvisvar á ári og af
þeim sökum m.a. eru manna-
skipti i kór skólans mjög tiö.
Sem dæmi um hve breytingar á
kórnum eru örar má nefna, aö
af þeim 50 manna hópi sem nú
keppti i Danmörku voru aðeins
11 sem sungu meö kórnum i
keppninni I Sviþjóö fyrir tveim-
ur árum siðan.
Þá má nefna aö þau Þorgerð-
ur Ingólfsdóttir stjórnandi kór-
sins og Guömundur Arnlaugs-
son rektor eru einu aöilarnir
sem enn starfa viö Menntaskól-
ann viö Hamrahliö af hópnum
sem fór til Noregs 1973.
Eins og fyrr segir fór keppnin
að þessu sinni fram i næsta ná-
grenní bæjarins Ribe á suöur
Jótlandi, nánar tiltekið I Rödd-
ing skóla, skammt fyrir utan
bæinn.
I Rödding skóla bjuggu allir
kórarnir sem voru fjórir aö tölu
auk þess islenzka, einn frá Dan-
mörku, einn frá Sviþjóð, einn
frá Noregi og einn frá Finn-
landi. Þar var hverjum kór séö
fyrir aöstö&u til æfinga og féll
þaö i hlut Hamrahliðarkórsins
að æfa i fornu hesthúsi sem gert
hefur verið upp og innréttað.
Þar er nú hinn ákjósanlegasti
iverusta&ur og hljómburöur
góður.
Styttri keppni
I fyrri úrslitakeppnunum sem
HamrahliöaKórinn hefur tekið
Þorgeröur Ingólfsdóttir, hefur
verið stjórnandi og „primus
motor” kórsins frá upphafi.
þátt I, hefur lokakeppnin ávallt
tekiö tvo til þrjá daga. Að þessu
sinni var brugöiö út af þeirri
venju og lögö áherzla á aö ljúka
hinni eiginlegu keppni á sem
stytztum tima, en nota þess i
staö þann tima sem þannig
vinnsttil að æfa fyrir sameigin-
lega tónleika allra kóranna.
Þannig stóð keppnin sjálf aö-
eins einn dag, föstudaginn 22.
april, en tvo næstu daga var æft
af krafti fyrir tónleika sem
haldnir voru i dómkirkjunni i
Ribe á sunnudagseftirmiðdag.
The Slow Spring
Daninn John Höjbye samdi
sérstakttónverk fyrir keppnina,
The Slow Spring, og var þaö
Kór Menntaskólans við Hamrahlið
HAMRAHLIÐARKORINN
NÝKOMINN ÚR NORRÆNNI
ÆSKU KÓRAKEPPNI
prófverkefni sem allir kórarnir
þurftu að æfa upp og flytja fyrir
dómnefnd sem skipuö var
einum fulltrúa frá hverju þátt-
tökulandanna. En meö þvi að
láta kórana spreyta sig á einu
sameiginlegu verki fæst glöggur
samanburður á getu hvers kórs
um sig.
Af Islands hálfu sat dóm-
nefndina Páll Pampichler Páls-
son.
Auk þessa prófverkefnis
skyldi hver kór flytja tvö önnur
tónverk aö eigin vali. Hamra-
hliöarkórinn valdi til flutnings
madrigala eftir Johann Jeep
(1581-1644) Musica die ganz lie-
blich kunst. Og til mótvægis viö
hinn aldna madrigala tók Jón
Asgeirsson tónskáld sig til og
samdi nýtt verk fyrir Hamra-
hhöakórinn sérstaklega fyrir
þessa keppni. Verkið kaus Jón
aö nefna Stemmur og er þaö i
fjórum þáttum, sem bera eítir-
talin nöfn, Kárakvæði, Skónál-
ar-Bjarni, Pilturinn og stúlkan
og I gle&inni.
Tvisýn keppni
Um úrslit keppninnar er þaö
aö segja, að finnski kórinn fór
meö sigur af hóimi. Mjög var þó
tvisýnt um úrslitin, þvi finnski
kórinn og sá islenzki voru mjög
jafnir og þurfti aö telja atkvæöi
dómaranna tvisvar áöur en
niðwstaða fékkst.
Er óhætt aö segja aö frammi-
staöa kórs Menntaskólans viö
Hamrahliö hafi veriö mjög góö,
ekki sizt ef höfð er hliösjón af
þvi hve kórarnir tveir stóðu i
raun ójafnt aö vigi. Finnski kór-
inn annars vegar, meö svo til
óbreyttan kór frá þvi i keppn-
inni i Sviþjóö fyrir tveimur ár-
um og Hamrahliöakórinn hins
vegar, meö þvi sem næst nýjan
kór en sem fyrr segir voru aö-
eins 11 af 50 kórfélögum einnig
með Sviþjóðarferöinni.
Lokakeppni kóranna fór fram
I salarkynnum i Rödding skóla
og var útvarpaö frá keppninni
beint um Sviþjóö og Noreg, en
daginn eftir var dagskráin flutt i
danska útvarpinu.
Æft með Jester Hair-
ston.
Daginn eftir að hinni eigin-
legu keppni lauk, eöa á laugar-
dag, hófust miklar og strangar
æfingar fyrir lokatónleikana
sem kórarnir stóöu að i dóm-
kirkjunni i Ribe, en þeir áttu aö
— Þaö var ákaflega skemmti-
legt og jafnframt óvenjulegt að
vinna með Jester, þvi taktur
negratónlistarinnar er mjög
sterkur i honum eins og gefur að
skilja, þar eö hann hefur sjálfur
sta&iö i þeim jarövegi sem þessi
tónlister sprottin úr, sagöi Þor-
geröur Ingólfsdóttir er blaöa-
maöur ræddi viö hana á dögun-
um. — Þaö var greinilegt hve
sterkt hann upplifði tónlistina
og likast til er hann mjög trúað-
ur, —sagði Þorgeröur ennfrem-
ur.
En til aö gera langa sögu
stutta, þá er skemmst frá þvi að
segja að á tilsettum tima, eftir
strangar æfingar, taugaspenn-
ing og eftirvæntingu, loku&ust
dyr dómkirkjunnar i Ribe að
baki um eitt þúsund áheyr-
endum sem komnir voru til aö
hlýða á söng kóranna. Sjón-
varpsmyndavélar og upptöku-
tæki danska sjónvarpsins sáu
um, aö siöar fengju milljónir
noröurlandabúa einnig aö njóta
þessara tónleika og aö sjálf-
sögöu I öllum regnbogans litum.
Af kór Menntaskólans viö
Hamrahliö er þaö að segja, aö
strax aö loknum tónleikunum
þusti kórinn út i rútubifreiö sem
beiö hans og var siðan ekið i
loftköstum til næsta flugvallar.
Þaöan var flogiö til Kaup-
mannahafnar þar sem kórinn
hélt um kvöldiö tónleika i st.
Pauls kirkjunni fyrir fjölda
islendinga.
—GEK
Rödding skóli, þar fór hin eiginlega keppni fram og þar bjuggu allir kórarnir.
YNGDIST UM 10 ÁR í
MEÐ KÓRNUM
— segir Páli Pampichler Pálsson sem var í
dómnefndinni
fyrir íslands hönd
Páll Pampichler Pálsson var
fulltrúi Islands i dómnefndinni
aö þessu sinni. Blaöamaöur
Alþýöublaösins ræddi við Pál i
gær og spurði hann þá meðal
annars hvað hann hefði aö segja
um frammistöðu Hamrahliða-
kórsins.
„Frammistaða kórs Mennta-
skólans viö Hamrahlið var m jög
góð” sagði Páll*6g það munaöi
ekki nema hársbreidd,ef svo má
að oröi komast^að kórinn fengi
verölaunin. Það sem vakti
athygli dómaranna allra var
hve kórinn söng hreint og takt-
fast, sem er aö minu matí ailt
saman Þorgeröi aö þakka sem
Páll Pampichler Pálsson
FERÐINNI
hefur unnið frábært starf viö
þjálfun kórsins.”
"Þá vakti það lika athygli
þeirra sem dvöldust í Rödding
þessa daga sem keppnin stóö,
hvað krakkarnir I kórnum
kunnu mikiö af lögum þegar var
veriö aö syngja i matsalnum og
við óformleg tækifæri. Um
finnska kórinn veröur þaö aö
segjast eins og er, aö þaö er
varla hægt að tala um þar hafi
verið um æskukór aö ræöa. —
Þetta fólk haföi almennt miklu
meiri þjálfun og reynslu en hinir
og ég tók sérstaklega eftir þessu
með konu sem söng einsöng meö
kórnum, þaö fór ekki á milli
mála að þar var þrautþjálfaöur
og læröur söngvari á ferö.”
„Ég vil aö lokum taka þaö
fram aö ég haföi mjög mikla
ánægju af þvi aö feröast meö
kórnum og framkoma hans og
frammistaða öll var landinu til
mikils sóma. Mér sjálfum finnst
ég hafa yngst um tiu ár i ferö-
inni”.
—GEK.
fara fram á sunnudags eítir-
miödeginum. Fyrir þessa tón-
leika æfðu kórarnir sameigin-
lega negrasálma eftir kunnan
bandariskan blökkumann, Jest-
er Hairston a& nafni, en Jester
þessihefur getið sér fræögarorö
i Hollywood, sem tónsmiöur og
fyrir útsetningar sinar, sem
margarhverjar eru mjög kunn-
ar. Sá sem stjórnaði æfingum
kóranna var enginn annar en
höfundurinn sjálfur Jester
Hairston.