Alþýðublaðið - 05.08.1977, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.08.1977, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 5. ágúst 1977 Spjallað við Francois Simonnet um esperanto, Víetnam o.fl. Það er skritin tilfinning að rölta um sali Há- skólans þessa dagana og kynnast þvi sérstæða „alþjóðaandrúmslofti” sem fylgir heimsþingi esperantista i Reykjavik. Undirritaður, sem að- eins ræður yfir lágmarksforða til tjáskipta i ensku og norsku, varð heldur smár innan um allra þjóða fólk, sem stóð á göngum i Árnagarði og Lögbergi og lét móðann mása á „alþjóðamáli” sinu, eins og það kallar gjarnan esperanto. Erindið á slóðir esperantista i gærmorgun var nákvæmlega það, að hitta að máli einhvern þing- fulltrúa til að spjalla við um málið, þingið og fleira. Og með góðri hjálp islenzkra starfsmanna tókst loks að hafa upp á einum, Francois Simonn- et frá Frakklandi. Hann er kennari og starfaði i Víetnam i 5 ár. Simonnet er maður störfum hlað- inn á ráðstefnunni og hjá honum tók einn fundur- inn við af öðrum i gær, þannig að viðtalið var tek- ið á hlaupum i fundarhléum og á milli funda. En þrátt fyrir nauman tima tókst að leggja fyrir hann fáeinar spurningar. Francois Simonnet „Esperanto er mitt annað móðurmár' Hér er hópur fólks af þinginu aö stfga upp f langferöabfla, sem fluttu þaö i skoöunarferöir um Suöurland. — Hvenær kemst þú fyrst I kynni við esperanto, Simonnet? — Það má segja að ég eigi tvö móðurmál, frönsku og esper- anto, þvi báðir foreldrar minir töluðu esperanto og málið var talað á heimilinu frá þvi ég man eftir mér. Orsakirnar fyrir þvi að esperanto var töluð svo mikið i minni fjölskyldu eru liklega þær, að móðir min var ekki Frakki og foreldrar minir gripu þá til esperantos til að standa jafnfætis á málasviðinu! — Hjálpaöi það á einhvern hátt í æsku aö geta talað reip- rennandi esperanto? — Já, vissulega var þetta mikil hjálp. Mér gekk til dæmis mun betur að komast inn i latinu og siðar ensku, þegar ég fór i skóla. Það hafa verið gerðar margar tilraunir sem sýna og sanna, að börn sem hafa innsýn i, eða kunna, esperanto, eru mun fyrri til að læra önnur tungumál. t öðru lagi var ég svo alltaf fær um að tala fyrirstöðulaust við útlendinga, annað hvort á esperanto eða öðrum málum. Siðar, þegar ég fór aö ferðast um heiminn hef ég alls staðar fundiö fólk, sem getur talað við mig og það var mikil reynsla fyrir mig 16—17 ára gamlan að feröastumEvrópu og geta talað við fólk á esperanto. Við sem tölum þetta mál þekkjum tæp- ast landamæri. — Er vitaö hve margir þaö eru i heiminum sem tala esper- anto? — Nei, við vitum það eitt með vissu að þeim fjölgar með ári hverju sem kunna esperanto. Það er auðvitað jafn erfitt að telja þá sem kunna esperanto og þá sem t.d. kunna frönsku eða itölsku. Það er einnig álitamál hvort telja eigi alla þá sem kunna hrafl i málinu, þá sem kunna það en nota sjaldan o.s.frv. Prófessor einn i Cólumbiu nefndi töluna 8 millj- ónir, en hún getur ekki verið byggð á traustum forsendum. Það eina sem ég get fullyrt er, að i heiminum eru mörg hundr- uð þúsund manns sem geta tal- iztgóðir esperantistar. Við segj- um hins vegar að esperanto sé mun mikilvægara alþjóða mál en t.d. kinverska, þrátt fyrir að hundruð milljóna tali hana. Esperanto-fólkið er dreift um alla jörðina og telst þvi land- fræðilega útbreitt mál. — Svo viö snúum málinu aö- eins að þinginu sjálfu: hvert er hlutverk heimsþinga esperant- ista I stórum dráttum? Upplifun að vera á þingum esperantista — Þing eins og þetta er haldið árlega, hið fyrsta var í Frakk- landi 1905. Þingið á Islandi er hiö 72. i röðinni og viö reynum að dreifa fundarstöðunum sem mest. 1 fyrra vorum við i Grikk- landi og á næsta ári verðum við i Búlgariu. Þessi þing eru aðal- samkomur esperantista á hverju ári og þar er m.a. talað um hvernig skipuleggja megi hreyfingu okkar betur, hvernig vinna megi nýtt land fyrir málið og styrkja böndin i okkar röð- um. A meðan á þingi stendur hittast svo alls konar hópar úr rööum okkar: læknar, visinda- menn, félagar trúflokka o.fl. og ræða sin mál. En það sem við fáum mest út úr þessu er það, að hitta fólk og kynnast innbyrðis. Fólki finnst ótrúleg upplifun að koma á svona þing i fyrsta sinn og það bókstaflega geislar af þvi hamingjan yfir þvi að geta talað frjálst og óhindrað við nærri þvi hvern mann sem það rekst á hér! — En þiö hafiö fleiri alþjóöleg þing og samkomur esperantista en sjálft alþjóöaþingið, er ekki' svo? — Jú, mikil ósköp. Ef ein- hverjirhafa á annað borð áhuga á þvi, þá geta þeir auðveldlega ferðast allt að þvi viðstöðulaust um heiminn allan ársins hring og verið sifellt á stórum og smá- um samkomum esperantistæ! Innan tiðar verður t.d. haidið i Póllandi þing kaþólskra esper- antista, einnig halda kristnir Þingfulltrúar notuöu fundarhléin m.a. til aö sleikja sólina. esperantistar sin þing. Þá hafa járnbrautarstarfsmenn, sem tala esperanto, með sér samtök og þeir halda þing. Svona mætti lengi telja. — Ef viö nú förum út f aöra sálma og spjöllum litillega um veru þina i Víetnam siðustu ár. Hvers vegna dvaldist þú I Viet- nam og hve lengi? Aldrei séð svo marga franska fána — Ég var sendur á vegum frönsku stjórnarinnar til Viet- nam árið 1971 til að starfa sem kennari i frönsku við kennara- háskólann i Saigon. Þetta starf mitt var liður I þvi að uppfylla samning um menningarsam- skipti Vietnams og Frakklands og ég var I Saigon á veturna, en i Evrópu I sumarleyfum. Siðustu árin,eða frá þvi um haustið 1974 til september 1976 var ég sam- fellt I landinu. — Þú hefur þá verið í Saigon þegar Þjóöfrelsisfylkingin vann lokasigurinn I aprillok 1975? — Já, það var mikið hörm- ungartimabil i borginni rétt fyr- ir og um það leyti sem sigurinn vannst. Fólk var mjög hrætt, það vissi ekki á hverju það mátti eiga von og siðustu dag- ana I april var algert stjórnleys- isástand i borginni. Þá hafði Saigonstjórnin raunar glatað völdunum, en andstæðingurinn ekki náð þeim, þannig að þar skapaðist millibilsástand. Ég sá fólk koma hlaupandi inn i Saig- on og hermenn stjórnarinnar tóku gjarnan af sér hjálma og einkennisbúninga, hentu byss- unum frá sér og leituðu skjóls i húsum hjá vinum eða ættingj- um. Meðfram vegunum voru stórir haugar af fötum og vopn- um, en eins einkennilegt og það nú var, þá snerti það enginn fyrstu dagana, þrátt fyrir að marga skorti t.d. föt. Það var ekki fyrr en siðar sem ég sá að fólk nappaði skóm og fötum úr hrúgunni, þetta er dæmi um hræðsluna. Þá er mér minnis- stætt, að dagana fyrir töku Saig- on blöktu frönsk flögg á ótal húsum i borginni. Þetta stafaði af þvi að fólk vissi um samband Norður-Vietnam og Frakklands og það hélt að frönsku fánarnir myndu vernda það. Ég hefi aldrei séð eins marga franska fána blakta I einu! — Já, það hefur auðvitað sitt- hvað breytzt. Opinber stefna stjórnvalda er sú, að senda fólk burt úr Saigon út i sveitir. Þetta hefur mælst illa fyrir hjá mörg- um og þykir mörgum sem enn erfiðara gangi að draga fram lífið i sveitinni en f Saigon sjálfri. Þá má nefna, að stjórnin hefur sent mjög margt fólk, sér- staklega fyrrum yfirmenn I her Saigon-stjórnarinnar, á endur- hæfingarbúðir, þar sem það lærir hugmyndafræði og fleira. Fólk hélt að það myndi aðeins vera á þessum búðum stuttan tima, 1 mánuð eða þviumlikt, en fiestir voru þar ennþá, þegar ég fór frá Vietnam i fyrra. Þá óx atvinnuleysi mikið i Saigon eftir valdatökuna og verðbólga óx hröðum skrefum. Það er þvi margt sem ýtt hefur undir að gera ástandiðerfitt og það hefur svo gert það að verkum að margir, sem studdu valdatöku kommúnista hafa snúið við þeim baki að einhverju leyti. En ég legg áherzlu á að þetta er að- eins mitt álit. — Hvað með útbreiöslu esper- antos i Vietnam? — Ég talaði esperanto við nokkra menn i Saigon og ég veit að i Suður-Vietnam er slangur af fólki sem getur talað málið, ef til vill 1-2 þús. manns i allt, sem tala esperanto fullum fet- um. Um norðurhlutann er erfið- ara að segja, en vitað er að þar eru til esperantistar og rit eru gefin þar út á málinu. Ég hefi þvi góða von um að hreyfing esperantista muni dafna og efl- ast I Vietnam.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.