Alþýðublaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 3
blaSuS*' Laugardagur 17. september 1977
3
EPAL h.f.
Verzlun með
nýju sniði
Nýlega var opnuð ný
verzlun hér i Reykjavik
og nefnist hún EPAL
hf. Verzlunin hefur á
boðstólnum Glugga-
tjaldaefni og áklæði
Kókós- og sisalteppi,
auk ýmissa húsgagna.
Verzlunm sem er til húsa að
Hrisateig 47, er rekin með þvi
sniði að viðskiptavinir geti
pantað eftir sýnishornum og
sótt siðan pöngunina innan
skamms tima. Einkum er lögð
áherzla á vörur úr náttúruleg-
um efnum og eru sum þeirra
sérstaklega eldvarin.
Eyjólfur Pálmason hús-
gagnaarkitekt, framkvæmda-
stjóri EPAL h.f. sýnir tveim
viðskiptavinum sýnishorn af
einu hinna mörgu gluggatjalda-
efna sem verzlunin hefur á boð-
stólnum. Alls er boðið upp á um
450 tegundir gluggatjaldaefna
og húsgagnaáklæða, auk hús-
gagna og teppa.
. '
Norræna húsið í dag:
Kvikmyndasýning
og fyrirlestur
Jan Martenson er hér á landi
til að kynnast islenzkum skáld-
um og rithöfundum og mun
hann kynna verk þeirra og
islenzkar bókmenntastefnur i
Sviþjóö.
—hm
í dag klukkan 15 verður
kvikmyndin // Tur i
natten" sýnd í Norræna
húsinu. Myndin er byggð
á sögu Leifs Panduro og
f jallar um tvo menn sem
hittast af tilviljun á
þjóðveginum milli Korsör
og Kaupmannahafnar,
þar sem bifreið annars
mannsins bilar. Hin
glannalega bilferð þeirra
þvert yfir Sjáland er hinn
ytri rammi, en milli
mannanna tveggja í biln-
um skapast mikil spenna,
þegar ökumaðurinn
^fhjúpai^^jllekkingarve^
farþega síns með
nærgöngulum spurning-
um, og kemst að lágkúru-
legu innræti hans.
Sagan hefur birzt i Lystræn-
ingjanum, i þýðingu Vernharð-
ar Linnets.
Klukkan 16 i dag heldur svo
sænski blaðamaðurinn og skáld-
ið Jan Martenson fyrirlestur á
sænsku, sem hann nefnir
„Svensk litteratur i dag”. Jan
Martenson er 33 ára að aldri,
atarfar sem blaðamaður og
bókmennagagnrýnandi við dag-
blaðið Arbetet i Malmö. Hann
hefur sent frá sér allmargar
ljóðabækur og nýtur mikilla
vinsælda i heimalandi sinu.
Fyrsta skáldsaga hans kemur á
markað i haust.
Kaffisala í
Kópaseli
Linonsklúbbur Kópavogs hef-
ur sina árlegu kaffisölu i Kópa-
seli — sumardvalarheimilinu i
Lækjarbotnum — á morgun,
sunnudaginn 18. september, frá
klukkan 14—18. Þá verður rétt-
að i Lögbergsrétt, en sú hefð
hefur myndazt að þann dag selji
Lionsmenn kaffi til styrktar
Minningarsjóði Brynjúlfs Dags-
sonar héraðslæknis. Or þeim
sjóði eru börn i Kópavogi styrkt
til dvalar i Kópaseli eða á
sveitaheimilum.
Lionsmenn i Kópavogi höfðu
forgöngu um byggingu Kópasels
i samráði við Kópavogskaup-
stað og eru nú byrjaðir á við-
byggingu við húsið, sem er orðið
of litið.
Lionsmenn ganga sjálfir um
beina að venju og munu reyna
að sjá til ^ð nóg verði af heitu
kaffi á könnunni til þess að hlýja
mönnum eftir réttarvafstrið og
ekki skorti heldur gómsætar
kökur.________________
Norræna félag-
ið í Kópavogi:
Skoðunar-
ferð um
Kópavogs-
land
Norræna félagið i Kópavogi
ásamt fleiri félögum, gangast
fyrir skoðunarferð um Kópa-
vogsland laugardaginn 17. sept.
Skoðaðir verða merkir staðir
innan Kópavogs undir leiðsögn
Adolfs J. Pedersen. Farið
verður frá Félagsheimilinu kl.
13.30, ekið um Kársnes, þaðan
að Þinghól, þá farið suður
Vifilsstaðaveg að Mariuhellum
um Heiðmörkina og að gömlum
hreppamörkum. Þvi næst að
Fólkvangi i Bláf jöllum, og siðan
að Kópaseli i Lækjarbotnum. A
heimleið verður farið fram hjá
Alfhól, sagt verður frá
Digranesjöröinni, Fifuhvammi,
Hnoðraholti og fl.
Ferðin tekur 3—4 klukku-
stundir. Vonandi nota Kópa-
vogsbúar sér þetta ágæta tæki-
færi til að kynnast næsta um-
hverfi.
Fjórir
Umsóknarfrestur um pró-
fessorsembætti jarðeðlisfræði
við verkfræöi- og raunvisinda-
deild Háskóla Islands, sem aug-
lýst var laust til umsóknar 15.
júlis.l.,rannút 1, september s.l.
Umsækjendur eru:
Dr. Guðmundur Pálmason,
dr. Leó Kristjánsson, Ragnar
Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur, og Sveinbjörn
Björnsson, eðlisfræöingur.
Við höfum veiðaifærin
og verkunarvörumar
Viö erum umboðsmenn fyrir:
Þorskanet frá:
MORISHITA FISHING NET LTD.
"Islandshringinn” og aörar plastvörur frá
A/S PANCO
Víra frá:
FIRTH CLEVELAND ROPES LTD.
Saltfiskþurrkunarsamstæöur frá
A/S RAUFOSS og
PYROFABRIKKEN
Slægingarvélar frá:
KRONBORG
Loönuflokkunarvélar og
rækjuvinnsluvélar í skip frá
KRONBORG
Fiskþvottavélar frá:
SKEIDES MEK. FABRIKKER A/S
Pökkunarvélar fyrir saltfisk frá
A/S MASKINTEKNIKK
F/V Kassaþvottavélar frá:
FREDRIKSONS
Bindivélar frá
SIGNODE
Umboössala fyrir:
HAMPIÐJUNA H.F
Innflytjendur á salti, striga og
öllum helstu útgeröarvörum.
SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA
Sjávarafuróadeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200