Alþýðublaðið - 29.09.1977, Blaðsíða 9
sssr Fimmtudagur 29. september 1977
*
F ramhaldssaga
Ást og oflæti
eftir: Ernst Klein
Þýðandi: Ingibjörg Jónsdóttir
— Gloria, Gloria! æpti hún.
Harold var tekinn fastur i
morgun.
19. kafli.
Sir Arthur Ryce lét færa Harold
inn til sin. — Harold, gamli vinur,
ég verö að léta það i ljós, sagði
hann, að mér kom aldrei til hugar
að þér hlypuð slikt gönuhlaup
konu vegna. Lögregluþjónninn
heldur þvi fram, að þú hafir elt
konu Ut til greifans og ruðst inn i
húsið á eftir henni.
— Ég get svarið, að það var
ekki eiginkona min. Ég minnist
þess ekki, að ég hafi á nokkurn
hátt gefið það i skyn, að ég héldi
einhvern telja þessa konu likjast
minni konu.
— Þá er þetta næstum útrætt,
Harold. Einni spurningu er þá
ósvarað, hvernig stendur þá á þvi
Útvarp
Fimmtudagur
29. september
7.00 MorgunútvarpVeðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.50. Morgunstund barnannakl.
8.00: Agústa Björnsdóttir lýkur
lestri sögunnar „Fuglanna
minna”eftirHalldór Pétursson
(7). Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Við sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson talar
öðru sinni við Kristján
Friðriksson iðnrekanda. Tón-
leikar kl. 10.40. Morguntónleik-
arkl. 11.00: Tou Ts’ong leikur á
pianó Krómatlska fantasiu og
fúgu i d-moll eftir Johann
Sebastian Bach / „Ars
Rediviva” tónlistarflokkurinn
leikur Kammertrió i C-dúr eftir
Georg Friedrich Hðndel /
Jacqueline du Pré og Stephen
Bishop leika Sónötu nr. 3 í A-
dúr fyrir selló og pianó op. 69
eftir Ludwig van Beethoven.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar.A frivaktinni.
Margrét Guðm undsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Svona
stór”eftir Ednu FerberSigurð-
ur Guðmundsson þýddi.
Þórhallur Sigurðsson les (3).
15.00 Miðdegistónieikar Anne
Shasby og Richard McMahon
leika Sinfóniska dansa fyrir tvö
pianó op. 45 eftir Sergej
Rakhmaninoff. Janet Baker
syngur „sjávarmyndir”,
tónverk fyrir alt-rödd og hljóm-
sveit eftir Edward Elgar.
Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leikur með, Sir John Barbirolli
stjórnar.
17.30 Lagið mitt Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðuregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar
19.35 Daglegt mál Gisli Jónsson
flytur þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar Guðjón Jóns-
son frá Fagurhólsmýri talar
um öræfajökul, fyrra erindi.
20.05 Einsöngur i útvarpssal:
Sigriður Elia Magnúsdóttir
syngur lög eftir Ingólf Sveins-
son, Mariu Brynjólfsdóttur,
Einar Markan og Sigfús
Halldórsson, Ölafur Vignir
Albertsson leikur á pianó.
20.25 Leikrit: „Blómguð kirsu-
berjagrein” eftir Friedrich
FeldÞýðandi: Efemia Waage.
Leikstjóri: GIsli Halldórsson.
Persónur og leikendur: Yang
Kung San ... Gisli Alfreösson,
Yu Tang ... Þorsteinn ö.
Stephensen, Tscheng ... Bald-
vin Halldórsson, Hwang Ti ...
Valur Gislason, Ying ... Anna
Kristin Arngrimsdóttir, Peng
... Jón Hjartarson, Kuan ...
Guðmundur Pálsson, Hermenn
... Hákon Waage og Randver
Þorláksson,
21.30 Sinfóniuhijómsveit Isiands
leikur f útvarpssal Einleikari:
Rut Ingólfsdóttir. Stjórnandi:
Páll P. Pálsson. Skozk fantasia
fyrir fiðlu og hljómsveit op. 46
eftir Max Bruch.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Dægradvöl” eftir Benedikt
GröndaiFlosi Ólafsson les (14).
22.40 Kvöldtónleikar: Frá finnska
útvarpinuSinfónia nr. 4 og „En
Saga” eftir Jean Sibelius.
Sinfóniuhljómsveit útvarpsins
leikur. Stjórnandi: Okko
Kamu.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
^Við þöifhtimst
Ef þú vilt aðstoða okkur hafðu þá samband við okkur í síma 12802 ...
Ef þú viit gerast stofnfélagi þá sendu þennan miða til SAA - Frakka-
stíg 14B - Reykjavik, eða hringdu í sima 12802 og við komum heim
til þin föstudaginn 30. sept.
QdtAjtA SAMTÓK ÁHUGAFÓLKS
E^LL^LD UM ÁFENGISVANDAMÁUÐ
SKRIFSTOfX: FRAKKASTÍG 14B - SiMI 12802
að ég fann hér skammbyssu
merkta G.B.?
— Heldurðu að þú hafir skotið
manninn?
Já.
— Ég held við þurfum ekki
meira að tala við hann. Hann hélt
aðþetta væri konan sin, en fanga-
mark hennar er ekki siður á
byssunni, heldur Grace, þvi
hertogafrúin heitir Gloria. Senni-
lega gaf faðir þeirra báðum stúlk-
unum byssur, en lávarðurinn
heldur að lafðin hafi skotið greif-
ann.
Atvikin sýndu, að hann hafði
rétt að mæla.
Siðar um kvöldið, þegar Joe
Perkins, bilstjóri hins myrta
manns, gekk Daviesstræti i áttina
til bilskúrsins, réðust margir
menn á hann og særðu hann all-
mikið. Arásarmennimir komust
undan, en meðan bilstjórinn var
fluttur meðvitundarlaus á West-
minster-spitalann, brutust tveir
menn, sýnilega þeir 'sömu og ráð-
ist höfðu á hann, inn I bilskúrinn
og herbergi hans þar. Umsnéru
þeir þar öllu og brutu, án þess þó
að stela nokkru. Það sást til
þeirra, þegar þeir komu út úr bil-
skúrnum, en þeir sluppu burt i
myrkrinu.
— Fari það og veri! sagði Sir
Walter, þegar honum var sagt
þetta. Þetta mál ætlar ekki að
valda mér vonbrigðum. —Einsog
út leit fyrir i fyrstu, er það að
verða eitt hið kynlegasta og
merkilegasta mál, er ég hefi
fengist við.
20. kafli.
Sir Walther efndi orð sin og
ekkert einasta orð kom i blöðun-
um um Las Valdas málið. Gloria
myndi jafnvel halda þvi fram, að
hún hafi verið ástmær greifans til
að Harold losnaði úr fangelsinu.
Lávarðurinn leitaði til frænda
sins og bað hann um að leita einu
sinni enn til lafði Grace.
— Þetta er ekki svo afleit hug-
mynd. Ég fer strax á morgun og
raeði við lafði Grace.-----
Gloria var með yfir fjörutiu
stiga hita og Burnham flýtti sér
heim til hennar. Gloriu, fannst
sem isköld hönd gripi um hjarta
sér. — Fjórtán dagar. Og afritiö
af samningnum var horfið. Hún
rúmföst, varnarlaus — getulaus.
Þrátt fyrir þetta reyndi hún að
brosa.
— Ég skil ekki i þvi, pabbi,
sagði hún og rödd hennar var veik
og óskýr, hvernig á þvi stendur,
að þið þurfið að fara svona leynt
mtíi ráðagerðir ykkar, þótt þær i
raun og veru hafi eigi einungis
fjárhagslega þýöingu, heldur séu
einnig mikilsverðar fyrir alla
þjóðina.
— Það er einmitt vegna þýð-
ingar þeirrar fyrir föðurlandið,
að þær verða að fara leynt. —
Einhvern tima kemur að þvi að
olian stjórni heiminum. Hún er
þegar I dag komin nokkuð á veg
með ráðið yfir heimshafinu og
skipaöfyrirum frið og strið. Eng-
land hefir oröið stórveldi vegna
hinna auðugu kolanáma sinna —
og nú verður það aö fara að sjá
sér farborða á annan hátt, þvi að
innan skamms þrjóta kolin. Hvað
heldur þú, barnið mitt, að þeir
þarna hinum megin við sundið
vildu gefa til þess að vita hvernig
samningur okkar er orðaöur?
Gloria og Grace litu hvor til
annarar, báðar mjög óttaslegnar
við þessi orð föður þeirra. Yngri
systirin, sem ekki hafði jafn góða
stjórn á sjálfri sér og Gloria,
snéri sér undan og fór aö laga
eitthvað til á borðinu, sem lyf ja-
glösin voruá. — Gloria hreyfði sig
ekki — hún leit brosandi til föður
sins.
— Ég get imyndað mér að þú
9
Getraunaspá
Alþýdublaðsins:
Sigur vannst
á 11 rétta
— við með átta rétta og í sókn
Þaö var ekki ofsögum
sagt er viö lýstum því yf-
ir, aö okkur færi fram. I
5. leikviku höfðum við
átta leiki rétta og stefn-
um þvi aö niu réttum
þessa viku og eftir f jórar
vikur verðum viö meö 12
rétta.
I fimmtu leikviku komu
upp átta raðir með 11
rétta og var vinningurinn
49 þúsund krónur* 45
v óru með 10 rétta og
var vinningsupphæðin
3.700 krónur.
Kr. 800
© The Footbali League
Leikir 1. október 1977
Arsenal - West Ham ...
Aston Villa - Birmingham
Bristol City - Q.P.R.
Chelsea - Leeds .
Coventry - W.B.A.
Derby - Middlesbro
Everton - Man. City
Ipswich - Newcastle
Man. Utd. - Liverpool
Nott’m Forest - Norwich
Wolves - Leicester ...
Sheff. Utd. - South’pton
K
1 X 2
L
/
y
l K
/ K £
/ X %
/
t
1
Arsenal-West Ham.
West Ham er heldur á uppleiö, en samt teljum við, að liðið fái
ekki stig á Highbury i Lundúnum. Heimasigur.
Aston Villa-Birmingham.
Villa er afar sterkt lið á heimavelli og útlit er fyrir þvi, að
Birmingham hafi litið á þá að segja á laugardaginn.
Bristol City-QPR.
Leikmenn QPR hafa valdið aðdáendum sinum miklum von-
brigðum i haust. Má telja liklegt að QPR geri sig ánægt með
jafntefli á heimavelli Bristol City og er það spá okkar en til vara
spáum við útisigri. (Fyrsti tvöfaldi leikurinn).
Cheisea—Leeds
Chelsea færir sig smám saman af botninum, tekur stig og stig.
Það er ekki óliklegt að áætla, að liðið nái öðru stiginu á heima-
velli sinum og er spá okkar þvi jafntefli, en heimasigur til vara.
(Annar tvöfaldi leikurinn).
Coventry-WBA
Þessi tvö lið eru i fjórða og fimmta sætinu i fyrstu deildinni
fyrir þessa umferð. Leikurinn verður eflaust harður og mun
hvorugt liðið gefa eftir. Spáin er þvi jafntefli en til vara spáum
við útisigri (Þriðji tvöfaldi leikurinn).
Derby- Midd lesbro.
Derby liðið er mjög slakt og er reyndar i næst neðsta sæti
deildarinnar með aðeins 3 stig af 14 mögulegum. Stuðningsmenn
liðsins krefjast nú sigurs og við spáum þvi, að liðið vinni sinn
fyrsta leik á keppnistimabilinu nú á laugardaginn.
Everton-Manchester City.
Þetta verður harður og skemmtilegur leikur ef að likum lætur.
Everton liðið er til alls liklegt en við spáum þvi samt, að sigur-
ganga City verði ekki stöðvuð að þessu sinni. (Jtisigur.
Ipswich-Newcastle. v
Newcastle situr eitt og yfirgefið á botninum með tvö stig. Liðið
er gersamlega heillum horfið og tapar á laugardaginn.
Manchester United-Liverpool.
Þetta verður að öllum likindum leikur vikunnar. United er
ávallt erfitt heim að sækja en Liverpool má ekkert stig missa i
toppbaráttunni. Jafntefli er þó liklegustu úrslitin en útisigri spá-
um við til vara. (Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn).
Nottingham Forest-Norwich
Forester enn á toppinum, flestum á óvart, og leikur skinandi
góða knattspyrnu. Við spáum þvi að Forest tapi ekki stigi á
heimavelli sinum þó svo Norwich liðið sé hættulegt hverjum sem
er.
Wolves- Leicester.
(Jtlitið hjá Leicester er ekki gott, liðið i þriðja neðsta sæti.
Aðalhöfuðverkur liðsins er vörnin og hefur hinn nýi fram-
kvæmdastjóri liðsins, Frank McLintock, i hyggju að bregöa fyrir
sig betri fætinum og leika með liðinu, en McLintock er gömul
knattspyrnukempa, var m.a. fyrirliði Arsenal, er liðið vann bæði
bikar og Englandsmeistaratitilinn sama árið. En fyrst um sinn
gerir liðið engar rósir og tapar þvi á laugardaginn.
Sheffield United-Southampton.
United bersthatrammri baráttu á botni annarrar deildar,-liðið
er ákaflega lélegt og Southampton verður tæplega i vandræðum
með að knýja fram sigur.
—ATA