Alþýðublaðið - 29.09.1977, Side 12
alþýðu
blaðið
Útgefandi Alþýðuflokkurinn
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Síðumúia 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Askriftarsimi 14900.
FIMMTUDAGUR
29. SEPTEMBER 1977
J
Atvinnumálasyrpa
Alþýðublaðiö hafði í
gærdag samband við
nokkra talsmenn verka-
lýðsfélaga og alþýðusam-
banda víðs vegar um land
og spurðist fyrir um at-
vinnuástand á hverju
svæði. í heildina má segja
að útkoman hafi verið sú
að mikil atvinna sé nú um
land allt/ þó að einstakir
staðir skeri sig talsvert
úr. Flestir kvörtuðu yfir
að atvinna væri of mikil
ef nokkuð væri og álag á
verkafólk því of mikið.
Tekið var þó fram# að
ekki væri hægt að draga
víðtækar ályktanir af at-
vinnuástandi sem
stendur# þar sem slátur-
tið er í fullum gangi og
framkvæmdir í bygg-
ingariðnaði og fleiri
greinum unnar með
hámarksálagi til að Ijúka
sem mestu af fyrir vetur-
inn. En annars fara svör
nokkurra verkalýðsfor-
ingja hér á eftir. _arh.
Ekkert atvinnuleysi
þrátt fyrir
Matthíasargudspjall
— segir Pétur Sigurösson á ísafirði
— Sért þú aö leita eftir at-
vinnuleysissögum hér, þá ertu
kominn i geitarhús að leita ull-
ar, sagöi Pétur Sigurðsson, for-
seti Alþýöusambands Vest-
fjaröa.
— Hér hefur veriö fullt aö
gera, þrátt fyrir aö togararnir
hafi tekið sér frl vegna Matthi-
asarguöspjails. Óhemju vinna
hefur veriö I báöum frystihús-
unum hérna á Isafiröi, og fram-
kvæmdastjóri annars þeirra
sagði mér i gær aö frystihús
hans væri nú rétt á hælum
frystihúss útgeröarfélags
Akureyringa hvaö vinnslumagn
snertir, og það telst afar gott,
miðaö við aö togararnir sem
landa hjá húsinu eru helmingi
færri en Akureyrartogararnir.
Þaö var til dæmis verið að skipa
út um 30 þús. kössum af frystum
fiski hérna i gær og þaö þykir
Pétur Sigurösson
fréttnæmt hjá útvarpinu ef skip-
aö er út 10-11 þús. kössum á
sumum stööum á landinu!
Þaö versta viö þetta er svo
það, aö þegar svona mikil vinna
er áreftir ár, fara menn að taka
þetta sem sjálfsagðan hlut aö
vinna svona lengi. Bæöi langt
fram á kvöld og um helgar. En
einn góöur punktur held ég aö sé
i þessu hérna og hann er, aö
margar húsmæöur vinna hálfan
daginn i frystihúsunum og ná
fullum daglaunum út úr þvi með
bónuskerfinu. Þaö er hægt að
vinna af miklum krafti i stuttan
tima.
Þá hefur verið mannekla i
byggingariönaði hérna og opin-
berar framkvæmdir hafa lik-
lega aldrei veriö meiri en nú.
Hér er byggt sjúkrahús og lagt
slitlag á götur. Hér hefur veriö
vinnuflokkur frá Vita- og
hafnarmálastjórn viö hafnar-
vinnu o.s.frv. Þetta ætti aö lýsa
ástandinu i stórum dráttum.
Stopul atvinna
í Ólafsvík
Gunnar Már Kristó-
fersson. forseti hins ný-
stofnaða Alþýðusam-
bands Vesturlands, sagði
atvinnuástand víðast gott
þar sem hann vissi til, t.d.
væri næg atvinna á
Hellissandi, heimaslóð-
um hans. Hann kvað þó
ekki alveg sömu sögu að
segja um ólafsvík, þar
hafi verið stopul atvinna
sem stafaði að mestu
leyti af hráefnisskorti í
frystihúsinu.
Aöild aö Alþýöusambandi
Vesturlands eiga nú 9 verka-
lýðsfélög, en sambandiö var
stofnaö i marz sl. Enn hafa ekki
öll verkalýösfélög sótt um aöild
aö sambandinu, en Gunnar
sagðist búast viö aö þar myndi
fjölga félögum innan tiöar.
Dagana 16.-18. september
gekkst Alþýöusamband Vestur-
lands fyrir námskeiöi um bók-
hald og skipulag i rekstri verka-
Gunnar Már
lýösfélaga i samvinnu viö
Menningar- og fræöslusamband
alþýöu. Námskeiöiö fór fram i
Borgarnesi og tókst aö sögn vel.
Þátttakendur voru 18 talsins frá
nær öllum aöildarfélögum sam-
bandsins og voru leiöbeinendur
þeir Þórir Danielsson og Guðni
Gústafsson, endurskoöandi.
^ - - .
I—'VM ■ .H B
Lítid um opinberar
framkvæmdir á
Austurlandi
— Ég held að segja
megi að atvinnuástand sé
hér almennt séð gott,
sagði Árni Þormóðsson, á
skrifstofu Alþýðusam-
bands Austf jarða. — Hér
vantar fólk f rekar en hitt,
sérstaklega er mikið um
að vera á meðan á slátur-
tíðinni stendur.
Hér hefur fiskast dálít-
ið misjafnt, en vinna þó
verið nokkuð samfelld í
fiskiðjuverum. En eitt er
þó einkennandi fyrir at-
vinnuástandið í sumar og
það er, að hér er snöggt-
um minna um opinberar
framkvæmdir en áður,
sérstaklega á þetta við
vegageröina Þannig birt-
ist „byggðastef na"
ihaldsstjórnarinnar okk-
ur hérna!
Ungt fólk sækir í að
setjast að á Akureyri
— Hér hefur verið geysilega
mikil vinna og allt of mikil að
mér finnst á sumum sviðum og
hingað vantar vinnuafl fremur
en hitt, sagði Jón Helgason, for-
maður verkalýðsfélagsins Ein-
ingar við Eyjafjörö.
— Hitaveituframkvæmdirnar
hafa auðvitað sett strik i reikn-
inginn hjá okkur og þar hefur
verið unnið af miklum krafti, ó-
eðlilega miklum á stundum.
Þá hefur sjávaraflinn verið
góður og mikil vinna i frystihús-
inu. Það hefur oft ekki náðst að
vinna úr öllu þvi sem berst til
frystihússins og afli verið send-
ur burt til vinnslu. Vinna i
frystihúsinu i sumar hefur oft
veriðfram á kvöld og um helgar
og slikt er auðvitað of mikið
álag til lengdar, sérstaklega
Jón Helgason
þegar þess er gætt að unnið er
samkvæmt bónuskerfi.
Þá hafa byggingafram-
kvæmdir verið miklar og alltaf
hefur vantað menn til vinnu þar,
siðast var verið að auglýsa eftir
byggingamönnum nú á dögun-
um.
Ég hefi orðið var við að hing-
að til Akureyrar hefur sótt ungt
fólk utan af landi i nokkrum
mæli, sem ekki hefur borið á áð-
ur. Þar spilar inn i atvinnu-
ástandið sem hér rikir, ef til vill
hin góða tiö sem hér hefur verið
og fleira. En þegar á heildina er
litið, þá er ég dálitið smeykur
um að svona mikil sveifla i at-
vinnulifi geti haft eftirköst. Það
er betra að hafa þetta minna og
jafnara.
.^•i;________________ ■’ji” - 6* J-'í .':-áiíÍn> i/i • «8
Nóg að
gera á
Á skrifstofu Alþýðusambands
Suöurlands á Selfossi fengust
þær upplýsingar, að þar væri
yfirleitt nóg að gera og á Sel-
fossi stendur nú t.d. yfir slátrun
i tveimur sláturhúsum, hjá
Sláturfélagi Suöurlands og
verzluninni Höfn hf. Viö slátr-
unina vinnur margt fólk úr nær-
liggjandi sveitum, en einnig Sel-
fyssingar, sérstaklega húsmæö-
ur. Þá hefur verið mikil atvinna
i byggingariönaði á Selfossi i