Alþýðublaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 12
r alþýóu- blaóið Ctgefandi Alþýöufiokkurinn Ritstjórn Alþýöublaösins er aö Síöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö Hverfisgötu 10, simi 14906 — Áskriftarsimi 14900. "N LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 / V Fjölbrautaskólinn í BreSdholti Nemendur í vetur 730 talsins Nemendur við Fjöl- brautaskólann i Breið- holti verða i vetur 730 talsins/ þar af 400nýnem- ar. Á menntaskólasviði verða 140 nemendur á fjórum námsbrautum/ á iðnf ræðslusviði 130 á þrem námsbrautum/ á viðskiptasviði verða 175 nemendur/ einnig á þrem námsbrautum og loks verða 280 nemendur á samfélags- og uppeldis- sviði/ en þar eru náms- brautir afls fimm talsins. Ofangreint kom m.a. fram í ræðu Guðmundar Sveinssonar skólameist- ara er hann hélt við setn- ingu skólans 12. sept. sl. Fastráðnir kennarar eru nú samtals 49 en auk þess starfa þar nokkrir stundakennarar. Enn fremur kom fram í ræðu skólameistara/ að í sumar hefur verið unnið að byggingu nýs skóla- húsnæðis, svokallaðrar D-álmu. Er það hús 105 fermetrar að grunnf leti á þrem hæöum, og er gert ráð fyrir að fyrsta hæðin verði tekin i notkun í haust. Á þeirri hæð eru 11 kennslustofur, en þrátt fyrir svo aukið kennslu- rými vegur það ekki á móti fjölgun nemenda. Það kennslurými sem þegar er í notkun er full- nýtt og sagði skólameist- ari að hinu ört vaxandi hverfi væri því brýn nauðsyn á því að fá aukið kennsluhúsnæði. — JSS Dagur dýranna á morgun — verður notaður til fjáröflunar fyrir dýraverndunarfélögin A morgun, sunnudaginn 18. september, er Dagur dýranna, og er hann aö þessu sinni helg- aður vilitu dýrunum á islandi. i tilkynningu frá Sambandi dýra- verndunarfélaga íslands um Dag dýranna, segir meöal ann- ars: „Ura allt land og I sjónum um- hverfis landið lifir urmull dýra - stórra og smárra. Dýr sem eru háþróuð og önnur sem eru lágþróuö. Okkur mönnunum hættir til að vanmeta það gildi sem þessi dýr hafa og þann rétt sem þau óumdeilanlega hafa til landsins. Við troðum meira og minna á þessum rétti, án um- hugsunar. Og þegar hags- munir manna og dýranna f landinu rekast á, — hver hefur þá sitt fram??? Við setum friöunarlög. Stund- um að því er virðist dálitið handahófskennd. Við fáum gifurlega verndartilfinningu gagnvart einni dýrategund fram yfir aðra og verndum hana þá með oddi og egg, en reynum að eyða og helst litrýma ann- arri, og erum þá ekki ætið vönd að meðulunum. Stundum alfriðum við ýmsar fuglategundir, eins og t.d. æðar- fuglinn og þá lokum við augun- um fyrir þvi að æðarkollur drukkna hundruðum saman i grásleppunetum sem lögð eru á grunnsævi. Við fóðrum svart- bakinn gegndarlaust á sorpi og fiskúrgangi með annarri hend- inni en viljum svo eitra fyrir hann með hinni. Og svona má lengi telja. Stjórn S.D.I. skorar á yfirvöld að taka upp nýja stefnu i þurrk- unaraðgeröum á mýrum og öðru votlendi, þannig að aldrei verði þurrkað upp landsvæði án þess að nákvæmar athuganir sérfræðinga á lifrikinu verði látnar ráða. Einnig skorar stjórn S.D.I. á yfirvöld að sorpiog fiskúrgangi verði eytt á annan hátt en nú er, þannig að fuglar komist alls ekki að honum. Þá mun náttúr- an sjálf sjá til þess að fjölgun þeirra helst i skefjúm.” Dagur dýranna er notaður til fjáröflunar fyrir dýravernd- unarfélögin og verður merki dagsins borið i hils til sölu á morgun. —hm Yngsta deildin er Eldhúsdeild. w ■ w # i luvjii ii ii íslensk framleiösla og frá Svíþjóö: Hinar frábæru STAR eldhúsinnréttingar. Svo og: eldhúsborö og stóla (stál eóa tré), heimilistæki hverskonar og innréttingar í baðherbergi. Gerum skipulagstillögur á staðnum. Greiðsluskilmálar okkar alltaf jafn hagstæðir. Eldhúsdeild /A A A A A A Jón Loftsson hf. 3 —1 __ :_J liJUO“U:o ,: T ni'iTílijria Hringbraut 121 Sími 10600

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.