Alþýðublaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 10.05.1977, Blaðsíða 8
8 FWÉTTIR Þriðjudagur 10. maí 1977 Frá Menntskólanum á ísafiröi Þeim sem hyggja á nám i skólanum vet- urinn 1977-78 er bent á að frestur til að sækja um skólavist rennur út 1. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans og i Menntamálaráðuneytinu. Skólameistari Tilkynning Vér leyfum oss hér með að tilkynna, að reglur um gjaldeyrisveitingar til ferða- laga erlendis eru svo sem hér segir. Hinn almenni ferðaskammtur er kr. 75.000.- (nú að jafnvirði 225.- pund, $390.-, DM 930.-, Dkr. 2.350.-) gegn framvisun farseðils. Börn innan 12 ára fá hálfan ferðaskammt. Sé um að ræða 2. ferð á sama árinu er heimilaður hálfur ferða- skammtur. : Yfirfærslur til ferðaskrifstofa vegna IT- og hópferða til greiðslu á hótelkostnaði ásamt yfirfærslum til farþega i þeim ferð- um eru svo sem hér segir: Hópferðir til útlanda: 1) Ferðir á baðstrendur: a) íbúðir án fæðis: Spánn: Ptas. 18.000.- til farþega Ptas. 9.000.- til ferðaskrifst. ttaiia: DM 620,- til farþega DM 310.- til ferðaskrifst. Júgóslavia ) $ 260.- til farþega Portúgal ) $ 130.- til ferðaskrifst. b) Hótel með morgunverði: Spánn: Júgóslavia ) Portúgal ) Italia ) Ptas. 16.000,- Ptas. 11.000.- $ 230.- $ 160.- til farþega til ferðaskrifst. til farþega til ferðaskrifst. c) Hótel með morgunverði og máltíð (pension): Spánn: Júgósiavia ) Portúgal ) ttalía ) Ptas. 13.500.- Ptas. 13.500,- $ 195.- $ 195.- til farþega til feröaskrifst. til farþega til feröaskrifst. 2) Ferðir 8-12 daga, hótel með morgun- verði: a) London, Glas- gow stpd. 150.- stpd. 75.- b) Kaupmanna- höfn Dkr. 1.400,- Dkr. 950,- tii farþega til ferðaskrifst. til farþega til ferðaskrifstof. 3) Skipulagðar ferðir um meginland Evrópu: Í200.-/ stpd. 115.- / DM 480.-til farþega $190.-/ stpd. 110.- / DM 450,- til ferðaskrifst. til greiðslu á hótelkostnaði. Auk þess fargjöld með iang- ferðabifreiðum. 3) Ferðaskrifstofum er óheimilt að gefa út matarávisanir og ávisanir á landferðir og skoðunarferðir erlendis til greiðslu i isl. krónum. Ennfremur er óheimilt að selja i isl. krónum hópferðir eða þjónustu frá er- lendum ferðaskrifstofum. Vér viljum vekja athygli á, að samkvæmt gildandi gjaldeyrisreglum er óheimilt að stofna til hvers konar eriendra skulda án leyfis gjaldeyrisyfirvalda. Reykjavik, 5. mai 1977 Gjaldeyrisdeild bankanna. Þó Alþingi hafi nú lokiö störf um, og þingmennirnir okkar blessaðir farnir hver til sins heima, er ekki sömu sögu að segja um aðra starfsmenn þing- hússins. Þegar við litum þar inn fyrir skömmu, var þó ekki mjög mik- iöum að vera. Viö náðum tali af Friöjóni Sigurðssyni skrifstofu- stjóra Alþingis og inntum hann eftir þvi hvað starfsfólk Al- þingis væri helzt að fást viö þessa dagana. — Það er nóg að gera við að prenta lögin sém nýbúiö er áð samþykkja, svo og umræðurnar siðustu daga. Það verður eflaust nóg að gera i þvi fram eftir sumri, það hefur verið það und- anfarin ár, sagði hann. — Við verðum að flýta okkur við lögin þvi þau verða að vera tilbúinrúmriviku eftirað þingiö hættir. Friðjón sagði ennfremur að i undirbúningi væri endur- skoðun og lagfæring á loft ræstikerfi Alþingishússins. Bjóst hann við að það yrði lagað i sumar. — Svo verður það bara þetta venjulega viðhald, farið yfir húsgögnin, tækjakostinn og trú- lega eitthvað málaö, sagði hann. — Annars er reynt aö halda tækjakostinum við jafn- óðum. Ekki pláss fyrir fleiri þingmenn Aðspurður sagði Friðjón Al- þingishúsið vera orðið allt of lit- ið fyrir Alþingi Islendinga. —. Það er allt of þröngt hérna og þeir rúmast ekki í Alþingishúsinu ekki pláss fyrir svona marga þingmenn. Þingsalurinn er upphaflega innréttaður fyrir 36 þingmenn, sagði Friðjón að allt hefði verið i lagi meðan þingmennirnir voru 52 en eins og þeir eru nú, 60,væri það of þröngt. — Það er ekki hægt að bæta við fleiri þingmönnum svo þeir eigi sæti i salnum, sagði skrif- stofustjóri Alþingis að lokum. —AB EKKI FLEIRI ÞINGMENN Skyríð vinsælt í Danmörku NÚ ER ÞAÐ STRAUMS- VÍKURGANGA Hinn 21. mai næst- komandi munu Samtök herstöðvaandstæðinga efna til fjöldagöngu og fundarhalda i Reykja- vik og nágrenni, til þess að leggja áherzlu á kröfJ sina um brott- för hersins og úrsögn 1- lands úr Nato. Straums vik um Hafnarfjörð, Kópavog og endað með fundi á Lækjartorgi. 1 frétt sem miðnefnd Sam táka herstöðvarandstæðinga sendi frá sér i tilefni Straumsvikurgöngunnar segir m.a. „Hersetan og Nato hafa búið svo i haginn fyrir fjölþjóð- legtauðmagn,að það mætti láta greipar sópa um islenskar auð- lindir. óþarft er að geta þess hver styrkur vaxandi itök fjöl- þjóðahringa yrði hernum og Nato. Það ætti að vera verðugt um- hugsunarefni þvi fólki, sem nú stendur i kjaradeilum, að bandariska hernum er ætlað að gripa inn i hugsanleg átök milli atvinnurekendavaldsins og verkafólks. Þetta kemur skýrt fram i nýbirtum leyniskýrslum bandariska utanrikisráðuneyt isins. — Hersetan og aðildin að Nato styrkja þannig leynt og ljóst islenzkt auðvald i viðleitni þess til að tryggja hagsmuni sina gagnvart vinnandi fólki i landinu.” Skráning sjálfboðaliða og þátttakenda i göngunni fer fram i skrifstofu Samtaka her- stöðvarandstæðinga að Tryggvagötu 10. —GEK Skyr hefur löngum verið vin- sæll matur á Islandi. En þaö er viðar en á Islandi sem skyrið nýtur vinsælda. 1 Danmörku þykir skyrið sérstaklega góð heilsubótarfæða og þá sérstak- lega sem megrunarfæða. Maður að nafni Carl Jörgen- sen, 76 ára gamall Dani, lærði skyrgerð á Islandi árið 1929. Eftir aö Carl kom aftur til Dan- merkur stofnaði hann mjólkur- búið i Jyllinge. Upphaflega var einungis um nokkur kíló á viku að ræða fyrir þáverandi sendi- herra Islands I Danmörku, Svein Björnsson, og fjölskyldu hans. Arið 1975 var skyrfram- leiðslan komin upp I 148 tonn. Carl Jörgensen reyndi að fá Dani til að nota skyr i salöt eins og hann hafði séð gert á Islandi. En Dönum likaði ekki alls kost- ar þetta súra bragð sem af skyr- inu var. Þá varð það að Carl hóf framleiðslu á ósúru skyri, „salma”, sem nú er mjög vin- sælt i salöt i Danmörku. En allar verzlanir sem sér- hæfa sig i heilsubótarfæði i Danmörku, selja skyr og „salma”. —AB Verður kosið í haust? Alþýðuf lokksfélag Suðureyrar, Súganda- firði, efnir til almenns fundar i félagsheimilinu á Suðureyri, fimmtudag- inn 12. mai klukkan 20:30. Fundarefni: Sighvatur Björgvinsson ræðir um stjórnmálaviðhorf in. Öllum heimill aðgangur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.