Alþýðublaðið - 27.07.1977, Side 6
[SPflWW:
Miövikudagur 27. júlí 1977.
Fölur og magur kom
Protasio Montalvo, 77
ára gamall Spánverji, i
fyrsta sinn út i sólina i
38 ár! Hann faldi sig
þegar afturhaldið á
Spáni, með Franco i
fylkingarbroddi,
sigraði i borgarastyrj-
öldinni og hefur verið i
felum siðan.
G a m 1 i r v i n i r
Montalvos hafa komið
til hans siðustu daga og
þar hafa sannanlega
verið fagnaðarfundir
og mörg gleðitárin
runnið um kinnar.
— Það voru aðeins
4-5 fasistar i Cerce-
dilla, en þeir hafa ráðið
öllu allt fram á þennan
dag, segir sósialistinn
aldni i viðtali sem fram
fór i húskofanum þar
sem hann hefur dregið
fram lifið frá þvi hann
var 39 ára gamall.
— Ég þorði aldrei að
láta sjá mig utan dyra,
þar sem embættismenn
Francos voru alltaf á
höttunum eftir valda-
mönnum frá lýðveldis-
timanum.
Svo var það fyrir orð
sonar sins, sem er leið-
togi sósialista i bænun ,
sem gamli maðurinn
loks kom úr felustað
sinum sunnudag einn
af fúsum og frjálsum
viija. Hans eina ósk er
,,aðfá að lifa nokkur ár
i viðbót”.
Voru skotnir tii bana
— Þetta hefur verið langur
timi, en ekki svo slæmur, segir
gamli maðurinn, sem einu sinni
var borgarstjóri i Cercedilla,
þar sem hann situr i hópi gam-
alla baráttufélaga sinna.
Þegar Franco og fylgismenn
hans höfðu unnið striðiö á Spáni
hófst fjöldaslátrun á stjórnar-
andstæðingum og meðal annars
var einn náinn ættingi
Montalvos drepinn. Þá var það
sem borgarstjórinn ákvað að
hverfa niður i jörðina og láta
svo sem hann hefði látizt eöa
verð tekinn til fanga. Aðeins
kona hans, sem i dag er 73 ára,
bróðir og systir, þrjú börn hans
og eitt af sjö barnabörnum vissu
að hann var á lifi.
— Eg vissi alltaf að þú hlytir
að vera á lifi, en ekki hvar,
sagði Lorenzo Guiterrez, 69 ára
gömul kempa og fyrrum sam-
starfsmaður Montalvos. Guit-
errez fékk fyrst vitneskju um
endurkomu Montalvos á sögu-
sviðið i sjónvarpi.
Rétt viðbrögð
Guitierrez flýtti sér heim til
vinar sins og skalf af geðs-
hræringu. Hann faðmaði
Montalvo að sér og grét.
— Þetta er orðinn langur
timi, var allt sem hann gat
stunið upp.
— Þú varst alltaf sannur
vinur Lorenzo, og það er nokkuð
sem enginn getur tekið frá þér,
sagði Montalvo.
Fagnaðarfundir eftir 38 ára aðskilnað: Montalvo faðmar Lorenzo
Guitierrez, gamlan baráttumann, en hann frétti af Montaivo I sjón-
varpinu og hraðaði sér á fund hans.
FflLDI SIG FYRIR
FRANCO í 38 AR!
Annar aldinn félagi, Angel
Fernandez, sem sat i fangelsi i
10 ár eftir striðið sagði:
— Hann gerði það sem rétt
var. Hann var pislarvottur eins
og ég. Þegar ég yfirgaf fang-
elsið, misþyrmdu fasistarnir
mér hvað eftir annað. Hann
gerði rétt i þvi að halda sig i
felum.
Fyrstu þrjú árin hélt
Montalvo sig i jarðhýsi undir
heimili fjölskyldunnar, ásamt
kaninum og hænum fjöl-
skyldunnar. Fjölskyldan bjó
fyrir ofan hann og veitti honum
þá aðstoð sem mögulegt var.
Tvisvar út fyrir hússins
dyr
.........;; .
7' •'
mm y
:'ý. ':;
. V • ■#/>/_
■ ■
— Hérna faldi ég mig þegar við fengum heimsókn, segir Montaivo. Jóseffna kona hans reyndi svo að losna við gestina sem fyrst, án þess
þó að móðga þá’
Siðar hjálpuðust Montalvo og
sonur hans að við að útbúa veggi
i jarðhýsinu og hólfa það niður i
fjögur herbergi.
Aðeins tvisvar kom Montalvo
út úr húsinu og i bæði skiptin i
svartamyrkri um nótt. Þetta
var 1972 og 1975 og þá fór hann
tii að vitja læknis i Madrid, 55
kilómetra frá Cercedilla.
Þegar gestir komu i húsið,
faldi hann sig undir rúmi og
konan reyndi að afgreiða gest-
ina eins fljótt og við varð komið.
Allan timann, sem gamli
borgarstjórinn hefur verið i
felum, hefur hann lesið ósköpin
öll af bókum, timaritum og
blöðum og er ótrúlega vel inn i
þjóðfélagsmálum Spánar.
Einnig dundaði hann við að
mylja brauðmola handa
fuglunum og annaðist dóttur
sina sem hefur króniskan sjúk-
dóm.
Dauði Francos
breytti engu
Fyrir 10 árum gaf Franco út
tilkynningu um uppgjöf sakar til
handa öllum baráttumönnum
frá þvi i borgarastyrjöldinni.
Montalvo gerði ekkert með
hana og annaðist nýfætt barna-
barn sitt, Isabellu, sem nú er
einmitt 10 ára.
Hann sagöi að dauði Francos
einræðisseggs hafi heldur engu
breytt fyrir sig. Honum fannst
ástandið ekki nægilega tryggt
fyrr en eftir 15. júni, þegar
sósialistar fengu drjúgan byr i
seglin.