Alþýðublaðið - 19.10.1977, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 19.10.1977, Blaðsíða 4
4 Miðvikudagur 19. október 1977 ssssr Otgefandi: Alþýöuflokkurinn. Hekstur: Iteykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Árni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsími 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö 1500krór.ur á mánuöi og 80 krónúr i lausasölu. ATVINNULÝÐRÆÐI — NÝR ATKVÆÐISRÉTTUR Islendingar hafa lengi verið forvitnir um hagi annara. Bæði nágranna sinna og ekki síður þeirra, sem fjarri búa. Lengi vel urðu landsmenn að láta sér nægja að styðjast við skrifaðar f rásagnir og gera sér svo í hugarlund hvernig um- horfs væri. Gjarna hugsuðu menn svo með sér hvernig skyldi nú vera að búa þarna. Þessa sömu forvitni um annara hagi hafa landsmenn varðveitt fram á líðandi stund og enn leiða menn gjarna hugann að því hvernig það skyldi nú vera að lifa og starfa við þær^aðstæður, sem lýst er. ,,Á einum stað býr ágæt þjóð, sem um er vert að ræða...", eins og segir í alþekktu kvæði. Fólkið þar er duglegt, vel upplýst og vinnusamt. Menning er þar einnig á háu stigi, skólavist yfir- leitt ókeypis og félagsleg samhjálp mikil. I stuttu máli sagt þokkaleg vel- ferð. Engu að siður er það nú svo með þetta fólk, að aðeins 8—10% þess hefur rétt til þess að greiða atkvæði og ákvarða. Það breytir engu þar um, þótt ákvarðanirnar kunni að ráða úrslitum um hag hinna 90%. Fyrir langa löngu komust menn með þessari þjóð nefnilega að þeirri niðurstöðu, að það að stjórna væri svo ábyrgðarmikið starf, að engum væri treystandi til að öðlást þar aðild að nema þeim, sem ættu eignir. Þeir, sem ekki áttu nógu mikið eða ekki alveg tilteknar eignir, fengu ekki ,,að kjósa". Þeir voru ekki nógu ábyrgir, ekki nógu traust- verðugir. Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan þetta fyrirkomulag mótaðist. Oti í hinum stóra heimi hafa miklar breytingar orðið í slíkum málum, einkum þó og sér í lagi í næstanágrenni viðumrætt þjóðland. En allar þær breytingar hafa farið fram hjá umræddri þjóð, án viðkomu. Þar er mál- um enn svo varið, að at- kvæðisrétturinn fæst aðeins keyptur fyrir pen- inga. I hæsta lagi 10% þjóðarinnar eiga þann rétt. 90% landsmanna eru algerlega áhrifalaus. Þeir þjóðfélagsþegnar eiga ekki nóg fyrir at- kvæðinu. Hvar skyldi umrædd þjóðeiga heima? Hvernig skyldi vera umhorfs í slíku landi? Þjóðin á heima á (slandi. Umhverfið er daglegt umhverfi okkar (slend- inga. Nú gætu menn sjálfsagt haldið að f arið væri að slá út í fyrir Alþýðublaðinu. Svo er þó ekki. Hér er Alþýðublaðið ekki að ræða um atkvæðisrétt landsmanna í stjórnmál- um — heldur um rétt fólks til áhrifa í atvinnu- málum, á málefni fyrir- tækja sem það starfar hjá. Á sama tímá og nágrannaþjóðirnar hafa á umliðnum áratugum smátt og smátt verið að ekki fyrir að fara í mál- efnum atvinnulíf sins. Þar er enn ríkjandi það skipulag að einungis þeir, sem eiga eignir, njóta at- kvæðisréttar. Allir aðrir eru réttleysingjar, at- kvæðalausir hlutleysingj- ar, sem ekkert fá til haf a ekki áður haft. Þessi frumvörp eru fyrstu skrefin í átt til atvinnu- lýðræðis. Með þeim er verið að fá 90% lands- manna í hendur mannréttindi, sem þeir hafa ekki áður notið. Nýjan atkvæðisrétt. Eitt af fyrstu verkum Alþýðuflokksins eftir að flokkurinn fékk kjörna menn á þing var að afnema úr lögum þau ákvæði, að atkvæðisrétt- ur í pólitískum kosning- um skyldi háður því hver væri efnahagur viðkomandi. Nú hefur Alþýðuf lokkurinn frum- kvæðið í baráttunni fyrir, að atkvæðisréttur í málefnum atvinnulífsins innleiða sambærileg lýðræðisleg viðhorf og vinnubrögð í atvinnu- og efnahagslíf og tíðkast í félags- og stjórnmálum höfum við Islendingar látið þau mál alveg af- skiptalaus. Niðurstaðan er sú, að á sama tíma og lýðræðislegar framfarir þafa orðið í stjórnmálum og félagsmálum er slíku málanna að leggja. Og at- kvæðisrétturinn fæst ein- ungis keyptur fyrir pen- inga. Þingmenn Alþýðu- flokksins hafa nú lagt fram á Alþingi fjögur lagaf rumvörp, sem öll eru á þá lund að fá launþegum í hendur íhlutunarrétt um málefni atvinnulífsins, sem þeir sé ekki takmarkaður við hlutafjáreign eða sam- bærilegar eignir. Það fer vel á því, að flokkurinn, sem færði íslenskri alþýðu óskoraðan at- kvæðisrétt í stjórnmálum sé í fararbroddií sókninni fyrir þvi að færa alþýðunni sambærileg réttindi í atvinnu- og ef nahagsmálum. SB AF NÝJUM BOKUM HEIMALIST Ný lista- — frá Máli og menningu Nýkomin er út á islenzku hin vlökunna listasaga Heimslist — Heimalist (Hverdagskunst- Verdenskunst) eftir R. Broby- Johansen. Bók þessi hefur áöur veriö gefin út á flestum Evrópu- málum. Björn Th. Björnsson hefur þýtt bókina og ritað eftir- mála um höfundinn og verk hans. I bókarkynningu segir m.a.: Broby-Johansen skrifar ekki fagmál fyrir fagmenn, heldur talar hann viö lesandann á ljósu og óhátfðlegu máli. Hvarvetna er spenna i frásögn R- Broby-Johansen HEIMSLIST- HEIMALIST MAL OO MENNINQ hans, full af hugkvæmni og hnyttni. Broby-Johansen horfir frá allt öðru sjónarmiði en tiöast hefur verið i ritum um lista- sögu. Hann litur ekki á listina ofan frá, sem einangraö fyrir- bæri á hverjum tima, heldur úr sjónarhorni lifandi og striðandi samfélags. 1 augum hans eru hversdagslegustu nytjahlutir jafnmikilvæg birting stils og tima sem listaverk snillinga. Heimslist-Heimalist er prýdd hundruöum mynda, þ.á.m. mörgum litmyndum. Ótgefandi er Mál og menning. Mál og menning: Elsku Míó minn Nýkomin er út barnabókin Elsku MIó minn eftir Astrid Lindgren i þýðingu Heimis Pálssonar. Elsku Mió minn er ævintýrasaga og svipar þannig talsvert til sögunnar Bróöir minn Ljónshjarta sem kom út i fyrra. * Sagan var lesin i Morgun- stund barnanna i Rikisútvarp- inu fyrir nokkrum árum. Bókin er prýdd mörgum myndum eft- ir sænsku listakonuna Ilon Wik- land. Útgefandi er Mál og menning.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.