Alþýðublaðið - 19.10.1977, Síða 5
5
nMiviftir
iliíiitlt Miðvikudagur 19. október 1977
Gunnar S. Björnsson:
P í
Möguleikar á lánsfé til
iðnfyrirtækja og idngarða
— sjóðir og lánastofnanir iðnaðarins
Elztur og öflugastur þessara
sjóða nú er Iðnlánasjóður. Hlut-
verk sjóðsins er að veita stofn-
lán vegna vélakaupa, byggingar
verksmiðju- og iðnaðarhúsa,
endurskipulagningar iðnfyrir-
tækja og hagræðingar i iðn-
rekstri.
Vélalán eru veitt lengst til 5 —
7 ára með 14% vöxtum ásamt
20% visitöluálagi af hækkun
byggingarvisitölu. Byggingar-
lán eru veitt lengst til 15 ára.
Vextir 11.5% ásamt 50% visi-
töluálagi af hækkun byggingar-
visitölu. Heildarútlán sjóðsins, I
árslok 1976 námu 1.947 millj. kr.
þar af eigið fé 1.300 millj. kr. I
lögum sjóðsins er kveðið á um
það, að þeir aðilar, sem greiða
iðnlánasjóðsgjald af rekstri sin-
u, skuli að öðru jöfnu hafa for-
gang að lánum frá sjóðnum
vegna mjög mikillar eftirspurn-
ar eftir lánum, en hún hefur
verið t.d. árið 1975 1.827 millj.
kr.
Ráðstöfunarfé sjóðsins var þá
531 millj. kr. Árið 1976 var eftir-
spurn 2.656 millj. kr. en ráðstöf-
unarfé 740 millj. kr. A þessu ári
er reiknað með, að eftirspurn
verði um 4.900 millj. kr. ráðstöf-
unarfé er hins vegar 1.218 millj.
kr. Þótt reiknaö sé með að 20%
af umsóttu fjármagni sé ekki
lánshæft, er sjóðurinn þó ekki
með nema 1/3 af umsóttu fjár-
magni til ráðstöfunar. Af þess-
um sökum hefur svo farið, að þó
lög sjóðsins heimili lánveitingat
til annarra en þeirra, sem
greiða gjald til sjóðsins, hafa
aörir aðilar nánast enga mögu-
leika til þess aö hljóta lán nema
um ný fyrirtæki sé að ræða, sem
auðsjáanlega verða gjaldskyld
á iðnlánasjóðsgjaldi.
Iðnlánasjóður hefur heimild
til aö lána allt aö 60% af fjár-
festingarkostnaði bæði er varð-
ar vélar og byggingar.
Nú á seinni árum hefur sjóð-
urinn gert meiri kröfur um góöa
rekstrarafkomu fyrirtækja og
að þau sýni fram á nauðsyn fyr-
irtækis fyrir fjárfestingu. A
næstu árum mun sjóðurinn gera
enn meiri kröfur varðandi slikt,
sérstaklega ef um meiriháttar
fjárfestingar er að ræða.
Aðsetur sjóösins er i Iðnaðar-
bankanum, en bankinn sér um
daglegan rekstur sjóðsins sam-
kvæmt sérstökum samningi.
Iðnþróunarsjóður
Sjóðurinn var stofnaður árið
1970 við inngöngu íslands i
EFTA og lögðu frændur okkar á
Norðurlöndum fram stofnfé
sjóðsins að jafnvirði 14 millj.
Bandarikjadollara. Iðnþróunar-
sjóður hefur þrengra verksvið
en Iðnlánasjóöur þar sem hann
lánar einungis til framleiðslu
iðnaðar, sem keppir við inn-
flutning. 011 lán sjóðsins eru að
fullu gengistryggð og hefur sú
trygging reynzt ýmsum fyrir-
tækjum þung I skauti sérstak-
lega á þvð viö ef um vélalán hef-
ur verið að ræða. Sjóðurinn hef-
ur lánað allt uppi 70% af fjár-
festingu enda verið kröfuharð-
ari varðandi undirbúning fjár-
festingar, arðsemisútreikninga
og greiösluáætlana. Útlán sjóðs-
ins hafa verið 1975 631 millj. kr.
1976 557 millj. kr. og á þessu ári
560 millj. kr. (áætlun).
Byggðasjóöur
Sjóðurinn tók til starfa i árs-
byrjun 1972. Hlutverk sjóðsins
er að stuöla að jafnvægi i byggð
landsins, með þvi að veita fjár-
hagslegan stuðning til fram-
kvæmda og eflingar atvinnulifs
með hliösjón af landshlutaáætl-
unum. Byggöasjóður er frá-
brugðinn Iönlánasjóði og Iðn-
þróunarsjóði að þvi leyti, að
verksviö hans er utan Reykja-
vikur og að mestú Reykjaness
og lánshæfar eru framkvæmdir
til eflingar atvinnulifs á við-
komandi stöðum. Hlutdeild
Byggðasjóðs i lánveitingum til
iðnaðar nam á árinu 1975 206
millj. kr. og á árinu 1976 111
millj. kr. Um siðustu áramót
námu heildarlán sjóösins til iðn-
aðar 865 millj. kr. eða 16.9% af
höfuðstól sjóðsins. Lánskjör
Byggöasjóðs eru 12% vextir,
lánstimi 4-12 ár, einnig endur-
lánar sjóðurinn erlend lán með
9% vöxtum og að fullu gengis-
tryggð. Lánstimi er 10-12 ár.
Lán stjóðsins hafa numiö um 20-
25 kr. eða 16.9% af höfuöstól
sjóðsins. Lánskjör Byggðasjóðs
eru 12% vextir, lánstimi 4-12 ár,
einnig endurlánar sjóðurinn er-
lend lán með 9% vöxtum og að
fullu gengistryggð. Lánstimi er
10-12 ár. Lán sjóðsins hafa num-
ið um 20-25% af fjárfestingar-
kostnaði. Byggðasjóður er undir
stjórn Framkvæmdastofnunar
rikisins og hefur aðsetur sitt
þar.
Iðnrekstrarsjóður
Hlutverk hans er nánast það
sama og Iðnþróunarsjóös nema
að þvi leyti, að starfsemi sjóðs-
ins er eingöngu bundin útflutn-
ingsiðnaði, og hann má kaupa
og selja hlutabréf i iðnfyrirtækj-
um. Ariö 1976 veitti sjóðurinn
lán að upphæð 43 millj. kr. og
styrki að upphæð 42 millj. kr.
Einnig voru keypt hlutabréf fyr-
ir 7 millj. kr. Vextir af lánum
sjóðsins eru 13%. Lánstimi 5-8
ár.
utf lutningslánas jóður
Sjóðurinn tók til starfa 1971.
Stofnfé sjóðsins er 195 millj. kr.
en stofnaöilar eru Seðlabanki,
Landsbanki og Iönlánasjóður
Hlutverk sjóðsins er:
a) Að veita lán vegna útflutn-
ings meiriháttar véla- og
tækja sem framleidd eru inn-
anlands.
b) Að veita samkeppnislán, þar
er lán til innlendra aöila er
kaupa vélar og tæki, sem
framleidd eru innanlands. A
árinu 1976 veitti sjóðurinn
samkeppnislán að f járhæð 219
millj. kr. Vextir af lánum
sjóðsins eru 15 3/4%. Láns-
timi 1-5 ár. Sjóðurinn hefur
aðsetur hjá Landsbanka Is-
lands.
Ég hef hér á undan gert laus-
lega grein fyrir starfsemi þeirra
stofnlánasjóða, sem iðnfyrir-
tæki geta sótt til með lánsum-
sóknir. Auk þessara sjóða er
vert að geta hlutverka Fram-
kvæmdasjóðs og Fjárfestinga-
félags Islands. Framkvæmda-
sjóður hefur veitt einstök lán, en
að öðru* leyti er aðalhlutverk
hans að veita fé til sjóða at-
vinnuveganna. Fjárfestingafé-
lagið hefur veitt nokkur lán til
iðnfyrirtækja, en aðallega hefur
það haft milligöngu um leigu-
kaup á iðnaöarvélum.
Af framansögðu er ljóst, að
þeir sjóðir, sem veröa einhvers
megnugir varðandi lánafyrir-
greiðslu til iðnaðar almennt á
næstu árum eru Iönlánasjóöur,
Iðnþróunarsjóður og Byggöa-
sjóður. Af þessum sjóðum ber
þó Iðnlánasjóð langt hæst, og vil
ég þvi fara nokkrum oröum
nánar um hann. Þó útlánageta
sjóðsins sé á þessu ári rúmar
1.200 millj. kr. er ljóst, að ef á að
gera eitthvað raunhæft i upp-
byggingu iðnaöar á Islandi,
þarf að stórefla út'.ánagetu
sjóðsins. Vekur það furðu
þeirra, sem til þekkja, að ekki
skuli vera búið að gera meira i
þeim efnum þegar, sjóðurinn er
einn af þeim fáu fjárfestinga-
lánasjóðum, sem hafa aukiö
eigið fjárhlutfall sitt á undan-
förnum árum, og má þar þakka
framlagi iðnaðarins sjálfs til
sjóðsins og raunhæfri ávöxtun
hans. Samkvæmt áætlun sjóðs-
ins fyrir árið 1978 má búast við,
að umsóknarf járhæðir verði um
6.800 millj. kr. Eigiö fé sjóðsins
verði 1.060 millj. kr. og er það
um 38% auking eiginfjár frá
1976. Ef reiknað er með 80% af
eftirspurn séu raunhæfar um-
sóknir eða 5.440 millj. kr. vantar
4.380 millj. kr. til þess að sjóður-
inn geti sinnt raunhæfri eftir-
spurn. Að mati sjóðsstjórnar er
algjört lágmark að geta sinnt
um 40-45% af eftirspurn eða að
sjóðurinn hefði á að skipa fjár-
magni að upphæð 2.700-3.000
millj. kr. Þar að auki má búast
við, að nú siðast á þessu ári
safnist mjög mikiö fyrir af um-
sóknum, sem afgreiða verði af
fjármagni næsta árs. Stjórn
sjóðsins setur nú traust sitt á
iðnaðarráðherra varðandi efl-
ingu sjóðsins, en ráðherra hefur
i verki sýnt, að hann vilji efla
hann sem mest, t.d. var ríkis-
framlag til hans þrefaldaö á
þessu ári úr 50 millj. kr. i 150
millj. kr.
Eg hef einnig verið beðinn aö
gera lauslega grein fyrir mögu-
leikum á lánsfjármagni i iön-
aðaruppbyggingu. Iðngaröar,
sem byggðir væru upp af bæjar-
og eða sveitarfélögum heföu
ekki möguleika á aö fá lán nema
úr Byggðasjóði og Fram-
kvæmdasjóði. Iðnlánasjóöur
gæri ekki lánað bæjar- eða
sveitarfélögum beint vegna
þeirra ástæöna, sem ég hef rak-
ið hér að framan, þó gæti hann
að sjálfsögðu lánað þeim iðn-
fyrirtækjum, sem mundu kaupa
slikar bygginhar, sem þannig
væru byggðar. Ef aftur á móti
nokkur iðnfyrirtæki mundu
sameinast um byggingu slikra
iðngarða, væru þau að sjálf-
sögðu lánshæf hjá sjóðunum
samkvæmt þeim reglum, sem
þeir starfa eftir. Vissulega væri
bygging iðngarða af hálfu bæj-
ar- og sveitarfélaga mjög já-
kvæð, sérstaklega ef fyrirtækj-
um gæfist kostur á að ganga inn
i slikar byggingar á leigukaupa-
samningi. Þá væri þeim ekki
iþyngt of mikið met stofnkostn-
aði.
Þessvegna væri mjög æski-
legt, að Framkvæmdasjóður
lánaði ákveðna fjárhæð til t.d.
Iönlánasjóðs, sem siðan endur-
lánaði til þeirra bæjar- og sveit-
arfélaga, sem réðust i slikar
framkvæmdir. Að ég nefni Iðn-
lánasjóð sem millilið i þessu
efni, er, að hann er sá sjóður,
sem mest kemur til með að
fylgjast með vexti og framgangi
i iðnaöi á næstu árum og mun
þvi hafa bezta þekkingu á þörf-
um fyrir slika fyrirgreiðslu og
hvar hún kæmi aðmestum not-
um fyrir iðnaöinn og þjóðina i
heild.