Alþýðublaðið - 20.07.1977, Síða 7
ss&r Miðvikudagur 20. júlí 1977
7
Ameðansamningar stóðu yfir
i vor, um kaup og kjör verka-
lýðsins, var i Rikisútvarpinu
þulin saga eftir Jón Rafnsson,
sem nefndist Vor i verum. Saga
þessi átti vist aö herða og hvetja
fólkið i baráttunni, en þetta voru
minningar höfundar frá glæsi-
dögum hans i verkalýðshreyf-
ingunni.
Ekkidetturmér ihug að væna
Jón Rafnsson um að hann hafi
ekki viljað alþýöunni vel, þvi aö
ég hef ekki þekkt neinn innan
verkalýðsstéttarinnar, þangað
kominn með þeim ásetningi að
vinna hreyfingunni tjón, þó
ýmsum hafi orðiö þaö á að miða
störf sin við óæskilegar hreyf-
ingar. í þvi rasaði Jón um ráð
fram. 011 sú vinna, sem hann
lagði i þetta brölt sitt, hefur að-
eins orðið til þess að sundra
verkalýðshreyfingunni, sér-
staklega þó á pólitiska sviðinu,
þar sem hvert orð og verk hefur
verið eftiröpun úr bolsevikka-
byltingunni i Rússlandi. Hve
mikið tjón islenzk verkalýðs-
hreyfing er búin að þola fyrir
allt þetta bolsevikkabrölt er
ómælt ennþá.
Einn, aðeins einn, saman-
burður skal gerður á verka-
mannalaunum hér á landi og á
Norðurlöndunum. Sá saman-
burður er okkur mjög i óhag. A
Norðurlöndunum hafa
kommúnistar aldrei náð að
ónjíta framþróun jafnaðarstefn-
unnar. Hreyfingin þroskaðist
þar stig af stigi, meðan
kommúnistar hér á landi öskr-
uðu i kór, þegar jafnaðarmenn
voru að koma fram umbótamál-
um, kák kratanna, kák krat-
anna!
Kommar ætluðu að færa fólk-
inu öll heimsins gæði með
snöggri byltingu. Of margir aul-
ar trúðu þessari kenningu.
Meira að segja menn úr innsta
hring jafnaðarstefnunnar. En
þeir voru ekki allir lengi I Para-
dis, lubbarnir sátu eftir.
I lýðfrjálsu landi mega menn
gera eins og þeir vilja. Hefðu
þessir kommar verið Rússar og
búiö austur þar, og komið eins
þvert á þjóðskipulag sælurikis-
ins, eins og þeir reyndu hér,
hefðu byltingarguðirnir i
Moskvu tafarlaust gefið þeim
svefnlyf úr blýi og þurrkað nöfn
þeirra útaf spjöldum sögunnar.
í allri þessari þvælu sem um-
getin bók hefur að geyma, er
óbotnandi mannfyrirlitning,
sem allsstaðar gægist fram, til
allra sem við var að glima. I
skjóli þess er einhliöa sagt frá
þvi, að þeir, sem lakast voru
leiknir, eru margir dánir og
aðrir gamlir orönir. Fjöldi þess-
ara manna, jafnt þeirsem látnir
eru og þeir sem enn eru á lifi,
unnu mun meira fyrir fólkið i
landinu, heldur en nokkur
kommúnisti hefur gert, enda
var þeirra lifsskoðun sú ein að
hrifsa völdin meðáflogum: lýð-
ræðisleiðina töldu þeir ekki nógu
góða, hún gat klikkað. Þó þeir
þykistnú elska vestrænt lýðræði
og jafnvel vera orðnir elskulegir
jafnaðarmenn, er þá sllkt ekki
vörufölsun?
1 bók sinni, Vor i verum, drep-
ur Jón Rafnsson á hinn svo-
nefnda kolaslag i Vestmanna-
eyjum 1926.Þartelur hann að sú
deila hafi unnizt fyrir atbeina
hans sjálfs, Hauks Björnssonar
og annarra, sem búnir voru að
taka trú. Ekki skal gert litið úr
liðsemd þeirra trúuðu þó sumir
ónefndir hefðu sést uppi i
Garnarsundi þegar tilátakanna
kom. Þaðan sést vel yfir til
Edinborgarbryggju, en þannig
menn eru viða til.
Eirikur ögmundsson i
Dvergasteini i Vestmannaeyj-
um, var brautryöjandi aö stofn-
un fyrsta verkalýðsfélagsins i
Eyjum. Arið 1959 átti frétta-
maður Alþýöublaösins við-
tal við Eirik. Hann var þá
orðinn 75 ára gamall, en stál-
hraustur og enn i fullu starfi.
Viötal þetta, sem birtist i
Alþýðublaðinu, er til i handriti,
og segir Eirikur þar frá áður-
nefndum kolaslag og afdrifum
- sinum i Verkamannafélaginu
Drifanda. Til glöggvunar á
frásögn Jóns Rafnssonar f bók
>sinni, læt ég viötaliö við Eirik
fylgja þessum linum. Það talar
sá hreinskipti maður beint út.
Til viðbótar þvi hjá Eiriki, er
hann segir frá brottrekstri sin-
um úr Verkamannafélaginu
Drifanda, skalnefntað fleirien
hann voru reknir úr félaginu án
saka, svo sem þeir Guðlaugur
Hansson, Guðmundur Sigurðs-
son, sem báðir eru dánir núna
og Guðmundur Helgason, sem
nú er orðinn 93 ára, en fylgist
enn vel með verkalýðsmálum.
Skyldi honum ekki hafa þótt
gleðilegt að heyra blessunar-
orðin frá fyrrverandi félaga úr
Drifanda, Jóni Rafnssyni?
HérlátumviðEirik segja frá:
„Þar sé ég drauma mina ræt-
ast....”
Samtal við Eirik ögmundsson,
fulltrúa verkamanna 1 fyrstu
bæjarstjórn i Eyjum.
Eirikur ögmundsson verka-
maður, sem lengi stóð I fylk-
ingarbrjósti i kjarabaráttu
verkalýðsins i Vestmannaeyj-
um, er einn af fjórum mönnum,
sem enn eru á lifi af þeim, sem
kosnir voru i fyrstu bæjarstjórn
kaupstaðarins fyrir réttum f jör-
tiu árum.
Fréttamaöur Alþýðublaðsins
hefur átt tal við Eirik og innt
hann eftir endurminningum frá
fyrstu baráttudögum i Eyjum,
sem voru á margan hátt" sögu-
legir.
Eirikur er 75 ára gamall,
fæddur i Svinhólum i Lóni, 4.
júni árið 1884, en missti föður
sinn á þriðja aldursári og var
eftir það alinn upp hjá Eiriki
Jónssyni i Hlið, en fór þaðan til
Papeyjar og var fermdur i Pap-
eyjarkirkju fjórtan ára gamall,
tveim árum fyrir aldamót.
— Jón Finnsson prestur að
Hofi i Alftafirði fermdi mig,
segir Eirikur. — Hann kom út
þrem dögum fyrir ferming-
una og sat yfir mér með gamla
kverið alla þessa þrjá
daga, og þetta var eina
fræðslan min. Papey var þá
önnur eða þriðja jörð aö dýr-
leikum á öllu Austurlandi,
æðarvarp og mörg önnur hlunn-
indi. Þar var tuttugu manns i
heimili og ég var tólfta barnið
fósturforeldra minna.
Eftir tveggja ára Papeyjar-
dvöl fór Eirikur til Fáskrúðs-
fjarðar og þaðan til Norðfjarð-
ar, en þritugur brá hann sér á
vertið i Eyjum og hefur verið
þar siðan.
Ég ætlaöi mér ekki að ilendast
hér, en ráði mig hingaö sem
beitingamann fyrir 160 krónur á
vertiðina: við beittum tveir
saman, en félagi minn dó og
mér leiddist, gerðist þvi að-
gerðamaður og fékk 300 krónur
á vertiðina, og svo að ég græddi
áskiptunum. En næsta ár fór ég
að búa, keypti bát og stundaði
sjó.
í millitiðinni kynntist Eirikur
konu sinni. Júliu Sigurðardótt-
ur, og eignuðust þau sex börn,
misstu son á striðsárunum, en
fimm eru á lifi.
Stofnaði Verkamanna-
félag.
Hverjar orsakir lágu til af-
skipta þinna af kjaramálum
launþega? Mérfannst dauftyfir
atvinnulifinu i Eyjum og kjör
verkamanna bág, miklu verri
en á Austfjöröum, engin atvinna
haustmánuðina, þangað til ver-
tið hófst, kaupiö var 25 aurar
um timann.jafn nætur sem daga
og 10-20 klukkustunda vinna al-
geng.
Ég fékk strax áhuga á kjara-
bótum og árið 1916 fór ég að
brölta I þessu, en þá var mikið
atvinnuleysi. Gísli Johnssen,
stærsti atvinnurekandi i Eyjum
ætlaði að byggja þerrireit fyrir
ofan Heiði og baö mig aö stjórna
verkinu. Með mér voru sextán
menn og höfðum við 35 aura um
timann, allir i reikningi hjá
Gisla og úttekt fyrir vinnuna.
Og ég setti upp skilyröi, neit-
aði að taka að mér verkstjórn-
ina nema við fengjum útborgað
i peningum og varð þetta að
samkomulagi. Fengum við nú
útborgað i hverri viku, og kaup-
ið var 3.50 á dag.
Um haustið tókum viö að tala
saman i alvöru. Þá var Dags-
brún komin og þaöan fengum
viö félagslög. Allur fjöldinn tók
vel I stofnunina, nema starfs-
menn Gisla Johnsen, sem ekki
þoröu aö vera með, nema tveir,
Guðlaugur Hansson og Nikulás i
Sædal. Við gengum i hvert ein-
asta hús I bænum, þar sem
verkamenn voru og smærri út-
gerðarmenn og i októbermánuði
árið 1917 var stofnað verka-
mannafélagið Drifandi með 300
félagsmönnum. Ég var kosinn
formaður og var það fyrstu árin
og siðar Guðlaugur Hansson.
Kolaverkfallið.
Kjarabaráttan var oft hörð á
þessum árum, en einna kunnast
mun kolaverkfallið árið 1926,
þegar Gisli Johnsen ætlaði i
skjóli atvinnuleysis að lækka
kaupið úr 1.30 i eina krónu um
timann. Verkfalliö var algert i
2-3 daga og kolaskipiö fékkst
ekki afgreitt, þvi að enginn vildi
vinna, nema nokkrir fastamenn
Gisla. Það stóð i vikuþrasi að
verjast lækkunartilrauninni og
láta ekki kúga sig — það var
markið. Nokkrir starfsmenn
byrjuðu að skipa upp einn
morgunn utan af höfn og einn
bill var tekinn i brúk, en ég
sagði við karlana á bryggjunni,
að þeir skyldu sjá til þess að
skrjóöurinn færi ekki aöra ferö-
ina. Þeir fóru upp á kolaKing og
veltu bilnum, en tóku bilstjóran
út áður. En þarna urðu nokkur
handalögmál. Kommúnistar
vildu þakka sér sigurinn, en
sannleikurinn er sá, að verkfall-
ið hvlldi mest á mér. En komm-
únistar notuöu hvert tækifæri i
klofningsstarfi sinu og komust
til valda i félaginu með Jón
Rafnsson sem helzta forsprakk-
ann. En sizt átti ég von á þvi, að
ég yröi rekinn úr félaginu, þvi
heföi ég siöast af öllu trúaö, en
tilkynningu fékk ég um það, rétt
eftir aö þeir náðu völdunum.
Þeir létu kné fylgja kviöi.
Ég var alltaf andvigur komm-
únistum og það er nú betur og að
sjá, hve sundrungaiðja þeirra
hefur orðið verkalýðnum dýr-
keypt.
Stofnun kaupfélags
Arið 1918 fékk ég verzlunar-
leyfi fyrir verkamannafélagið
og byrjaði strax að panta vörur
fyrir félagsmenn. Heldur
fengum við ódýrari vörur með
þessum hætti. —
Hveitisekkinn gat ég látið á 96
krónur, en hann kostaði hjá
Gisla 108 krónur og þetta var
töluverður munur. Ég lánaði
húspláss og vann baki brotnu
við að skipta vörum á milli
manna, eftir langan vinnudag á
kvöldin og oft um miðjar nætur
eftir bæjarstjórnarfundi. En
aldrei fékk ég eyrir fyrir. Ég
kunni ekki að taka laun, enda
kappsmál að hafa vöruna sem
ódýrasta. Tveim árum siöar var
stofnað kaupfélag og Isleifur
Högnason ráöinn kaupfélags-
stjóri. Félaginu mættu erfið-
leikar eftir 1930 og það fór á
hausinn, en margur haföi á
sinum tima hag af Drifanda-
verzluninni á meðan hún
starfaði.
Vísir að tryggingum
Viö stofnuðum strax sjúkr-
asjóð, segir Eirikur eftir nokkra
þögn, — og hver félagsmaður
borgaði i hann tvær krónur á
ári. Við héldum lika tombólur
og skemmtanir sjóðnum til
styrktar, — stundum gáfu
kaupmenn i hann og sjómenn
létu aflahlut. Mér var sjúkra-
sjóðurinn mikið áhugamál.
Hugmyndina fékk ég frá
Dönum, sem ég kynntist á
'Austurlandi, og í Eyjum byrjaði
ég strax að berjast fyrir sjóði,
sem átti að verða visir aö trygg-
ingum. Þótt hann væri ófull-
nægjandi, gátum við snemma
hjálpað þremur verkamönnum
til að fara á berklahælið. Þeir
fengu 600 krónur hver og tveir
þeirra komu aftur heilir heilsu,
en einn dó. Sjúkrasjóöurinn var
orðinn 14 þúsundir, þegar ég fór
frá félaginu, en kommúnist-
amir hugsuðu aldrei neitt um
hann og reikningar sáust aldrei.
Liklega hefur eitthvaö fariö i
húsbyggingu, en hitt hvarf ein-
hvernveginn. Mér fannst að
verkamenn væru of afskipta-
litlir um tryggingarmálin
þangað til Jón Baldvinsson og
Haraldur Guömundsson komu
til sögunnar. Ég fylgdist alltaf
með tryggingarmálunum. Þar
sá ég drauma mina rætast. A .
sviði félagsmanna hafa orðið
mestar framfarirnar, sérstak-
lega á aðstöðu gamalmenna og
einstæðra mæðra. Sjómanns-
ekkjan fékk 400 krónur i eitt
skipti fyriröll, en nú árlega með
börnum til 16 ára aldurs.
Vonandi fara tryggingarnar enn
batnandi, þannig að enginn
verði útundan i þjóðfélaginu.
Það er ekki vist, að þeim riku
liði nokkuð betur, en að enginn
þurfi að liða skort, þaö er fyrir
mestu.
í fyrstu bæjarstjórn
1 fyrstu bæjarstjórnar-
kosningunum komu fram sjö
listar og bauð verkamanna-
félagið fram einn þeirra. Jón
Hinriksson var i fyrsta sæti, en
ég i öðru, og kömumst við báðir
að. Helztu málefnin? Hafnar-
gerðin var aðalmálið fyrstu
árin, þegar ráðist var i
byggingu hafnargarðanna, en
ég beitti mer einna helzt fyrir
vegabótum, en áður voru hér
aðeins troðningar.
Fyrir fjörutiu árum voru i
Vestmannaeyjum 1399-1400
ibúar, en nú eru þeir i kringum
5000, og þetta hafa verið mikil
uppgangsár i Eyjum. Eirikur
ögmundsson býr enn með Júliu
sinni i húsi, sem byggt er árið
1883 úrhöggnum steini og hlaðið
á sama hátt og kirkjan og
Austurbúðin, eða Bryde-húsin
svokölluðu, og veggir hússins
eru 15 tommu þykkir. 1 þessu
húsi var fyrsti barnaskóli i
Vestmannaeyjum. Siðastliðin
sautján ár hefur Eirikur verið
verkstjóri hjá Helga Benedikts-
syni og gengur enn að störfum.
Ég velti þvi stundum fyrir
mér, segir hann, — hver
aðstöðumunur verkamanna er
nú og fyrir 40 árum. Unga fólkið
trúir okkur ekki, gömlu
körlunum, það kvartar um
vinnuþreytu og sér vankantana
viða, og krefst umbóta. Það er
gott að áfram stefni til nýrra
tima, en fólk fylgist ekki með
þvi, hvað gerðist i landinu
siðustu áratugina.
Fyrstu dagar baráttunnar
voru friðsælir innbyröis þangaö
til kommúnistar eyðilögðu allt
með klofningi og sundrungu, og
þess vegna er ihaldið ennþá
sterkt. Ég þekkti gamla ihaldið
og andinn lifir undir niðri, en
það hefur ekki bolmagn til að
standa gegn umbótunum. Fólk
myndi ekki liða það. Það hefur
lært svo mikið siðustu ára-
tugina.
Og svo finna menn alltaf eitt-
hvað nýtt upp eins og að éta
helv.... krabbann. Ég man, er
við böröum þennan djöful af
borðstokknum! Ég heyri það
kosti á annaö hundrað krónur
máitiðin á Hótel Borg, og þetta
er aflinn sem gefur mestar
tekjur. Það datt áreiðanlega
engum i hug, aö það væri verð-
mæti i þessum skolla, en ógeðs-
legur hlýtur aflinn að vera.
Ég var alltaf hlynntur
Alþýðuflokknum og fólk ætti
ekki að gleyma fyrstu átökun-
umi kjarabaráttunni fyrir
verkalýðinn.
Og þetta meina ég, sagði
Eirikurog hnykktiá, einn góður
fulltrúi þeirrar kynslóöar, sem
búið hefur niöjum sinum betri
afkomuskilyrði en hún átti sjálf
við að búa.
Ég kveð svo Jón Rafnsson og
næstum þakka honum fyrir
lesturinn samkvæmt gömlum
þjóðarsið. Þjóðin er ögn fróðari
um hve mikið hann lagði á sig i
útbreiðslustarfinu, þótt krankur
væri og teldist ekki geta unnið
nytjaátörf eftir að hann tók trú.
En um allt þetta staut og b..•'?ö
má segja að sé eins og hjá
manninum.semsvaf i húsi fyrir
vestan tjörn. Eldurinn kom upp
I húsinu um nótt, og til þess að
ná i slökkvilið hljóp maðurinn
niður á lögreglustöð (gömlu) og
þá framhjá slökkvistöðinni, sem
var i sinu gamla húsi viö
Tjarnargötuna. Einnig var simi
i næsta herbergi, sem þessi
sami maður hafði aögang að.
Svona getur mætustu mönnum
„feilaö” á öllum sviðum.
Einn, sem v ar i kolaslagnum.