Alþýðublaðið - 19.10.1977, Page 3
Ejiaíft8 Miðvikudagur 19. október 1977
Barnaverndarfélag Reykjavíkur;
Stofnar leidbeininga
stöð fyrir unglinga
Stjórn Barnaverndarfélag Reykjavlkur f.v. Sigurjón Björnsson formaöur, Ingi Karl Jóhannesson
frkv.stjóri, Kristinn Björnsson formaöur Landssambands I.B. Pállna Jónsdóttir og Sigríöur Sumarliðad.
Starfsemi Landssam-
bands islenzkra barna-
verndarfélaga hefur verið
með miklum blóma að
undanförnu og nægir þar
að minna á verkefni þau
sem unnin hafa verið undir
einkunnarorðunum
//Byrgjum brunninn"/ sem
greint hefur verið frá í
f jölmiðlum.
Barnaverndarfélag
Reykjavíkur hefur ekki
látið sitt eftir liggja m.a.
með aðstoð við afbrigðileg
og taugaveikluð börn og
nú síðast hefur verið tekin
sú ákvörðun/ að gangast
fyrir stofnun leiðbein-
ingastöðvar fyrir ung-
linga.
A fundi sem stjórn félagsins
hélt með fréttamönnum i gær, til
að kynna þessa hugmynd, kom
fram að hugsunin að baki stofn-
unar stöðvarinnar er sú, að vinna
fyrirbyggjandi starf, i samvinnu
við ýmsa aðila i þjóðfélaginu svo
sem á vinnumarkaði, i skólakerfi
og viðar.
Sigurjón Björnsson formaður
Barnaverndarfélags Reykjavikur
kvaðst vilja benda á, að það væri
staðreynd, að þær ráðstafanir,
sem gerðar hefðu verið fram að
þessu hefðu ekki dugað sem
skyldi, þar sem vandamálið væri
enn fyrir hendi. Það tilheyrði
vissum aldri, að unglingar ættu
erfitt með að leita til sinna nán-
ustu várðandi ráðleggingar, og
með það i huga hefði félagið
ákveðið, að koma upp einskonar
miðstöð, þar sem tilteknir aðilar
væru til taks, svo sem félagsráð-
gjafi, sálfræðingur o.fl. starfs-
fólk.
Stofnunin yrði siðan rekin á
frjálsum ráðgjafagrundvelli;
þangað yrði ekki komið með
neinn, heldur væri hverjum
frjálst að leita aðstoðar og ræða
sin mál.
— Okkur leikur nokkur hugur á,
að hafa stöðina ekki aðeins
opna á venjulegum skrif-
stofutima, sagði hann enn-
fremur, heldur einnig á öðr-
um timum sólarhringsins. Sam-
vinna við lögreglu gæti vel komið
til greina, og þangað væri t.d.
hægt að færa unglinga, sem væru
illa á sig komnir að einhverju
leyti.-
Þá kom auk heldur fram, að
ætlunin er ekki aðeins að leysa úr
svokölluðum innri vandamálum
þeirra sem kynnu að vilja
leita til stöðvarinnar, heldur
einnig veita ýmiskonar fyrir-
greiðslu, svo sem varðandi
námsval, atvinnu, tóm-
stundir o.fl. Þjónustuna er ekki
fyrirhugað að einskorða við ung-
linga, heldur geta foreldrar einn-
ig leitað til stöðvarinnar með
vandamál sem upp kunna að
____________________________3
koma milli þeirra og barna.
Fjármögnun starfseminnar
verður hagað þannig, að stjórn
Heimilissjóðs B.R. hefur ákveðið
að verja þvi fé, sem er i eigu hans
til húsnæðiskaupa. Einnig hefur
barnaverndarfélagið ákveðið að
hefja fjársöfnun, og er það þvi
undir vilja almennings komið,
hvort af stofnun þessarar stöðvar
verður eða ekki.
Þannig verður hafin sala á
endurskinsmerkjum félagsins á
föstudag, siðasta sumardag og
stendur hún einnig yfir á laugar-
dag. Merkin verða afhent sölu-
fólki á afgreiðslum siðdegisblað-
anna báða dagana, en þau er
einnig hægt að fá á skrifstofu fé-
lagsins að Skólavörðustig 2. Þá
verður barnaritið „Sólhvörf”
einnig til sölu á barnaverndar-
daginn, en það inniheldur að
venju létt og fræðandi efni fyrir
börn.
-JSS
Litasjónvörp
færa ríkinu
245 milljónir
i fjárlagafrumvarp-
inu fyrír næsta ár
kemur meðal annars
fram/ að vegna aukins
innflutnings á litasjón-
varpstækjum/ er áætl-
að að aðflutningsgjöld
af sjónvarpstækjum
aukist um 245 milljónir
króna og verði 340
milljónir.
Aiþýðublaðið
á hvert heimili
LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER
Keramik
VEGGFUSAR
rtalskar og spænskar—
Glæsilegirlitir
GÓLFDÚKUR
Vynil gólfdúkur—Allar tegundir
VEGGFÓÐUR
Vynil veggfóöur—Nýirlitir
. GÓLFTEPPI ;>
Stórkostlegt úrval
////
MAGNAFSLÁTTUR
VEITTUR
Hreyfílshúsinu—Grensásvegi 18—Sími 8-24-44
LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LIT/ÍVER