Alþýðublaðið - 26.08.1977, Side 4
4
Föstudagur 26. ágúst 1977
alþýðu
■ðB
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Itekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arni Gunnarsson.
Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi
14306. Áskriftarsimi 14900. Prentun : Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1300 krónur á mánuði og 70 krónur i
lausasöiu.
HAFA NEYTENDUR
VERIÐ SNUÐAÐIR?
Undanfarna daga hef-
ur Alþýöublaðið rakið
stórt og mikið hagsmuna-
mál neytenda. í stuttu
máli virðist kjarninn vera
sá, að við verðútreikn-
inga vöru, sem háð er
verðlagsa’kvæðum,
verður að taka tillit til
margra þátta, svo sem
flutningsgjalda, vátrygg-
inga, tolla, vörugjalds og
skatta hvers konar. Hins
vegar hefur komið í Ijós
að í mörgum tilfellum er
flutningsgjald alls ekki
það sem upp er gefið.
Heldur er þvert á móti
gefinn afsláttur. Eitt
heildsölufyrirtæki sagði í
viðtali við Alþýðublaðið,
að allir fengju fimm pró-
sent afslátt.
Þessi afsláttur er hins
vegar ekki veittur þegar í
stað, heldur kemur hann
til endurborgunar eftir
árið. Þetta þýðir samt, að
þegar verð vöru til neyt-
andans, er reiknað út, er
gert ráð fyrir að fullt
flutningsgjald hafi verið
greitt. Síðan vefur þetta
upp á sig i verðútreikn-
ingum. Og sá sem borgar
brúsann er neytandinn.
Þegar um stórar og dýrar
einingar er að ræða, til
dæmis bifreiðar, getur
þetta numið umtalsverð-
um upphæðum.
í annan stað ber á það
að líta, að fimm prósent
afsláttur á farmgjöldum
er það sem allir fá .
Heimildarmenn hafa hins
vegar tjáð Alþýðublaðinu
að í sumum tilvikum sé
þessi af sláttur mun
hærri.
Kemur þar einnig
til hörð samkeppni skipa-
félaganna.
Alþýðublaðið leggur
áherzlu á það, að á þessu
kunna að vera einhverjar
skýringar, sem þá liggja
ekki í augum uppi. Hafi
innflytjendur eða em-
bættismenn frekari skýr-
ingar, þá mun Alþýðu-
blaðið vissulega greina
frá þeim.
En sé þetta svona, og
engar frekari skýringar
komi til, þá er hér alvar-
legt mál á ferðinni. Þá
hafa neytendur verið
snuðaðir um stórar fjár-
f úlgur. Þetta er mál fyrir
verðlagsstjóra, til þess að
taka föstum tökum. Þetta
væri mál fyrir virk neyt-
endasamtök. Bifreiðaeig-
endur hafa með sér
sterkustu neytendasam-
tök, sem fyrir hendi eru í
landinu, Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda. Alþýðu-
blaðinu er kunnugt um að
um helgina verður þar
stjórnarf undur til þess að
ræða þessi mál. Er vert
að hvetja samtökin til
þess að láta kanna þessi
mál til hlýtar.
Verðlagsákvæði í land-
inu kunna að vera vitlaus
og stundum beinlínis
skaðleg. En þetta er eru
þó lög, og lög á ekki að
brjóta. Ef vöruverð hefur
árum saman verið reikn-
að út á fölskum forsend-
um og neytendum gert að
greiða mismuninn, þá er
hér mikið alvörumál á
ferðinni. Neytendur
verða að fylgjast með
framvindu þessa máls.
—VG.
jjjj YMSUM ÁTTUIWI________
Ingvar „Svartagallsrausari”
Magnús Kjartansson, fyrrum
orkumálaráðherra, skrifar
kjarnyrta grein f Dagblaðið i
fyrradag og nefnir „Svarta-
gallsraus um Orkustofnun”.
Greinin er að mestu helguð al-
þingis- og Kröflunefndarmann-
inum Ingvari Gislasýni sem nú
um nokkurt skeiö hefur farið
hamförum i fjölmiðlum i þeim
tilgangi að sanna þjóöinni sak-
leysi Kröflunefndar i Kröflu-
hneykslinu. I þessari krossferð
sinni hefur Ingvar brugðið á það
ráð að kenna starfsmönnum
Orkustofnunar um æfintýra-
mennskuna sem átt hefur sér
stað i sambandi við virkjunar-
framkvæmdirnar.
Magnús Kjartansson rekur
ýmis ummæli Ingvar úr ófræg-
ingarpistlum þess siðarnefnda
og leitast við að svara þeim.
Ingvarlét þess getið i grein er
hann reit i Dagblaðið fyrir
skömmu að umræðurnar um
Kröflumálið nálguðust það að
vera hysteria. Þessu svarar
Magnús á þá leið að hitt myndi
honum þykja bera vott um sjúk-
dóm hjá þjóðinni ef málið væri
ekki rætt, þar sem um væri að
ræöa einhvern mestu afglöp á
sviði framkvæmda og fjármála
sem framkvæmd heföu verið
siðan stjórn þjóðmála var flutt
inn i landið.
Þá hnýtur Magnús um þau
ummæli Ingvars Gislasonar, að
það sem átt hafi sér stað á
Kröflusvæöinu sýni gleggst
hversu valt sé að treysta i
blindni á visindi og tækni. Ekki
var ljóst af skrifum Ingvars á
hverju hann hyggöi þá að skyn-
samlegast væri að byggja
ákvarðanir i jarðvisindamálum
úr þvi að visindi og tækni reynd-
ust svo haldlitil. Magnús veltir
þvi fyrir sér i grein sinni i Dag-
blaðinu hvort hann eigi ef tilvill
við seiðkonuna frægu sem einn
af ráðunautum Kröflunefndar
fékk hingað til lands i þeim til-
gangi að segja fyrir um fram-
vindu rnála i jarðskorpunni við
Kröflu.
Ingvar Gislason gat þess i
fyrrnefndri grein i Dagblaðinu
að Orkustofnun hafi lagt mönn-
um til rökin fyrir virkjunar-
framkvæmdum við Kröflu og
ekki mælt fram nein varnarðar-
orð i þvi sambandi. Magnús
Kjartansson upplýsir hins vegar
að þegar Kröfluvirkjun kom til
umræðu i hans ráðherratið hafi
forsvarsmenn Orkustofnunar
verið mjög varkárir i full-
yrðingum sinum um virkjunina
ogviljað binda hana við 15MW i
upphafi á meðan verið væri aö
afla reynslu og þekkingar og
hafi þeir lagt á það áherzlu að
þessi fyrsta stóra jarövarma-
virkjun Islendinga yrði að
heppnast vel.
Magnús getur þess siðan að
hann teljimestu sökina i Kröflu-
málinu hvila á herðum núver-
andi orkumálaráðherra. Gunn-
ari Thoroddsyni. Ráðvillt stjórn
hans hafi orðið þess valdandi
hvernig fór, en yfir allar hans
ákvarðanirhafilngvar Gislason
lagt blessun sina við afgreiðslu
þessara mála i þinginu.
Grein Magnúsar kemur inn á
ýmislegt fleira sem ekki gefst
rúm til að rekja hér, en er á all-
an hátt hið fróðlegasta.
Ingvar Gislason tók i einni
grein sinni upp hanzkann fyrir
Jóni Sólnes, Kröflunefndarfor-
manni. Og nú hlýtur boltinn að
ganga áfram. Ingvar svarar
fyrir Jón og þá hlýtur Ragnar
Arnalds Kröflunefndarmaður
og flokksformaður Magnúsar
Kjartanssonar að sjá sig knúinn
tilað svara fyrirlngvar. Gjörðu
svo vel Ragnar.
ES
Svartagallsraus
um Orkustofnun
íngvar Gíslason lögfræð-
ingur og alþingismaður hef-
ur að undanförnu haft uppi
harkalegar árásir á
Orkustofnun bæði í útvarpi og
blöðum í tilefni af þeim
hrikalegu mistökum sem orðið
hafa við fyrirhugaða Kröflu-
virkjun. Ég hef þekkt Ingvar
Gíslason í æði mörg ár, sem
upphafi og binda nærri 10
miljarða króna í virkjun, sem
ekki framleiðir neina orku,
jafngildi nær hálfrar miljónar
króna byrði á hverja fimm
manna fjölskyldu að jafnaði;
mér hefði þótt þjóðin alvarlega
sjúk ef hún hefði ekki brugðist
við slíkum ósköpum bæði með
rökum og tilfinningum.
og vísindamenn þar í landi hafa
getað sagt fyrir um eldgos á
sunium stöðum með nokkurra
daga fyrirvara. Slíkur tækja-
búnaður hefur einnig verið
notaður hérlendis um nokkurra
ára skeið, m.a. til þess að geta
varað við gosi I Kötlu með ein-
hverjum fyrirvara. Þá hefur
þessi tækjabúnaður verið á
Magniís Kjartansson
boði
síður 1
Orkusl
minnii
veituil
um
virkjii
Svo|
ars se
getað1
án þi|
Þettar
misskfl
stofna
kvæn
yfirstj
það v|
hæfa ;
ákvarl
kæmií
verðul
beturi
með
ákvörl
framkl