Alþýðublaðið - 30.07.1977, Page 7

Alþýðublaðið - 30.07.1977, Page 7
7 Eyjólfur Sigurðsson skrifar ' Laugardagur 30. iúlí 1977. í HRINGIÐUNNI: UM KINDAKJÖT OG BRENNIVÍN ^.i . ■■ .— Það hefur orðiö aö samkomu- lagi með mér og ritstjóra Alþýðublaðsins aö ég skrifaði vikulegan þátt fyrst um sinn, hér iblaðið og fjallaöi þá um hitt og þetta sem mér dytti i hug, eða um það er yrði á vegi mln- um. Það sem sló mig mest i sið- ustu vikuifréttum fjölmiðla var tvennt. Annars vegar ákvörðun rikisstjórnarinnar að hækka brennivin og tóbak og hins veg- ar fréttin um það að við hefðum nú þegar á þessu ári greitt 1.2 milljarða i niöurgreiðslur á kindakjöti, sem flutt er til Noregs. Fyrir nokkrum dögum var ég meöal Norðmanna er hér voru til að kynna sér land og þjóð. Eittaf þvi sem þeir hældu mikið var islenzkur matur. Allsstaðar sem þeir fengu sér mat á veitingastöðum sögöu þeir að m a t u r i n n hefði verið afbragð. Sérstaklega hældu þeir kjötinu okkar. En þeim fannst maturinn dýr. Þegar ég reyndi að skýra það út fyrir þeim að ein af orsökum þess að t.d. kjöt væri svo dýrt til neytenda á Islandi væri það að við tækjum á okkur niður- greiðslur á kjöti sem flutt væri úr landi. Meðal annars væri það mikið kappsmál að við tækjum á okk- ur þessarniðurgreiðslur til þess að þeir fengju i sinu heimalandi að gæða sér á guðdómlegum af- urðum islenzku sauðkindar- innar, sem nú lifði á slðustu fjallagrösum islenzjcu afrétt- anna. Þessi pólitik var þeim óskiljanleg og þar sem ég hef aldrei skilið islenzka land- búnaðarpólitik aö þessu leyti þá vafðist mér tunga um tönn. En þeir menn munu vera til á Islandi sem telja sig geta sýnt fram á aðþað sé okkar hagur að framleiða, sem mest af kjötaf- urðum, með ofbeit á landiö, eyða siðar milljónum til upp- ræktar vegna ofbeitar innflutn- ingi á fóðurbæti og áburði fyrir dýrmætan gjaldeyri, til þess að senda svo þessa kjötframleiðslu úr landi með 407 kr. styrk á hvert kiló. Þetta er svolitið likt þessu með gUrkurnar og tómatana, þegar maður kaupir i sömu verzluninni kg. af tómötum fyrir 300 kr. og dagblað sem segir manni að verið sé aö aka bilförmum af tómötum á haug- ana vegna þess að enginn vill éta þá. Þessar 1200 milljónir sem bú- ið er að nota I niðurgreiðslu á kjöti i frændur okkar I Noregi hefðu betur verið notaðar i eitt- hvað annnað, næg er þörfin. Norðmenn eru nú i dag rikasta þjóö veraldar og þurfa ekki á okkur að halda til aö auðvelda þeim kjötkaup. Við heföum t.d. getað notaö þessar krónur i borleikinn viö Kröflu, eða fengið fleiri galdra- kerlingar frá henni Ameriku til þess að leiöbeina rikisstjórn vorri og Sólnes i þeirra leit að gufunni sem virðist hafa gufað upp. Og þá er það blessað brenni- vinið. Enn ein hækkunin. Bindindismenn segja að hækk- unin hafi ekki verið næg, það sé aldrei of hátt verð á brennivini og tóbaki. Ég ætla nú ekki að blanda mér I þær rökræður, hvort hækkun á brennivini er leiðin til að minnka drykkju- skap, aðeins varpa fram þeirri spurningu, hefur það nokkurn tima gerstá undanförnum árum aö dregið hafi úr neyzlu þessara veiga þegar verö þeirra hefur hækkað, nema ef vera skildi fyrstu vikurnar á eftir? Hitt má svo lika hugleiöa, á neyzla áfengra drykkja aö vera einkaréttur þeirra riku, eru þeir sem minna hafa liklegri til að misnota frekar áfengi? Ég held að hvað snertir kaup á áfengi þá sé það nú reynslan aö þeir sem ekki telja sig geta veriö án þess aö meira eða minna leyti þeir spari nú eitthvað annað viö sig eða sina, til aö geta haldiö áfram að kaupa sitt brennivin. Um þessa siöustu hækkun og reyndar flestar þær sem á und- an eru gengnar er þaö að segja, að það er tómur rikiskassi sem gerir kröfur um meira fé og þess vegna erþessi hækkun nú á komin. Það er t.d. nokkuö furðuleg hringrás I sambandi við rikis- sjóð og tóbaksneyziu, að eftir að rikisfjölmiðlarnir höfðu i vetur haldið uppi áróðri gegn reyking- um með mjög góöum árangri, minnkað neyzlu á tóbaki i land- inu um 20 tonn þá var rikissjóöi stefnt I voða, þvi samkvæmt fjárhagsáætlun um tekjur rikis- sjóös af tóbakssölu þá stóöst sú áætlun ekki lengur og rikissjóð- ur þurfti að bæta sér upp þann tekjumissi, og það ætlar hann að gera með þvi að láta þá borga hærra verð sem ennþá reykja. En hvað um rikissjóð ef þeir hætta lika. Nú kann einhver að halda að ég sé reykingamaður og þess vegna sé ég óánægður yfir nýj- um álögum á mig i fomi hækk- unar á tóbaki, en svo er nú ekki, ég hef aldrei notað tóbak. Engu að siður sé ég ekki hvaöa leyfi við höfum til þess að leggja þá i einelti sem nota tóbak, allra slzt vegna þess að tóbak er tekjulind rikissjóðs, og svo er það nú þannig að við teljum okkur vera frjálsa menn og eigum ekki að þvinga menn til að hætta að reykja, það verður hver og einn að ákveða fyrir sig. En við get- um haldið uppi og eigum að halda uppi fræðslu fyrir æskuna um skaðsemi tóbaks og áfengis, þó svo aö þaö kunni aö koma unga fólkinu okkar spánskt fyrir s jónir aö þaö er rikiö sjálft sem stundar þá iöju að flytja þessa vimugjafa inn i landið. Eyjólfur Sigurðsson —mmmmmmmm—^mmmmmmm* SIGURÐUR DRAUMLAND: Núeru liðnir nokkrir áratugir siðan undirritaður gerði sér leik að þvi, nokkrum sinnum hér, Norðanlands, að skrifa ritdóma um ritdóma. Þótti það furðulegt tiltæki. Nú finnst mér það vera nokkuð skylt, að skrifa einskon- ar ritdóm um leiðara i einu af dagblöðum höfuðstaðarins. Og mætti eflaust þykja standa nær höfundum leiðara hinna blað- anna. Nokkuð yrði það kostnað- arsamt fyrir hvem og einn, að stofna sérstakt blað, til þess að geta komið á framfæri athuga- semdum við forystugreinar i öðrum blöðum landsins, og þá helzt I leiðaraformi. Svo að heldur ætla ég, aö hætta mér inn á svæði Alþýöublaösins sjálfs, með ofurlitla athugasemd útaf leiðara þess um prestastefnuna ogbreyttviðhorf, sem birtist 19. þ.m. Það vill nú svo til, að ég var þarna allvel hagvanur á ti'mum Hannesar á horninu og annarra ágætra manna og man ég ekki betur en ég færi stundum I dálk- ana hjá Hannesi, með meining- ar sem gátu talizt olnbogaskot, jafnvel i einhver skrif þáver- andi Alþýðuflokksleiðtoga. Þó mun þetta hafa veriö meinlaus- lega orðaö, enda er jafnan svo bezt, að umræður hverjar sem eru, séu málefnalegar, og að i þeim sem minnst uppi af bjálk- um og flisum, — persónulegum skætingi og narti. Á þeim dög- um gekk mér illa aö fyrirgefa heilkveðnar og hálfkveðnar of- sóknir i garð spiritista og nafn- greindra miðla. Að visu komu ekki nöfn, I þvi sambandi, oft fram i blaðinu, en sáust þvi mið- ur, sem eðlilegt var, þess greinilegar i opinberum mál- skjölum við dómstóla. Að vel athuguðu máli, getur held ég enginn taliö að þær reki- stefnur hafi stafað af andúö, miklu fremur af skyldurækni. En þvi miöur var þá skyldu- ræknin ekki byggö á réttum skilningi, þekkingu og rann- sókn, sem alltaf þurfa að liggja til grundvallar meðferð svo djúptækra og viðfeömra mála, sem þar var um aö ræða. Svo komu ummæli I leiðara Alþýðublaðsins 19. júli s.l., að umræða um trúmál og kirkju hafi að undanförnu snúizt alltof mikið um ýmis túlkunar-atriði einstakra presta spiritisma og anpað af þvi tagi. Latum það nú vera, þó að leik- menn ýmsir og kennimenn vilji halda spiritisma utan við kirkj- una. Og er þess þó að minnast, að kirkju þjónaði lengi einn snjallasti prestlæröra spiritista og það með ágætum. Eflaust færu ekki margir i fötin hans nú, og þvilitið viðþá að sakast, sem kunna hvorki né geta talað um máliö af prédikunarstóli. Eins gott þá, að þeir minnist ekki á það. önnur skör færist hærra upp i bekkinn, þetta að ýmsir virðast amast við spiritisman- um sem háskólavisindum. Ein- mitt það, að taka visindagrein sem þessa, er réttasta aöferöin til að vandaöar rannsóknir eigi sér stað. Og eins og allir vita, sem kynnt hafa sér sögu spíri- tismans, þá er ekki sama hvern- ig að rannsóknum er staöið. Glögglega hefur verið séð fyrir leiðbeiningum á islenzku, — I ritgeröum eftir Arthur Conan Doyle og Einar H. Kvaran. Einhvern veginn virðist mér, aö ábendingin i umræddum leiö- ara.um að ræður hafi snúizt um túlkunaratriði einstakra presta, sé i þeim anda, að litiis sé nú leitað og langt yfir skammt, með aö vera að deila um þvilikt smáræöi. Þarna er ég dálitið á öðru máli. Fyrst og fremst eru það ekki „einstakir prestar” sem I atiö eru gengnir, og að þvi er séð verður i mjög svo likum anda og Kirkjuritgreinin fræga: Tr.úin hrein — tilvera til dauöa. Hérerum allstórann hóp presta að ræða. Og hver er svo túlkunin? Aöur en þeirri spurn- ingu yrði leitast við að svara, er skylt aö spyrja annarar: Er ekki túlkun atriðai krikjukenn- ingum og kristindómskenning- um aðalmál hirðis og sauöa? Á túlkuninni byggjast áhrifin á þjóðfélögin, einstaklingana per- sónulega og samfélagslega. Einn af fremstu kennimönnum þessa lands hefur i beinu sam- tali við undirritaðan mælt svo, að guðfræðin væri einskis virðí, sem slík. Þar átti hann viö, að það væri kjarni Kristsboðskap- arins sem gilti. Jafnframt kvaðst hann ekki sjá annað en að nú heföi öllu verið kippt aft- urábak um margar aldir. Mega þeir lika gerst vita, sem starfað hafa við þjónustuna nógu lengi og aflað sér þekkingar. Eigi þarf heldur lengi að leita þeirr- ar orsakar er helzt stendur nú sem einkunn fyrir allri breyt- ingu innan kirkjunnar, þóttfag- urlega sé dansaö. Þaö er áöur- nefnd Kirkjuritsgrein. Ekki var nú Islenzkur al- menningur svo skyni skroppinn, að taka þessa grein alvarlega við fyrstu sýn. Einkanlega vakti spurningin um flenginguna gamansamlegan hlátur. Fólki fannst þetta vera reglulega fyndið. Annaðhvort væri, þótt Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.