Alþýðublaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 17. september 1977
*
Unglingaheimilið í Kópavogi 5 ára
Árangur starfsins góður
en skortur á aðstöðu til eftirmeðferðar
Eins og skýrt var frá í
Alþýöublaöinu í gær eru
nú liðin fimm ár siöan
Unglingaheimili ríkisins í
Kópavogi hóf starfsemi
sina/ en það var stofnað í
september 1972. Á fundi
sem haldinn var með
fréttamönnum í þessu
tilefni voru starfsreglur
heimilisins kynntar,
fjallað um árangur starf-
seminnar o.fl. stofnun-
inni viðkomandi.
Kristján Sigurösson forstöðu-
maöur sagöi aö heimiliö heföi i
upphafi veriö rekiö sem lokuö
stofnun fyrir heimilislaus börn
og afbrigöilega unglinga, og
heföi á þeim tíma veriö mjög
brýnt aö koma á iaggirnar
stofnun sem tekiö gæti á móti
þeim, er oröiö heföu utangátta i
þjóöfélaginu. A árinu 1972 heföi
siöan veriö stofnaö heimili sem
ætlaö heföi veriö til lengri
dvalar fyrir þá unglinga sem
ættu viö erfiöleika aö stríða.
„Opið" heimili
bau fimm ár, sem heimiliö
hefur verið starfrækt i
núverandi mynd hefur þaö veriö
„opiö”. betta þýöir, aö þeir sem
þar dvelja geta gengið þar inn
og út aö vild aö degi til, meö þvi
fororöi aö þau biöji um leyfi.
Séu agareglur brotnar, er
viökomandi refsaö, og er refs-
ingin fólgin i skertum réttindum
og frelsi. bannig getur vist-
maöur þurft að dvelja innan
dyra i viku, og fær hann þá ekki
að fara út fyrir dyr heimilisins
nema i fylgd meö gæzlumanni.
auk þess leitast starfsfólk viö
aö ræöa alburöi sem fyrir hafa
komiö, á þann hátt aö krakk-
arnir læri af reynslunni.
Skólastarf
og námskynningar
Skólastarf er snar þáttur i
starfsemi heimilisins, enda hafa
unglingarnir sem þar hafa
dvalið, oftast verið doottnir út
úr eölilegri skólagöngu. Um
kennsluna sjá tveir kennarar,
auk annarra starfsmanna, og er
hún miöuö viö aö hafa skóla og
daglegt lif i sem nánustum
tengslum.
í þvi skyni hafa veriö farnar
reglulegar kynnisferöir i fyrir-
tæki og stofnanir, og krökk-
unum kynnt þaö sem þar fer
fram. Meö kennslunni á heim-
ilinu er stefnt aö þvi, aö ungling-
arnir ljúki áföngum sem grunn-
skólinn gerir ráö fyrir.
Vinnuskóli er einnig rekinn á
staönum, og sjá unglingarnir
m.a. um aö halda húsnæöinu
hreinu, þvo þvotta, og halda við
húsum og lóöum. Fyrir þetta
hafa þau fengið sömu laun og
greidd eru i unglingavinnu hjá
Reykjavikurborg. Helming
launanna fá krakkarnir aö
halda og nota til daglegra þarfa,
en hinn helminginn leggja þau
fyrirtil kaupa á fötum og öðrum
nauösynjum.
bá hafa þau stundaö sjóinn af
miklu kappi tvö sl. sumur, á bát
sem Sjávarútvegsráðuneytið.
hefur haft á leigu. Létu krakk-
arnir sem sátu fundinn meö
fréttamönnum mjög vel af
útgeröinni og a.m.k. einn
sagöist ætla á sjóinn fljótlega
þegar hann yfirgæfi heimiliö.
Viðkomandi gæzlumaöur sagöi
einnig, aö unglingarnir heföu
ótrúlega gott af þessu, og virtust
bau kunna aö meta aö þeim væri
treyst fyrir „alvörustarfi”.
Andinn gjörbreyttist þegar
komiö væri á sjóinn og krakk-
arnir kynntust betur, þegar þau
þyrftu aö vinna saman aö
ákveönum verkefnum.
Árangurinn sagöi hann þegar
vera farinn aö koma i ljós, þvi
einn piltanna heföi þarna fundiö
starf viö sitt hæfi og væri hann
búinn aö ráöa sig á linu i vetur.
Dregið úr
ríkisframlögum
Aöspuröur um fjármögnun
starfseminnar sagöi Kristján
Sigurösson forstöðumaöur hana
einkum borna uppi af framlagi
rikisins og greiöslu frá sveitar-
félögum. bessi hliö heföi ekki
veriö til vandræöa vegna fram-
laga sveitarfélaganna, en á hinn
bóginn væri alltaf veriö aö
draga úr framlagi rikisins til
stofnunarinnar.
Kvaöst hann hafa nokkrar
áhyggjur af þessari þróun mála,
en sagðist jafnframt vonast til
þess, aö ekki yröi saumaö svo
aö, aö þaö kæmi niöur á starf-
seminni.
Kristján kom einnig inn á
samskipti unglingaheimilisins
við fjölmiðla og kvaö hana
nokkuö góöa með undan-
tekningum þó. Benti hann á, aö
oft vildi brenna viö, aö ruglaö
væri saman heimilinu og
skammvistun. Hún væri til húsa
aö Kópavogsbraut 9 og notuö
sem þjónusta viö lögreglu. bar
væru vistaöir unglingar, sem
teknir væru úr umferö vegna
ölvunar og/eöa afbrota.
bessi misskilningur væri
e.t.v. skiljanlegur þar sem
starfsfólk ynni á báöum
stööunum, en engu aö siöur
óþægilegur fyrir unglinga-
heimiliö.
bannig lita herbergin lit.
Brýn nauösyn
á eftirmeðferð
Starfsfólk Unglingaheimilisins
kvaöst vilja leggja mikla
áherzlu á hversu mjög þyrfti aö
koma á laggirnar aöstööu til
eftirmeöferöar þ.e. aöstoöar viö
unglingana eftir dvöl eþirra á
heimilinu. Slikt væri ekki fyrir
hendi, enda heföi ekki veriö
veitt fé til skipulegrar aöstoöar.
Oft væri þaö svo, aö unglingar
þeir sem útskrifaðir væru,
leituöu aftur til heimilisins eftir
hjálp.Væriiþá leitazt viö aö sinna
þeim eftir beztu getu utan heim-
ilisins, enda ekki aöstaöa til aö
taka þá inn aftur. Alls heföu 4-5
unglingar þó verið teknir aftun, ■
en einnig heföi veriö auglýst
eftir heimilum, sém hlaupiö
gætu undir bagga.
Fjölmargir heföu hringt og
sýnt þannig áhuga sinn, en I
flestum tilfellum heföu
viökomandi ekki getað tekiö
unglinga inn á heimilin aö fullu
og öllu. bó færi einn ung-
linganna upp i Borgarfjörö til
dvalar þar, og væri þaö i fyrsta
skipti, sem vistmaður væri vist-
aöur á einkaheimili.
Góður árangur
Að lokum var Kristján
Sigurðsson forstööumaöur
spuröur um árangur af þessari
starfsemi. Kvaðst hann lltiö
vilja fjölyröa um þá hliö
málsins aö svo stöddu. Heimiliö
heföi aðeins veriö starfrækt um -
fimm ára skeiö auk þess sem
ekki heföu fariö fram neinar
kerfisbundnar athuganir á
afdrifum vistmanna.
A hinn bóginn kvaðst hann
ekki geta neitað þvi aö hann
væri nokkuö ánægöur meö þann
sjáanlega árangur sem náöst
heföi með þessari starfsemi, en
fólk þyrfti aö gera sér grein
fyrir, að þarna væri veriö aö
fást viö mikiö þjóöfélagslegt
vandamál, og þaö væri sú staö-
reynd sem ætiö þyrfti aö hafa i
huga.
JSS
Kristján Sigurðsson, forstöðumaður.
* .... —— .................... <
Texti: Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Myndir: Axel T. Ammendrup
...... ■!!■■■ III. ....