Alþýðublaðið - 27.07.1977, Page 9

Alþýðublaðið - 27.07.1977, Page 9
Miðvikudagur 27. iúlí 1977. ...TIL KlfOLDS 9 spékonpurinn Útvarp Miðvikudagur 27. júli 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregn- ir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.'15, (og forystugreinar dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgun- bæn kl. 7,50. Morgunstund barnannakl. 8.00: Vilborg Dag- bjartsdóttir les söguna „Nátt- pabbi” eftir Mariu Gripe (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Kirkjutónlist kl. 10.25: Magnificat i D-dúr eftir Johann Sebastian Bach: Elly Ammeling, Hanneke van Bork, Helen Watts, Werner Krenn og Tom Krause syngja ásamt háskólakórnum i Vin. Kammersveitin i Stuttgart leikur með: Karl Munchinger stjórnar. Morguntónleikar kl. 11.00: Filharmoniusveitin i Vin leikur „Anacreon” forleik eftir Cherubini: Karl Munchlinger stj./ Kammerhljómsveitin i Prag leikur án stjórnanda, Sin- fóniu i Es-dúr op. 41 eftir Antonin Refcha /Felix Schroeder leikur á pianó með kór og Sinfóniuhljómsveit Ber- linar, Fantasiu i c-moll op. 80 fyrir pianó, kór og hljómsveit eftir Beethoven: Helmut Koch stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til- kynningar. Við vinnuna: Tón- leikar. 14.30 Miðdegissagan: „Sólveig og Halldór” eftir Cesar Mar Valdimar Lárusson les (8). 15.00 Miðdegistónleikar Strengja- sveit Boston-Sinfóniuhljóm- sveitarinnar leikur Adagio fyrir strengjasveit op. 11 eftir Samúel Barber: Charles Munch stjórnar. Sinfóniu- hljómsveitin i Filadelfiu leikur Sinfóniu nr. 5 op. 47 eftir Sjostakovits j: Eugene Ormandy stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn Halldór Gunnars- son kynnir 17.30 Litli barnatiminn Guðrún Guðlaugsdóttir sér um timann. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðsjá Umsjónarmenn: Ólafur Jónsson og Silja Aðal- steinsdóttir. 20.00 Einsöngur: Kristinn Halls- son syngur islensk lög: Árni Kristjánsson leikur með á pianó. 20.20 Sumarvaka a. Njarðvikur- skriður Ármann Halldórsson, safnvörður á Egilsstöðum flyG ur fjórða hluta frásögu, sem hann skraði i samvinnu við Andrés bónda i Snotrunesi. b. Kvæði eftir Sólmund Sigurðsson höfundurinn les. c. Brotsjór og eldur Haraldur Gislason fyrrum formaður i Vestmannaeyjum segir frá sögulegum róðri. Kristján Jónsson les. d. Eddukórinn syngur islensk þjóðlög. 21.30 Ctvarpssagan: Ditta mannsbarn eftir Martin Ander- sen-Nexö Siðara bindi. Þýð- andinn, Einar Bragi les (13) 22.00 Fréttir 22.15. Veðurfregnir Kvöldsagan: „Sagan af San Michele” eftir Axel Munthe Þórarinn Guðna- son les (18) 22.40 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.25. Fréttir. Dagskrárlok. SEK EÐA SAKLAUS? eftir: D.Y.Cameron stúlkan. — Er það alvarlegt? — Við höfum ekkert frétt enn. — Almáttugur! Corinne settist við skrifborð Katy . — Ég verð að láta fjöl- skyldu hennar vita, og ég er hrædd um, að ég viti harla fátt um hana. Getur þú aðstoðað mig? Hún leit vongóö á ungu stúlk- una, sem hér Hazel Grey. — Ég held, að við vitum fæst nokkuð um hana. Við vorum einmitt að tala um hana áðan i kaffinu, þvi að hún hefur aldrei sagt okkur neitt um f jölskyldu sina... eða vini yfir- leitt. — Var hún kannski óvingjarn- leg? — Nei, en hún var ekki vin- gjarnleg heldur. Hazel varð undr- andi á svipinn. — Hún var þó vön að hlusta á amsið i mér. Corinne brosti og opnaði litlu skúffuna hægra megin, sem flest- ar ungu stúlkurnar voru vanar að nota fyrir alls konar dót. Meðan hún var að tala við Hazel i þeirri von, að eitthvað kæmi fram, sem varpað gæti ljósi á þessa fámæltu stúlku, tók hún upp úr skúffunni. Þar voru hvorki bréf, bréfspjöld né minnisbók. Þarna voru háls- töflur, kúlupenni, hreinsikrem, andlitskrem og skæri. — Hún hafði allt i röð og reglu. Þú ættir að líta i mina skúffu. Hazal varð að hamast til að opna hana, svó full var hún. Það voru heldur engar myndir á skrifborði Katy , ekkert var skrifað til minnis i minnisblokk- ina hennar, og hraðritunarblokk- in var yfirstrikuð til að sýna, að hún hefði lokið starfi sinu daginn áður... þar voru heldur engar krúsindúllur, hvorki ofan á né undir. — Er hún með aukakápu eða peysu i skápnum sinum? spurði Corinne. — Þá fer ég meö það til hennar. Þar gæfist gott tækifæri að fara til Blenheim Cottage. — Hún hefur skáp með Maggie... ég skal aðgæta það, sagði Hazel, en þegar hún kom til baka, sagði hún, að þar væri ekk- ert að finna, og bætti við: — Okk- ur langar að senda henni blóm. Viltu taka þau með þér? — Ja... Corinne hikaði. — Er ekki bezt að biða og senda þau, þegar... þegar hún kann betur að meta þau? — Jú, það er rétt. Við viljum barasenda henni eitthvað, svo að hún viti, að okkur tekur sárt það, sem fyrir kom. Corinne skildi, að enginn þekkti Katy vel, en að allir kunnu vel við hana. Hazel staðfesti það með þvi að segja: — Hún er sætog elsku- leg. Ekkert okkar þekkti hana vel, þvi að hún er svo ómann- blendin og róleg, en við kunnum samt mjög vel við hana. Hún er indæl. Hún er hvorki fölsk né ill- gjörn. Corinne endurtók, að það væri ekkert nýtt i fréttum, en að enn væri svo árla dags, að hana lang- aði i kaffisopa. Katy var vön að sitja alltaf við sama borðið I mat- artfmanum, en hún hvorki kom né fór með neinum þaðan. Nú fór Corinne að borðinu setti töskuna sina á það, áður en hún gekk að afgreiðslulúgunni. — Er of snemmt að biðja um kaffisopa? spurði hún. Það lá viö, að henni væri sagt, að svo væri, en þá kannaðist af- greiðslustúlkan við hana og rétti henni kaffið um leið og hún spurði um Katy: — Hvernig litur henni? Hvað gerðist? Það verður að segja, aö hún er bæði sæt og elskuleg. Hún gengur alltaf vel frá matarilátunum og þaö er aldrei blettur né hrukka á dúkn- um við sætið hennar. Corinne endurtók einu sinni enn, aö það væri ekkert i fréttum, en sagðist ætla á sjúkrahúsið seinna. — Hver á að hugsa um hana, þegar hún kemur út? spurði stúlkan. Corinne lét, sem hún skildi hvorki upp né niður og beið I of- væni eftir svarinu. — Hún á nefnilega engan að, sagði stúlkan. — Er þaðekki? Hvernig veiztu það? Ég var einmitt að vona, aö ég næti I einhvern... — Ég veit ekki, hvaðan ég hef það, en þetta er eitt af þvi, sem maður bara veit. Hinir tala um jólagjafir og afmælisdaga, um börn systkina sinna og svoleiðis, en ekkihún. Ef fólk minnistekki á neitt svoleiðis er það af þvi, að það er um ekkert að tala, sagöi stúlkan og hélt áfram aö vinna. Corinne skildi, að hún neyddist til að fara til Blenheim Cottage til að finna eitthvað persónulegra... kannski minnisbók. Katy hafði alltaf haldið vinnunni og einkalifi sinu aðskildu. Var það vegna þess, að til voru tvær Katy Light... ein á rannsóknarstöðinni og önnur i Peadetruin? Hana langaðiharla litið til að róta í dóti Katys, en hún sá, að hún neyddist til þess... nema hún fengi upplys- ingar á sjúkrahúsinu. Þaö birti dálitið yfir henni. Þar var taska Katy og hún hafði án efa verið opnuð og innihald skoðað. Meðan Corinne ók yfir heiðina til Pende- truin hugleiddi hún viðburði morgunsins og aðstöðu sina nú. Sólin skein i heiði, döggin var horfin, og haustlitina bar við.blá- an himininn. Þegar hún kom til þorpsins mundihúneftir Hazel, sem ætlaði að senda blóm og nam staðar hjá Stedhams. — Góðan daginn, hr. Stedham, ég ætlaði að fá blóm... Það var allt mögulegt selt hjá Stedhams, og yfir kössum með appelsinum og greip-ávöxtum voru vasar með krysantemóm- um. Þangað gekk Corinne. — Þær eru fallegar. Ég vil gjarn- an kaupa nokkrar til að fara með á spitalann. — Já, ég bjóst við þvi... það er slæmt, að maðurinn minn er ekki hér, þvi að hann hefði fariö og sótt fallegri. — Þessar bronslitu eru falleg- ar! Get ég fengið sex? — Eins og hún var sæt og elskuleg, sagði frú Stedham, meðan hún tók til blómin. — Og svo vingjarnleg. — Hver... Katy? Corinne var undrandi. Þetta var i fyrsta skipti, sem nokkur hafði sagt, að Katy væri vingjarnleg. — Já, hún verzlar hérna, og hún er alltaf svo vingjarnleg. Hún má alltaf vera að þvi að masa dá- litiö. Það var virkilega sorglegt, að þetta skildi koma fyrir, en þaö er sagt, að bflstjórinn hafi gert Tækni og vísindi Árið 1959 skrifuðu hin 12 lönd, sem stunda visindalegar rann- sóknir á Suðurskautslandinu undir samning þar sem heitið var að nota iandsvæðið einungis i friðsamlegum tilgangi. Visindalegar rannsoknir á land- inu undir ishettunni leiddu hins vegar i ljós að þar eru fólgin gifurleg auðæfi i formi jarðefna. Siðan hefur komið i Ijós að svæðið er þvi sem næst ómetan- legt með tilliti til litillar meng- unnar og óvenjulegra um- hverfisþátta. Sjórinn býr einnig yfir auðæfum og álita margir að þar sé eitt stærsta matarforðabúr jarðar- innar, — sem sé rækjumiöin sem eru úti fyrir ströndunum. r'Púff. Ég hélt \ að ég myndi ’ l aldrei verða \ 1 þakklátur ~j f y r i r baIIett kennslV ^una!!1111 T™

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.