Alþýðublaðið - 21.06.1977, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 21.06.1977, Qupperneq 12
ÞRIÐJUDAGUR 21. HÁTfÐARFUNDUR ÍR 17. JUNf A sérstökum hátiðafundi hjá tþróttafélagi Ryekjavikur, sem haldinn var 17. júni sl. voru þeir Albert Guðmundsson og Magnús Þorgeirsson heiðraðir á eftirminnilegan hátt i tilefni af 70 ára afmæli félagsins. Magnús Þorgeirsson var kjör- inn heiðursfélagi tR, en hann hefur um langt skeiö verið einn af máttarstoðum félagsins og meöal fremstu fimleikamanna þjóðarinnar. Þá var Albert Guðmundsson kjörinn heiðursformaður IR er er hann þriðji maðurinn sem hlýtur þessa æðstu viðurkenn- ingu félagsins. A undan Albert hafa verið heiðursformenn tR þeirSveinn Björnssoh og Asgeir Asgeirsson, fyrrverandi forset- ar tslands. Sveinn var heiöurs- formaður IR frá 1947 til 1952 en Asgeir frá 1954 til 1972. Albert Guðmundsson er þvi þriðji heiðursformaður fR og mun hann halda þvi heiðurssæti til lifstiðar á sama hátt og fyrir- rennarar hans gerðu. t ræðu sem formaður tR, Þór- ir Lárusson flutti viö þetta tæki- færi kom fram að tR væri eina íþlróttafélagið á tslandi, sem tekið hefði upp þann hátt að kjósa heiðursformann. Sagði hann að hlutverk heiðursfor- manns væri afarmikilvægt fyrir félagið, og efaðist hann ekki um að hinn nýkjörni heiöursfor- maður yrði félaginu mikil og sterk máttarstoð ekki siöur en þeir Sveinn og Asgeir höfðu ver- ið á sinum tima. í ræðu sinni kom formaður viða við, og vék m.a. að þætti fjölmiðla gagnvart iþrótta- hreyfingunni og iþróttaiðkun al- mennt. Sagði hann að of mikiö væri um „stjörnudýrkun” en minna um það, að fjölmiðlar reyndu að vekja almennan áhuga á heilbrigðum lifsháttum og iðkun hinna ýmsu iþrótta- greina. Albert Guðmundsson tók til máls eftir að hann hafði veitt móttöku krossi heiðursfor- manns og hamri, forkunnar- fögrum og útskornum, sem hon- um ber að geyma meðan hon- um endist aldur. Sagði Albert að hamar þessi væri hvorki vopn né stjórntæki, heldur sam- einingartákn tþróttafélags Reykjavikur. Kvaðst hann vona að sér tækist að halda um ham- arinn með sömu reisn og forver- ar hans höfðu gert. Albert Guðmundsson hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir tR, og kom það fram i ræðum, sem fluttar voru við þetta tækifæri. Albert var m.a. formaður félagsins á miklum umbrota og athafnatimum, og sagði hann i ræðu sinni, að ekk- ert væri eins erfitt og aö taka viö formennsku i félagi eftir mjög mikið uppgangstimabil undir stjórn dugmikils formanns. Atti Albert þar við Jakob Hafstein, en hann var einmitt formaður tR næst á undan Albert. Meðal þeirra sem fluttu ræöur var Jakob Hafstein. Hann sagði, það væri með félög rétt eins og fjölskyldur, að þau ættu sina hátiðisdaga, sem gnæfðu upp úr hversdagsleikanum. „Þessi 17. júni er einn af stóru dögunum okkar i 1R.” Hann vék nokkrum orðum að nýkjörnum heiðursformanni og Hvorki vopn né stjórntæki, heldur sameiningartákn heiðursfélaga, og sagði, að það væri gott hverju félagi að eiga sterk og góð akkeri, það væru þeir Magnús og Albert báðir, og ekki minnst fyrir þá sök, að þeir ættu báðir góðar og fallegar konur. —BJ Ekki bara þjóðhátíðardagur — heldur líka stórhátíð hjá ÍR Bráðabirgðatölur um afla fiskiskipaflotans fyrstu 5 mánuði ársins: Áfengisnotkun bönnuð á svæðinu í sumar Laugarvatn nýtur sivaxandi vinsælda sem feröamannasUa'ður og á hverju sumri leggur leið sina þangað fjöldi ferðamanna. t sumar verður sem undan- farin ár opið tjald- og hjólhýsa- svæði fyrir almenning á Laugarvatni. Svæðið var opnað 10. júni siðastliðinn og verður opið fram eftir sumri. Lögð verður á það rik áherzla i sumar að koma i veg vyrir ölv- un og meðferð áfengis á sumar- dvalarsvæðunum, en þvi miður hefur áfengisnotkun á sumar- dvalarsvæðunum oft spillt ánægju þeirra sem njóta vilja dvalar og næðis i fögru um- hverfi. 1 Tjaldmiðstöðinni að Laugar- vatni er til sölu hvers kyns feröamannavarningur og ágæt snyrtiaðstaða er á staðnum. —AB Heildarfiskaflinn um 40% meiri en á sama tíma í fyrra — aukning loðnuaflans á mestan þátt í heildaraflaaukningunni Fjskifélag Islands hefur íátio frá ser fara bráöa- birgðatölur um heiidarafla íslenzkra fiskiskipa fyrstu fimm mánuði þessa árs ásamt samanburðartölum frá sama tíma í fyrra. I þessum tölum kemur fram að heildaraflinn mánuðina ianúar/maí 1977 var um 806.281 lest en var á sama tima i fyrra 569.380 lestir. Aætlaður botnfiskafli fyrstu fimm mánuði þessa árs er um 241.995 lestir. Þar af er bátaafli 141.423 lestir en togaraafli 98.572 lestir. Rúmlega helmingur botn- fiskaflans barst á land á Súð- Vesturlandi, á svæðinu frá Vest- mannaeyjum til S'tykkishólms. A sama tima i fyrra var heildarbotntiskaflinn heldur minni eða 224.400 lestir. Loðnuaflinn fyrstu fimm mán- uði ársins varð mun meiri á siö- asta ári. t ár hljóða bráðabirgða- tölur upp á 548.862 lestir, en á sama tima i fyrra var loðnuaflinn 338.623 lestir. Rækjuafli fyrstu fimm mánuði ársins var rúmar 4000 lestir og humaraflinn um 630 lestir og er það svipaður afli og á sama tima i fyrra. Hörpudisksaflinn hefur ná- lega tvöfaldazt og er nú rúmar 1100 lestir. Þá veiddust á umræddu timabili rúmar 5000 lestir af kolmunna en slikum veiðum var ekki til að dreifa á sama tima i fyrra. Annar afli en hér hefur verið getið, einkum spæirlingur, jókst til muna frá ár- inu i fyrra og er nú um 4000 lestir. Svo sem sjá má af þessum töl- um er það aukning loðnuaflans sem á mestan þátt i heildarafla- aukningu frá þvi i fyrra. ES Utivistarsvæðið á Laugarvatni opnað: alþýðu blaðið heyrtT SÉÐ 0G HLERAÐ Lesiö: t Vestmannaeyjablað- inu Brautinni, þar sem f jallað er um seiðkonu eina, sem leit á Kröflusvæöiö meö blessun Gunnars Thoroddsens, iðnaðarráðherra: „Þetta rifj- aðist upp fyrir mér á sjómannadaginn, er ég var að fylgjast meö kappróðrínum Friðarhöfn. Og mér dattt svona i hug hvort Matthias Bjarnason, sjávarútvegs- ráðherra, tæki nú eitthvað svipað upp eftir Gunnari og fengi hingað einhverja útlenda galdrakerlingu á kústskafti, sem færi gandreiö yfir fiski- miöin okkar og reyndi að finna út hvaö orðið hefði af öllum þorskinum. Þetta kæmi manni ekki á óvart, þegar tillit er tekið til þess hvaða álit ráð- herrann hefur á fiskifræöing- um okkar og þeirra „gömlu” aðferðum.” Séð: 1 Ægi, að i Noregi hafi áhugi manna á fiskeldi I sjó aukizt mjög veruléga. I fyrra voru framleidd 4000 tonn af laxi og regnbogasilungi hjá 200 sjóeldisstöðvum. Af þeim 2000 tonnum, sem framleidd voru af laxi, fóru 10 tonn á markað i Noregi. V- Frétt: Að mikill urgur sé i mörgum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins vegna skrifa Morgunblaðsins að und- anförnu um ýmis mál, og þá einkum byggðamál. Eins og greinilega hefur komiö fram eru þingmenn dreifbýlisins ó- ánægðir með skrif blaðsins, þar sem ákveðin afstaða hefur verið tekin um hlut Reykja- vikur i byggðamálum og hann talinn of litill. Þórarinn Þórar- insson Timaritsjóri hefur hins vegar túlkað þetta svo, að þarna hafi verið sett á svið á- greiningsmál, þar sem báöir aðilar geti unað glaðir við sitt. ■¥ Tekið eftir: Að á fundi félags- málaráðs Reykjavikurborgar fyrir skömmu var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Guð- mundi Magnússyni, fulltrúa Alþýðuflokksins: „Félags- málaráð samþykkti aö taka til umræðu á næsta fundi sinum eiturlyf jamál. Tilgangur slikrarumræðu skal m.a. vera sá að kanna með hvaða hætti Reykjavikurborg geti oröiö að liði i baráttunni gegn eitur- lyfjaneyzlu. Ráðið felur for- manni og félagsmálastjóra aö undirbúa slika umræðu”.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.