Alþýðublaðið - 19.10.1977, Qupperneq 6
6
AAiðvikudagur 19. október 1977
Af nýjum bókum
Smáauglýsingahappdrœtti
Magnús Magnússon:
Ný bók um nor-
ræna víkinga
Bókailtgafan Om og örlygur
hefur gefiö út á islenzku bókina
Hamar Þórs eftir Magnús
Magnússon en forlagiö gaf hana
út i fyrra á ensku og nefndist
hún á frummálinu Hammar of
the North. Bókin er prýdd 120
litmynda sem teknar voru af
hinum kunna ljósmyndara,
Werner Forman. Dagur Þor-
leifsson þýddi bókina á Islenzku.
„Þetta var óvenjulegt og
ævintýralegt framtak. 1 einu
vetfangi, aB þvi virtist, uröu
noröurhöfin morandi af renni-
legum, borölágum sjóræningja-
fleytum meö gapandi höföum og
ginandi trjónum, og mannaöar
voru þær liöi svo hugrökku og
grimmu, aö þaö lét ekkert aftra
sér og virtist meö öllu ósigr-
andi.”
Meö þessum oröum lýsir
Magnús Magnússon þeim gifur-
lega þrótti, er einkenndi
útþenslu noröurlanda-
búa á vikingaöld. A þeim tima
námu þeir Grænland, Nor-
mandi og hálft England,
stofnuðu mikilvægar verslunar-
miöstöövar i Rússlandi og I
vestri létu þeir ekki staöar num-
ið fyrr en á ströndum Norður-
Ameriku. Höfundurinn hefur
kynnt sér efnið vandlega og
fjallar um þaö af djúpri samúö,
enda sýnir bókin norræna menn
i nýrri og hrifandi mynd. Lengi
hefur þaö veriö venja, að menn
hafi sett sér vikingana fyrir
sjónir sem villtan heiðingja-
múg, en sú lýsing er tilbúningur
skömmóttra miöaldamunka,
sem rómantisk þjóöernishyggja
Þjóöverja, mögnuöu af óperum
Wagners, hefur ýtt undir. t bók
Magnúsar Magnússonar er
rækilega flett ofan af þeim
skröksögum. Aðaltexti bókar-
innar er aukinn og endurbættur
með yfir hundrað og tuttugu
ljósmyndum, sem hinn heims-
þekkti ljósmyndari Werner
Forman hefur tekiö. Þær eru
mikið framlag til skýringar á
átrúnaöi og hetjulegum löngun-
um þess furöulega fólks, sem
norðurlandamenn Vikingaaldar
Magniis Magnússon
voru, sem og öörum þeim
ástæöum er knúöu þá til at-
hafna. Myndirnar sýna lesend-
um tiguleg langskip, dularfulla
rúnasteina og skartgripi gerða
af furðulega flókinni og marg-
brotinni list. Þessi mikilvægu og
tjáningarriku listaverk sýna vel
þann þróttmikla átrúnað, sem
er innblásturinn að fornsögum
Islendinga. í bókinni fer saman
snildarleg, ljóslifandi athugun
og gagnger skilgreining á sögu
vikinga, goðafræöi þeirra og
ljóðlist, enda er bókin skýr frá-
sögn af trúarbrögðum og lffssýn
vikingaþjóöanna. Þar koma
Framhald á bls. 10
Ein hinna frábæru mynda sem skreyta bókina
Hreyfimynda-
bók um Padd-
ington
Nú er kominn á markaö allný-
stárleg bók sem bókaútgáfan
öm og örlygur sendir frá sér.
Hún sameinar þaö aö vera
hvorttveggja i senn, bók og leik-
fang. Hér er um að ræöa söguna
um hrakfallabákinn PADDING-
TON, sem börn og fullorönir
kannast við úr sjónvarpinu.
Bókinerfagurlega myndskreytt
og prentuö i mörgum litum en
margar myndanna eru þannig
gerðaraöhægt er aðhreyfa þær
á ýmsa vegu og gæöa söguper-
sónurnar auknu lifi. Auk þess
sem hægt er aö hreyfa ýmsa
myndhlutanna spretta enn aðr-
ar þeirra ipp af siöunum þannig
aö barniö fær allt i einu heilu
herbergin og húsin til þess að
leika sér við.
MIOIMXliOSi
IVOM N\fK)l»
ri í
Hreyfimyndabókin um Padd-
ington er þýdd af Stefáni Jök-
ulssyni. Hún er filmusett I
prentsmiðjunni Odda hf. en
prentuð i Singapore.
Skák fyrir
unga byrjendur
i þýðingu Guðmundar Amlaugssonar
Bókaútg. öm og örlyg-
ur hefur sent á markað
kennslubók i skák sem
Guðmundur Arnlaugs-
son þýddi. Bókin nefn-
ist SKÁK fyrir unga
byrjendur — ný aðferð
til að læra að tefla. Bók
þessi hefur þegar náð
gifurlegri útbreiðslu
erlendis.
Kennsluaðferð bókar-
innar er með nýstár-
legum hætti. Rætt er
um einn mann i senn og
sýndur f jöldi skemmti-
legra leikja til þess að
æfa sig á. Á bókarkápu
segir að ef fylgt sé leið-
beiningunum stig af
SNIÁA UGL ÝSINGAHAPPDRÆTTI
17. okt. - 20. nóv.
Ein greidd smáauglýsing
og þú átt vinningsvon!
20" LlTSJÓNVARPSTÆKl
að verðmœti kr. 249.500
frá GUNNARI ÁSGilRSSYNI HF.
er vinningurinn að þessu sinni
Smáauglýsingamóttaka er i sima 86611
virka daga kl. 9-22
Laugard. kl. 10-12 Sunnud. kl. 18-22
VISIR
stigi þá geti byrjendur
strax náð tökum á
leiknum og orðið slyng-
ir skákmenn.
Skák fyrir unga byrj-
endur er rikulega
skreytt skýringamynd-
um og eru þær teiknað-
ar á táknrænan og um
leið skemmtilegan hátt
og þannig úr garði
gerðar að þær laða fólk
ósjálfrátt til frekari at-
hugunar.
SKÁK fyrir unga byrj-
endur er filmusett i
prentsmiðjunni Odda
hf. en prentuð hjá Coll-
ins i London.
alþýöu
Auglýsinga-
siminn er
14906